Morgunblaðið - 08.08.1984, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST1984
Heimsmeistaramót 20 ára og yngri í skák:
Karl Þorsteins í
hóp efstu manna?
AÐ loknum fimm umferðum á
beimsmeistaramóti 20 ára og yngri í
skák, sem fram fer í Hiljava í Finn-
landi, hefur Karl Þorsteins 3 vinn-
inga og biðskák. Hefur hann betri
stöóu í biöskákinni og ef hann vinn-
ur hana kemst hann í efsta sæti
mótsins.
Karl gerði jafntefli við Pikep
frá Hollandi og Rehelis frá ísrael í
tveim fyrstu umferðum mótsins.
Síðan vann hann Navrodescu frá
Rúmeníu og Miljanic frá Júgóslav-
iu í 3. og 4. umferð. í 5. umferð
teflir hann viö Arlandi frá Ítalíu
og fór skák þeirra tvisvar i bið.
Karl er talinn hafa heldur betri
stöðu í biðskákinni sem tefld verð-
ur á morgun. Þrír menn eru efstir
á mótinu með 4 vinninga. Það eru
Georgiev frá Búlgaríu sem sigraði
á heimsmeistaramótinu í fyrra,
Saeed frá Sameinuðu furstadæm-
unum og Dreev frá Sovétríkjun-
um.
54 skákmenn taka þátt í mótinu
í Hiljava og eru allir sterkustu
skákmennirnir i þessum aldurs-
flokki þar á meðal. Fimm þeirra
eru með fleiri BLO-skákstig en
Karl. Heimsmeistarinn, Georgiev,
er stigahæstur með 2515 ELO-
stig.
Erindi um ríkisumsvif
Nóbelsverölaunahafi i hagfræöi
áriö 1976, prófessor Milton Fried-
man, mun halda erindi á hádegis-
verðarfundi Viöskiptadeildar Há-
skóla fslands og Stofnunar Jóns
Þorlákssonar, laugardaginn 1. sept-
ember næstkomandi í Súlnasal Hót-
el Sögu klukkan 12.00.
Erindi Milton Friedmans nefn-
ist: Eru aukin ríkisumsvif óhjá-
kvæmileg? Að lokinni framsögu
verða Ieyfðar fyrirspurnir.
Aðgöngumiðar verða til sölu í
Bókaverslun Sigfúsar Eymunds-
sonar, Austurstræti 18.
*4iB
HorgunblaðiA/Júlfua.
Báturínn strandaöur á skólprörí við Kirkjusand. Lögreglan kemur til bjargar öörum manninum sem vaðið haföi
í land.
Bátur strandar við Kirkjusand
BÁTUR strandaöi við Kirkjusand i Reykjavík um
kvöldmatarleytiö í gær meö tvo menn innanborös.
Lögreglunni barst tilkynning um strandið klukkan
19.28 og er hún kom á staðinn haföi annar mannanna
vaöiö í land, en hafði áður bundið um sig línu.
Lögreglan óskaði eftir aðstoð lóðsins og kom
hann á staðinn og dró bátinn á flot og fór með
hann að bryggju í Reykjavíkurhöfn. Báðir reynd-
ust mennirnir ölvaðir og var ástæðan fyrir strand-
inu sú að þeim hafði láðst að taka með sér elds-
neyti. Ferðinni var heitið til Viðeyjar.
Ráðuneytið „frystir“ græn-
meti á hafnarbakkanum
Hólmfríður Eysteinsdóttir
Bílslysið á Miklubraut:
Konan látin
KONAN sem varð fyrir bifreið á
Miklubraut á miðvikudag í fyrri
viku, lézt á Borgarspítalanum á
sunnudag. Hún hét Hólmfríður
Eysteinsdóttir til heimilis að
Miklubraut 82 í Reykjavík.
Hólmfríður fæddist 18. april 1919.
EGGERT Kristjánsson & co. hf. flutti um miðja sfðustu viku um 2 tonn af
grænmeti inn til landsins og í gærkvöldi var 1 tonn til viðbótar væntanlegt.
