Morgunblaðið - 04.08.1984, Blaðsíða 20
AUK hf 15 114
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1984
VARA-
HLUTIR
FYRIR
HE5TA!
Fjölbreytni þjónust-
unnar í Þyrli er við
brugðið. Ekki er nóg með
að við þjónum sælkerum,
ferðalöngum, veiði-
mönnum og bílstjórum,
heldur eru reiðmenn og
hestar þeirra líka sér-
stakir aufúsugestir. Hjá
okkur fá þeir nefnilega
helstu varahluti s.s.
skeifur, hóffjaðrir, tauma
og beisli. Skeiðum að
Þyrli.
Veitingastofan
Þyríll
Opið frá kl. 8:00 til 23:30
Sími 93-3824
Sprengjan falin
í ferðatösku?
Vladras, Indlandi. 3. ágúst. AP.
ÖFLUG sprengja, sem varð 25
manns að bana og særði fjölda
manns á flugvellinum í Madras að-
faranótt fimmtudags, var trúlega fal-
in í ferðatösku, eftir því sem lög-
reglumenn telja.
Þá hefur komið fram, að þríveg-
is var hringt á flugvöllinn til þess
að vara við því að sprengja væri
þar innan húss. Því var hins vegar
ekki sinnt þar eð algengt er að fólk
hringi og segi frá sprengjum sem
alls ekki eru til staðar.
Talsmaður flugvallarstjórnar-
innar sagði slík sprengjugöbb vera
algeng, eitt til tvö í viku hverri og
það hefði því reynst ógerlegt að
ryðja bygginguna í hvert skipti.
Sprengingin var geysiöflug,
heill veggur hrundi til grunna og
loftið féll. Eigi er vitað með vissu
hversu margt fólk var þarna sam-
an komið, enn er leitað í rústunum
og talið öruggt að fleiri lík muni
finnast.
Mörg þeirra sem komið hafa í
leitirnar hafa verið hroðalega út-
leikin, sundurtætt og útlimalaus,
svo kröftug var sprengjan.
Barði og rændi
103 ára konu
Birmingham, 3. ágúst. AP.
HIN 103 ára gamla langamma
frú Rosina Titmus varð fyrir
heldur óskemmtilegri reynslu í
gærkvöldi. Hún kom þá að inn-
brotsþjófi í íbúð sinni og sá
barði hana ilia og sparkaði í
hana. Síðan stal hann 160 pund-
um sem frú Titmus hafði ætlað
sér að greiða með reikninga.
Frú Titmus er aðeins 150 senti-
metrar á hæð, er hálfheyrnarlaus
og gengur við göngugrind. Þjófinn
sagði hún hafa verið ungan mann
Sovétríkin:
Friðarsinni
í svartholið -
Moflkvu, 3. ágúst. AP.
SOVÉSKUR friðarsinni, fé-
lagi í einu óopinberu frið-
arhreyfingu Sovétríkjanna
sem vitað er um, var settur á
bak við lás og slá í dag og
þar má hann dúsa í 15 daga.
Var hann sakaður um og sek-
ur fundinn að hafa þverskall-
ast við lögreglumenn sem
reyndu að handtaka hann.
Málið hófst er friðarsinninn,
Nikolai Khramov, var kvaddur í
herinn. Vildi hann ómögulega í
þá stofnun ganga og var hann
handtekinn er slagsmál upphóf-
ust milli lögreglumanna og hans
er átti að neyða hann í læknis-
skoðun. Khramov fékk ekki að
verja hendur sínar og félagar
hans sögðu vestrænum frétta-
mönnum að hann hefði mátt
sæta ofsóknum upp á síðkastið,
hann hefði t.d. áður verið úr-
skurðaður óhæfur til herþjón-
ustu vegna lélegrar sjónar.
um tveir metrar á hæð. „Ég gekk í
flasið á honum er ég fór inn í eld-
húsið til að fá mér vatnsglas.
Hafði hann engin umsvif, hristi
mig ofsalega, kýldi mig og kastaði
mér svo í gólfið og sparkaði í mig
liggjandi," sagði frú Titmus. Hún
var flutt á sjúkrahús og var þar
gert að meiðslum hennar. Mest
voru það marblettir á öxlum, hálsi
og baki, en einnig skurður á hálsi
sem sauma þurfti með fáeinum
sporum. Er talið að hringur á
hendi ræningjans kunni að hafa
veitt sárið.
„Ég reyndi að berjast á móti, en
það þýddi ekkert, ég hafði ekki roð
við honum," bætti frú Titmus við
og gat þess að lokum að hún von-
aðist til að jafna sig fullkomlega
og fá peninga sína aftur.
Oeirðir í
Kasmír
Nýju Delhi, 3. ágúst. AP.
MARGIR hafa fallið í miklum átökum
í Kasmír og hundruð slasast, m.a. tugir
lögreglumanna.
