Morgunblaðið - 04.08.1984, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1984
Jíltóöur
á morgun
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.00.
Dómkórinn syngur, organleikari
Jónas Þórir Þórisson. Sr. Hjalti
Guömundsson.
ÁSKIRKJA: Guösþjónusta kl.
11.00. Síöasta guösþjónusta fyrir
sumarleyfi. Sr. Árni Bergur Sig-
urbjörnsson.
BÚST AÐAKIRK JA: Guösþjón-
usta kl. 10.00. Organleikari
Guöni Þ. Guömundsson. Sr.
Ólafur Skúlason.
ELLIHEIMILID GRUND: Messa
kl. 10.00. Sr. Árelíus Níelsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11.00. Sr. Ragnar Fjalar Lárus-
son. Þriöjudagur fyrirbænaguös-
þjónusta kl. 10.30. Miövikudagur
náttsöngur kl. 22.00.
LANDSPÍTALINN: Guösþjónusta
kl. 10.00. Sr. Ragnar Fjalar Lár-
usson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl.
11.00. Sr. Tómas Sveinsson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Messa í
Kópavogskirkju kl. 11.00. Sr.
Árni Pálsson.
LAUGARNESKIRKJA: Laugar-
dagur: Guösþjónusta Hátúni
10b, 9. hæö kl. 11.00. Sóknar-
prestur.
Mark. 8.: Jesús mettar 4
þús. manns.
NESKIRKJA: Guösþjónusta kl.
11.00. Orgel og kórstjórn Örn
Falkner. Sr. Guömundur Óskar
Ólafsson. Miövikudagur fyrir-
bænamessa kl. 18.20. Sr. Guö-
mundur Óskar Ólafsson.
SELJASÓKN: Fimmtudagur 9.
ágúst fyrirbænasamvera Tinda-
seli 3, kl. 20.30. Sóknarprestur.
ÞINGVALLAKIRKJA: Kvöldvaka
í kvöid, laugardag, kl. 20.30. Sr.
Ingólfur Guðmundsson flytur
Þingvallaspjall, sem hann nefnir:
Kristni 2000. Ungt fólk með hlut-
verk annast blandaöa dagskrá.
Samkomunni lýkur meö nátt-
söng. Forsöngvari er Carlos
Ferrer guöfræöinemi. Almenn
guösþjónusta á sunnudag kl. 14.
Organleikari Einar Sigurösson.
Sr. Heimir Steinsson.
SKÁLHOLTSKIRKJA: Messa
sunnudagskvöld kl. 21. Söngva-
og tónastund í umsjá Ólafs Sig-
urjónssonar organista hefst kl.
20.30. Sóknarprestur.
Bridge
Arnór Ftagnarsson
Sumarbridge
Aðeins 54 pör mættu til leiks í
Sumarbridge sl. fimmtudag,
enda verslunarfríhelgin fram-
undan.
Spilað var í 4 riðlum og urðu
úrslit þessi:
A-riðill:
Erla Eyjólfsdóttir —
Gunnar Þorkelsson 246
Sigmar Jónsson —
Vilhjálmur Einarsson 238
Ragnar Björnsson —
Þórarinn Árnason 237
Guðmundur Kr. Sigurðsson —
Halldór Magnússon 235
B-riðill:
Helgi Jóhannsson —
Magnús Torfason 212
Birgir Sigurðsson —
Oskar Karlsson 203
Hulda Hjálmarsdóttir —
Þórarinn Andrésson 190
Leif Österby —
Sigfús Þórðarson 178
C-riðill:
Arnar Ingólfsson —
Magnús Eymundsson 180
Árni Eyvindsson —
Jakob Ragnarsson 179
Ásgeir P. Ásbjörnsson —
Friðþjófur Einarsson 179
Oddur Hjaltason —
Jón Þ. Hilmarsson 171
D-riðill:
Guðmundur Þórðarson —
Baldur Bjartmarsson 142
ólafur Lárusson —
Magnús Halldórsson 132
Erlendur Markússon —
Markús Markússon 125
Meðalskor í A var 210, í B og C
156 og 108 í D-riðli. Nú, eftir 12
kvöld í Sumarbridge, er staða
efstu spilara þessi:
Anton R. Gunnarsson 22,5
Friðjón Þórhallsson 22,5
Helgi Jóhannsson 13
Páll Valdimarsson 11
Tómas Sigurjónsson 11
Erla Eyjólfsdóttir 11
Gunnar Þorkelsson 11
Alls hafa 188 einstaklingar
fengið vinningsstig (1-2-3) á
þessum 12 spilakvöldum í
Sumarbridge.
