Morgunblaðið - 08.08.1984, Page 68
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1984
Ég byrjaði á því aö spyrja Fagan
hvort hann heföi búist viö því aö
verða geröur aö framkvæmda-
stjóra liösins er Paisley hætti, í
fyrravor.
„Nei, í rauninni ekki. Félagiö
heföi aö sjálfsögöu getaö boöiö
einhverjum öðrum starfiö — en
forráöamennirnir ákváöu aö bjóöa
mér þaö. Svo einfalt var þaö. Þeir
ákvaöu aö maöur „aö innan“
skyfdi veröa næsti framkvæmda-
stjóri.“
„Heföi ekki orðið
óánægður..."
En sagt hefur veriö aö fram-
kvæmdastjórastaöan hór sé
ættgeng. Aö utanaökomandi
menn komist ekki aö. Það hefur
því varla komið þér é óvart aö þú
yröir fyrir valinu?
„Þaö er alveg rétt, segja má aö
staöan hafi veriö ættgeng! En þaö
er ekki þar meö sagt aö svo veröi
um alla eilífö. Sú staöa kom upp
aö forráöamenn félagsins ákváöu
aö hækka mig í tign — en ég heföi
ekki orðiö svekktur þó ég heföi
ekki hlotiö starfið. Alls ekki. Ég
heföi ekki haft neinn rétt til þess.
Þaö er ákvöröun stjórnar félagsins
hver tekur viö — og menn veröa
ávallt aö taka þeirri ákvöröun.“
Hve lengi hefur þú veriö é An-
field?
„Ég kom, skal ég segja þér, fyrir
tuttugu og fimm árum. Og ég byrj-
aöi sem aöstoöarþjálfari. Neöst í
tröppunni sem sagt.“
Fagan lék meö Manchester City
í þrettán ár er hann var yngri. „Eftir
aö ég hætti svo hjá City flakkaöi
ég örlítiö um sem leikmaöur —
ekki meö sérlega góöum árangri
get ég sagt jjér, þangaö til ég fékk
stööu sem þjálfari hjá Rochdale.
Þaöan kom ég svo hingaö til Liver-
pool. Og því máttu trúa aö síöustu
tuttugu og fimm ár hafa veriö ár
hamingjunnar í lífi mínu — ég hef
starfaö hjá góöum vinnuveitendum
og meö góöum samstarfsmönn-
um. Þetta er gott og skemmtilegt
starf og maður kynnist ógrynni af
góöu fólki í því.“
Og varla hefur árangurinn
„spillt fyrir“?t
„Vitanlega ekki. Já, já, árangur-
inn hefur veriö hluti af þessu öllu.“
„Hef verið heppinn“
Þegar Paisley tók við liöinu
sögöu menn aö þaö yröi mjög
erfitt aö feta í fótspor Shanklys.
Var ekki enn erfiöara fyrir þig aö
taka viö liöinu eftir þau stórvirki
sem þaö vann undir stjórn Bobs?
„Nei, sko sjáöu til. Ég hef veriö
mjög heppinn í þessu sambandi.
Fólk sagöi, er Bob tók viö — og
réttilega vitanlega — aö þaö yröi
erfitt fyrir hann. En þegar ég tók
viö framkvæmdastjórastööunni
horföi máliö talsvert ööruvísi viö
mér — vegna þess einfaldlega aö
ég starfaöi meö Shankly, siöan
Bob er hann tók viö, þannig aö ég
veit hvernig hlutirnir þróast hér.
Aldur skiptir líka talsveröu máli í
þessu sambandi, og ég er enginn
unglingur! — Reynsla mín er mikil
og hún er geysilega mikils viröi.“
Þaö er ekki hægt aö segja aö
þú hafir staöiö þig illa, er þaðl?
„Ég get nú eiginlega ekki sagt
JOE FAGAN er rólyndismaður og einstaklega geðugur. Framkvæmdastjórar knattspyrnuliða eiga það til,
sumir hverjir, að láta mikið á sér bera — stórorðar yfirlýsingar þeirra fylla síður blaða dag eftir dag en
árangurinn er ekki alltaf í samræmi við þær. Joe er ekki mikiö fyrir stóryrði — hann er maður verksins,
og kann best viö sig í rólegheitum á Anfield eða á Melwood, æfingavelli meístara Liverpool. Fagan tranar
sér ekki fram. Hann treöur sér ekki fram í sviðsljósið fremur en forveri hans í starfi, Bob Paisley.
