Morgunblaðið - 08.08.1984, Síða 70
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1984
Landsmótinu í golfi lauk á föstudag:
Sigurvegararn-
irallirúrGR
— Ásgerður og Sigurður íslandsmeistarar
• „Ég hef aldrei tapad móti þegar Böóvar hefur dregið fyrir mig,“
sagði íslandsmeistarinn eftir mótiö. Hér sést hann ásamt kaddí sínum,
Böövari Bergssyni.
LANDSMÓTINU í golfi lauk é
Grafarholtsvelli é föstudags-
kvöldiö. Þétttakendur i mótinu
voru 193 og keppt var í sjö flokk-
um. íslandsmeistari karla varö
Sigurður Pétursson úr GR og í
kvennaflokki sigraöi Ásgeröur
Sverrisdóttir, einnig úr GR, en
hún varö eínnig fslandsmeistari í
fyrra. Keppnin i flestum flokkum
var mjög jöfn og spennandi og
fjölmargir áhorfendur fylgdust
meö kylfingunum, sérstaklega
síöasta daginn þegar lokahring-
urinn var leikinn. Veöur var hiö
besta alla dagana nema hvaö é
föstudaginn var nokkur vindur og
örlítill úöi um tíma. Golfklúbbur
Reykjavíkur var framkvæmda aö-
ili að þessu móti og tókst þeim
vel upp é hélfrar aldar afmælinu
sínu.
Keppnin í meistaraflokki karla
var jöfn og spennandi, eftir þriggja
daga keppni haföi Siguröur Pét-
ursson forystu, haföi leikiö á 226
höggum. Siöan komu þeir hver af
öörum, Gylfi Kristinsson á 227,
Magnús Ingi Stefánsson á 228,
Ragnar Ólafsson og Úlfar Jónsson
á 229, ívar Hauksson á 230 og
Björgvin Þorsteinsson á 232. Talið
var aö allir þeir sem hér hafa veriö
taldir upp heföu getaö náö fyrsta
sæti, svo lítill var munurinn.
Þrír fyrstu menn fóru saman út í
holli og fylgdist blm. meö þeim all-
an hringinn og fer lýsing af þeim
hring hér á eftir.
1. HOLA:
Allir þrír léku þessa holu á pari,
fjórum höggum án teljandi erfiö-
leika, og staðan raskaöist því ekki
á fyrstu holunni.
2. HOLA:
Þessa holu paraöi Siguröur,
notaöi þrjú högg, Gylfi þrípúttaöi
og lék því á fjórum höggum en
Magnús Ingi var enn óheppnari en
Gylfi og notaöi fimm högg.
3. HOLA:
Allir meö gott teigskot. Magnús
inná gríninu í þremur höggum og
notaöi aöeins eitt pútt og paraöi
því þessa holu. Gylfi var rétt utan
viö gríni eftir þriöja högg, notaði
pútter, lagöi hann viö holuna og
kláraði á fimm höggum. Siguröur
lenti yfir gríninu og út í þyrrkni
(röffi), notaöi pútter til aö slá inn á
grínið og kláraöi á fimm höggum
eins og Gylfi. Þessi braut var mjög
erfiö á föstudaginn, hliöarvindur
nokkuö mikill og því er þetta góöur
árangur hjá þeim.
4. HOLA:
Þetta er fyrsta par 5 holan á
vellinum. Magnús á pallinn og náöi
góöu teigskoti, félagar hans einn-
ig. Siguröur náöi mjög góöu ööru
höggi alveg inn á grín, Magnús
komst þangaö líka í ööru höggi, en
Gylfi var of stuttur á því. Magnús
og Sigurður léku þessa holu á fjór-
um höggum en Gylfi lék á pari.
5. HOLA:
Siguröur var meö lengsta upp-
hafshögg á þessari braut, en var
óheppinn og lenti kúlan út í urö,
sem liggur viö brautina og stööv-
aöist þar skemmtilega ofan á ein-
um steininum. Næsta högg yfir
grínið en þriöja höggiö glæsilega
lagt viö holuna. Klárar á fjórum
höggum. Magnús lenti yfir gríni í
öðru höggi, átti misheppnaö högg
til baka, tvípúttaöi og kláraöi á
fimm. Gylfi á gríninu í tveimur,
langt pútt og tryggöi sig vel þannig
aö hann kláraöi örugglega á fjór-
um.
