Morgunblaðið - 08.08.1984, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST1984
Cheltenham:
Verkalýðsfélögin
boða áframhald-
andi málarekstur
London, 7. igúst. AP.
BRESKUR áfrýjunardómstóll kvad í gœr, mánudag, upp þann úr-
skurð, að umdeilt bann Margaret Thatcher forsætisráðherra við
aðild starfsmanna Cheltenham-fjarskiptastöðvarinnar að verkalýðs-
félögum stæðist að lögum. Er þar með Ijóst að framhald getur orðið
á málarekstrinum fyrir dómstólunum.
Leiðtogar sex verkalýðsfé-
laga sem hlut áttu að máli í
Cheltenham, ásökuðu dóminn,
sem skipaður var þremur
dómurum, fyrir að hafa fórnað
mannréttindum fyrir „lág-
kúrulega hleypidóma" Thatch-
er forsætisráðherra.
Leiðtogarnir kváðust mundu
Japan:
Jarðskjálfti
Tókýó, 7. ígúsL
HARÐUR jarðskjálfti varð í vest-
urhluta Japans í morgun. Hvorki
urðu þó stórslys á mönnum né
stórvægilegar skemmdir af völd-
um jarðskjálftans, sem mældist
7,2 stig á Richter-kvarða.
áfrýja málinu til hæstaréttar
landsins, Lávarðadeildarinn-
ar, og til Mannréttindadóm-
stóls Evrópu, ef með þyrfti.
„Við höldum því fram, að
stjórnin hafi notað þjóðarör-
yggi sem skálkaskjól í málinu,
til þess að leyna því að hótun
kom frá Bandaríkjamönnum
um að hætta upplýsingasam-
starfi, nema starfsmönnunum
væri bannað að vera í verka-
lýðsfélagi," sagði í athuga-
semd frá leiðtogunum.
Áf rýj unardómstóllinn
hnekkir úrskurði yfirréttar-
dómstóls, sem kvað bannið
ólöglegt, þar sem stjórnin
hefði á engan hátt haft sam-
ráð við starfsfólkið, áður en
bannið var sett.
Genscher svarar
ásökunum Rússa
Bonn, 6. ágúsL AP.
í gær, mánu-
dag, svaraði
Hans-Dietrich
Genscher, utan-
ríkisráðherra
Vestur-Þýska-
lands, ásökun-
um Sovét-
ríkjanna og
kvað bætt samskipti lands
síns við Austur-Þýskaland vera í
þágu friðar.
í langri yfirlýsingu, sem
Genscher gaf í Bonn, kvað
hann þýsku ríkin leitast við að
bæta samskipti sín í því skyni
að halda lífi í slökunarstefn-
unni (detente) í Evrópu.
„Það er ekki eingöngu í
verkahring Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna að stuðla að
varðveislu friðar," sagði
Genscher. „Meðalstór og
minni ríki geta einnig lagt sitt
af mörkum, til þess að sam-
keppni risaveldanna setji ekki
úr skorðum öll alþjóðleg sam-
skipti og samvinnu þjóða í
milli."
Hann kvað Vestur-Þýska-
land engan áhuga hafa á að
breyta landakortinu af Evrópu
og stjórn sín hefði enga land-
vinninga í huga með þessari
stefnu. „Það er í þágu friðar í
Evrópu að þýsku ríkin skuli
vinna saman," sagði Hans-
Dietrich Genscher utanríkis-
ráðherra.
Bladburöarfólk
óskast!
Austurbær
Sjafnargata
Grettisgata 2—35
Grettisgata 37—98
Bergstaöastræti
Kópavogur
Álfhólsvegur
65—137
Víöihvammur
Birkihvammur
Vesturbær Tjarnargata I
JWfrgiUirxlrlaliil>
Eldglæringar
Sérkennileg Ijósmynd tekin í Seattle í Kanada fyrir skömmu. Næturmynd sem sýnir mikið eldingahaf. Þrumuveð-
ur það sem myndin sýnir batt enda í langan þurrkakafla á þessum slóðum, en svo hamaðist veðrið, að borgin var
meira og minna rafmagnslaus meðan lætin voru hvað mest
Sri Lanka:
Miklar róstur milli
Tamila og hersins
Nýja Delhi o« Colombo, Sri Unka, 7. ágúst.
