Morgunblaðið - 08.08.1984, Side 30

Morgunblaðið - 08.08.1984, Side 30
46 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1984 íslandsmót í hestaíþróttum á Vindheimamelum: Ungu knaparnir atkvæðamiklir ÍSLANDSMÓT í hcstaíþróttum var haldið um verslunarmannahelgina jafnhliða árlegu hestamóti félag- anna í Skagafirði. Var mótið haldið að Vindheimamelum og stóð það yfir í þrjá daga. Veður var eins og best verður á kosið og það ásamt góðum hestum, jafnri keppni og góðri móts- stjórn gerði þetta mót eitt hið eftir- minnilegasta sem um getur. Margir ungir og góðir knapar settu mark sitt á keppnina og er ljóst að breiddin hefur aldrei verið meiri í íslenskri reiðmennsku. Reyndir og kunnir keppendur urðu oft á tíðum að lúta í lægra haldið fyrir ungu mönnunum. Hestakost- ur var óvenju góður og var keppn- in á köflum æsispennandi og hjálpaði tölvan sem notuð var þar mikið upp á, en röð efstu hesta var stöðugt á sjónvarpsskjá og gaf það áhorfendum kost á að fylgjast nákvæmlega með stöðunni hverju sinni. Kappreiðar voru góðar miðað við það sem verið hefur í sumar, flest bestu hrossin mætt til leiks og tímar svona þokkalegir og upp í það að vera góðir. Um aðstöðuna á Vindheimamel- um þarf ekki að fara mörgum orð- um því hún er í einu orði sagt frábær og þegar veðrið er eins gott og raun bar vitni um fer ákaflega vel um alla mótsgesti. Fram- kvæmd mótsins gekk i stórum dráttum vel og urðu litlar sem engar tafir á mótsstörfum. Margir ungir keppendur voru mikið í sviðsljósinu að þessu sinni og mun á engan hallað þó hér sé nefndur Einar Öder Magnússon sem kom mjög skemmtilega á óvart en hann var í úrslitum { tölti, fjórgangi og fimmgangi. Sigraði hann í tölti, varð annar í fimmgangi og þriðji í fjórgangi og vann hann þessi afrek á tveim hrossum sem ekki hafa getið sér frægð í keppni fram að þessu. Nánar verður fjallað um mótið síðar og verða þá birt úrslit í öll- um greinum mótsins. Kinar Öder Magnússon kom skemmtilega á óvart er hann sigraói í töltinu á hryssunni Tinnu frá FlúAum, sem valin var glæsilegust allra hrossa sem á mótinu kepptu. MorgunblaðiA/Valdimar. Svar til Þórðar As- eftir Vilhjálm Jónsson Vegna orðsendingar til mín frá Þórði Ásgeirssyni, forstjóra Olíu- verslunar (slands, í Morgunblað- inu 4. þ.m. er óhjákvæmilegt að skýra nokkuð nákvæmlega frá at- hugunum Olíufélagsins hf. á bæti- efnum í bílabensín frá Orobis. Það fyrsta sem við heyrðum um þetta fyrirtæki var bréf frá þeim 28. oktber 1982, þar sem þeir buðu Olíufélaginu vörur sínar. í sept- ember 1983 kom maður frá fyrir- tækinu til íslands og átti fund með tækni- og sölumönnum Olíu- félagsins 7. september. Aftur kom þessi maður til landsins í febrúar sl. og átti fund með starfsmönnum Olíufélagsins 22. febr. Var þá ákveðið að fá umsögn rannsókna- stofu Esso í Abingdon í Bretlandi um þetta bætiefni. Var um það beðið með telexi 8. mars 1984. Svar barst frá Abingdon 29. mars og gátu þeir þá ekki mælt með þessu efni. Rétt er að taka hér fram, að Olíufélagið var frá upphafi ákveð- ið í að fara í einu og öllu eftir ráðleggingum rannsóknarstöðva Esso og vildum gjarnan fara I þessu sömu leið og Dansk Esso, sem