Morgunblaðið - 04.08.1984, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 04.08.1984, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1984 Undankeppni í spjótkastinu fer fram í dag í Los Angeles: „Ég er tilbúinn“ — segir Einar Vilhjálmsson sem margir spá verðlaunasæti í keppninni Los Angeles 3. ágúst. Fré Þórarni Ragnarssyni, blaðamanni Morgunblaðsins. „ÉG ER tilbúinn. Stóra stundin er að renna upp. Allur undirbúningur hjá mór hefur gengiö aö óskum og mér er ekkert að vanbúnaði,“ sagði Einar Vilhjálmsson, sem svo margir spá verölaunasæti í spjótkastskeppni Ólympíuleikanna en undanrásir í keppninni fara fram á morgun, laugardag, kl. 9.30. „Þaö veröur geysilega mikilvægt fyrir mig aö ná góöri slökun og afslöppun í sjálfri keppninni. And- legt jafnvægi mitt er gott því aö þetta er fyrst og fremst próf á ein- um degi. Ég verö aö ná aö kasta meö fullri slökun en þó af geysileg- um krafti. Þaö er hægt aö skemma fyrir sér tæknilegu hliöina séu átökin látin sitja í fyrirrúmi. Þá verö ég aö gæta þess aö gera ekki of mikið úr sjálfri upphit- uninni. Þaö liöa sennilega um tutt- ugu mínútur frá því aö viö fáum aö hita upp þar til viö göngum inn á aöalleikvanginn í einni röö. Viö fáum aöeins tvö prufuköst og síö- an hefst baráttan. Ég vil undir- strika aö þetta eru allt mjög sterkir spjótkastarar — allt menn í fremstu röö sem erfitt er aö eiga viö en allir byrjum viö jafnir og maður veröur aö vona að heilladís- irnar veröi manni hliöhollar. Ég ætla mér eitt kast til aö komast í • Einar Vilhjálmsson. Spurning- in sem brennur á vðrum flestra íslendinga nú er sú hvernig hon- um muni ganga í spjótkastinu á Ólympíuleikunum. undanúrslitin og vonandi tekst mér sá ásetningur — síöan veröur maöur aö dreifa huganum fram aö úrslitakeppninni á sunnudaginn en jafnframt aö halda fullri einbeit- ingu. Þetta er stærsta keppni sem ég hef tekið þátt í og vonandi tekst mér vel upp.“ Þaö var ekki hægt aö sjá annaö á Einari en aö hann væri mjög ákveöinn í aö gera sitt besta en spjótkast er keppnisgrein þar sem oft má lítiö útaf bera og viö skulum vera minnug þess aö þaö þarf oft ekki nema lítil atriöi aö allt fari úr- skeiðis. En ef Einar uppsker eins og hann hefur sáö þá mun hann án efa veröa meöal fimm fyrstu í keppninni og þaö yrði glæsilegur árangur og rós í hnappagat hans. Pétur fékk atvinnu- leyfi í Hollandi PÉTUR Pótursson knatt- spyrnumaður, sem Feyenoord leigöi til eins árs frá Antwerp- en í Belgíu, hefur nú fengið atvinnuleyfi í Hollandi. „Það var ákveðið í gærkvöldi og mór var tilkynnt um það ( morgun," sagöi Pótur í samtali viö Mbl. í gær. „Þetta var ekk- ert vandamál — ráðherra á aö vísu eftir aö skrifa undir at- vinnuleyfið en það er bara formsatriði." Feyenoord hefur veriö í æf- ingabúðum að undanförnu í Norður-Hollandi, æft var þrisvar á dag og síðan leikið á kvöldin, og sagði Pótur að sór hefði gengið vel meö liðinu það sem af er. Stöar í mánuöinum tekur Feyenoord þátt í mótí með Stuttgart, Manchester United og Anderlecht. Pétur mætir þv( bæði Ásgeiri Sigurvinssyni og Arnóri Guöjohnsen. — segir Vilhjálmur Einarssort, fadir Einars, sem hlaut silfurverðlaun í þrístökki á Olympíuleikunum 