Morgunblaðið - 28.10.1984, Qupperneq 1
104 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
208. tbl. 71. árg.
SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hluti Ól. 1988 til
Norður-Kóreu?
Uiuanne, 27. október. AP.
íþróttaleiðtogar frá Norður- og
Suður-Kóreu fjalla nú á bak við tjöldin
um bræðingstillögu sem gæti opnað
Sovétmönnum og fylgiríkjum þeirra
leið til þátttöku í Olympíuleikunum í
Seoul 1988, að sögn heimilda úr innsta
hring Alþjóðaólympíunefndarinnar.
Bræðingurinn felur í sér að ein-
hverjar af ólympíugreinunum 23
fari fram í Norður-Kóreu, og að
Norður- og Suður-Kóreumenn sendi
sameiginlega íþróttasveit til þátt-
töku i leikunum.
Munu embættismenn í N- og
S-Kóreu hafa hist með leynd að
undanförnu í þeim tilgangi að koma
að nýju af stað viðræðum um sam-
starf á sviði íþróttamála, sem eink-
um fæli í sér að ríkin tvö sendi sam-
eiginlegt lið til þátttöku i alþjóða-
keppnum.
Mondale
kokhraustur
þrátt fyrir
hrakspár
Hugmyndin um færslu sumra
ólympíugreina til Norður-Kóreu
varð til á þessum fundum, en talið
er að hún gæti bjargað andliti Sov-
étríkjanna og fylgiríkja þeirra. Af
þeirra hálfu hefur ítrekað verið gef-
ið til kynna að undanförnu að þau
tækju ekki þátt í ólympíuleikunum
í Seoul 1988 þar sem þau hafa ekki
stjórnmálasamband við Suður-
Kóreu._______________
Yamani boðar
olíusamdrátt
New York, 27. oklóber. AP.
YAMANI, olíuráðherra Saudi-
Arabíu, sagði við fréttamenn í
Osló í kvöld að Mexíkanar og
Egyptar myndu draga úr olíu-
framleiðslu til að afstýra verð-
hruni á heimsmarkaði.
Ríkin tvö standa utan OPEC og
sagði Yamani eigi hversu mikill
framleiðslusamdráttur þeirra
yrði. í Mexíkó og Egyptalandi hef-
ur ekki verið skýrt frá samkomu-
lagi af þessu tagi og heimildir úr
olíuiðnaði Egyptalands hafa ekki
heyrt neitt um slíkt samkomulag.
Wuhington, 27. oklóber. AP.
WALTER Mondale, forsetaf-
rambjóðandi Demókrata-
flokksins, sagði í samtali við
fréttamenn í dag, að hann
væri hinn bjartsýnasti á að
ná kjöri er gengið verður til
kosninga 6. nóvember næst-
komandi.
Þrátt fyrir að hafa sagt mjög
nýlega að hann myndi ekki tjá
sig um skoðanakannanir, sagði
hann nú: „Ég held að þær gefi
alranga mynd af stuðningi við
okkur Reagan, ég er sannfærður
um að hann hefur ekki þá miklu
forystu sem kannanirnar benda
til. Ég tel mig eiga góðan mögu-
leika á að sigra hann og mun
berjast af öllum kröftum síðustu
dagana fram að kosningum,"
sagði Mondale.
Búlgarir neita aðild
að tilræði við páfa
Rómaborg, 27. október. AP.
BÚlXiÖRSK stjórnvöld hafa svarað
fullum hálsi, eftir að þrír Búlgarir
voru formlega sakaðir um að hafa átt
aðild að morðtilræðinu við Jóhannes
Pál páfa í Rómaborg árið 1981. Segja
Búlgarir ásakanirnar uppspuna frá
rótum og greinilega runnar undan
rifjum Bandaríkjamanna og annarra
aðila innan NATO sem sjái sér hag í
að kæla sambúð austurs og vesturs.
Rannsóknardómarinn ítalski, II-
ario Martella, sagði engan vafa
leika á því, að alþjóðlegt samsæri
hafi verið um að myrða páfann og
Búlgarir hefðu borið hitann og
þungann af öllu saman. Martella
Græddu hjarta úr
bavíana í kornabarn
Lonu Lindft, Kaliforníu. 27. oklóber. AP.