við höfum mikla samvinnu við. Hefur því verið ákveðið að nota hér efnið kerofluid es 6, sama efni og Dansk Esso notar nú frá hinu þekkta þýska efnavörufyrir- tæki BASF sem bætiefni í bíla- bensín. Meðan beðið er eftir að það komi til landsins munum viö geirssonar Vilhjálmur Jónsson nota kerofluid es 2, sem Dansk Esso hefur einnig notað. Varðandi viðurkenningu rann- sóknastöðvar Esso í Abingdon á Orobis bætiefni 3369 í bílabensín segir svo í skeyti 6. þ.m.: „We con- firm oga 3369 marginally accept- able on temporary þasis stop“ (við staðfestum að oga 3369 sé rétt inn- an marka þess að hægt sé að sam- þykkja það til bráðabirgða). Rétt er einnig að segja frá því að sölustjóri frá Orobis í Kaup- mannahöfn hringdi í Olíufélagið sl. föstudag milli kl. 3 og 4 og bauð Olíufélaginu að selja þvi þetta efni ásamt Olis. Hér hafa verið raktar stað- reyndir þessa máls. Olíufélagið hf. hefur nú um sl. helgi boðið við- skiptavinum bætiefni ( bensin ef þeir óska. Ennþá er í athugun, hvernig hægt er að bjóða almennt tvær tegundir af bensíni, með og án bætiefna. VilhjÁlmur Jónsson er forstjóri Olíufélagsins ht MorgunblaAið/HGJ. Ökumaðurinn á jeppanum mátti prísa sig sælan að til staðar voru hjálpfúsir menn sem veittu honum aðstoð við að komast upp úr ánni. Frekar fátt í Þórsmörk NOKKUR mannfjöldi var í Þórs- mörk yfir helgina og dvaldi þar í blíðskaparveðri, sem entist alla helg- ina, að undanskildum sunnudegin- um, þegar rigndi sem hellt væri úr fötu. Engin skipulögð skemmtun var í Mörkinni, en sungið var við tvo varðelda á laugardagskvöld. Skálaverðirnir Sævar Skapta- son og Kristján Sigurðsson sögðu að allt hefði gengið stóráfallalaust fyrir sig, þó að nokkuð hefði borið á ölvun. Um þúsund manns var á öllu svæðinu þegar mest var og er það nokkuð minna en vant er um verslunarmannahelgi. Töluvert er um að ökumenn vanmeti kringumstæður í Þórs- mörk og fari of glæfralega um svæðið og yfir Krossá. Þannig var að a.m.k. einn bill festist í miðri ánni á laugardag og var það ein- ungis snarræði tveggja ferðalanga á stórum bílum að þakka að eRki fór illa. Þeir náðu að draga bílinn upp úr ánni áður en hann valt og mátti vart tæpara standa. Þrennt var í bilnum, en engan sakaði. Fjögur ungmenni komust í hann krappan seinni hluta laugardags, er þau ætluðu að stytta sér leið úr Langadal yfir i Húsadal með því að fara neðan við fjallið sem skil- ur dalina að. Lentu þau í miklum hrakningum, en komust hjálpar- laust aftur á tjaldsvæðið eftir um fimm stunda göngu. Ekki varð þeim meint af ævintýrinu og hresstust fljótt við. Umferðarráð: Notkun öryggisbelta almenn um helgina Viðbúnaður lögreglu um allt land vegna helgarinnar var veruiegur eins og við var að búast þar sem Verslunarmannahelgin er ein mesta umferðarhelgi ársins. Vegalögreglan var með átta bifreiðar til umráða til að fylgjast með og einnig var þyrla Landhelgisgæslunnar fengin að láni til að auðvelda eftirlitsstörf. Þá var félag bifrciðaeigcnda með þjónustu- bfla sína til reiðu út um allt land til að aðstoða þá ökumenn sem lentu í vandræðum. Ragnheiður Davíðsdóttir, starfsmaður Umferðarráðs, sagði í samtali við Morgunblaðið að um- ferðin