Morgunblaðið - 12.08.1984, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 12.08.1984, Blaðsíða 22
78 MORGUNBLAÐID, SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1984 Það er ekki reimt á Kili í ferðalok í Steinsstadaskóla í Skagafírði: Hjalti Jón þenur gftarinn og Birkir syngur af innlifun. — Ljósm. EÁ. Ljónið á Hveravöllum Á Hveravöllum eru í sumar fimm manneskjur búsettar. Þar voru til síðustu mánaðamóta veð- urathugunarhjónin Jón ólafsson og Jóhanna Einarsdóttir og hund- urinn íri, sem var eins og ljón að sjá úr fjarska en reyndist ekkert sérstaklega hugumstór innan um hrossastóðið. A Hveravöllum eru á sumrin gæslumenn fjárgirðinga milli Norður- og Suðurlands. Fram til þessa hafa gegnt starfinu tveir karlmenn en í sumar er þar átján ára húnvetnskur búfræðing- ur, Rúna Einarsdóttir. Hún er með 7—8 hesta, suma í tamningu, og fylgist með 120 km langri girð- ingu. Daglega riður hún a.m.k. 50—60 kílómetra. Rúna mun hafa tekið að sér starfið með þeim orð- um að það væri hæfilegt fyrir sig eina. Auk þess væri kaupið ekki til skiptanna. Og svo eru þar í sumar skálaverðir Ferðafélags íslands, hjónin Sveinbjörg og Jón Grétar Sigurðsson úr Kópavogi. Klukkutíma eftir að við lögðum upp frá Hveravðllur.i voru öll sár- indi úr hálsinum á mér. Mér fannst ég satt að segja vera eins og nýsleginn túskildingur og hik- aði ekki við að þakka ísabellu fyrir það. Ég hef áður fengið „der flu“ og hún hefur hreint ekki haft fyrir sið að rjúka úr mér á tveim- ur dögum. Yfír Blöndu að Galtará Leiðin var að mestu leyti ágæt- ar reiðgötur, um tíma með Seyð- isá, einni þeirra sem síðar fær samheitið Blanda. Hún var þriðja eða fjórða áin sem við riðum og var talsvert í henni. Vatnið tók hestunum upp í miðjar lendar og Ferðalangarnir voru á ýmsum aldri — liðlega hilföld var i milli þessyngsta og elsta. Frú Eva-María Raabe fri Leverkusen skemmti sér konunglega i íslensku hestunum. — Mbl/Ómar Valdimarsaon. þessu enn, sagði Birkir. — Sumir hestar kunna þetta betur en aðrir. Og sumir þeirra sýndu meiri til- litssemi en aðrir, eins og þegar ferðalangur þurfti að ræða við páfann og varð einn eftir I þok- unni. Hesturinn kunni því illa að vera einn á ferð við slíkar aðstæð- I þokunni á heiðinni Síðasta daginn var riðið frá Galtará framhjá Aðalsmanns- vatni og Haukagilsheiði niður að Mælifelli. Alla leiðina, eða þar til komið var niður í miðjar hlíðar Mælifellshnúks, var svartaþoka. Skyggni var um það bil tvær hestlengdir. Framan af degi var sólin dálítið að reyna að þurrka upp þokuna í suðri, fyrir ofan Hofsjökul, og birtan varð fallega annarleg. — Ég hef ekki áður séð svona mikið í henni Blöndu, sagði Birkir á leiðinni. — En þetta gekk bara allt vel. Aðalatriðið við að ríða yf- ir á er að horfa ekki niður í straumkastið. Þaulvana hesta- menn getur farið að sundla í jafn- vel litlum sprænum. Stefna á | /þokunni við Aðalsmannavatn i Eyvindarstaðaheiði. Maður, hestur og landið En samt var ekki hægt annað en að dásama íslenska hestinn þegar komið var niður að prestsetrinu á Mælifelli. Það duga engar truntur í svona ferðir. Elsta hrossið í ferð- inni var 26 vetra brúnn klár, sem varla blés úr nös. Leiðsögumenn- irnir voru dálítið að temja hesta á leiðinni og börðust þá stundum hart menn og hestar. Þeim bar- daga lyktaði á þann eina veg sem leyfilegt er við tamningu: maður- inn vann. Hreinn og Pálmi eru 24 og 20 ára, sterkir og sprækir eins og ungir folar. Þeir og Birkir og fjórði leiðsögumaðurinn, Eydís Indriðadóttir, kennaraskólanemi frá Hvíteyrum I Skagafirði, höfðu farið þessa Ieið áður og voru þaulvön I fjallaferðum. Enda runnu stundum saman f eitt mað- urinn, hesturinn og landið og það vekur góða tilfinningu hjá þeim sem skynja það. Skynjunin verður með nokkuð öðru móti á fjöllum. ólafur Jóns- son, veðurathugunarmaður á Hveravöllum, sagði skemmtilega frá því við brottför þaðan hvernig þeim hjónum hefði lærst það sem væri mjög mikilvægt: að geta not- ið þess að vera með sjálfum sér. Það hefði tekið hálft annað ár. Hlýtur að vera nokkurs virði. Við Mælifell biðu okkar Einar Bollason og kúabóndinn frá Varmahlíð með Benz-kálfinn. Hópnum var ekið að Steinsstaða- skóla, þar sem haldið var upp á ferðalok með hátíðamat, heitum pottum, sundi, rammislenskum hátiðasöng og ljóðalestri, svo fátt eitt sé nefnt. Þar voru og nokkrir gestir og ekki trúi ég öðru en að þeir hafi séð á hópnum hversu vel hann hafði skemmt sér. ÓV. hnéhá