Leikmenn þessara tveggja heiðursmanna hafa talað fyrir þá — og ekki er hægt aö segja annað en að þeir
hafi veriö og séu reglulega „tunguliprir“, árangur enska knattspyrnuliðsins Liverpool, sem Fagan er nú
framkvæmdastjóri fyrir, undanfarin ár sýnir það glögglega. Liverpool er væntanlegt hingað til lands um
næstu helgi og leikur þá við KR sem kunnugt er. Fagan er maöur á sjötugsaldri — 62 ára nánar tiltekið,
kvæntur og sex barna faðir. Erfitt væri að ímynda sér að þar færi framkvæmdastjóri eins besta, ef ekki
besta, knattspyrnuliös heimsins þekkti maður hann ekki í sjón. Lítillætiö og manngæskan eru hans
einkenni. Skrifstofa Fagans er að sjálfsögðu á Anfield — þar sem forverar hans hafa setið. Innst í
ganginum — hurðin er merkt „manager“. Einkaritari Fagans sat þar fyrir innan við skrifborð sitt og
„hræröi“ í pósti dagsins, en inn af hennar kompu er skrifstofa framkvæmdastjórans. Látlaus skrifstofa í
stíl við notandann. Ég sat þar inni í örlitla stund áður en Joe kom — klukkan var um níu að morgni og
hann var frammi að ræða við þjálfarana um verkefni dagsins. Áöur en við fórum að spjalla saman þurfti
hann að hringja eitt símtal — „fyrirgefðu, það tekur ekki nema smástund“. Ekki var ég aö flýta mér. Hefði
raunar getað setiö þarna inni lengi — hver hefði trúað því fyrir nokkrum árum að ég ætti eftir aö sitja á
skrifstofu Liverpool-stjórans og spjalla við hann? Ekki ég að minnsta kosti. Nú var stundin þó runnin upp
og um að gera að nýta hana. Ég smellti að sjálfsögðu mynd af Fagan í símanum — og get því upplýst að
hún er ekki uppstillt, heldur ekta!
svo mikiö um þaö sjálfur,” sagöi
Fagan. Þegar ég ræddi viö hann
átti Liverpool enn eftir tvo leiki i 1.
deildinni svo og úrslitaleik Evrópu-
keppni meistaraliöa. Sigur í deild-
inni var aö visu nánast í höfn, og
Liverpool vann svo Evrópubikarinn
stuttu síöar í Róm er liöiö sigraöi
AS Roma eftir vitaspyrnukeppni,
eins og knattspyrnuunnendum
hérlendis er eflaust enn minnis-
stætt.
Liverpool átti sem sagt þrjá leiki
eftir er þetta samtal okkar fór
fram, deildarleiki við Notts County
á útivelli næsta laugardag og
heima eftir þá helgi viö Norwich.
Liverpool geröi markalaust jafntefli
gegn County og þá var titillinn í
höfn, eins og Mbl. greindi rækilega
frá í vor.
Eins og góð lygasaga
En Fagan sagöi aö hvernig sem
þeir þrir leikir sem eftir voru heföu
endaö, heföi keppnistímabiliö
engu aö síöur veriö gott frá sjón-
armiöi Liverpool. „Ég er mjög
ánægöur meö mitt fyrsta tímabil
sem framkvæmdastjóri. Þegar ég
tók viö átti ég alls ekki von á því aö
mér myndi ganga svona vel. Gengi
mitt hefur veriö eins og góö lyga-
saga!“
Þeir hjá Liverpool ganga ekki aö
neinu vísu. Þarna var 40 leikjum
lokiö í deildarkeppninni — tveir
eftir, og meistaratitillinn nánast í
höfn. Fagan talaöi þó ekki um
meistaratitil eöa neitt þviumlíkt.
Laugardaginn á eftir, í búnings-
klefanum eftir leikinn viö Notts
County, var annaö uppi á teningn-
um eins og gefur aö skilja. Ang-
andi af Couros-rakspíra, meö lítið
viskýgias i hendi, geröi Joe aö
gamni sínu viö blaöamannahópinn
sem ræddi viö hann — afslappað-
ur og skemmtiiegur.
„Trúum ekki á
breytingar“
En áfram meö samtal okkar (
skrifstofu hans. Ég bar þaö undir
hann hvort ekki væri rétt hjá mér
aö lítið heföi verið um breytingar
síðan hann tók við stjórn liösins.
„Nei. Nei, viö trúum i rauninni
ekki á breytingar hér. Og þaö var
náttúrulega ein af ástæöunum fyrir
því aö ég fékk starfiö aö ég þekkti
svo vel til hór. Þekkti allt starfs-
Joe Fagan, framkvæmdastjóri Liverpool, í einkasamtali við Morgunblaðið:
„Gengi mitt eins
og góð lygasaga"