6. HOLA:
Siguröur vann pallinn aftur, en
teigskotiö hans var algjörlega mis-
heppnaö, lenti út í uröinni í kring
og í einn ahorfendann án þess þó
aö slasa nokkurn. Siguröur ruddi
grjóti frá kúlunni og gaf sér langan
tíma til aö skoöa aöstæöur hiö
besta. Högg hans var örlítið of
fast, yfir gríniö og út í röffiö. Næsta
högg var of fast þannig aö hann
kláraöi á fimm höggum eftir aö
hafa tvípúttaö. Gylfi átti gott upp-
hafshögg, rétt yfir gríniö. Innáspiliö
sæmilegt, missti tveggja metra
pútt og fékk þvi fjögur högg á
þessa holu. Magnús lék þessa holu
eiginlega alveg eins og Gylfi, gott
fyrsta högg, innáspilið slakt, tví-
pútt og fjögur högg í þaö heila.
7. HOLA:
Allir þrír lentu út í þyrrkni (röffi) í
teigskotinu. Kúlan hans Gylfa lá illa
en hinar tvær vel. Annaö högg
Gylfa geröi ekki annaö en færa
hann fimm metra áfram í þyrrkninu
en í þriöja höggi komst hann á
gríniö. Siguröur lagöi sinn bolta vel
á grínið í ööru höggi og þaö sama
geröi Magnús. Sigurður renndi
snyrtilega boltanum sínum í holuna
meö 15 metra löngu pútti og lék
því á þremur höggum, sem er einu
undir pari. Magnús tvípúttaöi og
kláraöi á fjórum höggum en Gylfi
þrípúttaöi og kláraöi á sex högg-
um.
8. HOLA:
Magnús lá vel á braut eftir fyrsta
högg, Gylfi rétt utan viö hana en en
Sigurður var lengra úti í þyrrkninu,
kúlan lá samt vel og hann lék
þessa holu af miklu öryggi á fjórum
höggum, pari. Magnús og Gylfi
léku þessa holu á höggi yfir pari
eftir aö hafa misnotaö um fjögurra
metra pútt hvor.
9. HOLA:
Hér áttu þeir allir langt teigskot,
eins og reyndar alla keppnina.
Gylfi og Magnús eru ekki á braut
en Siguröur lék þetta eins og
heimamanni sæmir, sendi fyrsta
höggiö sitt inn á fjóröu braut, sem
liggur rétt hjá og þaöan átti hann
fallegt annaö högg, sem lenti beint
á gríninu. Kúlan var um 10 metra
frá holu en Siguröur lét þaö ekkert
á sig fá heldur sendi hana rakleiöis
í holuna og lék því holuna á
„burdie" og fyrri níu holurnar á 35
höggum, sem er parið. Magnús
ienti ofan i „bunker" í ööru höggi
en náöi góöu höggi upp úr honum
og var um fimm metra frá holunni.
Þaö mistókst hjá honum og hann
kiáraöi á fimm höggum og fyrri níu
holurnar á 40 höggum. Gylfi var of
stuttur á því í ööru högginu og
þriöja einnig þannig aö hann varö
aö tvípútta og kláraði á fimm. Níu
fyrstu holurnar lék hann á 42
höggum.
10. HOLA:
Eftir smáhressingu í skálanum
viö tíunda teiginn hófu kapparnir
aö slá á ný. Siguröur lenti enn eina
feröina utan viö brautina og aö
þessu sinni gat hann ekkert aö
gert nema taka víti því kúlan lá
ofan í holu algjörlega ósláanleg.
Þriöja högg hans var rétt viö grín-
iö. Magnús og Gylfi voru báöir á
gríni eftir tvö högg. Gylfi átti langt
og fallegt pútt en kúlan stoppaöi
alveg viö holubrúnina og hann
klaraöi á fjórum. Magnus lék líka á
fjórum höggum en Sigurður lék á
fimm.
