Morgunblaðið - 08.08.1984, Side 52

Morgunblaðið - 08.08.1984, Side 52
68 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1984 „ Hú, |?ó. vissir ab víá átturw bara. eitt tr^ keypt'ir \>QÍ>-" ást er ... láí-O ... að bera fyrir hann golfkylfumar. Ég gefst upp, því ekki er fyrr búið að fylla þessa vasakveikjara, en þeir voru tæmdir! Hlúum að gömlum heimild- um um íslenska þjóðhætti Skúli Magnússon, Keflavík, skrifar: Kæri Velvakandi. Nýlega kom út árbók fornleifa- félagsins fyrir árið 1983, en ár- bókin hefur komið út frá 1880. Að þessu sinni er árbókin í bandi og er það nýmæli. Hygg ég að það sé til bóta, því bókin verður eigulegri og aðgengilegri fyrir vikið. Meðal efnis í bókinni má nefna ítarlegar greinargerðir um kuml- teig hjá bænum Hrífunesi í Skaft- ártungu, en kumlin þar eru talin vera frá árunum 900 til 934 og hafa þau verið aldursgreind með öskulagarannsóknum. Fimm höfundar fjalla um Hrífuneskumlið. Meðal þeirra er Kristján Eldjárn heitinn. Er þetta trúlega ein síðasta rannsóknin sem hann gerði á jarðfundnum minjum. Gísli Gestsson, fyrrverandi safnvörður, skrifar ágæta grein um söguslóðir Fjalla-Eyvindar og nefnir hann greinina: „Eyvindar- kerfi og Innra-Hreysi". Útilegu- menn hafa löngum haft nokkurt aðdráttarafl og því varð tilvist þeirra snemma uppspretta sögu- sagna og þjóðtrúar. En sennilega voru Halla og Eyvindur hinir einu íslensku útilegumenn sem eitt- hvað kvað að á seinni öldum og sem öruggastar heimildir eru til um. Guðmundur ólafsson fornleifa- fræðingur skrifar um fornan grafreit á Hofi í Hjaltadal og Árni Björnsson fjallar um smalahús- reið, sunnlenskan sveitasið. Hall- dór J. Jónsson safnvörður birtir ítarlega skrá yfir greinar og rit Kristjáns Eldjárns, sem birst hafa á árunum 1935 til 1984. Af þessari skrá sést að ýmislegt liggur eftir Kristján sem lukt er öllum al- menningi í blöðum og tímaritum. Spurningin er sú, hvort ekki mætti gefa eitthvað af því út í sér- stakri bók. Á ég þá bæði við grein- ar um þjóðleg fræði og ræður, svo og ávörp sem Kristján flutti í for- setatíð sinni. Eina grein eftir hann vil ég þó sérstaklega benda áhugamönnum um fornminjar á að lesa. Hún birtist í „Samvinn- unni 1949“, september- til desem- berhefti. Fjallar hún um hlutverk Þjóðminjasafnsins, fortíð þess og nútíð. Þetta er ein sú besta grein sem ég hef lesið, þar sem hlutverk og störf Þjóðminjasafnsins í nú- tíma þjóðfélagi eru skilgreind. Annars eru ræður og ávörp hinna þriggja íslensku þjóðhöfð- ingja, sem setið hafa 1941 til 1980, á víð og dreif í blöðum og tímarit- um. í raun og veru eru þær sér- stakt og forvitnilegt bókarefni. Erlendar þjóðir gefa gjarnan út ræður þjóðhöfðingja sinna og for- ystumanna, ef ekki allar, þá í úr- vali. Ég vil sérstaklega beina athygli áhugamanna um fornfræði og listasögu að árbók fornleifafélags- ins. Þeir sem enn hafa ekki gerst áskrifendur að henni ættu að gera það sem fyrst. Fornleifafélagið er ekki mjög fjölmennt félag og fjár- hagur þess og útgáfa bókarinnar hvíla að mestu leyti á árgjöldum félagsmanna. Tilvera þess byggist á skilvísi þeirra og fjölgun félags- manna. Annað, sem mig langar til að drepa á, er útgáfa Hafsteins Guð- mundssonar á gömlum árgöngum árbókar. Þeir eru löngu uppseldir og því ófáanlegir. Hafa þeir þvi kostað mikið fé á fornsölum þegar þeir hafa verið í boði. Útgáfa Haf- steins er ómetanleg, því nú gefst mönnum kostur á að kynnast hinu mikla og merkilega efni sem í ár- göngunum leynist. Það er ekki sist mikilvægt fyrir ungt fólk sem leggur stund á fornleifafræði, sögu og skyldar greinar að eiga nú aðgang að árbókinni. Hins vegar hefur það komið fram í blöðum að undirtektir fé- lagsmanna