Morgunblaðið - 08.08.1984, Blaðsíða 56
OPIÐ ALLA DAGA — ÖLL KVÖLD
AUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆTI. SÍMI 11340
OPIÐALLA DAGA FRÁ
KL. 11.45-23.30
AUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆtl, SlUI 11633
MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Sfldin:
síldveiða með nót og reknetum á
komandi síldarvertíð er útrunninn.
Sótt var um veiðileyfi fyrir 95 nóta-
skip og 55 reknetabáta.
Heildarkvóti hefur ekki verið
ákveðinn og ekki heldur kvóti ein-
stakra skipa, að sögn Jóns B. Jón-
assonar skrifstofustjóra í sjávar-
útvegsráðuneytinu, en Hafrann-
sóknastofnun lagði til 45 þúsund
tonna heildarkvóta. Að sögn Jóns
er nú verið að yfirfara umsóknirn-
ar í ráðuneytinu og því ekki vitað
hvað mörg skip fá veiðileyfi. Hins
vegar er ákveðið að loðnubátar fá
ekki leyfi til síldveiðanna.
Fimm leigu-
bflar í árekstri
FIMM leigubifreiðir skemmdust
nokkuð fyrir framan Bifreiðastöð
fslands um níuleytið á mánu-
dagskvöld er leigubifreið var ekið
' aftan á röð leigubifreiða, sem biðu
þess að fá farþega. Skipti það eng-
um togum að þær fóru hver aftan
á aðra uns þær voru fimm sem
höfðu skemmst. Bkki var f gær
vitað um orsök slyssins, hvort
leigubifreiðarstjórinn er slysinu
olli fékk aðsvif eða dottaði við
stýrið.
150 skip
sækja um
veiðileyfi
UMSÓKNARFRESTUR um leyfi til
Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra:
Grunur um að Danir
og Norðmenn hafi
gert samkomuiag
„Danir veiddu á gráa svæðinu fyrir tveim eða þrem árum og þá
stugguðu norsk varðskip rið dönsku veiðiskipunum og kom til árekstra.
Við höfum grun um að þessir aðilar hafi komið sér aaman um að forðast
árelrstra. En hvað felst f slfku samkomulagi, veit ég ekki, sagði Geir
Hallgrfmsson, utanríkisráðberra, þegar blaðamaður Morgunblaðsins
innti hann álits á ummælum Árna Gíslasonar útgerðarmanns í Hirts-
hals í Danmörku f Morgunblaðinu sfðaatliðinn laugardag, þar sem hann
segir að Norðmenn og Danir hafi gert þegjandi samkomulag um gráa
svæðið þ.e. sveðið milli miðlínu Jan Mayen og Grænlands og 200 mflna
frá Grænlandi.
„Danir halda þvf fram að efna-
hagslögsaga Grænlands sé 200
mflur í átt að Jan Mayen, en á
þetta hafa Norðmenn ekki geta
fallist, en þeir telja að miðlfna
eigi að gilda. Úrslit f þessari deilu
fást ekki nema með einhvers kon-
ar gerðardómi, sem samkomulag
yrði um, og hafa Danir boðið upp
á það, en Norðmenn vilja leysa
deiluna meö samkomulagi. Ég fæ
hins vegar ekki séð að hér sé um
nokkra millileið að ræða.“
Aðspurður sagði Geir Hall-
grfmsson það ljóst að íslendingar
hljóti að skoða loðnuveiðar Fær-
eyinga á Jan Mayen-svæðinu f
tengslum við samkipti þjóðanna á
sviði fiskveiða og vitnaði þar til
ívilnana þeirra i fslenskri lög-
sögu. í eftirlitsflugi landhelg-
isgæslunnar f gær sást eitt fær-
eyskt skip að loðnuveiðum, auk
þriggja annarra og var ekki ólík-
legt að þau séu einnig frá Færeyj-
um.
