Morgunblaðið - 08.08.1984, Síða 57
JOE FAGAN I EINKAVIÐTALI VIÐ MORGUNBLAÐIÐ:
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1984
Eins og góð
lygasaga!
Sjá nánar/40—41.
„Gulldrengurinn“ sigrar!
Morgunblaöið/Símamynd AP.
„Gulldrengurinn” Carl Lewis si-
graði eins og ráö var fyrir gert í
100 metra hlaupi karla, hann
hljóp á 9,99 sekúndum og varö
langt á undan Sam Graddy frá
Bandaríkjunum sem varö í öðru
s»ti meö tímann 10,19 sekúnd-
ur.
Ben Johnsson frá Kanada varö í
þriöja særti á 10,22 og Bandar-
íkjamaöurinn Ron Brown fjóröi á
10,10,26.
Lewis átti ekki í miklum erfiö-
leikum aö tryggja sér þarna sitt
fyrsta gull á leikunum. Hann rann
eftir hlaupabrautinni og virtist
ekki þurfa aö hafa neitt fyrir hlut-
unum, slíkir voru yfirburöir hans.
Á myndinni sést hann koma í
mark, langt á undan keppinaut-
um sínum.
ÓL-met í spjótkasti
Þaö kom mjög á óvart aö
breska stúlkan Tessa Sanders-
son skyldi sígra f spjótkasti
kvenna. Strax í fyrsta kasti setti
hún nýtt ólympíumet er hún kast-
aöi spjótinu 69,56 metra.
Tiina Lillak, heimsmeistarinn frá
Finnlandi, varö önnur en margir
höföu bundiö vonir viö aö hún sigr-
aöi í þessari grein eins og Har-
konen hjá körlunum, en hún náöi
ekki aö slá Sanderson viö, kastaöi
69,00 metra. I þriöja sæti varö
breska stúlkan Fatime Whitebread
og kastaöi hún 67,14 metra.
Lillak gekk ekki heil til skógar í
þessari keppni, hún gat aöeins
kastað eitt kast, eftir þaö hné hún
niöur á bekkinn grátandi yfir óför-
um sínum og óánægju meö aö
geta ekki lokiö keppninni.
Kempes ekki
til Tottenham
Frá Bob Honnesty, fréttamanni Morgun-
blaóaina í Englandi.
TOTTENHAM Hotspur mun ekki
kaupa Argentínumanninn Mario
Kempes eins og búist var viö.
Eftir æfingaleiki helgarinnar
sagöist Peter Shreeves, stjóri
Spurs, vera ákveöinn í því.
Luther Blissett snýr aftur til
London í vikunni — Watford hefur
keypt hann aftur frá italíu. Liöiö
seldi hann til Inter Milan í júlí í fyrra
á eina milljón punda — og kaupir
hann nú aftur á 350.000 pund.
Ovæntur
sigur
VALERIE Brisco-Hooks, 21 árs
gömul blökkukona frá Los Angel-
es, réö sér ekki fyrir kæti þegar
hún haföi sigrað í 400 metra
hlaupi kvenna. Hún lagöist á hné
á brautina, flutti stutta bæn, hljóp
síöan um trillt af gleöi og veifaöi
til áhorfenda, síöan lá leiöin upp
á áhorfendapalla þar sem hún
hljóp til eiginmanns síns og son-
ar og faómaói þá aö sér.
Þar sem hún var í faömi fjöl-
skyldunnar á áhorfendapöllunum
kom þjálfari hennar til hennar og
glöddust þau innilega og ætlaöi
þeim fagnaörlátum aldrei aö linna.
Brisco-Hooks fékk tímann 48,83
sekúndur, sem er nýtt ólympíumet
og fjóröi besti tíminn í greininni frá
upphafi. Gamla metiö átti Marita
Koch frá Austur-Þýskalandi og var
þaö 48,88 sekúndur.
