Morgunblaðið - 08.08.1984, Qupperneq 44
60
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1984
Þriggja vasa-
klúta mynd
Kvikmyndir
Ólafur M. Jóhannesson
Nafn á frummáli: Man, Woman
and Child
Handrit: Eric Segal og David Z.
Goodman eftir samnefndri sögu
Segal.
Tónlist: George Delurue.
Kvikmyndun: Richard H. Kline.
Leikstjóri: Dick Richards.
Ég verð nú bara að játa, að ég
hef ekki komið í B-sal Stjörnu-
bíós fyrr en nú, að ég skrapp þar
inn að sjá: Mann, konu og barn.
Ástaeaðan fyrir því að ég kem
svo sjaldan í þessa litlu sali, sem
teknir eru að vaxa innan í gömlu
bíóunum, er sú, að oftast sér
maður nú fyrstu sýningu hverr-
ar myndar, en eins og flestir vita
ganga biómálin fyrir sig á þann
veg í dag, að myndir byrja sitt
sýningarskeið í stóru sölunum,
og feta sig svo áfram niður
stafrófið, uns þær enda út á
landi. Það er helst að maður sjái
í þessum minni sölum kvik-
myndir, sem við kvikmynda-
gagnrýnendur gætum kallað
„færibandakvikmyndir". En um
slíka framleiðslu er naumast
hægt að fjalla af nokkru viti, því
söguþráður og andrúmsloft er
þegar þekkt af fyrri myndum
sömu ættar. Þennan flokk fylla
gjarnan myndir á borð við kar-
atemyndir, klámmyndir, ungl-
ingamyndir velflestar og myndir
í sápuóperustíl. En ég hafði ein-
mitt fengið þá skilgreiningu i
fagriti að. Man, Woman and
Child væri ein slík af færiband-
inu, nánast endurútgáfa af Love
Story sem sýnd var hér fyrir
nokkrum árum, enda þessi B-
sals mynd Stjörnubíós gerð eftir
sögu Eric Segal þess er samdi:
Ástarsöguna frægu. Starfsheið-
ursins vegna og í samræmi við
starfsreglu taldi ég samt nauð-
synlegt að skoða þessa mynd
B-salsins nánar, og meta hvort
lesendum væri akkur í frekari
umfjöllun, eða hvort hér væri
bara á ferð: Love Story, í endur-
útgáfu, mynd sem ekki þyrfti að
lýsa nánar fyrir tryggum að-
dáendahópi Eric Segal.
Ekki leist mér á blikuna er ég
mætti síðastliðinn fimmtudag í
B-salinn í fyrrgreindum erinda-
gjörðum, ekkert nema frúr i
salnum, flestar vopnaðar hlið-
artöskum og í popplínkápum,
mér fannst ég heyra skrjáfið í
vasaklútunum og kleenexþurrk-
unum. Verður kvikmyndagagn-
rýnandinn að játa, að honum
Eiginkona Bobs, þess er getið er
um í texta, og dætur hans tvær,
horfa á eftir slysabarninu, Jean-
Claude Guerin.
leið eins og illa gerðum hlut, í
þessum frúarfans. Nú, en svo
hófst þessi endursýning á Love
Story, sem reyndist alls ekki
endursýning þegar til kom, held-
ur birtist hér kvikmyndaverk
unnið af fagmönnum slíkum sem
aðeins finnast í henni Ameríku
og ekki nóg með það, því handrit
Segal og David Z. Goodman
reyndist ekki bara endurómur
Love Story en sýndi áhorfand-
andum inn í nýjan heim, um
margt ólíkan heimi Love Story.
Sá heimur, sem sprettur hér
undan penna Eric Segal, er
kannski sá heimur allra heima
sem helst hefir verið vanræktur
í bandarískum kvikmyndum,
heimur millistéttanna, þessa
þögla meirihluta bandarísks
þjóðlífs, sem unir við sinn arin-
eld og stekkur ekki út á götu með
byssuna reidda um öxl af
minnsta tilefni. Heimur þessa
fólks er kannski ósköp svipaður
heimi millistétta annarra vest-
rænna landa, og svo sannarlega
ber maður virðingu fyrir lífs-
stríði þessa fólks. Það er hisp-
urslaust að hætti Bandaríkja-
manna, starfssamt og kann að
njóta þess er það uppsker.
