Morgunblaðið - 08.08.1984, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1984
Verslunarmaimahelgin:
Umferðin gekk
mjög greiðlega
Bílvelta á Suðurlandsvegi á laugardag. Fólksbfll með hestakerru aftan í valt.
Meiðsli urðu óveruleg á fólki og hestarnir sluppu án meiðsla.
Morgunblaðid/Gudmundur Börkur Thorarenuen.
Rangárvallasýsla:
Fjórar bflveltur
Umferðin um verslunarmanna-
helgina gekk mjög vei að sögn
þeirra sem Morgunblaðið aflaði sér
upplýsinga hjá. Mjög áberandi var
hversu öryggisbeltanotkun var al-
menn og einnig bar ekki mikið á of
hröðum akstri.
Að sögn lögreglunnar á Egils-
stöðum var allmikil umferð um
hennar umdæmi og ef undan eru
skilin minniháttar óhöpp, eins og
þegar tveir bílar nuddast saman á
bílastæði, þá gekk umferðin að
mestu leyti áfallalaust. Ein útaf-
keyrsla átti sér að vísu stað á
Breiðadalsheiði en engan sakaði
að ráði.
Hjá lögreglunni á Sauðárkróki
leið helgin einnig að mestu stór-
slysalaust þrátt fyrir mikla um-
ferð. Sömu sögu var að segja hjá
lögreglunni í Borgarnesi en þar í
gegn var mikil umferð um helgina
á leið norður. Öryggisbeltanotkun
var áberandi mikil og gekk um-
ferðin greiðlega fyrir sig þrátt
fyrir hóflegan hraða.
Lögreglan á Selfossi og á Hvols-
velli hafði í ýmsu að snúast um
helgina enda veruleg umferð um
Árnes- og Rangárvallasýslu en lít-
ið var um meiriháttar umferðar-
óhöpp. Að sögn lögreglunnar á
Selfossi var stöðugur straumur
bíla á leið í Herjólf og einnig mikil
umferð í Þjórsárdalinn. Var lítið
um framúrakstur og komust samt
allir á leiðarenda.
Fjórar bflveltur áttu sér stað í
Rangárvallasýslu um helgina en
ekki urðu alvarleg slys á fólki.
urðu veruleg slys á fólki en farþegi
í aftursæti annarrar bifreiðarinn-
ar nefbrotnaði.
S-Þingeyjarsýsla:
Tvær útaf-
keyrslur
TILKYNNT var um tvær útafkeyrsl-
ur til lögreglunnar á Húsavík um
helgina og átti sú fjrrri sér stað á
laugardag, við Öndólfsstaði í
Reykjadal, og hin síðari varð á
sunnudaginn, við Grímsstaði í Mý-
vatnssveit.
í fyrra tilvikinu ók bifreiðin út í
skurð án þess að skemmast mikið
og ekki urðu slys á fólki. Lögregl-
an á Húsavík sagði að skömmu áð-
ur en óhappið henti hefði bifreiðin
verið stöðvuð við venjulegt eftirlit
og ökumaður og farþegar beðnir
um að spenna öryggisbeltin. Litlu
síðar voru lögreglumennirnir
kvaddir á vettvang og var þeim þá
þakkað kærlega fyrir tilmælin
sem þeir höfðu gefið nokkrum
mínútum áður.
Síðara óhappið varð þegar aft-
urhjól nýrrar bifreiðar datt undan
með þeim afleiðingum að öku-
maðurinn missti stjórn á bílnum
og ók útaf. Tvennt var í bílnum en
hvorugt sakaði.
Áreksturínn á Grímsstöðum:
Þýskur ferðalang-
ur veitti aðstoð
Alvarlegt bflslys varð á föstudag-
inn um þrjá km austan við Gríms-
staði á Fjöllum. Tvær bifreiðir
skullu þar saman með þeim afleið-
ingum að þrír slösuðust alvarlega.
Þurfti að fá tvær sjúkraflugvélar til
að flytja hina slösuðu til Reykjavík-
ur og Akureyrar.
Slysið átti sér stað um klukkan
16 og skullu bifreiðarnar harka-
lega hvor framan á aðra. Um svip-
að leyti vildi til að langferðabif-
reið með þýskum ferðalöngum fór
þarna um. Þýskur læknir sem var
með í förum brá skjótt við og hlúði
að hinum slösuðu á meðan beðið
var eftir aðstoð frá Húsavík. Að
sögn lögreglunnar á Húsavík gerði
læknirinn allar nauðsynlegar
ráðstafanir og mun hafa bjargað
miklu. Fór hann síðan með öku-
manni annarrar bifreiðarinnar
sem fluttur var talsvert slasaður
til Reykjavíkur.
Alls voru átta manns í bifreið-
unum og slösuðust allir eitthvað.
Sagði lögreglan á Húsavík að ef
þeir sem í framsætunum voru
hefðu ekki notað öryggisbelti
hefði mátt búast við mun verri að-
komu og væri alveg ljóst að beltin
hefðu svo sannarlega gert sitt
gagn, en bifreiðirnar gjörónýttust
báðar við áreksturinn.
Þrjár þeirra urðu á Landvegi
seinnipart föstudagsins og að sögn
lögreglunnar á Hvolsvelli er alveg
víst að notkun bílbelta afstýrði því
að veruleg slys yrðu á fólki. Fjórða
bílveltan varð á Suðurlandsvegi og
urðu ekki veruleg meiðsli á fólki.
Þá varð árekstur við Saurárbrú.