Skoðanaköimim Hagvangs hf.:
58 % lýsa stuðningi
við rflíisstjórnina
stuðningurinn meiri hjá körlum en konum
STUÐNINGUR við ríkisstjórnina
hefur minnkað frá því í aprfl 1984
fram í júlí úr 69,6%f 58%ef tekið er
mið af niðurstöðum í skoðanakönn-
unum, sem Hagvangur hf. hefur
framkvæmt f könnuninni sem fram-
kvæmd var í júlí sögðust 12,7% ekki
vita svarið við spurningunni: „Styður
þú eða styður þú ekki núverandi rfk-
isstjórn?" en 7,9%sögðust ekki vita
svarið í apríl síðastliðnum. 26,5%
voru andvígir stjórninni nú en 20,5%
í apríl.
Þessi dvfnandi stuðningur viö
rfkisstjórnina er i samræmi við
þróunina í stuðningi við stjórnar-
flokkana samkvæmt skoðana-
könnunum Hagvangs hf. en niður-
stöður um fylgi við einstaka
flokka voru birtar í Morgunblað-
inu síðastliðinn laugardag. Kann-
anirnar sýna að rfkisstjórnin nýt-
ur stuðnings meirihluta þjóðar-
innar en samtals 57,2% kjósenda
studdu Sjálfstæðisflokkinn og
Framsóknarflokkinn f kosningun-
um í apríl 1983. Af þeim sem tóku
afstöðu til einstakra flokka f
könnun Hagvangs hf. að þessu
sinni sðgöust 48,8% styöjá Sjálf-
stæðisflokkinn (flokkurinn hlaut
38,7% i kosningunum 1983) og
14,7% Framsóknarflokkinn
(18,5% f kosningunum).
Athygli vekur að ríkisstjórnin
nýtur talsvert meiri stuðnings
meðal karla en kvenna ef marka
má niðurstöðu Hagvangs hf.
64,9% karla sögðust styðja stjórn-
ina (75,9% f apríl 1984) en 50,4%
kvenna (63,3% f apríl). Þá er
stuðningur við stjórnina meiri f
dreifbýli, 61,2% (73,4% í apríl), en
þéttbýli, 59,3% (73% f aprfl), og á
höfuðborgarsvæðinu, 56,7%
(66,7% í apríl).
Siá nánar um niðurstöður
könnunarinnar á bls. 4.
Samstaða er ekki um
stöðvun rækjuvinnslu
FÁAR rækjuvinnslur ætla að hætta
rækjumóttöku og stöðva vinnslu
þann 10. ágúst þrátt fyrir tilmæli um
það sem samþykkt voru á aðalfundi
Félags rækju- og hörpudiskvinnslu-
stöðva. Þó hafa þrjár vinnslur að
minnsta kosti hætt rækjuvinnslu og
búist er við að einhverjar fleiri fylgi
f kjölfarið fyrr eða seinna. Ekki er
talið að skilyrði til rekstrar vinnslu-
stöðvanna séu neitt betri nú en þeg-
ar stöðvunin var samþykkt og birgð-
ir halda áfram að aukast
Eyjólfur Þorkelsson, fram-
kvæmdastjóri Rækjuvers hf., á
Bfldudal, sem jafnframt er for-
maður Félags rækju- og hörpu-
diskvinnslustöðva, sagði i samtali
við Mbl. í gær að samstaðan væri
ekki nægilega mikil, og miklu
minni en hann hefði átt von á.
Sagði hann að mjög mismunandi
aðstæður stöðvanna kæmu þarna
til og einnig væru menn að vona
að óskir þeirra til sjávarútvegs-
ráðherra um lækkun útflutn-
ingsgjalda og greiðslur úr verð-
jöfnunarsjóði út á óseldar rækju-
birgðir yrðu teknar til greina.
Sagði hann að ráðherra hefði haft
góð orð um sfðari liðinn en þar
væru 30 til 35 milljónir sem
rækjuvinnslurnar ættu á móti
hinni óraunhæfu hráefnishækkun
sem varð 1. júní.