Morgunblaðið - 12.08.1984, Page 21

Morgunblaðið - 12.08.1984, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1984 77 Járnad i miðri leið: Hreinn Þorkeisson, Hjalti Jón Sreinsson og Eydís Indriðadóttir. Isabelle Autonne, franski læknirinn, sem stundaði nálastungulækningar i blaðamanni Mbl. íHvítírnesi. Ekkert er frjálsara en kind með lömbin sín i fjöllum. Þessi hagaði sér mjög frjilslega og gerði ítrekað- ar tilraunir til að stela brauðpokum í áningarstað. Svo stakk hún þeim í húðina á mér á nokkrum stöðum: úlnliði, hand- arbak ofan við þumal, ofanvert brjóstið, undir eyrun og í fætur neðan við hné. Nálarnar voru í ör- stutta stund — hálfa mínútu, eina mínútu — og aðeins á öðru hand- arbakinu fann ég fyrir því þegar nálin fór í. Hún nuddaði með ein- um fingri þar sem nálarnar höfðú staðið; virkaði á mig eins og svæðameðferð. Inni var þögn og fyrir utan söng lóa. Ómur af mannamáli barst utan úr kvöldkyrrðinni og kind jarmaði blíðlega á lambið sitt. Friðsældin fór um mig allan og mér fannst ég þægilega þreyttur. En mér var ekkert batnað. Háls- bólgan var jafn mikil og áður, beinverkirnir svipaðir. Hitinn varð auðvitað minni þegar hann fékk að komast óheftur frá líkam- anum. — Gott og vel, sagði ísa- bella læknir. — Nú skaltu hvíla þig og svo sjáum við til í fyrramál- ið hvernig þú hefur það. Þá gerum við þetta aftur, ef þú vilt. „... mega frjáls um fjöllin ríða“ íslenska hestinum. Hún á sjálf hest heima í Angers. — Ekki mjög stóran, sagði hún. — Aðeins 160 sm upp á bakið. Hana langaði að eignast íslenskan hest og vildi helst koma aftur næsta sumar. Hún lét mig fara úr öllu nema stuttum nærbrókum og leggjast marflatan í eina kojuna. Ég er enn ekki viss um hvort ég hefði átt að taka það sem grófa árás á vaxtar- lag mitt þegar hún sagði: O, so big place..., en sagði ekkert. Ég held að konan og tengdó hafi ekki heyrt þetta. ísabella dró upp úr pússi sínu litla nálaöskju og glas með sára- völcva. — Slappaðu alveg af, sagði hún og sótthreinsaði nálarnar. Stungið í Hrítirnesskila. - bió*"> eá- Hestamennirnir, sem komið höfðu ríðandi úr Fremstaveri, voru glaðir og reifir. Ferðin hafði verið skemmtileg, vegir ágætir og riðið yfir nokkrar ár, þeirra mest- ar Grjótá, Sandá og Jökulfall. Þjóðverjarnir — þeir sem höfðu lögaldur til — drógu upp romm og fengu sér toddý. Einhver átti hvítvínsflösku og Hjalti Jón Sveinsson, ritstjóri hestamanna- blaðsins Eiðfaxa, var með gítar. Hann kunni allt og leiddi sönginn í félagi við Birki. Hinn kranki hírðist í koju sinni og mókti gegn- um gleðskapinn. Einu sinni bráði þó af mér. Þegar farið var að syngja ísland ögrum skorið þótti mér viðeigandi að syngja með. Þjóðverjarnir héldu líklega að ég væri bláklædda konan því þeir hrópuðu og hlógu hátt: Hinn kranki syngur! Ég söng ekki meira eftir það og sofnaði fljótlega en á meðan var m.a. sungið meira úr romsunni, sem vitnað var til í upp- hafi, til dæmis fyrsta vísan: „Djöfull gaman, drengir, er að detta í’ða, mega frjáls um fjöllin ríða og fullur ofan í pokann skríða." Maður tók eftir merkilegum hlut þegar farið var að syngja á kvöldin. íslendingar kunna al- mennt mörg sönglög, gömul og ný. Rútubílasöngva og ættjarðarljóð, gömul og ný dægurlög, Yesterday og Blowin’ in the Wind. Landinn er fljótur að taka undir og það virðist vera okkur eðlilegt við viss- ar aðstæður að springa út i söng. (Skagfirðingar, sem við hittum á Króknum í ferðalok, létu sér það ekki nægja heldur sungu allir eins og englar og ekki annað en falleg ljóð.) En þessu