INDVERSKA dagblaðið The
Times of India greindi frá því í
dag, að sjóher Sri Lanka hefði
gert mikla árás á borgina Valv-
ettiturai á norðurströnd Sri
Lanka í hefndarskyni fyrir árásir
aðskilnaðarsinna úr röðum Tam-
ila á stjórnarhermenn og lög-
reglu síðustu daga.
Blaðið sagði 110 manns, skæru-
liða og óbreytta borgara hafa fall-
ið og eldar hafi logað lengi og
glatt í borginni, sem mun vera
Argentína:
Verdbólga
615,5%
VERÐBÓLGAN í Argentinu er nú
615,5% miðað við 12 síðustu mán-
uði. í júlímánuði einum óx verð-
bólgan um 18,3% í samanburði við
12,5% í sama mánuði í fyrra.
AP.
vinsæl miðstöð smyglara sem
laumast með varning sinn milli
Sri Lanka og suðurhluta Indlands.
Þá er borgin miðstöð nokkurra að-
skilnaðarhópa Tamila sem krefj-
ast þess að stofnað verði ríkið
„Eelam", ríki Tamila, sem telja 17
prósent hinna 16 milljóna Sri
Lanka-búa. Stjórnvöld í Sri Lanka
nefndu ekki árásina einu orði og
talsmaður indverska hersins sagð-
ist ekki vita meira um málið en
stóð í fyrrgreindu dagblaði.
Áður en sjóherinn lét til skarar
skriða með fyrrgreindum hætti
hafði lögreglan á Sri Lanka látið
til skarar skríða gegn Tamilum og
ERLENT,
„Mr. Noonu eftir
D.H. Lawrence
birt í fyrsta sinn
Londúnum, 7. ágúaL AP.
STU'IT ER í að út komi bók eftir
D.H. Lawrence, bók sem fannst
fyrir skömmu og ekki var vitað
fyrr en þá að hún væri til. Ekki var
handritið fullklárað, en nógu gott
þó til þess að nú kemur út bókin
Mr. Noon. Bókin kemur út 13.
september næstkomandi, en 60 ár
eru síðan bókin var rituð.
Það er Cambridge-háskólinn
sem gefur bokina út og talsmað-
ur stofnunarinnar sagði að í
raun væri Lawrence sjalfur að-
alpersóna bókarinnar, herra
Noon. Sagði hann og að mikið
fjaðrafok hefði orðið ef bókin
hefði komið út á sinum tíma, þar
eð opinskáar kynlífslýsingar eru
margar og persónur bókarinnar
illa dulbúið samferðafólk rithöf-
undarins á lifsleiðinni.
D.H. Lawrence
handtekið 500 grunaða hryðju-
verkamenn úr þeirra röðum og
síðan hafi tímabundið útgöngu-
bann verið sett á meðan aðskiln-
aðarsinnar voru grisjaðir frá
fjöldanum og yfirheyrðir. Kom til
nokkurra bardaga á meðan á að-
gerðum lögreglunar stóð og féllu
þá bæði lögreglumenn og Tamilar.
Þá sátu 60 Tamilar fyrir flokki
stjórnarhermanna skammt frá
fyrrgreindri borg og hófst þar
klukkustundarlangur bardagi sem
endaði ekki fyrr en 12 manns úr
báðum röðum lágu örendir eftir.
Veður
víða um heim
Akuroyri 17 rigning
Ammterdam 19 akýjað
Aþona 34 heiömkírt
Barcslona 28 Mttskýjað
Berlin 22 haiðakirt
BrUmmal 21 skýjað
Chicago 34 mkýjað
Dublin 20 akýjað
Faneyjar 24 akýjað
Frankfurt 20 rigning
Ganl 24 heiömkfrt
Halainki 25 heíðmklrt
Hong Kong 31 heiðekfrt
Jerúmatem 27 heiðmklrt
Kaupnrannahðfn 20 mkýjað
Limmabon 34 haiðskirt
London 18 mkýjað
Lom Angelem 28 heiðakirt
MfHnga 26 Mttskýjað
Mallorca 27 tottakýjað
Mtomi 30 heiðskirt
Montreal 26 mkýjað
Moskva 24 beiðmkirt
New York 31 mkýiað
Osló 19 akýjað
Parto 22 akýjað
Poking 34 heiðskirt
Reykjavík 13 rigning
Rió cto Janeiró 35 mkýjað
Rómarborg 32 heiðskfrt
Stokkhólmur 23 skýjað
Tókýó 35 heiðmkirt
Vínarborg 31 rigning