Morgunblaðið - 08.08.1984, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1984
MorpinblaAid/Sfmaiiijiid AP.
• Jakob Sigurösson avífur hér meö glæsilegum tilþrifum inn í vítateig Japana á laugardaginn og skorar. Ekkert smóflug á kappanum! Jakob skoraöi þrjú mörk (leiknum — þar af
tvö þau síðustu.
Öruggur íslenskur sigur
á Japönum á laugardag
Loa AngaWa, 3. égúat. Fré Svnini
Svoinaayni, fréttamanni Morgunblaöaina.
íslenska landsliöiö í handknatt-
leik sigraöi liö Japan í handknatt-
leikskeppninni á Ólympíuleikun-
um hérna í kvöld með fjögurra
marka mun. Úrslit leiksins uröu
21:17 eftir aö staöan haföi veriö
9:9 í hálfleik. Jafnt var á nokkrum
tölum í leiknum en íslendingar
leiddu mestallan fyrri hálfleikinn.
í þeim síöari náöu Japanir foryst-
unni en við náöum aftur foryst-
unni og komumst í 15:12 og unn-
um leikinn eins og áöur sagöi
21:17.
Islenska liöiö hóf leikinn af mikl-
um krafti og skoruöu þrjú fyrstu
mörkin og voru þaö þeir Bjarni
Guðmundsson, Þorbjörn Jensson
og Guömundur Guðmundsson
sem skoruöu þau mörk. Japanir
skora siöan sitt fyrsta mark þegar
sex mínútur voru liönar af leiknum
úr vítakasti og þegar fyrri háifleikur
var hálfnaöur var staöan oröin 5:4
fyrir Island.
Guömundur skorar fyrir ísland
og Siguröur Gunnarsson misnot-
aöi vítakast og Japanir brunuöu
upp og skoruöu sitt sjötta mark og
staöan því jöfn, 6:6. Kristján Ara-
son skorar næsta mark leiksins úr
vítakasti og nú misstu Japanir einn
leikmann útaf og viö því einum
fleiri. Asíubúar létu þaö þó ekki á
sig fá og jöfnuöu metin þrátt fyrir
aö vera einum færri. Siguröur
Gunnarsson skoraöi næsta mark
íslands og staöan oröin 9:8.
Á 25. mínútu leiksins var fyrsta
íslenska leikmanninum vikiö af
velli og var þaö Guömundur Guö-
• Kristján Araeon
mundsson sem fékk aö hvíla sig í
tvær mínútur. Bjarni Guömunds-
son fékk aö hvila sig skömmu síö-
ar ásamt einum Japana en þaö
voru þeir sem áttu síöasta oröiö í
fyrri hálfleiknum og jafna metin,
9:9, rétt áöur en dómarinn flautaöi
til léikhlés.
Strax í upphafi síöari hálfleiks er
einum Japana vikiö af leikveili og
þaö notfæröi íslenska liöiö sér og
Kristján Arason kemur liöinu yfir,
10:9, en honum er síöan vikiö af
velli í tvær mínútur og Japanir ná
forystunni í fyrsta skiptiö í leiknum,
10:11. Bjarni Guðmundsson nær
aö jafna metin eftir aö Siguröur
Gunnarsson hafði misnotaö víta-
kast. Japanir gáfust ekki upp og
þeir ná aftur forystunni en nú var
islenska liöiö aftur meö fullskipaö
liö og Kristján jafnar metin.
íslendingar skora næstu þrjú
mörk. Þaö voru þeir Atli Hilmars-
son og Kristján Arason sem þaö
ísland — Japan
21:17
geröu og breyttu stööunni í 15:12.
Þegar um sjö mínútur voru eftir af
leiknum haföi íslenska liöiö for-
ystu, 18:14, og ekki ósvipuö staöa
komin upp og á móti Júgóslövum.
Menn reiknuöu ekki meö aö ís-
lenska liöið léti leikinn endurtaka
sig frá því í þeim leik, en hvaö ger-
ist? Jú, Japanir skora næstu tvö
mörk og var þá fariö aö fara um
marga islendinga sem þarna voru.
Einum Japana er vikiö af leikvelli í
tvær mínútur þegar um fjórar mín-
útur eru eftir af leiknum og þá
rýmkaöist um Þorgils Óttar 3 lin-
unni sem skorar 19. mark íslands.
Jakob Sigurösson bætti 20. mark-
inu viö og þaö var einnig hann sem
skoraöi siöasta mark leiksins og
innsiglaöi sigur Islands á Japan,
21:17.
Mörk islands skoruöu þeir
Kristján 7, Jakob 3, Bjarni, Sigurö-
ur Gunnarsson, Atli og Guðmund-
ur tvö mörk hver og Þorgils Óttar,
Alfreö og Þorbjörn geröu eitt mark
hver. Úr 44 sóknum liösins komu
34 skot sem gáfu eins og áöur
segir 21 mark. Leikmenn liösins
voru utan vallar í 8 mínútur og þaö
sama á viö um Japani. Islenska lið-
iö fékk sex vítaköst á meöan Jap-
an fékk fimm.
Yamamoto var markahæstur í
japanska liöinu, skoraöi sjö mörk.
Þeir sem hvíldu aö þessu sinni
úr íslenska hópnum sem er á
Ólympíuleikunum voru Siguröur
Sveinsson, Steinar Birgisson og
Jens Einarsson.
Leikur ísland um fimmta sætið?
Los Angelss. 7. ágúsl. Fré Mrarni Ragnars-
syni, bisðamanm Morgunblaðtins.
ÞEGAR einni umferö er ólokið (
riölakeppninni í handknattleik
hér á Ólympíuleikunum er allt
útlit fyrir aö það veröi Rúmenía
og Danmörk sem leíka til úrslita
á leikunum. Rúmenar hafa for-
ystu í sinum riöli, hafa sigraö (
öllum sínum leíkjum og þaö
sama á viö um Dani, þeir eru
ósigraöir enn á leikunum.
í A-riöli eru Júgóslavar í ööru
sæti, islendingar í þriöja, Sviss í
fjóröa og Japan í fimmta sæti en
Alsirbúar reka lestina, en þeir og
Japanir hafa tapaö öllum sínum
leikjum til þessa.
Rúmenar eiga eftir aö spila viö
Júgóslava, íslendingar viö Sviss-
lendinga og Japanir viö Alsír.
í B-riðli eru Vestur-Þjóðverjar í
ööru sæti og hafa ekki tapaö leik
til þessa, frekar en Danir. Svíar
eru í þriöja sæti, Spánverjar í
fjórða, Suöur- Kóreumenn i
fimmta og Bandaríkjamenn í
sjötta sæti.
Danir og Vestur-Þjóðverjar
eiga eftir aö leika saman í riölin-
um og veröur þaö hreinn úrslita-
leikur um réttinn til aö leika í úr-
slitaleiknum gegn Rúmenum eöa
Júgóslövum. Allt bendir til þess
að þaö veröi Islendingar og Svíar
sem leiki um fimmta sætiö á leik-