Leyfi til innflutnings þess hefur ekki enn fengist og liggur hluti grænmetis-
ins nú undir skemmdum þó sendingin sé í kæligámum á hafnarbakkanum í
Reykjavík. Ekki náðist að koma grænmetinu í sölu fyrir verslunarmanna-
helgina eins og þó var fyrirhugað. Heildverslunin befur flutt inn grænmeti f
sumar og þar til nú alltaf fengið án tafar nauðsynlega stimpla landbúnaðar-
ráðuneytisins á tollpappírana að sögn Gísla V. Einarssonar framkvæmda-
stjóra hjá Eggerti Kristjánssyni.
Gísli sagði að fyrirtækið hefði
verið að minnka grænmetisinn-
flutninginn smám saman til að vera
ekki fyrir innlendu framleiðslunni
þegar hún kæmi á markaðinn. í
þeim sendingum sem nú væru á
hafnarbakkanum væri laukur og
fleiri tegundir sem ekki væru fram-
leiddar hér á landi en einnig eitt-
hvað af káli og gulrótum. Aðspurð-
ur um áform fyrirtækisins í sam-
bandi við áframhaldandi innflutn-
ing á grænmeti sagði Gfsli að vegna
þessa máls hefði hann skrifað
Verslunarráði íslands, sem komið
hefur fram við landbúnaðarráðu-
neytið fyrir hönd þeirra fyrirtækja
sem flutt hafa inn grænmeti, bréf
þar sem hann óskaði eftir að fá
skýrar línur um hvað fyrirtækið
mætti gera í þessum málum. Sagði
hann að þeir vildu gjarnan draga úr
innflutningnum á meðan íslenska
framleiðslan væri f hámarki en
vildi þó fá að flytja áfram inn þær
tegundir grænmetis og lauka sem
ekki væru framleiddar hér. Einnig
viidu þeir halda þessum innflutn-
ingi áfram f haust og vetur þegar
innlenda framleiðslan færi að
minnka aftur.
Guðmundur Sigþórsson, skrif-
stofustjóri f landbúnaðarráðuneyt-
inu, sagði f samtali við Mbl., þegar
hann var spurður að því af hverju
Eggert Kristjánsson hefði ekki
fengið innflutningsleyfi fyrir þess-
ari sendingu, að á markaðinn væri
komið yfrið nóg af þessum vörum
frá innlendum framleiðendum.
Sagði hann að ráðuneytið hefði um
miðjan júlí óskað eftir því við þau
fyrirtæki sem verið hefðu í inn-
flutningi á grænmeti að þau gerðu
grein fyrir áætlunum sínum um
innflutning til að hægt væri að
samræma hana innlendu fram-
leiðslunni. Það hefðu sum þessara
fyrirtækja gert en ekki Ekkert
Kristjánsson og hefði ráðuneytið
því ekki gert ráð fyrir svo síðbúnum
innflutningi. Guðmundur gat ekki
svarað því I gærkvöldi hvernig af-
greiðslu þetta mál fengi í ráðuneyt-
Aftenposten fjallar
um varnarmál Islands
í forystugrein norska blaðsins
Aftenposten 1. igúst siðastliðinn er
fjallað um varnarmál íslands. Þar
segir m.a. að það hljóti að vekja
eftirtekt bæði á Norðurlöndunum
og innan NATO, að Geir Hall-
grímsson, utanríkisráðherra, hafi
nú vakið máls á því, að íslendingar
eigi að taka meiri þátt í vörnum
lands síns. Þar segir að þetts hsf:
oft boríð á góma í umræðum um
varnarmál á íslandi, en það sé nú
fyrst sem mál þetta hafi verið rætt
af hálfú ríkisstjórnarinnar.