Önnur bifreiðin var á leið yfir
brúna þegar hin kom þar á móti
og varð árekstri ekki forðað. Ekki
Norðurárdalur:
Árekstur á Kotárbrú
Á KOTÁRBRÚ í Norðurárdal varð
árekstur á sunnudaginn. Ekki urðu
slys á fólki en önnur bifreiðanna
skemmdist verulega.
Alls voru fimm manns í bílun-
um og voru þeir sem sátu f fram-
sætum í öryggisbeltum. Að sögn
lögreglunnar er þessi staður sem
óhappið átti sér stað mikil slysa-
gildra og líður ekki það ár að ekki
verði slys þar.
Grímsnes:
Tvennt slasaðist í bflveltu
Bflvelta varð í Grímsnesi rétt fyrir
ofan Þrastarlund á sunnudaginn.
Þrjú ungmenni voru í bflnum og
slösuðust tvö þeirra.
Að sögn lögreglunnar er ekki al-
veg ljóst með hvaða hætti óhappið
vildi til en bifreiðin fór út af veg-
Niðurstöður í skoðanakönnun Hagvangs hf.:
Afstaða
arinnar
KÖNNUNARTÍMI í spurninga-
vagni Hagvangs hf. að þessu sinni
var frá 6. júlí til 18. júlí 1984. f
úrtakinu voru 100 manns hvaðan-
æva að af landinu og var spurt í
gegnum síma. Svarprósenta brúttó
var 78% en nettó 83,5%. ÞáttUk-
endur í könnuninni voru á aldrin-
um 18 ára og eldri. Þeir voru valdir
af handahófl úr þióðskrá af Reikni-
stofnun Háskóla Islands að fengnu
leyfl frá Hagstofu fslands og tölvu-
nefnd.
Hér eru birtar niðurstöður af
svörum manna við spurningunni:
„Styður þú eða styður þú ekki nú-
verandi ríkisstjórn?" Állar tölur
eru hlutfallstölur og til viðmiðun-
ar við könnunina núna eru birtar
niðurstöður í sambærilegri könn-
un Hagvangs hf. í apríl 1984.
til ríkisstjórn
í júlí 1984
Styður þú eða styður þú ekki núverandi ríkisstjórn?
Júlí '84 Aprfl ’84
Styður 58,0 69,6
Styður ekki 26,5 20,5
Veit ekki 12,7 7,9
Neitar að svara 2,8 2,0
Karlar Konur
Júlf '84 Apríl '84 Júlf ’ 84 Aprfl '84
Styður 64,9 75,9 50,4 63,3
Styður ekki 24,2 16,9 29,1 24,0
Veit ekki 8,2 5,6 17,6 10,3
Neitar að svara 2,7 1.6 2,9 2,4
HðfuAb.- Þétt- Dreif-
svæði býli býli
Júlí '84 Aprfl ’84 Júlí 84 Aprfl ’84 Júlí ’84 Aprfl ’84
Styður 56,7 66,7 59,3 73,0 61,2 73,4
Styður ekki 29,2 23,6 24,4 17,4 20,0 14,7
Veit ekki 11,1 8,4 14,0 7,5 15,3 7,3
Neitar að svara 3,0 1,3 2,3 2,1 3,5 4,6
inum og fór þrjár veltur. ökumað-
urinn kastaðist út úr bílnum og
slasaðist talsvert og einnig slasað-
ist annar farþeginn. Þeir eru ekki
taldir í lífshættu en bifreiðin er
ónýt.
Við Skólabrekku í Þingvalla-
sveit varð einnig bílvelta á mánu-
dagsmorguninn en ekki urðu slys
á fólki. Ökumaður bifreiðarinnar
er grunaður um ölvun.
Þá var ekið á hross við Skógar-
hóla á Þingvöllum með þeim af-
leiðingum að aflífa þurfti hrossið.
o
INNLENT
Harður árekstur
á Hólasandi
Harður árekstur varð á Hólssandi
við Kröfluafleggjara á laugardags-
kvöldið. Varð hann með þeim hætti
að ökumaður annars bílsins hugðist
fara fram úr í sama mund og hinn
ætlaði að beygja til vinstri. Skipti
engum togum að bifreiðirnar skullu
saman.
Að sögn lögreglunnar á Húsavík
var mikið sólskin þegar óhappið
varð og blindaði það þann sem
ætlaði að fara fram úr. Ekki urðu
nein slys á fólki og voru allir í
framsætum bifreiðanna í örygg-
isbeltum.
Húnaþíng:
Bílbeltin björgudu
í HÚNAVERI voru haldnir þrír
dansleikir um verslunarmannahelg-
ina. Sigurður Sigurðsson, lögreglu-
þjónn á Hvammstanga, sagði að
dansleikirnir hefðu farið sæmilega
fram, en fremur hefði verið fátt um
manninn, eða 200 manns á föstu-
dagskvöld, hátt í 400 á laugardag, en
á sunnudagskvöld hefðu verið um
140 manns. Föstudag og laugardag
voru þar mest 22 tjöld, en blíðviðri
var alia helgina.
„Gífurleg umferð var um helg-
ina og mun meiri en undanfarnar
verslunarmannahelgar. Þó urðu
aðeins tvö bílslys og björguðu
bílbeltin í báðum tilvikum. Ann-
ars vegar var um bílveltu að ræða
í Langadal, hins vegar lenti bíll í
árekstri við heybindivél á Skaga-
strandarvegi. Ferðaveður var gott
og sömuleiðis vegir, utan Víðidals-
vegur sem er slæmur," sagði Sig-
urður að lokum.
Útsalan er hafin
I