Morgunblaðið - 28.10.1984, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 28.10.1984, Blaðsíða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1984 Hvers vegna er Karpov að bursta Kasparov? Skák Margeir Pétursson Hinn 21 árs gamli skáksnillingur Gary Kasparov er hærri að stigum en heimsmeistarinn Anatoly Karpov á lista Alþjóðaskáksambandsins FIDE. Kasparov hefur 2715 stig, en Karpov 2705. Síðustu þrjú árin hefur Kasparov verið ósigrandi á stórmót- um og nú síðast ávann hann sér rétt til að skora á heimsmeistarann með því að sigra þá Beljavsky, Korchnoi og Smyslov í einvígjum, alla með miklum mun. Það áttu því margir von á að áskorandanum unga tækist að velta heimsmeistaranum úr sessi nú í haust og setjast sjálfur í hásæt- ið. Raunin hefur hins vegar orðið allt önnur. Þó þeir Karpov og Kasparov hafi setið að tafli í sex vikur, hefur áskorandanum enn ekki tekist að vinna skák og heimsmeistarinn hefur fjögurra vinninga forskot og þarf aðeins að vinna tvær til viðbótar til að tryggja sér sigur. Staða Kasp- arovs er því harla vonlítil, en hverjar skyldu vera skýringarnar á þessum óvæntu og hrapallegu óförum hans? Karpov er betur undirbúinn Þrátt fyrir ungan aldur hefur Kasparov þegar getið sér gott orð fyrir frábæra byrjanaþekkingu. Fram að þessu hefur hann þó haft fátt nýtt til málanna að leggja í hinni fræðilegu baráttu, en haidið sig við gamlar uppáhaldsbyrjanir sínar. Þetta hefur reynst honum afar illa, því Karpov hefur greini- lega rannsakað þær mjög gaum- gæfilega og iðulega slegið vopnin úr höndum hans með hárfínum nýjungum. Þá er engu líkara en að vel- gengni undanfarinna ára hafi stigið Kasparov til höfuðs, því í upphafi einvígisins einkenndist taflmennska hans af furðulegri léttúð. Aðra skákina tefldi hann t.d. eins og hann sæti á kaffihúsi, en ekki uppi á sviðinu í höll verka- lýðsfélaganna í Moskvu. Þá slapp hann með jafntefli, en í þeirri þriðju náði Karpov að refsa hon- um fyrir vafasama byrjun og taka forystuna. í sjöttu skákinni stóð Kasparov lengst af betur en gróf sína eigin gröf er hann hugðist hagnýta sér tímahrak heims- meistarans. Gildran sem hann lagði fyrir heimsmeistarann var í einu orði sagt barnaleg; að sjálf- sögðu fann Karpov einu vörnina og sneri þar með lakari stöðu í vinning. Islendingur sem fylgdist með einvíginu í Moskvu segir Karpov hafa litið á andstæðing sinn með svip er lýsti bæði undrun og fyrirlitningu, eftir að hafa upp- götvað vinningsleikinn. Sjöundu skákina vann Karpov síðan sannfærandi og í þeirri ní- undu opinberaðist algjört lánleysi