um helgina hefði gengið að mestu leyti vel fyrir sig. Notkun öryggisbelta hefði verið mjög al- menn og ekki hefði borið mikið á hraðakstri. „Við hjá Umferðarráði erum hins vegar aldrei ánægð þeg- ar slys verða í umferðinni og því miður urðu nokkur slys um helg- ina,“ sagði Ragnheiður. „Ég held samt að ekki hafi orðið nema tvö alvarleg umferðarslys um helgina en það er náttúrlega tveimur of mikið. Það virðist þó hafa sýnt sig um þessa helgi hvað notkun ör- yggisbelta hefur mikið að segja því það er samdóma álit þeirra sem haft hafa með þessi slys að gera að öryggisbeltin hafi bjargað fólki frá enn frekari meiðslum og i sumum tilfellum frá dauða." Ragnheiður sagði að samstarf Umferðarráðs og lögreglunnar um allt land hefði verið ákaflega gott og og hefði víða komið fram hjá henni að bílbeltanotkun væri al- menn og hefði í þeim tilfellum þar sem umferðarslys áttu sér stað komið að mjög góðu gagni. sagði Ragnheiður að þau hjá Umferð- arráði væru ekki frá því að hún hefði verið um 90%. „Vegfarendur hringdu hingað til Umferðarráðs og sögðu okkur að ökumenn væru farnir að haga sér mun betur í umferðinni. Þeir væru farnir að vikja mun betur og draga mun meira úr hraða. Þá má ég til með að geta þess að sam- kvæmt upplýsingum lögreglunnar var ölvun mun minni um þessa verslunarmannahelgi á úti- skemmtununum heldur en oft áð- ur, og ölvun fylgja alltaf umferð- aróhöpp. Þá voru þeir sem teknir voru grunaðir um ölvun um þessa helgi mun færri en undanfarnar Verslunarmannahelgar. Ragnheiður sagði að þó ekki hefði orðið verulega mikið um slys á fólki í umferðinni að þessu sinni, og þá vegna notkunar öryggisbelt- anna, hefði verið til skammar hve öryggisútbúnaði harna í bifreiðum hefði verið ábótavant. „Það var víst talsvert um að börn i aftur- sætum bifreiða stæðu upp á end- ann algjörlega óvarin, eða þau væru með andlitið klesst við aft- urrúðuna. Slíkt er náttúrlega fyrir neðan allar hellur og verður að ráða bót á hið fyrsta. Þegar bifreið er á fleygiferð eftir vegunum er aldrei að vita hvað getur gerst og því verður að tryggja öryggi þeirra sem í aftursætunum eru, að ég tali ekki um þá sem ekki hafa vit á því að sjá um það sjálfir," sagði Ragnheiður að lokum. „Laugahátíð gekk bæði vel og illa“: „Gott fólk, en fámennt,u sagði Höskuldur goði LAUGAHÁTÍÐ fór fram um helgina í góðu veðri að sögn Höskuldar goða sem yflrumsjón hafði með hátíðinni og skipulagningu hennar. Kvað hann hátíðargesti aftur á móti hafa verið með færra móti, eða um 1.300 þegar mest var. Gat hann sér þess til að Norð- lendingar, sem allajafna væru meirihluti gesta og hefðu komið á Laugahátið kannski fimm eða sex sinnum, hefðu nú viljað breyta til og mætti rekja orsakir mannfæð- arinnar til þess. Á hátíðinni voru dansleikir föstudags-, laugardags- og sunnu- dagskvöld. Háð var keppni i break-dansi sem Viðar Ævarsson, Reykjavík, sigraði f og hlaut hann sólarlandaferð að sigurlaunum. Þá var fjölskylduhátíð á sunnudag, en Lionsfélagar voru með kvik- myndasýningar alla helgina. Höskuldur sagði að lokum að framkoma gesta og umgengni hefði verið öllum til sóma.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.