11. HOLA:
Allir meö sæmileg teigskot, eng-
inn þó alveg inni á gríni. Gylfi lék
þessa holu af öryggi, fékk par, en
Magnús og Siguröur léku á fjórum
höggum og Siguröur misnotaði
stutt pútt, sem er óvenjulegt af
honum, kúlan hefur ef til vill veriö
of stutt frá holunni til þess aö hann
kynni vel viö þetta, en hann var
búinn aö senda mörg mjög löng
pútt niður.
12. HOLA:
Eftir tvö högg á þessari braut
var Gylfi á góöum staö á brautinni,
bara eftir aö slá inn á gríniö. Sig-
uröur var úti í móum eins og svo
oft áöur og kúlan lá nú fremur illa.
Magnús var lengst frá holunni en
átti gott þriöja högg inn á gríniö.
Púttin mistókust hjá honum og
hann varö aö þrípútta og kláraði
holuna á sex höggum. Þriöja högg
Siguröar rúllaöi yfir grínið og út í
grasið, sem er þar nokkuö hátt, en
hann átti gott högg til baka og
þurfti aðeins aö pútta einu sinni til
aö klára holuna á fimm höggum og
þaö geröi hann. Gylfi lék þessa
holu mjög vel, gott innáskot og létt
pútt. Hann notaöi aöeins fjögur
högg, sem er einu undir pari.
13. HOLA:
Allir náöu þeir góöum teigskot-
um og þeir Gylfi og Siguröur voru
báöir inn á gríni eftir tvö högg en
Magnús var rétt utan viö þaö.
Hann átti gott þriöja högg og lagöi
boltann skammt frá holunni og
kláraöi holuna á fjórum, sem er
par hennar. Þriöja högg Sigurðar,
sem jafnframt var fyrsta pútt hans
á þessari braut, var of stutt, kúlan
stoppaöi um tvo metra frá holunni
og eftir þaö þurfti hann tvö pútt til
viðbótar og fór því á „double
bogy“ eöa sex höggum. Gylfi pútt-
aöi í þriöja höggi en aöeins of stutt
Enginn „bömmer“-dagur
— sagöi Ásgeröur Sverrisdóttir íslandsmeistari
„Já ég er mjög ánægö með
þennan sígur, ég lék aö vísu illa
á síðustu þremur holunum en
þaö kom ekki aö sök. Þaö vant-
aöi meiri pressu á mig og þaö
geröi þaö aö verkum aö ég gat
leikiö mjög atslappaö í allan
dag,“ sagöi Ásgeröur Sverris-
dóttir íslandsmeistari í
meistaraflokki kvenna þegar
hún var spurö aö því hvort hún
væri ánægö með leik sinn á
þessu móti. Ásgerður er úr GR
eins og allír sigurvegarar þessa
landsmóts og hún sígraóí með
yfirburöum á mótinu, lék á 328
höggum samtals en næsta lék á
334.
Ásgeröur sagði aö hún væri
búin aö vera í golfi í 10 ár en
síöustu sex árin heföi hún æft
reglulega, en þaö þýöir aö hún
leikur golf daglega, eöa fer á
golfvöllinn reglulega og tekur
þátt í öllum keppnum.
„Ég er mjög ánægö með alla
dagana hjá mér, mér tókst aö
leika mjög stööugt allan tímann.
Það var enginn „bömmer“-dagur
hjá mér í þessu móti, ekki einu
sinni í dag (föstudag). Ég lenti
aldrei í neinum alvarlegum vand-
ræöum og þaö er mjög gott. Ég
er líka ánægö meö aö vinna
þetta meö svona miklum mun því
i fyrra þegar ég vann var ekki
svona mikill munur,“ sagöi Ás-
gerður sem nú fagnar ísland-
meistaratitli í annaö sinn á tveim-
ur árum.
• SIGURKOSSINN. Hér hafa þau Sigurður og Ásgeröur tekið á
móti verölaunum sínum fyrir sigur á landsmótinu og gera sig hér
klár til aó óska hvort ööru til hamingju meö þann árangur. ,