Kasparovs. f örlítið lakari, en jafnteflislegri, biðstöðu kafaði hann ekki nægilega djúpt og yfir- sást snilldarleg peðsfórn heims- meistarans. f báðum þessum tap- skákum beitti Kasparov Tarr- asch-vörn. Hún hefur reynst hon- um vel síðasta árið, en Karpov hefur jafnframt haft góðan tíma til að rannsaka hana gaumgæfi- iega. Það hefur löngum þótt góð einvígistaktík að leita á ný mið í byrjunum og e.t.v. hefði Kasparov betur gefið þessa tvíeggjuðu vörn upp á bátinn. Gróusögurnar blómstra Það hefur reynst fréttamönnum erfitt að fá upplýsingar um hagi keppendanna tveggja á meðan ein- vígið hefur staðið yfir og það hef- ur komið ýmsum gróusögum á kreik. í upphafi átti Kasparov við lasleika að stríða og varð að fresta tveimur skákum. Sú saga hefur birst í bandarísku skákblaði að hann hafi mætt veikur til leiks í fjórðu skákinni og hafi kastað upp við borðið eftir að nokkrum leikj- um hafði verið leikið, svo að stöðva varð skákina um hríð. Þá stendur hinn aldraði og virti skákskýrandi Lundúnablaðsins The Times, Harry Golombek, á því fastar en fótunum að maðkur sé í mysunni í Moskvu. Hann heldur því fram að Kasparov hafi verið þvingaður til að tapa einvíginu og sönnunin er sú, að hann sé gjör- samlega óþekkjanlegur frá síðustu einvígjum og mótum. Campoman- es, forseti FIDE, hefur borið báð- ar þessar sögur til baka, og hin síðarnefnda lætur ótrúlega í eyr- um fyrir Vesturlandabúa. Hins vegna er óneitanlega töluverður aðstöðumunur á milli keppenda hvað varðar aðstoðarmenn. Karp- ov hefur nánast allt sovézka landsliðið sér innan handar, t.d. þá Polugajevsky, Tal og Balashov, en Kasparov verður að láta sér nægja liðsinni lítt þekktra meist- ara. Er öll von úti fyrir áskorandann? Þegar þetta er ritað hafa verið tefldar átta skákir í röð án þess að Karpov hafi tekist að auka forskot sitt, þrátt fyrir ítrekaðar tilraun- ir. í þeirri sextándu fékk Kasp- arov síðan langþráð tækifæri, en sást þá yfir vinningsleiðina. Upp á síðkastið hefur áskorandinn einn- ig varist vel og virðist ekki hafa misst móðinn. Það verður þó auð- vitað erfiður róður að vinna upp fjögurra vinninga forskot heims- meistarans, en sextánda skákin sýndi Kasparov að Karpov getur líka gert mistök, þótt hann slyppi með skrekkinn. Líkurnar á að áskorandanum takist að snúa einvíginu sér í vil verða að teljast innan við 1%, en ekki má gleyma því að Kasparov hefur áður sýnt að í honum býr einstök snilligáfa og þótt Karpov hafi hingað til teflt af nákvæmni vélarinnar, hefur hann yfirleitt orðið gloppóttari þegar líða hefur tekið á löng einvígi, væntanlega vegna skorts á úthaldi. Það verður því ómaksins vert að fylgjast með næstu skákum, en látum nú þær sem komnar eru tala sínu máli: 1. skákin: Hvítt: Anatoly Karpov Svart; Gary Kasparov Síkileyjarvörn 1. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — d6, 6. g4!? Keres-árásin, hvassasta svarið við Scheveningen-afbrigði svarts. Skákin verður líka óvenjufjörug af upphafsskák að vera. 6. - h6, 7. h4 - Rc6, 8. Hgl — H5I, 9. gxh5 — Rxh5, 10. Bg5 — Rf6, 11. Dd2 — Db6, 12. Rb3 — Bd7, 13. (HÞO - a6, 14. Hg3 — Dc7, 15. Bg2 — Be7. Endurbót Kasparovs á skákinni Glek-Sokolov, Sovétr. 1983, sem tefldist: 15. - Rh7?!, 16. Be3 (16. Rd5!?) - Re5, 17. Bd4 - Rc4, 18. De2 - Rf6, 19. f4 - Hxh4, 20. Rd5! og hvítur hefur frumkvæðið. 16. f4 - (MH), 17. Df2 - Kb8,18. Í5 — Re5, 19. Bh.'l — Rc4, 20. Rd2 — Rxd2, 21. Hxd2 — Hc8, 22. fxe6 — Bxe6, 23. Bxe6 — fxe6, 24. Dgl — Da5, 25. Dd4 — Dc5, 26. Dd3 — Dc4, 27. De3 — Ka8, 28. a3 — Dc6, 29. e5 — dxe5, 30. Dxe5 — Hhd8, 31. Hgd3 — Hxd3, 32. Hxd3 — Dhl+,33. Rdl Eftir langa umhugsun. 33. — Dg2, 34. Hd2 — Dc6, 35. He2 — Bd6, 36. Dc3 Auðvitað ekki 36. Dxe6?? — He8. 36. — Dd7 og nú þáði Karpov jafn- teflisboð Kasparovs. 2. skákin: Hvítt: Gary Kasparov Svart: Anatoly Karpov Drottningarindversk vörn 1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 — b6, 4. g3 — Bb7, 5. Bg2 — Be7, 6. 0-0 — 0-0, 7. d5!? — exd5, 8. Rh4 Polugajevsky beitti þessari hvössu peðsfórn gegn Korchnoi 1980 með góðum árangri, en hún hefur ekki fyllilega staðist tímans tönn. 8. — c6, 9. cxd5 — Rxd5, 10. Rf5 — Rc7,11. Rc3 — d5,12. e4 — Bf6,13. Bf4 — Bc8! Nýr og öflugur leikur sem Kasp- arov finnur ekki sannfærandi svar gegn. 14. g4?! — Rba6,15. Hcl — Bd7,16. Dd2 — Rc5,17. e5? í stað þess að taka peðið til baka leggur Kasparov of mikið á stöð- una og heimsmeistarinn nær sterkri gagnsókn. 17. — Be7, 18. Rxe7 — Dxe7, 19. Bg5 — De6, 20. h3 — Dg6, 21. f4 — f6!, 22. exf6 — gxf6, 23. Bh4 — f5, 24. b4 — fxg4!, 25. hxg4 — Rd3, 26. Hf3 Ef 26. Hcdl, þá Dxg4!, 27. Be7 - Hf7, 28. Bd6 — Bf5. Kasparov reynir því að grugga vatnið með skiptamunarfórn. 26. — Rxcl, 27. f5 — Dg7, 28. Dxcl — Hac8, 29. Dd2 — d4!?, 30. Re2 — Rd5?! Það var óþarfi að gefa peðið til baka. 30. — c5 eða 30. — He4 kom til greina. 31. Rxd4 — Kh8, 32. g5 — He4, 33. Bf2 — De5, 34. Hg3 — Hf4, 35. f6 — Be8, 36. b5 — c5, 37. Rc6 — Dal+,38. Bfl — Hf5. Nú var tímahrakið í algleymingi og það bjargar Kasparov: 39. g6!? — Bxg6. 40. Hxg6 - H5xf6? Karpov hefði haft vinningsstöðu eftir 40. — Rxf6, því hann hótar bæði 41. — hxg6 og 41. — Re4. 