við ljósprentun Haf- steins eru heldur dræmar. Er illt til þess að vita, því útgáfan er mjög dýr, enda ekkert til hennar sparað. Hafsteinn er alkunnur fagmaður og lætur ekki frá sér nema vandaðar bækur að frá- gangi. Hefur jafnvel komið til tals að hætta ljósprentuninni vegna dræmra undirtekta. Sérstaklega ættu félagsmenn fornleifafélags- ins að íhuga framtíð þessarar út- gáfu. Hún veltur aðallega á mót- tökum þeirra. Þeir fá bækurnar eilitið ódýrari en tíðkast á al- mennum markaði. Félagsmenn ættu því allir sem einn að samein- ast um þessa útgáfu og kaupa bækurnar, svo hægt sé að halda útgáfunni áfram. Skólar og bóka- söfn úti á landi, til sjávar og sveita, ættu ekki síst að gerast áskrifendur. Fyrir nokkru kom út annað tímarit sem tengt er íslenskri fornfræði. Það er lítið rit sem heitir „Ljóri“ og kemur út einu sinni á ári. íltgefandi þess er Fé- lag íslenskra safnmanna, en í því félagi eru starfsmenn minja- og listasafna. Að þessu sinni komu út tveir árgangar, 1983 og 1984. í ritinu er fjallað um störf ís- lenskra safnmanna, félag þeirra og starfsvettvang. Greint frá störfum Þjóðháttadeildar Þjóð- minjasafns, söfnun heimilda um þjóðhætti og úrvinnslu þeirra. Fjallað er um gullskipið marg- fræga og birt ýmislegt um af- greiðslu Alþingis til leitar þess. Margt fleira forvitnilegt er í þess- um heftum Ljóra og einnig hinum eldri. Þar getur almenningur fræðst um störf og starfsaðferðir íslenskra þjóðhátta- og fornleifa- fræðinga. Áhugamenn um þjóðleg fræði ættu að eiga Ljóra ekki siður en árbók fornleifafélagsins. Hún er fámenn, fylking íslenskra safn- manna, byggðasöfnin smá og fé- vana, en verkefnin óþrjótandi. Því eiga leikmenn og lærðir menn að vinna saman að eflingu þeirrar hreyfingar sem að söfnunum stendur. Það myndi auðvelda mörgum, að mati bréfritara, ef báðar framhurðir stræt- isvagnanna væru opnaðar. Þessir hringdu . . . Kærkomið viðvik Mjöll hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: „Þannig er að ég á tvö lítil börn og þar sem ég er bíllaus, nota ég strætisvagna Reykjavíkur til að komast leiðar minnar. Eins og gefur að skilja er það enginn hægðarleikur að klífa upp tröppur strætisvagnanna með tvö börn í eftirdragi ásamt barnakerrum og fleiru tilheyrandi. Ég reyni því alltaf að setjast niður í fyrsta sætið sem ég sé að er laust, og reyni ætíð að vera sem næst framhurðinni, svo að ég sé fljótari að komast aftur út. Það gerir mér því mun hægara um vik, ef bílstjórarnir eru svo vænir að opna báðar framhurðirn- ar upp á gátt, en stundum virðast þeir ekki skeyta neitt um það, þó ég standi hjálparvana fyrir utan með allan „farangurinn" minn. Mikið þætti mér nú vænt um ef allir bílstjórar væru svo elSkulegir að opna báðar hurðir í slikum til- feilum og leyfðu mér (og öðrum sem eins er ástatt fyrir) líka að fara út um framdyrnar, því þá þurfa farþegarnir ekki allir að bíða eftir mér á meðan ég paufast aftur í skott. Með vinsemd." Úrbóta þörf Kristjana S. Kristjánsdóttir skrif- ar: Mikið hefur verið rætt um sel- ina sem skaðræðisgripi, er út- breiði hringorma. En á manns- höndin enga sök, er selurinn einn að verki? Við sjáum langt að hvort skip- verjar eru í aðgerð eða ekki. Um- hverfis fley þeirra er urmull fugla, aðallega múkki (fýll), sem bíða í ofvæni eftir bitanum sínum, þ.e. lifur morandi í hringormum. Hversu langt er síðan lifrarpen- ingar voru kjarabót sjómanna? Hvenær tók hringormavandinn að aukast?. Hvaða hráefnisverðmæti tengd lífefnaiðnaði eru fyrir hendi í slóginu, sem hent er út fyrir borðstokkinn til fuglanna? Ég spyr því þá sem þekkinguna hafa: Er úrbóta ekki þörf?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.