Sumarbridge er rekið af
Bridgesambandi Reykjavíkur,
sem öll félög á Reykjavíkur-
svæðinu innan Bl, eru aðilar að.
Framkvæmdaaðili fyrir hönd
Reykjavíkursambandsins er síð-
an Ólafur Lárusson.
Sumarbridge verður fram-
haldið að venju næsta fimmtu-
dag, í Borgartúni 18 og hefst
spilamennska uppúr kl. 18, en í
síðasta lagi kl. 19.30. Allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Bridgedeild
Skagfirðinga
Þriðjudaginn 31. júlí var spil-
að í tveim 10 para riðlum. Hæstu
skor hlutu:
A-riðill
Björn Hermannsson —
Lárus Hermannsson 156
Guðmundur Guðlaugsson —
óli Andreason 120
Sigmar Jónsson —
Vilhjálmur Einarsson 117
B-riðill
Ásthildur Sigurgísladóttir —
Lárus Arnórsson 144
Kristján Þorvaldsson —
Sveinn Þorvaldsson 118
Guðrún Hinriksdóttir —
Haukur Hannesson 108
Meðalskor 108
Nú verður gert eins og hálfs-
mánaðar hlé hjá deildinni, en
byrjað aftur að líkindum 11.
sept. Mun það verða kynnt ræki-
lega í blöðum þegar þar að kem-
ur.
Þá eru félögum þakkaðar góð-
ar mætingar og skemmtilegt
samstarf. Umsjónarmönnum
bridge- þátta í dagblöðum færð-
ar bestu þakkir og stjórnanda,
Guðmundi Kr. Sigurðssyni,
fylgja óskir um góða ferð á sól-
arströnd Portoros.
Starfsfólk Ferðamiðstöðvar Austurlands á Egilsstöðum: Anton Antonsson, Guðrún Kristinsdóttir og Inga Rósa
Þórðardóttir.
Egilsstaðir:
Ég fer með Ringó Starr í útreiðar-
túr um verslunarmannahelgina
— spjallað við ferðaskrifstofufólk á Egilsstöðum
Egibwtöðum 1. ágúnt.
FERÐAMIÐSTÓÐ Austurlands tók
til starfa á Egilsstöðum árið 1978 og
er hlutafélag nokkurra aðila á Aust-
urlandi sem tengjast ferðalögum á
cinn eða annan hátt. Framkvæmda-
stjóri Ferðamiðstöðvar Austurlands
hefur verið frá upphafi Anton Ant-
onsson, franskur að ætt og uppruna,
en hefur búið ásamt íslenskri konu
sinni á Egilsstöðum undanfarin 7 ár.
„Ferðamiðstöð Austurlands er
e.t.v. fyrst og fremst umboðsaðili.
Við höfum umboð fyrir Flugleiðir,
Ferðaskrifstofuna Úrval og
Ferðamiðstöðina í Reykjavík. Þá
höfum við einnig umboð fyrir
Tryggingu hf. En auk þess tökum
við á móti erlendum ferðamanna-
hópum í vaxandi rnæli," sagði
Anton þegar tíðindamaður Mbl.
innti hann eftir starfsemi Ferða-
miðstöðvar Austurlands.
Hvaðan eru þessir erlendu
ferðamenn?
„Aðallega frá Frakklandi, en
einnig er talsvert um Þjóðverja,
Svisslendinga og Færeyinga."
Hver skipuleggur ferðir þessara
útlendinga hingað?
„Það eru erlendar ferðaskrif-
stofur, sem við erum umboðsaðili
fyrir, einkum franskar ferða-
skrifstofur."
Og hvers konar túristar eru
þetta?