41. Hxf6 — Dxf6. Biðleikur svarts. 42. Del! — Hg8+, 43. Kh2 — Df4+, 44. Bg3 — Hxg3, 45. Dxg3 — Dxfl, 46. Db8+ — Kg7, 47. Dg3+ Jafn- tefli. Þarna slapp áskorandinn fyrir horn, en hann lét sér þetta þó ekki að kenningu verða. 3. skákin: Hvítt: Anatoly Karpov SvarL- Gary Kasparov Sikileyjarvörn 1. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 - Rc6, 5. Rb5 — d6, 6. c4 — Rf6, 7. Rlc3 - a6, 8. Ra3 — Be7, 9. Be2 — 0-0, 10. 04) — b6, 11. Be3 — Bb7, 12. Db3 12. — Ra5?!, 13. Dxb6 — Rxe4, 14. Rxe4 — Bxe4,15. Dxd8 — Bxd8, 16. Hadl! Nú hugsaði Kasparov sig um í 50 minútur og fórnaði síðan peði. Rannsóknir hans á þessu afbrigði hljóta að hafa verið meira en lítið gloppóttar. 16. — d5?l, 17. f3 — Bf5,18. cxd5 — exd5, 19. Hxd5 — Be6, 20. Hd6 — Bxa2, 21. Hxa6 — Hb8, 22. Bc5 — He8, 23. Bb5 — He6, 24. b4 — Rb7, 25. Bf2 — Be7, 26. Rc2 — Bd5, 27. Hdl! Vinningsleikurinn. 27. — Bb3, 28. Hd7! — Hd8, 29. Hxe6! — Hxd7, 30. Hel — Hc7, 31. Bb6! og svartur gafst upp. 4. skákin: Hvítt: Gary Kasparov Svart: Anatoly Karpov Ilrottningarindversk vörn I. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 — b6, 4. g3 — Ba6, 5. b3 — Bb4+, 6. Bd2 - Be7, 7. Bg2 — Bb7, 8. Rc3 — d5, 9. cxd5 — exd5, 10. 0-0 — 0-0, II. Bf4 — Ra6. 11. — Rbd7 er venjulegri leikur, en heimsmeistarinn hefur mikið dálæti á þessari riddarastaðsetn- ingu þegar hann teflir drottn- ingarindverska vörn. 12. Dc2 — c5, 13. Hfdl — Dc8, 14. Be5 — Hd8, 15. Hacl — Re4, 16. Db2 Kasparov ætlar að gera svörtum skráveifu á c-línunni, eða eftir skálínunni al-h8. En Karpov leiðir í ljós, að það er engin hætta á ferðum. 16. — De6, 17. Rb5 — Bf8, 18. Bf4 — De8, 19. a4 — Bc6, 20. dxc5 — bxc5, 21. Re5! — Bxb5, 22. axb5 — Rb4. Ekki 22. - Dxb5?, 23. Hxd5! - Hxd5, 24. Bxe4. 23. Dbl — Rf6, 24. Rc6 — Rxc6, 25. bxc6 — Dxc6, 26. Bg5 — a5, 27. Bxf6 — Dxf6, 28. Bxd5 — Ha7. Kasparov hefur teflt vel og náð betri stöðu, en yfirburðirnir reyn- ast ekki nægja til vinnings, þar sem Karpov lætur ekki snúa á sig í vörninni fremur en venjulega. 29. Hc4 — Db6, 30. Dc2 — Had7, 31. e4 - Kh8, 32. Kg2 — f5, 33. f3 — g6, 34. Hc3 — Dc7, 35. Hcd3 - fxe4, 36. fxe4 — Bg7, 37. Hcl — Hc8, 38. Hf3 — De5, 39. Hcfl — Dd6, 40. De2 — Ha7, 41. De3 Hér fór skákin í bið og Karpov lék biðleik. 41. — De5, 42. Hlf2 — a4, 43. bxa4 — Hxa4, 44. Hf7 — Hb4. Jafntefli. 5. skákin: Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Gary Kasparov Silikeyjarvörn 1. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3. d4 — cxd4,4. Rxd4 — Rf6,5. Rc3 — a6,6. Be2 — e6, 7. 