Morgunblaðið - 08.08.1984, Blaðsíða 54
70
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1984
Austfírska veður-
blíðan lék víð
6.500 mótsgesti
HÁLFT sjöunda þúsund manna
tók þátt í skemmtuninni í Atiavík
um verslunarmannahelgina — flest-
ir af lífi og sál. Þeirra á meðal var
Bítillinn Ringo Starr, heiðursgestur
hátíðarinnar, sem veitti „hring-
stjörnuverðlaunin“ hljómsveitinni
Fásinnu, er sigraði í hljómsveita-
keppninni { ár. Að þvf búnu gekk
Ringo til liðs við Stuðmenn og
trommaði á sneril í einu uppáhalds-
laga sinna, „Johnny B. Goode“.
Skemmti Ringo sér konunglega að
eigin sögn og ískraði enn í honura
kátínan er hann hélt til London á
sunnudagskvöldið með eiginkonu
sinni og ritara. Hátíðin fór vel fram
og var almennt góð stemmning á
svcðinu.
Skínandi sumarveður var hátíð-
isdagana og hefur það vafalaust átt
sinn þátt í að mikil ölvun var ekki
slarkaralegri en raun bar vitni.
Sæmilegt var að gera hjá sjúkra-
vaktinni — allmargir eru með
skrámur en engin stórslys urðu á
fólki. Unglingar, sem urðu ósjálf-
bjarga af drykkju eða /og vökum
voru fluttir á „Hótel Buðlung", sem
er eyðibýlið á Buðlungavöllum, og
Engin stórslys urðu á fólki en nokkrir fengu skrám-
ur.
Úrslit tilkynnt í hljómsveitakeppninni — stuðningsmenn Fásinnu fagna sigri
sinna manna.
Nokknr hópur fólks tók á móti
Ringo Starr, eiginkonu hans og rit-
ara, þegar leiguvél frá Sverri Þór-
oddssyni lenti á Egilsstaðafhigvelli.
Meðal þeirra var þessi litla dama.