í forystugreininni segir að það
verði að lita á þessar nýju hug-
myndir innan islensku ríkisstjórn-
arinnar f samhengi við það, að
hernaðarlegt mikilvægi landsins
hafi vaxið undanfarin ár, samfara
auknum umsvifum sovéska flug-
og sjóhersins á Norður-
Atlantshafi. „Vegna þessa ráðger-
ir NATO að setja upp tvær nýjar
ratsjárstöðvar á íslandi til að
endurbæta varnarkerfi Atlants-
hafsbandalagsins. Geir
Hallgrímsson, utanríkisráðherra,
vill að þessar ratsjárstöðvar verði
mannaðar fslensku starfsfólki.
Island med eget forsvar?
^ 'taajoncr ska
pcrsoncll. Bamtl
Ln Islandskc kystvakt del
.iingsarbcldct som amcrlkanerne
^ pá Kc.iavik har vært aicno om á utfere InRti!
ná.
FOR8VARSSP0RSMÁU of da ferst og
frcmst I forblndclsc mcd dcn amcrlkanske
baacn. cr felclscsladcdc tcmaer blant Islendln
Hann leggur einnig til að íslenska
landhelgisgæslan taki þátt i þeim
eftirlitsstörfum sem bandarfski
herinn á Keflavíkurflugvelli hefur
veríð einn um að sinna hingað til,“
segir f forystugreininni.
Aftenposten segir að Norðmenn
hafi litið á það með skilningi að
íslendingar hafi ekki getað séð um
varnir lands síns, m.a. vegna þess
að íbúatala þess sé hin lægsta inn-
an Atlantshafsbandalagsins.
Fram kemur að fagna beri frum-
kvæði islenskra stjórnvalda, sem
telji að tími sé kominn til að fs-
lenskir rfkisborgarar verði virkari
þátttakendur i vörnum lands sfns.
Síðan segir þetta virtasta blað í
Noregi, að það geti verið þjóð erf-
itt til lengdar að byggja varnir
sfnar eingöngu á erlendum her-
afla. Það geti styrkt stöðugleika
Atlantshafsbandalagsins að ein
þjóð efli framlag sitt til þess með
því að láta heimamenn vinna
verkefni samhliöa varnarliðs-
mönnum, sem séu gestir f landinu.
Þetta breyti þó ekki þvf að nauð-
syn sé að hafa bandarískt herlið í
Keflavík, bæði fyrir ísland, Atl-
antshafsbandalagið og Noreg.
Jón S. Ólafsson
skrifstofustjóri látinn
JÓN S. Ólafnson, skrifstofustjóri í
félagsmálaráðuneytinu, varð bráð-
kvaddur á heimili slnu síðastliðinn
sunnudag. Hann fæddist 7. október
1919 i Valshamri f Geiradal. For-
eldrar hans voru ólafur EHas Þórð-
arson bóndi þar og kona hans Bjarn-
ey Ólafsdóttir. Hann varð stúdent
frá Menntaskólanum ( Reykjavík
1940 og lauk lögfræóiprófi frá Há-
skóla fslands 28. maí 1946.
Jón starfaði í dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu frá byrjun júlí
til 1. nóvember 1946. Hann var
fulltrúi bæjarfógetans í Hafnar-
firði og sýslumanns Gullbringu-
og Kjósarsýslu frá 1946—1947.
Hann var síðan fulltrúi í félags-
málaráðuneytinu frá 1947—1970
.og deildarstjóri þar 1970—1973.
Hann var skrifstofustjóri í félags-
málaráðuneytinu frá 1973.
Jón S. ólafsson lætur eftir sig
eiginkonu, Ernu Oskarsdóttur, og
fjögur börn.
Lyfjum stolið úr Iðunni
Þau voru tekin síðla nætur, er
lögreglan veitti athygli undarlegu
aksturslagi bifreiðar á götum
Reykjavíkur. Höfðu þau talsvert
af lyfjum undir höndum en ekki
var í gær fullljóst hversu miklu
hafði verið stolið.
Rannsóknarlögregla ríkisins hef-
ur krafist gæsluvarðhalds til 15. ág-
úst yfir karlmanni og konu, sem
grunuð eru um að hafa brotist inn í
lyfjabúðina Iðunni aðfaranótt mánu-
dagsins og stolið þar lyfjum, auk
þess að hafa valdið miklum
skemmdum á innbrotsstað.