Útgöngubann hefur verið í gildi í
höfuðborginni, en oft hefur slegið í
brýnu vegna valdabaráttu á fylkis-
þinginu.
Æstur múgur hefur grýtt hús
G.M. Shah forsætisráðherra, sem
sigraði andstæðinga sína i atkvæða-
greiðslu á þingi.
Lögreglumenn og slökkviliðsmenn kanna skemmdir í inngangi aðalstöðva
Geimvísindastofnunar Evrópu í París eftir sprenginguna í gær.
París:
Róttækir sprengja
geimvísindastöð
Parífl, 3. ágúst. AP.
ÖFLUG sprenging varð fyrir
utan höfuðstöðvar evrópsku
geimvísindastöðvarinnar í
París seint á fimmtudags-
kvöld. Sex manns slösuðust í
sprengingunni og er bygging-
in mjög illa farin.
Hópur franskra róttæklinga
sem kallar sig „Beinar aðgerðir"
hefur lýst sig ábyrgan fyrir •
sprengingunni og skildi hópur-
inn eftir skilaboðin „stríð gegn
stríði", rituð með rauðri máln-
ingu á veggi höfuðstöðvarinnar.
Afl sprengingarinnar var
slíkt, að rúður brotnuðu í öllum
húsum í nágrenni byggingarinn-
ar og 12 bílar, sem lagt hafði
verið við götuna, eyðilögðust.
Hópurinn hefur lýst sig ábyrg-
an fyrir mörgum sprengingum í
opinberum byggingum undan-
farin ár.
Danmörk:
Áframhaldandi meðbyr
hjá stjórn Schliiters
Kaupmannahörn. 3, ígunt. Frá fréttaritara Morgunblaöainn, Ib Björnback.
DÖNSKUM jafnaðarmönnum reynist erfitt sem stjórnar-
andstöðuflokki að skapa sér hiutverk, sem nokkuð munar
um.
Ríkið greið-
ir tapið
Osló, 31. júlí. Frá Jan Erilt Laure,
frétUriUra Mbl.
Á ÞREMUR árum hefur Noregur
tapað u.þ.b. 180 milljónum n.kr. á
lánum, sem þróunarlöndum hafa
verið veitt til kaupa á skipum og
búnaði þeirra af norskum framleið-
cndum. Löndin, sem lánin hafa
fengið, hafa einfaldlega ekki staðið í
skilum.
Þetta á m.a. við um lán, sem
veitt voru til gerðar dráttarbrauta
í Súdan og Senegal og til kaupa á
11 bátum sem Súdanir nota við
flutninga á Níl.
Ríkið greiðir allt tapið sem
hlýst af þróunarhjálpinni. Nefnd,
sem haft hefur með þetta mál að
gera, mælir með því að ríkið
ábyrgist áfram vörukaup af þessu
tagi, svo að tapið lendi ekki á
framleiðendum standi viðskipta-
löndin ekki i skilum.
Þeir hyggjast halda flokks-
þing í haust, þar sem ný stefnu-
skrá verður samþykkt og hafa
yfir 3.000 tillögur borizt þar að
lútandi auk þeirra tillagna, sem
flokksforystan sjálf hyggst
leggja fram. Er því gert ráð fyrir
líflegu flokksþingi. örðugra
kann hins vegar að verða að
finna annan raunhæfan valkost
en stefnu núverandi stjórnar
borgaraflokkanna.
Það hefur lítil áhrif haft, þó
að Anker Jörgensen, leiðtogi
jafnaðarmanna, hafi hvað eftir
annað lýst því yfir, að hann vilji
taka upp nánari samvinnu við
Radikale Venstre, sem er borg-
aralegur flokkur. Það þarf ein-
faldlega miklu meira til þess að
hnekkja stjórnarsamvinnu borg-
araflokkanna.
í nýrri skýrslu frá OECD er
dönsku stjórninni hrósað fyrir
að hafa náð stjórn á verðbólg-
unni og fyrir að hallinn á fjár-
lögum jafnt sem greiðsluhallinn
við útlönd virðist fara minnk-
andi.
Horfumar í dönsku efnahags-
lífi eru góðar fyrir næstu 18
mánuði, ef efnahagsbatinn í
heiminum heldur áfram yfir-
leitt, segir í skýrslu OECD. Hið
háa gengi Bandaríkjadollara
dregur hins vegar úr hagstæðum
greiðslujöfnuði landsins, en engu
að síður fer útflutningur frá
Danmörku til Bandaríkjanna
vaxandi.
Til þess er tekið, að atvinnu-
leysi á meðal múrara fer ört
minnkandi nú. Þannig hefur at-
Jörgensen: á í erfiðleikum.
vinnulausum múrurum fækkað
úr 25% í 5% á undanförnum
mánuðum.