Morgunblaðið - 08.08.1984, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1984
61
Hver eru starfs-
réttindi aldraðra?
— eftir Guðjón B.
Baldvinsson
„Því milljón ára reynsla hefur
sannaö það upp á skrattann að
hann finni alla í fjöru, sem í leti
leggjast heilbrigðir og láti þá
skemmta sér, en kvelja sjálfa sig
um leið eða seigdrepa á endanum í
aðgerðarleysi og leiðindum.“
Bjartmar GuAmundsson bóndi, Sandi.
Og þrátt fyrir þessa reynslu ald-
anna halda menn áfram að
skemmta skrattanum. Við skulum
ekki horfa bara á þá fáu einstakl-
inga, sem sjálfviljugir, „leggjast
heilbrigðir" í leti. Við skulum ekki
gleyma þeim þegnum, sem valda
því að fólk lifir atvinnulaust.
Við skulum ekki hætta að berj-
ast gegn þeim vágesti, sem varnar
því að tugmilljónir manna eigi
þess kost að kynnast starfsgleði,
og fá aldrei öðlast þá lífsfyllingu,
sem forn rit kenna að boðuð hafi
verið mannkyni af höfundi lífsins.
Mannkyninu stafar mikil hætta af
því að líta á atvinnuleysið sem
óhjákvæmilega staðreynd. Bjart-
mar bóndi vekur athygli á hlut-
verki skrattans í sambandi við
þessa lífshætti. — Vissulega hníga
orð hans einkum að þeim einstakl-
ingum, sem sjlfviljugir hafna
starfi, eins og t.d. sá hópur fólks,
sem fær samheitið aðall, og leikur
sér með hundafjölda að eltingar-
leik við héra og kanínur.
Þvílíkt framferði leiðir í ljós
seigdrepandi leiðindi aðgerðaleys-
is. Við ættum kannske að staldra
við þessa lýsingu. Til hvers?
Til þess í fyrsta lagi að gera til-
raun til að ýta við þeim, sem valda
„aðgerðarleysi" fólks. Svifta það
vinnuaðstöðu og senda það heim í
skjóli lagagreina um aldursmark
til ellilauna og/eða eftirlauna.
f öðru lagi til að ýta við þeim,
sem enn kunna að vera vakandi
fyrir nauðsyn þess að hjálpast að
við að láta fólki líða sem best, að
leyfa fólki að njóta hæfileika
sinna svo lengi sem nokkur kostur
er.
Sem betur fer eru þeir enn
margir ráðamenn í atvinnulífinu,
sem leyfa hjúum (les: verkafólki)
sínum að halda áfram störfum
meðan kraftar þess endast. En
aðrir drífa í því að senda þau burt
af vinnustaðnum, þegar viðteknu
aldursmarki er náð.
Ríkisvaldið hefur lögboðið ald-
urshámark, 70 ár, en þá skuli
starfsfólk þess hverfa af vinnu-
stað. Ástæður fyrir þeirri ákvörð-
un skulu ekki raktar að þessu
sinni, en máske verður minnst á
þetta atriði nánar í næsta pistli.
Nú er aðeins ætlunin að minna
á þetta atriði til íhugunar. Borg-
arstjórn Reykjavíkur hefur rýmk-
að reglur þær, sem giltu um
starfslok fastráðinna starfsmanna
borgarinnar. Hvað lengi eiga ríkis-
starfsmenn að bíða svipaðra úr-
lausna?
Guðjón B. BaMvinsson er formaó-
ur Sambands lífeyrisþega ríkis og
bæja.
Það er alltaf nóg að gera í unglingavinnunni í Stykkishólmi.
Ljósmynd Mbl./Árni.
Stykkishólmur:
Unglingavinnan
StykkUhélmi, 29. júli.
Stykkishólmshreppur hefur f vor og
sumar gengist fyrir unglingavinnu hér í
bænum og hafa fullorðnir stjórnað
henni. Þarna vinna unglingar að þvf að
fegra bæinn og þrffa götur.
Þegar fréttaritari tók meðfylgj-
andi myndir voru unglingarnir
ásamt Ingu Ellertsdóttur og Guðjóni
Jóhannssyni að uppræta njólann,
sem vex svo víða í plássinu og er ekki
beint til skrauts né þrifnaðar. Njól-
ann skera unglingarnir og síðan er
salti stráð í ræturnar til að drepa
illgresið. Árni
Kosta Party
Boda Druva
Stílhreinn kristalborðbúnaður.
Hannaður af Ann og Göran Warff og mótaður
í höndum snillinganna hjá
Kosta Boda
Póstsendum.
Kj V D Si D\ J
ÍHn ipv A
UA j
Bankastræti 10, Reykjavík, sími 13122.
J