Bob, höfuð þeirrar millistétt-
arfjölskyldu er við fáum að
kynnast i: Man, Woman and
Child, er kennari að atvinnu. Það
er greinilegt að sú stétt manna
er meira virt í Bandaríkjunum
en hér á landi, því Bob á bæði
glæsilegt hús og tvo bila, Volvo-
station og Ford-station. Enda er
vitað mál að Bandaríkjamenn
hafa fyrir löngu gert sér ljóst, að
vel launuð og vel menntuð kenn-
arastétt á sennilega drýgstan
þáttinn í þeirri menntunarlegu
undirstöðu, er velferð hins
bandaríska þjóðfélags hvílir á.
En hér er átt við laun í víðari
merkingu en þeirri, er skömmt-
unarstjórar íslenska ríkisins
leggja í orðið; er ekki eingöngu
átt við beinharða peninga heldur
og rannsóknarstyrki og annan
aðbúnað er uppfræðurum er
veittur.
En það er nú önnur saga, því
sú saga sem hér er sögð af milli-
stéttarmanninum Bob er ekki
bara saga af velferð hans, þótt
sú sitji að vissu leyti í fyrirrúmi,
heldur er og sögð sagan af því
hvernig hinn virðulegi Bob, mis-
stígur sig á hinum mjóa vegi
millistéttarmannsins. Bob er
nefninlega hamingjusamlega
giftur og á tvær sætar dætur,
sem hann ann ekki síður en hús-
inu, vinnunni og station-bílun-
um. En svo kemur sú fregn að
þessi virðulegi heimilispóstur
eigi son, sem kom undir í ást-
arbríma í Frans, forðum daga.
Og þá hriktir nú aldeilis hressi-
lega í innviðum hins borgaralega
sælureits er kennarinn Bob hefir
markað sér og sínum. Verður sú
saga ekki rakin hér nánar, enda
vil ég ekki taka ánægjuna frá
væntanlegum áhorfendum með
þvi að upplýsa of mikið um átök-
in á heimili Bob eftir að fyrr-
greind frétt barst þangað, en
ekki heyrðist mér betur en vasa-
klútarnir væru komnir uppúr
töskunum er líða tók á myndina,
enda held ég að ég geti fullyrt að
hér sé þriggja klúta mynd á ferð.
Nú, ég gleymdi nú sjálfur
vasaklútnum heima, enda hafði
ég meiri áhuga á frammistöðu
leikaranna, en hinum tilfinn-
ingaþrungnu átökum heimil-
ismanna. Verð ég að segja að ég
hef sjaldan séð Martin Sheen
betri en í hlutverki Bob, í þessari
mynd, og á þó sá maður langa
afrekaskrá að baki í myndum á
borð við Catch 22 og Badlands, en
hér var hann einhvern veginn al-
veg í essinu sínu og hvergi til-
gerðarlegur eða væminn og kem-
ur hér fram í hlutverki Bob
Beckwith sem sannur Banda-
ríkjamaður, sem náð hefir full-
um andlegum og tilfinninga-
legum þroska, í krafti starfs,
menntunar, og þeirrar ábyrgðar
er fjölskyldumaður verður að
standa undir. Það er góð til-
breyting að kynnast slíkum
manni sem Bob Beckwith af
bandarískri filmu, fremur en
sefasjúkum járnhausum eða
blauðum illmennum slíkum er
gjarnan skreyta myndir þær er
streyma frá Hollywood. Mynd
þessi er raunar mannbætandi,
því hún gefur rétta mynd af lífi
hversdagsmannsins og elur ekki
á neins konar ónátturu hjá
áhorfandanum.
„Þau eru ótrúlega sterk ELGO stálgólfin.
Eftir meira en 10 ára notkun sér ekki á þeim.
Ég mæli með ELGO stálgólfum.“
Gunnar Guðmundsson !■■ _ .
Vélav. cacg Dugguvogs 2 R. £| StCÍIiprýðÍ
— —i-------------
—.
Stórhöfða 16,
símar 83340—84780 <>
■...■tiifc.inay
Þú færð tæknilega og faglega aðstoð við
lausn á vandamálum þínum hjá arkitekt-
um og tæknifræðingum sem veita alla
venjulega ráðgjöf sem tengist nýbyggingu
húsa, endurnýjun eða breytingum á eldra
húsnæði, og gerð efnislista.
Byggingarráðgjafarnir aðstoða við lausn
á minniháttar vandamálum án endur-
gjalds. |
Byggingaráðgjafarnir eru þér til aðstoðar i
þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 5-6 I
e.h. í verzlun JL við Sólvallagötu.
HRINGBRAUT 120:
Bygg.agavoru- 28-600 SoluJt,
V