Morgunblaðið - 08.08.1984, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1984
69
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
^í^minMíV »í
Bréfritari er ekki allskostar ánægður með skemmtistaðamenninguna hér á landi.
Oldurhúsamenning
er léleg á íslandi
Fastagestur öldurhúsa borgar-
innar skrifar:
Velvakandi vænn!
Mikil er mæða okkar sem
nennum að þenjast á öldurhús
borgarinnar um helgar. Oft
fáum við miður ljúfar móttökur
dyravarða ef við ekki erum nógu
snögg að fálma eftir nafnskír-
teininu góða. Troðning fyrir
utan skemmtistaði borgarinnar
þekkja allir sem þá stunda af
einhverju viti og eru tærnar oft
orðnar æði bláleitar þegar inn er
loks komið.
Ég sem gamalreyndur öldur-
húsagestur tók þá vafasömu
ákvörðun að drífa tvo erlenda
vini mína sem staddir eru hér á
landi með mér á eitt af öldurhús-
um bæjarins fyrir stuttu.
„Ferðalagið" hófst auðvitað
með æðisgenginni röð, sem lið-
aðist í allar áttir frá dyrum
hússins. Biðin í þeirri röð reynd-
ist okkur æði löng og virtist
„ormurinn langi“ aldrei styttast,
þó að fólki væri hleypt við og við
inn fyrir dyrnar.
Mönnum tók skiljanlega að
leiðast þófið og þeir, sem voru
við öllu búnir, drógu upp pyttlur
úr barmi og buðu nærstöddum
sopa. Ferðalangarnir mínir, sem
þó eru ýmsu vanir, brostu góð-
látlega um leið og þeir afþökk-
uðu sopann og létu eins og ekk-
ert væri eðlilegra í þeirra aug-
um. Ég, hins vegar, sá að undr-
unarsvipurinn á andlitum þeirra
leyndi sér ekki.
Loks, eftir langa mæðu, soguð-
umst við í einni hringiðu inn
fyrir dyrnar og ég, sem spurð hef
verið um nafnskírteini síðastlið-
in tíu ár, komst að því er ég
rankaði við mér, að ég hafði í
óðagotinu otað ljósakortinu
mínu að blessuðum dyraverðin-
um.
Eftir um það bil tuttugu mín-
útna bið við fatahengið gátum
við losað okkur við yfirhafnir og
skeiðuðum inn salarkynnin, þar
sem töfrandi tónlist lék í eyrum
og þykkur reykjarmökkur í aug-
um. Biðin við barinn varð lengri
en við fatahengið, sem var ekki
til að bæta sálarástand okkar
þremenninganna þá stundina.
Ferðalangarnir mínir urðu sí-
fellt meira og meira undrandi,
en létu þó engan bilbug á sér
finna. Við soguðumst með
straumnum fram og aftur og
einbeittum okkur að því að hella
ekki niður rándýrum drykkjum
okkar.
í staðinn var rándýrum
drykkjum annarra hellt yfir
okkur! Kófdrukkið fólk slagaði
um ganga með öl í glösum og
skvetti ósjálfbjarga úr þeim í
allar áttir. Hrædd er ég um að
margar krónurnar „sullist beint
í gólfið" hjá þessu ólánsfólki,
sem bágt virðist eiga með að
hemja sig í öldrykkjunni.
Eg sem gamalreyndur öldur-
húsagestur, eins og áður segir,
lét mér nú hvergi bregða en
ferðalangarnir mínir voru orðnir
öllu óhressari í bragði. Eftir
nokkrar vonlausar tilraunir til
að stíga dansspor á tælandi
diskó-gólfinu, gáfumst við þre-
menningarnir upp og héldum
heimleiðis, vonsvikin og rauna-
mædd.
Ég held að fátt geti komið mér
á óvart lengur hvað varðar
skemmtanamenningu okkar ís-
lendinga. Hins vegar lærði ég
eitt þetta umrædda kvöld, sem
ég mun hafa að leiðarljósi um
ókomin ár: Maður leggur það
ekki á útlendinga að fara með þá
á íslensk öldurhús!
Góður þáttur
í sjónvarpinu
Axel Þorsteinsson skrifar:
Háttvirti Velvakandi!
Loksins, loksins virðast forráða-
menn sjónvarps hafa rankað við
sér (verið gæti þó að það hafi verið
óvart), því nú hefur sjónvarpið
tekið til sýningar stórskemmti-
legan framhaldsþátt sem gengur
undir nafninu „Friðdómarinn".