1956 Vilhjálmur Einarsson, faðir Einars Vilhjálmssonar, er eini íslending- urinn sem komist hefur á verölaunapall á Ólympíuleikum. Vilhjálmur stökk 16,26 metra í þrístökkskeppninni í Melbourne í Ástralíu árið 1956 og tryggði sór þar með annaö sætið á leikunum. Núna, 28 árum síöar er sonur hans, Einar, í sviösljósinu á Ólympíuleikunum í Los Angeles. Margir spá honum verðlaunum í spjótkastinu, aðrir telja að hann nái ekki alveg svo langt en standi sig engu að síður vel en allir vona þó að honum gangi allt í haginn og komist á verölaunapall eins og faöir hans foröum. Til aö forvitnast nánar um hvernig silfurverðlaunahafanum frá Ólympíuleikunum í Melbourne væri innanbrjósts daginn áður en sonur harts keppir í spjótkasti á Ólympíuleikunum í Los Angeles höfðum við samband viö hann í gær. „Eg held, svei mér þá, aö mér sé svipaö innanbrjósts núna eins og þegar ég var aö keppa á Ólympíu- leikunum fyrir 28 árum. Ég held þaö sé vafamál aö þaö sé mikiil munur á líöan minni nú og þá, þaö er ósköp svipuö tilfinning sem býr mér í brjósti í dag, svipaö og maö- ur standi í þessu sjálfur. Þaö er gaman aö þessu, þetta er spenn- andi en þaö er ekkert hægt aö gera núna, fram aö keppninni, annaö en aö bíöa og vona,“ sagöi Vilhjálmur. Hann sagöi aö ekki færi frá því aö minningarnar sem hann ætti frá því hann keppti í Melbourne rifjuö- ust upp, og ef til vill ekki síöur undankeppnin í Róm árið 1960. „Undankeppnin þar var mikil mis- tök af hálfu framkvæmdastjórnar leikanna. Mönnum var mismunaö eftir því í hvaöa hópi þeir lentu. Minn hópur þurfti til dæmis aö bíöa lengi áöur en viö fengum aö byrja og þá var oröið of heitt fyrir minn smekk og einnig þurftum viö aö halda líkömum okkar vel heit- um í um klukkustund áöur en okkar riöill komst aö. Fyrsta stökk- iö mitt var einum sentimetra of stutt þannig aö þá varö ég aö halda mér heitum í aöra klukku- stund í þessum líka ferlega hita. Þaö var svo langt á milli tilrauna hjá keppendum og þá var ekki bú- Iö aö setja tímatakmörk á stökkv- arana,“ sagöi Vilhjálmur og þaö var greinilegt aö hann haföi frá nógu aö segja í sambandi viö þátttöku sína á Ólympíuleikum og sagöi hann aö þaö væri ótalmarg sem brölti fram úr minningarskot- unum hjá sér nú þegar Einar væri aö hefja keppni á Olympíuleikun- um. Hvernig heldur þú að Einari takíst upp á Ólympíuleikunum? „Þaö má nú kanski segja aö ég hafi alla mína speki úr Morgun- blaöinu, því ég hef einsett mér þaö aö ónáöa ekki piltinn aö neinu leyti aö fyrra bragöi og hann hefur ekki veriö aö ónáöa mig og meöan svo er veit ég aö allt gengur sam- kvæmt áætlun hjá honum. Ég þyk- ist vita þaö að hann geri allt sem í hans valdi stendur en síöan koma óvissuþættirnir sem eru margir. Fyrstan skal nefna þaö hvernig maöurinn er upplagöur þegar á hólminn er komiö, þar viröist svo margt koma til, sumir tala um stjörnurnar í þessu sambandi og má þá nefna aö knattspyrnuliö hafa ráöiö til sín stjörnuspekinga." Vilhjálmur sagöist ekki ætla aö dæma um hvort eitthvaö væri til í þessari speki en sagði aö menn væru misvel upplagöir frá degi til dags einhverra hluta vegna. Hann ræddi einnig um leikvanginn í Los Angeles og sagöi aö þaö