Fyrir ári var Hooks oröin um sjö
kílóum of þung, nýbúin aö eignast
barn, en þjálfari hennar fékk hana
til aö hefja æfingar aö nýju og
árangur þrotlausra æfinga kom í
Ijós á mánudaginn.
Morgunblaöið/Simamynd AP.
• Valerie Brisco-Hooks frá
Bandaríkjunum flutti stutta bæn
eftir sigur sinn í 400 metra hlaup-
inu og er myndin tekin viö þaó
tækífæri.
Fjorir i
leikbann
HÖRDUR Jóhannesson, ÍA, var
dæmdur í eins leiks bann á fundi
aganefndar KSÍ f gær — vegna
tíu refsistiga. Júlfus Júlíusson,
Þrótti, var einnig dasmdur í eins
leiks bann vegna tíu refsistíga,
svo og Framararnir Viöar Þor-
kelsson og Þorsteinn Þorsteins-
son. Þeir missa því allir af fyrstu
leikjum félaga sinna eftir sumar-
friTó.
ísland vann
Grænland 1:0
ÍSLENDINGAR sígruöu Grænland
meö einu marki gegn engu, 1:0, i
landsleik í knattspyrnu i Færeyj-
um á föstudagskvöldið.
Leikurinn var liöur í þriggja
landa keppni sem liðin tóku þátt f
ásamt heimamönnum.
Þaö var KA-maöurinn Stein-
grfmur Birgisson sem skoraöi eina
mark leiksins gegn Grænlending-
um.
• Einar Vilhjálmsson kastar hér spjótinu f úrslitakeppninni aófara-
nótt mánudags. Morgunblaölð/Sfmamynd AP
Sigurvegarinn í spjótkasti:
Höro keppni
Fri Mraml Ragnaraayni, Maðamanni MorgunMaAaina I Loa Angataa.
„ÉG ÁTTI í miklum erfiöleikum
meö tvö fyrstu köst min, en
þegar ég kastaói 84 metra í
þriöja kasti tókst mér aö slaka
aöeins á,“ sagöi Finninn Arto
Harkonen eftir aö hafa sigraö í
spjótkastinu.
.Mér fannst keppnin mjög
hörö og er aö sjálfsögöu geysi-
lega ánægöur meö aö hafa sigr-
aö. Ég hef æft allt aö sex klukku-
stundir á dag aö undanförnu og
er stoltur yfir því aö hafa sigraö f
þessari grein, sem er svo vinsæl
heima í Finnlandi.
Ég ætla bara aö vona aö Tiina
Lillak leiki þetta eftir mór — sigri
í spjótkasti kvenfólksins —
þannig aö viö náum tvöföldum
finnskum sigri í greininni á þess-
um leikum," sagði Harkonen.
Úrslitin í spjótkastlnu uröu þessi:
1. Arto HarKonen, Finnlandl 86,76 m
2. David Otley, Bretlandí 65,74 m
3 Kenneth Eldenbrink, Sviþjóö 83,72 m
(Það er hans besti árangur til þessu og náði
hann þvi kastl í flmmtu umlerð.)
4 Woltram Qambke, V-Þýskalandi 82,46 m
5 Massami Yoshida, Japan 81,68 m
6. Einar Vilhjálmsson, islandi 81,58 m
7. Roald Bradstock, Bretlandl 81,22 m
8. Lask> Bablts, Kanada 80,68 m
9. Per Erling Olsen, Noregi 76.98 m
10. Tom Petranott, Bandarikjunum 78,40 m
11 Duncan Atwood. Bandarikjunum 78,10 m
12 Jean Paul Lagafy, Frakklandl 70,86 m
Siguröur Einarsson komst
ekki í úrslitakeppnina. Hann
kastaöi 69,82 metra í undanúr-
slitunum. Þá voru nokkrir frægir
kastarar, eins og Tafelmeyer frá
Vestur-Þýskalandi, sem komust
ekki í úrslitakeppnina.
Sjá nánar um spjótkastió og
viótal viö Einar Vilhjálmsson
á bls. 36 og 37.