Morgunblaðið - 28.10.1984, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.10.1984, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1984 Hið nýja hafnarsvædi virt Arnarvog í Garðabæ. Viðlegukanturinn verður við garðinn vinstra megin við lónið og er gengið hefur verið frá stálþilinu verður haftið fremst á myndinni rofið. Á myndinni eru Matthías Sveinsson, framkvæmdastjóri Stálvíkur, Sigurður Sveinbjörnsson, eigandi og forstjóri vélaverkstæðis Sig. Sveinbjörnsson- ar, og Jóns Sveinsson, forstjóri Stálvíkur. Unnið af krafti við hafnargerð í Garðabæ VIÐ Arnarvog standa nú yfir framkvæmdir við hafnargerð á vegum Garða- kaupstaðar og fjögurra fyrirtækja við voginn. Dýpkun er lokið og framund- an er að reka niður stálþil sem viðlegukant. Þegar hefur um 11 milljónum króna verið kostað til verksins og reiknað er með að stálþiliö kosti um 2,5 milljónir. Áætlað er að framkvæmdum þessum Ijúki fljótlega á næsta ári. Jón Sveinsson, framkvæmda- stjóri Stálvíkur hf, sagði í sam- tali við blm. Morgunblaðsins, að tilgangurinn væri að skapa bæj- arfélaginu aðgang að sjó. Svo sem kunnugt væri hefðu síðastliðin 25 ár verið byggð upp iðnaðarfyrir- tæki við Arnarvoginn. Sú upp- bygging hefði hafizt með því, að Sigurður Sveinbjörnssson hefði tryggt sér land við voginn og stofnað Nökkva hf. Síðan hefðu Stálvfk hf., Vélaverkstæði Sig. Sveinbjörnssonar hf. og Rafboði hf. bættst í hópinn. öll þessi fyrirtæki í skipaiðnaði hefðu haft náið samstarf sín á milli frá upp- hafi og í sameiningu gengið frá smíði milli 30 og 40 skipa. Elzta fyrirtækið, Sig. Sveinbjörnsson hf. hefði til dæmis framleitt tog- vindur í um það bil 350 fiskiskip eða um 42% af íslenzkum fiski- skipum með þilfari. Stálvík hefði smíðað skipin, Nökkvi innréttað þau og Rafboði séð um rafkerfi í þau. I þessu sambandi hefði þró- azt hjá Rafboða myndarlegur raf- eindaiðnaður, meðal annars f tengslum við rafstýringu trolla fyrir togskip. Um 270 manns hefðu unnið hjá þessum fjórum fyrirtækjum þeg- ar bezt hefði látið. Hafnarað- staða fyrir starfsemina hefði ekki verið fyrir hendi í Garðabæ, en nú væri verið að ráða bót á þessu vandamáli og í sumar hefði vog- urinn verið dýpkaður á vegum Garðabæjar niður í 6 metra við uppfyllingu norðan við fyrirtæk- in. Nú stæði einungis á stálþili, sem kostaði, fyrir utan frágang og uppsetningu, um 2,5 milljónir króna. Vonandi tækist að útvega peninga í þetta þarfa verk til þess að dýpkun fyrirtækisins Rein sf., sem unnin hefði verið með sóma, kæmi að fullum notum þannig að aðstaða skapaðist til þess að nýta fjárfestingu fyrirtækjanna f hús- um, vélbúnaði og dýrmætri þekk- ingu. Hagsmunir þeirra væru svo miklir, að þau hefðu lagt fram verulega fjármuni til þess að þessi nauðsynlegi þáttur fyrir að- stöðu fyrirtækjanna gæti orðið að veruleika. Hafnarstjóri Garðabæjar er Jón Gauti Jónsson, bæjarstjóri. Kvikmyndahús og myndbandaleigur blómstra í verk- falli sjónvarpsins í sjónvarpsleysinu þarf almenn- ingur að leita á önnur mið til að drepa tímann. Sumir heimsækja ætt- ingja, sem þeir hafa ekki séð frá því að sjónvarpstækið þeirra fór í við- gerð um árið, enn aðrir líta í bókina sem þeir voru búnir að gleyma að væri til, en flestir virðast fara í kvikmyndahús eða horfa á mynd- bönd. „Það hefur verið mjög góð að- sókn hjá okkur i verkfalli sjón- varpsins," sagði starfsmaður Há- skólabíós. „Þetta er stórt hús og þarf mikið til að það fyllist, en það hefur látið nærri síðustu vikur.“ í Regnboganum fengust svipað- ar upplýsingar. „Sunnudagar og fimmtudagar eru alltaf bestir, en núna hefur orðið greinileg aukn- ing hina dagana,“ sagði starfs- stúika. „Við erum með um 600 sæti í allt og þau hafa nýst mjög vel.