Morgunblaðið - 08.08.1984, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1984
25
Peres vill mynda
samsteypustjórn
Tel Aw, 7. igúst AP.
SHIMON Peres, formaður ísraelska
Verkamannaflokksins vann að því
baki brotnu í dag, að ræða við leið-
toga hinna ýmsu smáflokka á ísra-
elska þinginu, með það fyrir augum
að koma saman samsteypustjórn
með styrkum meirihluta. En samt
voru ekki líkur taldar á því að það
gæti hcppnast, auk þess sem Yitzhak
Shamir þykir síður en svo líklegri til
að mynda stjórn.
Af þessum sökum hefur Chaim
Herzog forseti hvatt þá Peres og
Shamir til að mynda þjóðstjórn.
Hafa leiðtogarnir hist nokkrum
sinnum til að ræða málið, síðast á
mánudaginn er þeir sátu þriggja
stunda fund. Voru þeir sammála
um að gera ekki opinbert hvernig
viðræðurnar gengu. ónafngreind-
Verkfall kolanámumanna:
Áflog og handtökur
eru daglegt brauð
Lundúnir, 7. á(úsL AP.
VERKFALL tugþúsunda kolanámu-
manna hefur nú staðið yfir í 22 vikur
og daglega verða ryskingar milli
lögreglu og verkfallsvarða sem hafa
sig mjög í frammi.
Námumaðurinn Jim Pearson
freistaði þess að mæta aftur til
vinnu í dag og fékk hann fylgd 60
lögreglumanna sem áttu ekki ann-
ara kosta völ en að gera áhlaup á
150 ófriðlega verkfallsverði. Var
það gert og urðu hávaðaáflog,
margir skrámuðust og 12 voru
handteknir. En Pearson komst til
vinnu sinnar.
Annar námumaður sem unnið
hefur upp á síðkastið í trássi við
verkalýðsfélögin, Monty Morgan,
hætti vinnu aftur í dag, eftir að
verkfallsverðir höfðu umkringt
hús hans, varpað í það grjóti og
hrópaði sig hása „enski bastarð-
ur“.
„Barátta þeirra er vonlaus, en
ég varð viti mínu fjær af hræðslu
fyrir hönd fjölskyldu minnar er
þeir sóttu að húsinu,“ sagði Morg-
an. Hann vinnur í Suður Wales, en
er Englendingur.
Alls eru í verkfalli tveir þriðju
hlutar hinna 183.000 kolanámu-
manna landsins. Af 174 kolanám-
um landsins eru nú aðeins 35 í
fullri vinnslu og aðrar 23 að hluta
Chris Butcher, eða „Silver Birch", er
leiðtogi þeirra námuverkamanna
sem vilja hætta verkfallsaðgerðum
strax og taka á vandanum út frá
þeirri stöðu.
til. Lokaðar með öllu vegna verk-
falla eða sumarleyfa eru á hinn
bóginn 116 námur. í Skotlandi er
þátttakan í verkfallinu nær alger.
Þar starfa 12.000 menn við 11
kolanámur. Aðeins 48 eru nú í
fullri vinnu í 4 námum. Slík er
þátttakan.
Beirút, 7. ágúst AP.
STJÓRNVÖLD í Líbanon hafa sam-
þykkt tillögu Sovétmanna um að
efna til alþjóðaráðstefnu til að
freista þess að leysa deiluna fyrir
botni Miðjarðarhafs að sögn líb-
anskra dagblaða.
Hafa blöðin eftir stjórnarer-
indrekum í utanríkisráðuneyti
Líbanon, að tillaga Sovétmanna
hafi verið samþykkt um helgina
en yfirmaður þeirrar deildar sov-
éska utanríkisráðuneytisins, sem
fer með málefni Mið-Austurlanda,
Vladimir Polyakov, er nú staddur
í Beirút. Er þetta annar viðkomu-
staður á för hans um Mið-Austur-
lönd.
Samkvæmt tillögu Sovétmanna
skulu forsvarar þeirra þjóða, sem
tækju þátt í ráðstefnunni, sam-
þykkja þrennt: að landi því sem
Israelsmenn hafa hernumið síðan
1967 verði skilað, að komið verði á
fót sjálfstæðu, og óháðu palest-
ínsku ríki og austurhluta Jerúsal-
ems verði skilað til araba.
Hambori;, 7. ágúnt. AP.
SIRIUS, skip Grænfriðunga, liggur
við akkeri um þrjár mflur frá strönd
Austur-Þýskalands, fær ekki að leggj-
ast að bryggju og er umkringt austur-
þýskum gæslubátum.