var á annan veg farið með útlendingana í hópnum. Þjóðverjarnir þrettán kunnu sára- Iítið af lögum eða textum og stóðu sig hálf dapurlega í söngnum. Þeim var þetta hreinlega ekki eðli- leg hegðun. Þeir horfðu á okkur, dálítið tortryggnir í fyrstu, en fannst svo bráðgaman að fylgjast með. Það var ekki fyrr en á síðasta degi að þeir fóru svolítið að taka - undir og eftir kvöldið í Hvítárnesi söfnuðust litlu stelpurnar, fjórar jýskar á aldrinum 11—16 ára, saman og rauluðu. Mest heyrðist mér þær vera að rifja upp texta lagsins „99 Luftballoons". Heute blau Hjalti og Birkir sungu listilega jýska krárvísu, „Heute blau/ Morgen blau“, og þá fannst manni að Þjóðverjarnir hlytu að taka undir. Vísan er ættuð frá Köln og mun sungin á miklum bjórhátíð- um, sem karlarnir halda sjálfum sér. Það skýrir ef til vill að þegar karlarnir tveir í hópnum, annar kannski hálffimmtugur og hinn tíu árum eldri, virtust ætla að fara að taka undir sendu konurnar þeim svo illilegt augnaráð að í miðri vísu voru þeir farnir að horfa í gaupnir sér. Líkiega fannst konunum ekki eins gaman og körl- unum að hugsa til þessarar vísu og bjórhátíðanna. En þolinmæðin þrautir vinnur allar og síðasta kvöldið í Skagafirði voru meira að segja þýsku frúrnar farnar að taka undir. Hroturnar í kofanum um nótt- ina voru alveg svakalegar. Ein- hverjir voru sagðir hafa verið farnir að hrjóta áður en þeir voru sofnaðir. í svefnsalnum á neðri hæðinni vorum við sjö og ein- hverntíma um nóttina taldi ég þar sjö mismunandi hrotuhljóð. Dag- inn eftir fór ég að hugsa að varla hefði ég talið hroturnar í sjálfum mér með? Niðurstaða mín varð að sú bláklædda hefði sofið þarna líka, því ekki gaf hún neitt annað til kynna þessa nótt. Ber nú brýna nauðsyn til að koma upp almenni- legum draug í Hvítárnesi. Lækningin ber árangur Ég var stunginn aftur morgun- inn eftir og fannst ég nokkuð hressari. Það var samt gremjulegt að þurfa öðru sinni að sitja af sér dagleið á hestbaki. Nú var ferðinni heitið til Hveravalla og farið um Þjófadali vestan Kjalfells, sem er fallegt fjall, og Hrútafell, sem skagar í 1400 metra hæð yfir Langjökul. Kvöldið áður hafði mátt sjá í gegnum móðuna allan fjallahringinn á þessum dýrðar- stað. Um hádegisbil stöðvuðum við bílinn efst á Kili við minnis- merki Zoega og eftir að búið var að drepa á bílnum heyrðist ekkert hljóð. Sandarnir voru allt um kring, hljóðir og endalausir. Það grillti í Kerlingarfjöllin og Hrúta- fell og með aðstoð útsýnisskífunn- ar mátti grilla í fleiri staði. Þetta reyndist erfiðasta dagleið hesta- fólksins, grýtt og seinfarin og hestarnir því brokkgjarnir. Að koma á Hveravelli er engu líkt. Upp úr eyðimörkinni birtist staðurinn allt í einu, eins og hill- ing. Þar var blankalogn og hiti þegar eldhúsbíllinn renndi í hlað og við vorum drifin í kaffi hjá skálavörðum FÍ í nýja skálanum. Þótt um 8000 manns fari um Hveravelli á hverju ári er svæðið snyrtilegt, húsum er vel haldið við og greinilega gengið um staðinn af þeirri virðingu, sem hann á skilið. Neðan við gamla skálann, i kvos- inni, er heit laug. Einhver besta laug landsins. Þegar hestafólkið kom ríðandi um kvöldmatarleytið dreif það sig í hópum í laugina. Ég hafði sofnað en þegar laugarferð- ina bar á góma, einum sólarhring eftir fyrri nálastunguaðgerðina í Hvítárnesi, fannst mér ég alfrísk- ur og brá mér með. Eftir kvöld- vöku fórum við nokkur út í bjarta nóttina og sátum í lauginni á með- an grár himinninn nálgaðist okkur. SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.