væri sín reynsla aö þaö væri verra aö hafa eins há áhorfendasvæði allan hringinn eins og þar er. Þaö væri sín reynsla frá því í gamla daga aö golunni gæti þá slegiö fyrir þvers og kruss og er hún því nánast óút- reiknanleg þannig aö þaö væri heppni hvort hún stæöi rétt akkúr- at þegar kastaö væri eöa ekki. Er Einar nógu andlega sterkur til að þola það álag sem því fylgir að keppa á Ólympíleikum, sór- staklega þar sem ætlast er til mikils af honum? „Þaö get ég auövitaö ekki sagt um, en hann er sterkur og ég veit aö hann hefur byggt sig vel upp á andlega sviöinu líka. Á sínum tíma lagöi ég á þaö áherslu aö þegar þaö væri svona allt aö vika til keppni þá væri ekkert lengur sem menn gætu gert fyrir kroppinn á sér annaö en hvíla sig og þá er þaö bara andlega hliöin sem tekur viö. Þetta er spurning um þaö hvort menn geti geymt alla sína orku fram aö keppninni sjálfri. Menn mega ekki eyða orku í einhverja ótímabæra taugaspennu, heldur aö reyna aö stefna henni allri á ákveöiö augnablik og þá veröa menn aö vita hvenær þaö augna- blik er,“ sagöi Vilhjálmur Einars- son aö lokum. • Vilhjálmur Einarsson sóst hór ( stökki s(nu á Ólympíuleikunum ( Melbourne 1956 sem færði honum annað sætið og silfurverðlaunin. Sigurður meistarí SIGURÐUR Pótursson, GR, endurheímtí meistaratitilinn I golfi er landsmótinu lauk í Graf- arholti í gærkvöldi. Siguröur, sem haföi forystu fyrir síöasta daginn, lók rhjög vel í gær — fór 18 holurnar á 76 höggum og sigri hans var ekki ógnað. Hann lók samtals á 302 höggum. Sig- urður varð íslandsmeistari 1982 en í fyrra sigraði Gylfi Kristins- son. Ragnar Ólafsson, GR, og Gylfi Kristinsson, GS, uröu jafnir ( ööru til þriöja sæti — léku báöir á 307 höggum. Þeir þurftu því aö leika bráöabana til úrslita um 2. sætiö og var honum ekki lokiö er Mbl. fór í prentun í gær. I 4. til 6. sæti uröu þrír jafnir: Björgvin Þorsteinsson, GR, Úlfar Jónsson, GK, og ívar Hauksson, GR. Þeir léku allir á 308 höggum, þannig aö á þessu sést aö keppni efstu manna, nema sigur- vegarans, var æsispennandl. Ásgeröur Sverrisdóttir, GR, sigraöi í meistaraflokki kvenna á 328 höggum. Önnur varð Sólveig Þorsteinsdóttir, GR, á 334 og þriöja Steinunn Sæmundsdóttir á 345 höggum. í 1. flokki karla sigraöi Jónas Kristjánsson, GR, á 316 höggum, annar varö Karl Ó. Karlsson, GR, á 318. Svan Friögeirsson, GR, sigraöi í 2. flokki karla. Hann sigraöi Guöbrand Sigurbergsson, Keili, í bráðabana um fyrsta sætiö — en þeir léku 72 holurnar báöir á 341 höggi. I 3. flokki karla vann Bjarni Ragnarsson, GR, á 351 höggi, annar varö Jakob Gunnarsson, GR, á 354. Aöalheiöur Jörgenson, GR, sigraöi í 1. flokki kvenna — lék á 365 höggum, og Hanna Aöal- steinsdóttir, NK, varð i ööru sæti á 389 höggum. I 2. flokki kvenna sigraöi Elísa- bet A. Möller, GR, á 204 höggum og Guöbjörg Sigurðardóttir, GK, varö önnur á 206. Annar flokkur kvenna lék aöeins 36 holur. Eins og sjá má af þessari upp- talningu eru allir meistararnir í ár frá Golfklúbbi Reykjavíkur. Besta skoriö í gær átti Þorsteinn Hall- grímsson, drengjameistari frá GV, — lék á 74 höggum. Liðan mín svipuð nú og í Melbourne

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.