“ Starfsstúlka Nýja Bíós kvað ekki marktækt að inna þar fregna: „Við erum núna að sýna íslenska mynd, Dalalíf. Aðsóknin að ís- lenskum myndum hefur alltaf ver- ið mjög góð, hvað sem sjónvarps- útsendingum líður." Myndbandaleigurnar kvarta svo sannarlega ekki undan fáum við- skiptavinum þessa dagana. Það var sama hvert blaðamaður hringdi, alls staðar var viðkvæðið hið sama: „Mjög mikið að gera“, „við þyrftum að eiga 100 mynd- bandstæki til að anna eftirspurn." Flestir sögðu þó að dregið hefði örlitið úr útlánum síðustu daga, „fólk er greinilega farið að spara núna“. Sumir sögðu að peninga- leysi væri ekki um að kenna, fólk væri einfaldlega búið að sjá allar þær myndir sem það gæti hugsað sér að horfa á. Minningarfundur um Hafstein miðil Sálarrannsóknafélagið í Hafnar- firði er nú að hefja vetrarstarfið, fyrsti fundur félagsins verður þriðju- daginn 30. október næstkomandi í Góðtemplarahúsinu og hefst hann klukkan 20.30. Fundurinn verður helgaður minningu Hafsteins Björnssonar, miðils, en hann hefði orðið sjötug- ur þann dag. I fréttatilkynningu frá félaginu segir að Hafsteinn hafi verið einn af hvatamönnum að stofnun félagsins árið 1967, fyrsti formaður þess, og einnig er hann lézt árið 1977. Á fundinum mun Hulda Run- ólfsdóttir kennari lesa sögu eftir Hafstein, Matthías Johannessen ritstjóri flytur nokkur orð og einn- ig Úlfur Ragnarsson, læknir. Þá munu þær Sigurveig Hanna Ei- ríksdóttir og Ásdís Benediktsdótt- ir syngja við undirleik Guðna Þ. Guðmundssonar. Fundir i félaginu verða fyrsta miðvikudag hvers mánaðar í Góð- templarahúsinu. PiíCasataH Fyrsta íslensk- hollenska orðabókin FYRífTA íslensk-hollenska/hol- lensk-íslenska orðabókin er nú kom- in út. Bókin er um 400 blaðsíður og er verk Dr. Gryte Anne van der Toorn-Piebenga. Hún hefur unnið að þessu verki samhliða kennslu og rannsóknarstörfum við háskólann í Groningen, en Piebenga kennir norsku og íslensku þar. í formála orðabókarinnar segir, að íslenskan hafi reynst Hollend- ingum erfið vegna flókinna beyg- inga og hollenskan hefur vafist fyrir Islendingum vegna fram- burðar. í bókinni er framburður orðanna ekki sýndur og beyging þeirra sjaldnast gefin. Þess í stað er stuttu yfirliti bætt við í bókinni yfir málfræði og framburð beggja málanna. Miklatorg er aöalbílasölutorg borgarinnar. Stórkostlegt bílaúrval og endalaus bílasala. símar 19181 og 15014. verði Launþegum verði gert kleift að stofna vinnustaðafélög FRUMVARP til laga um breytingar á lögnum nr. 80 1938 um stéttarfélög og vinnudeilur var lagt fram í neðri deild Alþingis á þriðjudag og er það endurflutt frá seinasta þingi. Flutn- ingsmenn eru Kristófer Már Krist- insson, sem tekið hefur sæti Kristín- ar Kvaran, sem nú er í barnsburðar- leyfi, og Guðmundur Einarssaon, báðir þingmenn Bandalags jafnað- armanna. Frumvarpið gerir aðeins ráð fyrir einni meginbreytingu á lög- um um stéttarfélög og vinnudeil- ur, eins og segir í greinargerð flutningsmanna: „Að launþegar á sama vinnustað (og þá er vinnu- staður skilgreindur þannig að til hans teljast allir þeir sem taka laun sín hjá einum og sama vinnu- veitandanum) geti ákveðið (þ.e. % hlutar þeirra) að stofna eigið félag sem fari með samninga um kaup og kjör og önnur réttindi og aðrar skyldur sem stéttarfélag þeirra fór með áður, og þá skipti ekki máli hvers konar störf viðkomandi launþegi leysir af hendi.“ í frumvarpinu er gert ráð fyrir að þessi ákvæði laganna gildi um vinnustaði þar sem starfa 25 eða fleiri launþegar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.