0-0 — Be7, 8. f4 — 0-0, 9. Khl — Dc7, 10. Bf3 — Rc6, 11. a4 — He8, 12. Be3 Nú er komin upp vel þekkt staða úr Scheveningen-afbrigðinu í Sik- ileyjarvörn. 12. — Hb8, 13. Hel Hér hefur áður verið leikið 13. Del sem leiddi til yfirburðastöðu fyrir hvít í skákinni Marjanovic- Tringov, Bar 1980: 13. — Rxd4,14. Bxd4 - e5,15. Ba7 - Ha8,16. Be3 - exf4,17. Bxf4 - Be6,18. e5! 13. — Bd7, 14. Dd3 - Rxd4, 15. Bxd4 — e5, 16. Ba7 — Hbc8, 17. Be3 — Dc4, 18. a5 — h6, 19. h3 — Bf8, 20. Bd2 — Dd4, 21. Be3 — Db4. Jafntefli. 6. skákin: Hvítt Gary Kasparov SvarL Anatoly Karpov Drottningarindversk vörn 1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, Rf3 — b6, 4. g3 — Ba6, 5. b3 — Bb4+, 6. Bd2 — Be7, 7. Bg2 — 0-0, 8. 0-0 — d5, 9. Re5 — c6,10. Bc3 — Rfd7,11. Rxd7 — Rxd7, 12. Rd2 — Hc8, 13. e4 — b5, 14. Hel — dxc4, 15. bxc4 — Rb6!? Mjög athyglisverð hugmynd. Karpov leyfir andstæðingnum að fá öflugt miðborð en hyggur sjálf- ur á stórsókn á drottningarvæng. Framhaldið teflir heimsmeistar- inn hins vegar ekki nægilega nákvæmt og með hárfínni tafl- mennsku nær Kasparov frum- kvæðinu. 16. cxb5 — cxb5, 17. Hcl — Ba3,18. Hc2 — Ra4, 19. Bal — Hxc2, 20. Dxc2 — Da5, 21. Ddl! — Hc8, 22. Rb3 — Db4, 23. d5! — exd5, 24. exd5 — Rc3, 25. Dd4 — Dxd4, 26. Rxd4 — Rxa2, 27. Rc6 — Bc5, 28. Bh3 Hér kom 28. Be5!? einnig sterk- lega til greina. Karpov var nú orð- inn mjög naumur á tíma, en varð- ist samt vel í mjög erfiðri stöðu. 28. - Ha8, 29. Bd4 — Bxd4, 30. Rxd4 — Kf8, 31. d6? Hér var 31. Hal — Rb4, 32. d6! mun öflugra. Kasparov er að missa tökin á stöðunni. 31. — Rc3, 32. Rc6 — Bb7, 33. Bg2 — He8, 34. Re5? 34. — f6! Eini leikurinn í stöðunni, en samt gríðarlega sterkur. 35. d7 — Hd8, 36. Bxb7 — fxe5, 37. Bc6 — Ke7? Miklu sterkara var 37. — e4! og hvíta staðan er vonlaus. Nú kemst hvítur út í hróksendatafl þar sem hann á jafnteflismöguleika, en heimsmeistarinn teflir lokin af ómannlegri nákvæmni. 38. Bxb5! — Rxb5, 39. Hxe5+ — Kxd7, 40. Hxb5 — Kc6, 41. Hh5 — h6, 42. He5 Hér fór skákin í bið og Karpov lék biðleik. 42. — Ha8!, 43. Ha5 — Kb6, 44. Ha2 — «5, 45. Kfl — a4, 46. Ke2 — Kc5, 47. Kd2 - «3, 48. Kcl — Kd4,49. f4 — Ke4, 50. Kbl — Hb8+, 51. Kal — Hb2!, 52. Hxa3 — Hxh2, 53. Kbl — Hd2!, 54. Ha6 - Kf5, 55. Ha7 - g5, 56. Ha6 56. - g4!I, 57. Hxh6 - Hg2, 58. Hh5+ — Ke4, 59. f5 — Hf2, 60. Kcl — Kf3, 61. Kdl — Kxg3, 62. Kel — Kg2, 63. Hg5 - g3, 64. Hh5 - Hf4!, 65. Ke2 — He4+, 66. Kd3 — Kf3, 67. Hhl — g2, 68. Hh3+ — Kg4, 69. Hh8 — Hf4, 70. Ke2 — Hxf5 og hvítur gafst upp. Hrikalega erfið skák sem hægt væri að skrifa heilu doðrantana um.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.