Um borð eru 28 Grænfriðungar,
sem ætluðu Rostock að fá stuðning
Austur-Þjóðverja í baráttunni gegn
kjarnorkuvopnatilraunum og fá
aftur loftbelg, sem Austur-Þjóð-
verjar tóku af þeim fyrir ári.
Yfirvöld í Vestur-Þýskalandi
ir upplýstir aðilar segja þó að báð-
um þyki að mörgu leyti aðlaðandi
að mynda þjóðstjórn, þá greinir
hins vegar á í einu veigamiklu at-
riði. Peres vill forsætisráðherra-
stólinn, Shamir einnig. Hvorugur
vill starfa undir forsæti hins og
báðir telja sig kjörna til að
drottna yfir stjórninni.
Viðræðunefndir Verkamanna-
flokksins og Likud-bandalagsins
hefja störf á morgun, fimmtudag,
en ekki er talin sérstök ástæða til
bjartsýni að stjórnarmyndun tak-
ist og forráðamenn Verkamanna-
flokksins binda meiri vonir við
myndun stjórnar án erkifjandans
Likud.
Simamynd AP.
Formaður Verkamannaflokksins, Shimon Peres, fer með stutta bæn við
Grátmúrinn I Jerúsalem, eftir að forseti landsins hafði falið honum að
mynda stjórn á sunnudaginn var.
Bandaríkjamenn:
Hlúa að illa særðum Afgönum
New York, 6. ágúst AP.
BANDARÍSKI flugherinn hefur flutt sjö alvarlega særða afganska andspyrnu-
menn til Reed-hersjúkrahússins í Washington þar sem reynt verður að gera að
meiðslum þeirra. Afganirnir sjö voru valdir gaumgæfilega úr hópi nokkur hundr-
uða í Pakistan, en fjöldi afganskra flóttamanna hefst þar við. Þetta er í fyrsta
skipti sem Bandaríkjamenn hafa afskipti af afgönskum andspyrnumönnum.
Miklir bardagar hafa verið í norð-
urhluta Afganistan, en þar hafa
andspyrnumenn gert öflugar gagn-
sóknir. Vestrænir stjórnarerindrek-
ar sem ekki láta nafna getið segja,
að rúmlega 100 sovéskir hermenn
hafi verið drepnir í nokkrum fyrir-
sátum og vörubifreiðir hlaðnar vist-
um brenndar til kaldra kola. Sov-
étmenn svöruðu og hefndu fyrir með
loftárásum á þorp í Shomali-héraði,
300 óbreyttir borgarar létu lífið í
árásum þeim.
í Pansjher-dal hafa andspyrnu-
menn sótt í sig veðrið og umræddir
erindrekar hafa látið í það skína að
Rússar og stjórnarherinn hafi ekki
þau tryggu völd þar sem þeir vilja
vera láta. Andspyrnumenn hafa gert
margar skyndiárásir á stöðvar and-
stæðinga sinna að næturlagi síðustu
daganna, drepið 130 Rússa og stjórn-
arhermenn. Auk þessa hafa bardag-
ar staðið yfir , eða blossað upp, í
Kabúl, Pagman, Shakardara, Istaíef
og Guldara. Mikið mannfall á báða
bóga.
Líbanir samþykkja
tillögu Sovétmanna
Skip Grænfriðunga við A-Þýskaland:
Fær ekki ieyfi til að
leggjast að bryggju
hafa ekkert aðhafst til að reyna að
greiða fyrir landgöngu Grænfrið-
unga í Áustur-Þýskalandi. Hópur-
inn ætlar nú að reyna að ná sam-
bandi við austur-þýska verkalýðs-
sambandið í von um að það geti út-
vegað landgönguleyfi hópsins. Skip-
ið mun dvelja utan við Rostock
a.m.k. fram á miðvikudag, en ef
leyfi fæst ekki fyrir þann tíma,
mun skipið snúa aftur til Vestur-
Þýskalands.
Kr. 590.000
IVECO DAILY er afburðasendibíll á góðu verði:
• Rúmgóður, 11.5 rúmmetra.
• Burðargeta 2.1 tonn.
• Kúlutoppur, rennihurð á hlið, afturhurð sem opnast 270° alveg upp í topp.
• 4 cyl. dieselvél 72 hö. DIN.
• 5 gíra kassi.
• Sjálfstæð öflug grind.
• FÍjótandi afturöxlar.
• 16" felgur, tvöföld afturhjól.
• Upphitaðir útispeglar.
• Fjölmargar gerðir fáanlegar, m.a. með 17 farþega innréttingu.
• Til á lager til afgreiðslu STRAX.
Verö með ryðvörn til atvinnubílstjóra.
EMMDtHP
FUNAHÖFÐA 1-110 REYKJAVÍK S. 91-685260