Langt er síðan ég hefi horft á
jafnskemmtilegt sjónvarpsefni og
veit ég að margir eru á sama máli
og ég í þeim efnum.
Haldið þið, sjónvarpsnotendur
góðir, að það sé munur að fá að
horfa á þennan þátt heldur en
þýsku þvæluna „Berlin Alexand-
erplatz", sem að flestra mati
mætti vel missa sín?
Forráðamenn sjónvarps, meira
af svona efni og á brott með
„snilldarverk" Rainer Wemer
Fassbinders.
Nýi framhaldsmyndaflokkurinn „Friðdómarinn" virðist falla sjónvarps-
áhorfendum vel i geð.
Öllum vinum, frændfólki og fjölskyldu minni, er veittu
mér sjötugri ánœgjulegan afmælisdag 4. júlí sídastliö-
inn, þakka ég einlæglega.
Guðrún J&kobsdóttir,
Víkingav&tni.
'PÞING HF
Q 68 69 88
HVERJU
BREYTA
FRJÁLSIR
VEXTIR?
Um leiðogviðfögnum
frumkvæði stjómvalda í
vaxtamálum til að auka innlendan
spamað viljum við kynna ný og
betri ávöxtunarkjör á
verðbréfamarkaði okkar.
Við bjóðum nú:
l. 6% vexti umfram verðtrygg-
ingu á spariskírteinum ríkissjóðs.
2. 14% vexti umfram
verðtryggingu á verðtryggðum
veðskuldabréfum sem þýðir
tvöföldun höfuðstóls á rúmlega 5
árum.
Söluaenqi verðbréfa 8. ágúst 1984
SPARISKÍRTEINIRÍKISSJÓÐS: sólugengi mliti rlt 6% vtxtl umtnm veritr. pr. 100 kr.
Útg. 1. FLOKKUR 2. FLOKKUR
Sölugengi pr. 100kr. 6%vextir gildatil Sölugengi pr. 100kr. 6% vextirgildatil
1970 1)
1971 15.843 15.09.1985 - ~
1972 14.423 25.01.1986 11.708 15.09.1986
1973 8.844 15.09.1987 8.478 25.01.1988
1974 5.517 15.09.1988 - -
1975 4.287 10.01.1985 3.182 25.01.1985
1976 2.896 10.03.1985 2.391 25.01.1985
1977 2.0892’ 25.03.1985 1.790 10.09.1984
1978 1 4173> 25.03.1985 1.144 10.09.1984
1979 968 25.02.1985 742 15.09.1984
1980 655 15.04.1985 504 25.10.1985
1981 430 25.01.1986 318 15.10.1986
1982 303 01.03.1985 224 01.10.1985
1983 172 01.03.1986 111 01.11.1986
1984 108 01.02.1987
1) InnlMisnarwftSaMabankanapr. 100 NÝKR. S.totorúar 17.415,64
2) InnlausnarvsrftSsMatoankanspr. 100 NVKR. 25.mars1984 2.122,16
3) InnlausnarverftSa&labankanspr. 100 NÝKR. 2S.mars1984 1.438,89
VEÐSKULDABRÉF
VERÐTRYGGÐ ÓVERÐTRYGGÐ
Með 2 qjalddöqum á ári Með 1 qjalddaga á án
Láns- Avöxtun Sðkigeni I Sðkjgen 3!
timi Sölu- umtram 18% 20% 18% 20%
ár: gengi Vextir verðtr. ársvextir ársvextir HLV2' ársvextir ársvextir HLV2’
1 93,44 4 14% 89 90 91 84 86 86
2 89,52 4 14% 77 79 80 72 73 74
3 87,39 5 14% 68 70 71" 63 65 66
4 84,42 5 14% 60 63 64 55 57 58
5 81,70 5 14% 54 56 57 48 50 51
i4%
7 76,87 5 14% Ossmi: Óverðtryggt veðskuldabréf með 2 gjald-
8 74,74 5 14% dögum á ári til 3ja ára aö natnveröi kr. 1000 feng-
9 72,76 5 14% istkeyptá 1000 x,71 =7100kr
10 70,94 5 14% 2) hæstu leyfilegu vextir.
Kaupþlng hf. reiknar gengi verdbrófa daglega