stigvélin fylltust af mó- rauðu og ólgandi jökulvatninu. Enn gat maður ekki annað en dáðst að hestunum, þessum fót- vissu og mögnuðu skepnum. Ferð- inni var heitið á Eyvindarstaða- heiði norðan Skagafjarðar. Þar streymir fram Galtará og þegar hún tók að nálgast rifjaði Birkir upp ástarkvæði Jónasar, sem greiddi lokka við Galtará. Eftir að komið var yfir Ströngukvísl tóku við malarvegir siðmenningar virkjanaþjóðfélagsins. Gjörsam- lega búið að eyðileggja reiðgöturn- ar, sem þarna voru áður. Þetta var á þeim slóðum sem hrossabændur fyrir norðan voru að reka upp hesta sína á dögunum og ekki mik- ið um gras, sýndist manni. Að minnsta kosti ekki nærri Blöndu, sem áður en langt um líður verður búin að breiða sig yfir gríðarlegt landflæmi. Við Galtará voru hest- arnir settir í haga og tveir leið- sögumannanna skildir eftir til að gæta þeirra um nóttina. Okkur hinum var ekið undurfallega leið út Svartárdal og í Steinsstaða- skóla í Lýtingsstaðahreppi. Hesta- sveinarnir, Hreinn og Pálmi, not- uðu fyrrihluta nætur til að setja saman stökur hvor um annan. Við Steinsstaðaskóla er sundlaug og heitur pottur og mjúk rúm. Það var komið nærri miðnætti þegar við komum þar að og fara ekki sögur af hrotum þá nótt. ákveðinn punkt i landi og halda hestinum upp í. Hann sagðist talsvert hafa verið að lesa sér til um ferðir Skaftfell- inga um sandana. Þeir hefðu ein- faldlega ræktað sér hesta, sem kunnu á vötnin og voru duglegir að vaða. — Það eimir eftir af Eldabuskurnar Ólöf og Sigríður og Hikon bílstjóri fi sér hidegisbita í eyðimörkinni i KilL ur og maðurinn mé á hendur sér þegar sá rauði gekk á báðum fót- um hans áður en hann sleit sig lausan og hvarf inn i gráa vegg- inn. Til allrar hamingju var áning skammt undan. Jackson- tíska á næstu árum ^ New York, 10. ágúst AP. ÚTLIT ER fyrir að söngvarinn og dansarinn þekkti, Michael Jackson, muni slá í gegn á fleiri sviðum en orðið er. Hann hefur nú bug á að gefa tóninn í tískuheiminum, með svipuðum fötum og hann gengur í og einnig fötum sem bera nafn hans eða mynd. Andlit og útlinur söngvarans munu í framtíðinni skreyta inni- skó, náttföt og höfuðföt barna og unglinga um allan heim, en auk þess verða settir á markaðinn leð- urjakkar með hundruðum renni- lása, glyshanskar og fleiri ein- kennisföt Jacksons. Fötin verða væntanlega fáanleg á næsta ári og er búist við að sala á Jackson-fötum færi framleið- endunum um einn milljarð Banda- ríkjadala innan fjögurra ára. Berjast gegn misrétti í Pakistan Lahore, 1’akísUn, 10. ágúst. AP. LEIÐTOGAR kvennahreyfinga í Pakistan fóru þess á leit við forseta landsins að hann felldi niður tillögur að lögum, sem fælu í sér misrétti gegn konum og minnihlutatrúar- flokkum í landinu. Konurnar segja að lögin séu gerð til að fella niður öll réttindi kvenna og jafnframt færa þjóðfé- lagið nokkrar aldir aftur í tímann og gera það ósiðmenntað. Hluti af lögunum felur í sér að framburður tveggja kvenna jafn- gildi framburði eins karlmanns I réttarhöldum og framburður kvenna gildi alls ekki í morðmál- um. Lögin eru hluti af áætlun for- setans um að gera líf allt í Pakist- an meira eftir því sem segir í Isl- am. Konurnar halda því aftur á móti fram að í Islam finnist hvergi ákvæði um að framburður kvenna gildi minna en karlmanns og lögin séu and-islamísk og ómannúðleg. Nokkur aukning á AIDS í Evrópu ^ Genf, 10. áKÚst. AP. Á SÍÐUSTU tveimur árum hefur þekktum tilfellum af AIDS-sjúk- dómnum fjölgað úr 253 í 391 í 11 Evrópulöndum. Kemur það fram { skýrslu frá WHO, Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnuninni. I Evrópu eru AIDS-tilfellin 1,3 á hverja milljón íbúa og er það 13 sinnum minna en I Bandaríkjun- um. í Frakklandi eru tilfellin flest, 138, en fæst í Grikklandi, aðeins tvö. I Danmörku og Belgíu eru þau flest miðað við mannfjölda en að sama skapi fæst tiltölulega á It- alíu. Tölurnar eru þessar fyrir löndin (fyrst tölur fyrir 1983—1984 og síðan fjöldi tilfella á millj. íbúa): Belgía, 38—50, 5; Danmörk, 13-26, 5; Frakkland, 94-138, 2,6; Vestur-Þýskaland, 42—76, 1,2; Grikkland, 0—2, 0,2; ítalia, 3—7, 0,1; Holland, 12—13, 0,9; Spánn, 6—12, 0,3; Svíþjóð, 4—7, 0,8; Sviss, 17-18, 3,0; Bretland, 24-42, 0,8. AIDS veldur vanalega dauða með því að veikja eða eyðileggja alveg mótstöðuafl sjúklingsins gegn krabbameini og sýkingum og hafa kynvillingar orðið harðast úti af völdum sjúkdómsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.