„Þetta er fyrst og fremst fólk
sem er að leita eftir eins konar
safari-ferðum. Við tökum á móti
fólkinu á Keflavíkurflugvelli. Síð-
an er yfirleitt haldið hingað aust-
ur um Suðurland og síðan ekið
suður Sprengisand. Gist er í tjöld-
um, á farfuglaheimilum eða við
nýtum gistiþjónustu bænda."
Er þetta kannski umfangsmesta
starfsemi ykkar yfir sumarmán-
uðina?
„Já, tvímælalaust. Þetta eru 2ja
vikna ferðir og að meðaltali um 25
manns í hverri ferð. Þá höfum við
fitjað upp á sérstökum gönguferð-
um, einkum hér um slóðir, og þær
ferðir hafa átt vaxandi vinsældum
að fagna. Þá erum við með ýmis-
legt á prjónunum, eins og ferðir til
Borgarfjarðar eystri og ferðir til
Neskaupstaðar og bátsferðir það-
an til Mjóafjarðar."
En hvað með þjónustuna við
heimamenn?
„Jú, við höfum lagt kapp á að
skipuleggja ódýrar ferðir fyrir
Austfirðinga til Reykjavíkur,
svonefndar helgarferðir, t.d. get-
um við boðið Austfirðingum nú
um verslunarmannahelgina ferð
flugleiðis til Reykjavíkur og hót-
elgistingu þar fyrir aðeins 3.400
kr. Þá bjóðum við upp á sérstakar
útsýnisferðir héðan frá Egilsstöð-
um þrisvar í viku. Föstudaga og
sunnudaga er farið héðan kl. 9.00
Guðmundur Steingrímsson ekur ferðalöngum umhverfis Löginn og inn að
SnæfellL
inn að Snæfelli og eru það mjög
vinsælar ferðir og auk þess stend-
ur til boða hringferð kringum
nn á miðvikudögum kl. 13.00."
Ferðamiðstöð Austurlands
starfa auk Antons þær Guðrún
Kristinsdóttir og Inga Rósa Þórð-
ardóttir. Það barst í tal að Guðrún
er fornleifafræðingur að mennt og
við spurðum hvað hafi rekið forn-
leifafræðing til starfa í ferða-
mannaiðnaðinum.
„Hér um slóðir er ekkert starf
að hafa á því sviði,“ svaraði Guð-
rún, „og auk þess hefi ég nú enn
ekki lokið námi að fullu."
Verður þú að vinna um verslun-
armannahelgina?
„Þótt þjónustan sé nú góð hjá
okkur hérna verður lokað um
verslunarmannahelgina. Ætli ég
fari ekki bara í berjamjó um
verslunarmannahelgina," sagði
Guðrún.
„Skrifstofan verður lokuð en
það verða látlausar sætaferðir
héðan frá okkur á Atlavíkurhá-
tíð,“ ságði Anton, „en ég ætla að
fara í útreiðartúr með Ringó Starr
og frú um helgina á vegum þeirra
UÍA-manna.“
Hvert verður ferðinni heitið?
„Það er algjört leyndarmál."
Aðspurð kvaðst Inga Rósa
hvergi fara um verslunarmanna-
helgi, hvorki í berjamó né í útreið-
artúr með Ringó. Líklega yrði hún
í garðinum heima við nema ef hún
skyldi bregða sér með bóndanum
upp að Snæfelli en hann ekur túr-
istum þangað og verður verslun-
armannahelgin engin undantekn-
in.
- Ólafur
V-íslending-
arnir ánægðir
VESTIJR-íslendingarnir scm hingað
komu undir lok júlímánaðar hafa
lýst ánægju sinni með komuna
hingað. Margir hafa t.d. hitt ættingja
hér, sem þeir höfðu litla eða enga
hugmynd um að þeir ættu. Hefur því
víða verið efnt til gleðifunda af því
tilefni. Hópurinn heldur heim aftur
13. þ.m.
Magnús Sigurjónsson, sem haft
hefur veg og vanda af þessari hóp-
ferð, eftir að gestirnir komu
hingað, hefur beðið Mbl. að geta
þess, að í síma hans suður í Kópa-
vogi, 40455, er hægt að fá upplýs-
ingar um dvalarstað velflestra
Vestur-íslendinganna, eftir því
sem þeir hafa sjálfir gefið honum
upp heimilisfang.