HJARTASKURÐLÆKNAR Á Loma Linda-sjúkrahúsinu í Kali-
forniu græddu hjarta úr bavíana í 14 daga gamalt dauðvona
meybarn í nótt og eftir fyrstu klukkustundirnar var almenn
ánægja með líðan sjúklingsins. „Hún Fae litla stendur sig vel,
líðan hennar er ótrúlega góð,“ sagði talsmaður sjúkrahússins.
Þetta er í fyrsta skipti sem apahjarta er grætt í kornabarn, en
fjórum sinnum áður hafa hjörtu bavíana og simpansa verið
grædd í fullorðið fólk út úr neyð, en í þremur tilvikum hafði það
látist fáum klukkustundum síðar, en í fjórða tilvikinu lifði sjúkl-
ingurinn í þrjá og hálfan dag.
Barnið var sagt í lífshættu
strax að aðgerð lokinni, en það
er venjan þegar um hjartaskurð-
lækningar er að ræða. Yfirlækn-
irinn, Leonard Bailey, hefur 150
sinnum grætt apahjarta í geitur
og kindur, en aldrei áður í fólk.
Hann sagði fréttamönnum að
aðgerð lokinni, að hjarta litla
barnsins hefði verið stórlega
vanskapað og likurnar á löngum
lífdögum þess hefðu verið engar.
„Það deyja allir sem fæðast með
svona hjarta, í hæsta falli lifa
börnin í örfáar vikur,“ sagði
Leonard.
Um líkurnar á því að barnið
eigi langa lífdaga framundan
sagði Leonard: „Ónæmiskerfi
nýfæddra barna eru ófullkomin,
þau eiga eftir að þróast, og það
eykur líkurnar á því að líkamar
þeirra hafni ekki apahjörtum.
Það gildir öðru með fulltíða fólk
með fullþróuð ónæmiskerfi,
svona hjartatilfærslur þýða lítið
þegar fulltíða fólk er annars veg-
ar. Við gerum okkur vissulega
vonir um að þetta barn lifi lengi
og farsællega."
vildi ekki nefna Sovétmenn, sem
sumir hafa talið fjarstýra búlg-
örsku leyniþjónustunni, en einn
saksóknaranna, Antonio Albano,
gerði það þó og sagði meira en
hugsanlegt að Sovétmenn hafi í
raun staðið á bak við tilræðið en
notað Búlgara sem leppa.
„Þetta er samsæri ákveðinna
afla á Vesturlöndum til að grafa
undan og sverta Búlgaríu og hinn
sósíalíska heim,“ sagði í tilkynn-
ingu frá stjórnvöldum í Búlgaríu
og er búist við að hún sé aðeins sú
fyrsta af mörgum harðorðum yfir-
lýsingum sem í vændum er.
Martella rannsoanardómari og Me-
hmet Ali Agca skotmaður á mynd-
inni Lv. Til hægri er Oral Celik sem
einnig er talinn hafa hæft páfa meó
byssukúlum. Hann fer nú huldu
höfði í Búlgaríu.
Sandinistar í kosningaham:
Saka Bandaríkin um
mútugjafir og hótanir
Nkaraipia, 27. október. AP.
Sandinistastjórnin í Nicaragua sak-
aði Bandaríkjamenn í dag um að beita
hótunum og mútum til að neyða stjórn-
arandstæóinga til að hætta við þátt-
töku í kosningunum 4. nóvember næst-
komandi.
Bandaríska sendiráðið hefur neit-
að ásökununum og Thomas Borge
innanríkisráðherra játaöi að hann
hefði engin gögn máli sínu til sönn-
unar, en sagði aðgerðirnar í sam-
ræmi við ráðleggingar í handbók
CIA um hvernig grafa mætti undan
sandinistum.
Daniel Ortega leiðtogi sandinista-
stjórnarinnar og forsetaefni sandin-
ista sagði opinberlega að Banda-
ríkjamenn hefðu boðið frambjóðend-
um annarra flokka en sandinista eitt
til tvö hundruð þúsund dollara
hverjum til að draga sig til baka.
Viðkomandi frambjóðendur vísa
þessu á bug og segjast hafa hætt við
framboð þar sem þeir sitji ekki við
sama borð í kosningabaráttunni og
sandinistar.