Morgunblaðið - 08.08.1984, Qupperneq 40
56
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1984
BÍLVANGURs/f
Smurstöð
„Hæöin skiptir ekki máli“
Við smyrjum stóra bíla, tengivagna,
festivaq
na og önnur stórvirk tæki.
Nú þegar um
í
n
H
ferð og notkun eykst
má ekki gleyma að smyrja og skipta
um olíu og síur.-j
Gott starfsfólk
reiðubúið til þjónustu
I..-f.| -M
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300
Smurstöð ... 685549
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir GUÐMUND GUD.IÓNSSON
Þannig sér skopteiknarinn Lurie fyrir sér hlutverk Geraldine Ferraro.
Bandaríkin:
Kosningabaráttan fer
nú inn á nýjar brautir
RONALD Reagan er nú sem óðast að hleypa af stokkunum kosninga-
baráttu sinni og ekki seinna vænna, því góð forysta sem hann hafði fram
yfir Walter Mondale samkvæmt skoðanakönnunum fyrir þing
Demókrataflokksins er rokin út í veður og vind. Ein helsta ástæðan er I
líki Geraldine Ferraro, en þar þykir Mondale hafa leikið snilldarleik.
sama um byrinn sem keppinaut-
Reagan og Ferraro
r
Eg vildi að ég gæti kosið
Reagan til forseta með
í'érraro sér við hlið sem vara-
forseta,“ sagði Bandaríkjamaður
af ítölskum ættum er hann
hlýddi á Reagan flytja skorin-
orða ræðu í upphafi kosninga-
baráttu sinnar. Hann er talinn
mæla fyrir mun æði margra sem
eru lítið hrifnir af Mondale, en
hrifust mjög af Ferraro. Reagan
var settur í klemmu er Mondale
tefldi fram frú Ferraro, hann
þarf nú að sannfæra kaþólikka
ríkjanna og 50 prósent banda-
rískra kvenna um að hann hafi
unnið til þess að vera endurkjör-
inn. Það treystir ekki stöðu
Reagans, að bæði Ferraro og
hann koma frá sama kjördæm-
inu og munu því biðla mjög til
sama fólksins. Annar áheyrandi
Reagans sagði: „Mondale mun fá
atkvæði 12 milljón Bandaríkja-
manna af ítölsku bergi eingöngu
út á það að gefa manneskju af
þeim uppruna möguleika á þvi
að taka sæti forseta Banda-
ríkjanna í fyrsta skipti."
Það segir kannski nokkra sögu
um vægi frú Ferraro í kosn-
ingabaráttunni, niðurstöður
skoðanakönnunar sem Louis
Harris-stofnunin gekkst fyrir
fyrir skömmu. í fyrsta lagi,
hafði Reagan 51 prósent gegn 46
prósentum Mondales er þeir ein-
ir áttu ■ hlut. En er spurt var um
forsetaefnin og varaforsetaefnin
sem heild, var forysta Reagans
með George Bush sér við hlið
sáralítil, raunar svo lítil að hún
skiptir engu máli: 50 prósent
gegn 48 prósentum. Þessar tölur
eru taldar segja alla söguna um
stöðuna í dag, en þær koma þó
ekki ýkja á óvart, því
Demókrataþinginu er tiltölulega
nýlokið og meðbyrinn enn mikill.
Baráttan
Talsmenn Repúblikana viður-
kenna fúslega að þeim er ekki
ar þeirra hafa. Einn segir að ef
þeir hættu að gefa mótherjanum
gaum þá gætu þeir alveg eins
lagt flokkinn niður strax i dag.
Hinn sami sagði að Repúblikan-
ar myndu ná forystunni á ný,
sérstaklega eftir þeirra eigið
þing sem haldið verður á næst-
unni. Ronald Reagan þykir sjálf-
ur hafa endurspeglað þann kvíða
sem er í herbúðum Repúblikana
í ræðum sem hann hefur flutt í
Texas, New Jersey og Georgiu.
Þar sagði hann meðal annars að
hann væri aldrei of sigurviss.
Hann flutti síðan niðurrifsræður
um stefnumál Mondales af slík-
um eldmóði að menn risu upp I
sætum sínum. Sagði hann einnig
um Demókrata, að: „Þeir halda
svo langt til vinstri að þeir eru
ekki lengur í Bandaríkjunum."
Skömmu áður hafði Edward
Rollins kosningastjóri Reagans
spáð að kosningabaráttan myndi
verða „heldur herská". James
Lake, blaðafulltrúi kosninga-
nefndar forsetans, tók undir það,
en sagði það alvanalegt. „Þannig
fer kosningabaráttan fram og
Reagan er mjög ákveðinn mað-
ur.“
Kosningabarátta Ronalds
Reagan mun ekki síst fara fram
í sölum bandaríska þingsins, en
Repúblikanar hafa fúslega við-
urkennt að þeir muni freista
þess að koma Demókrötum í
klípu yfir því hvernig kjósa beri
um viðkvæm en vinsæl mál. Inn-
takið í því er að neyða Demó-
krata til að kjósa um eitthvert
mál, eða kjósa ekki um það,
halda kannski vinsældum kjós-
endahóps fyrir vikið, en missa af
öðrum, auk þess sem Repúblik-
anar eru að vonast til þess að
geta bent á ósamkvæmi hjá
þingmönnum andstæðinganna.
„Við viljum setja hagsmuna-
mál ákveðinna hópa á oddinn,"
segir einn af þingmönnum
Repúblikana og bætir við að þó
slíkt hafi alltaf verið á könnu
flokksins saki ekki að nú megi að
Reagan fagnar stuðningsfólki.
auki nota það í kosningabarátt-
unni. Gott dæmi um þessa bar-
áttuaðferð Repúblikana átti sér
stað fyrir skömmu. Þingmenn
flokksins náðu þá að keyra i
gegn atkvæðagreiðslu um þings-
ályktunartillögu sem fól í sér
refsingar til þeirra skólaum-
dæma sem reyna að koma í veg
fyrir að nemendur biðjist fyrir
innan veggja skólanna. Tillagan
kom Demókrötum í mikinn
vanda og á endanum greiddu
þeir henni ekki atkvæði sín. Til
þess að bjarga því sem bjargað
varð, lögðu þeir sjálfir fram til-
lögu sem kvað á um leyfi nem-
enda til að biðjast fyrir í hljóði
innan skólaveggja. „Við setjum
pólitískar þumalskrúfur á þá og
munum halda okkur við efnið,“
var haft eftir einum af þing-
mönnum Repúblikana.
Margt fleira manu Repúblik-
anar setja á oddinn til að koma
keppinautum sínum á kaldan
klaka. Víst er, að Demókratar
munu sæta lagi að koma höggum
á móti á andstæðinga sina og
hefur þeim tekist vel til í þeim
efnum annað veifið. Þetta er
mikil pólitísk skák og verður
teflt djarflega í henni á næstu
vikum og mánuðum, enda mikið
í húfi: forsetaembættið.
Ileimildir: AP, International Herald
Tribune og fleira.