Morgunblaðið - 28.10.1984, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÖBER 1984
37
Grafnir skuröir til að veita vatninu um. Má sjá lengst til vinstri i myndinni hvar skurðurinn dýpkar. Dýpstu
skurðirnir verða á við 8 haeða hús.
1986. Jafnframt er verið að vinna
við undirbúning að hækkun Þór-
isvatnsstíflu, en áformað er að
hækkun hennar verið lokið um
leið og kvislaveitur eru allar
komnar í gagnið haustið 1986. En
eftir þessi tvö ár mun yfirborð
Þórisvatns hafa hækkað við þess-
ar aðgerðir upp í 581 metra hæð
yfir sjó. Var upphaflega í 570
metra hæð og nú fór það í sumar i
577 m hæð. Þá verður komin 300-
400 Gigalitra vatnsforði til viðbót-
ar í þessa geymslu. En í henni
verður um 1730 G1 forði eftir
hækkunina og að auki drjúgur
forði i hrauninu i kring. Skapar
það ekki svo litið öryggi fyrir
virkjanirnar.
Jafnframt er nú kominn 80 G1
vatnsforðabúr ofan við Sultar-
tangastífluna á ármótum Þjórsár
og Tungnaár, eftir mikla stíflu-
gerð í sumar og fyrrasumar, svo
sem kunnugt er. Og var ekki síður
fróðlegt að skoða þær miklu fram-
kvæmdir norðan við Búrfellsvirkj-
un á leiðinni innúr. En lónið þar á
eftir að hækka um tvo metra og
geyma að jafnaði 120 G1 vatns.
Þar er enn einn öryggisþátturinn
fyrir virkjanirnar, því Sultar-
tangastífla mun halda eftir ísnum
í ánni og forða því að hann berist í
Búrfellsvirkjun. Jafnframt mun
þetta gríðarmikla lón taka við
sandrokinu sem jafnan stendur
þar niður yfir og hlífa láglendingu
við því. Það verður á við bestu
ryksugu. Með þessari stiflugerð er
rekstur Búrfellsvirkjunar tryggð-
ur bæði hvað snertir ís og aur-
burðarvandann auk þess sem stífl-
an ein sér eykur orkuvinnslugetu
núverandi kerfis um allt að 150
Gígavattstundir vegna minnkaðs
vatnstaps til ísskolunar við Búr-
fell.
Víkjum aftur upp í Þórisvatn,
sem er að fá mikla búbót úr
Kvíslaveitu. Útrennslið úr vatninu
er við Vatnsfell, en þar var upp-
haflega steypt lokuvirki í skurðin-
um úr vatninu og er miðlað
rennsli um hann í Krókslón ofan
Sigölduvirkjunar. Á þessari
tveggja km leið má enn nýta vatn-
ið í fallinu og er gert ráð fyrir 100
Mw virkjun á þessu sama vatni
áður en það kemur í Sigöldu. Tal-
að um að sú virkjun og stækkun
Búrfells sé mjög hagkvæm og gæti
komið fljótlega í kjölfar Blöndu-
virkjunar. Þess má geta i leiðinni
að virkjunarmenn hafa þá for-
sjálni þótt ekki sé komið að
stækkun gömlu stöðvarinnar við
Búrfell að þeir eru þegar farnir að
láta aukavatn sem þeir hafa þar á
sumrin grafa frárennslisskurðinn
frá væntanlegu stöðvarhúsi, enda
ódýrara en að þurfa að gera það
með vinnuvélum síðar. Þykir þetta
hin merkasta framkvæmd, enda
kostar hún nær ekkert.
Sem fyrr er sagt verður vatns-
borð Þórisvatns í 581 m hæð yfir
sjávarmáli þegar allar kvislarveit-
ur eru í það komnar og verður
unnt að miðla úr þvi allt niður
undir 560 metra yfir sjávarmáli.
Þar sem vatnsborð Sigölduvirkj-
unar verður i um 496 m hæð verð-
ur hægt að nýta fallið til enn einn-
ar virkjunar á þessu sama vatni, í
svonefndri Vatnsfellsvirkjun.
Það er semsagt mikil búbót að
framkvæmdum þeim sem í gangi
eru þarna á Tungnaársvæðinu.
Myndir og texti E.Pá.
Virkjunarmenn og náttúruverndarfólk við efstu veiturnar. Glyttir í Arnarfell
í súldinni handan árinnar í baksýn. En jöklakulið frá Hofsjökli stendur með
strekkingi í bakið í mannskapnum, eins og sjá má.
Þúfuversbúðir í marsmánuði. En á hálendinu hafa veríð um 300 manns við vinnu við kvfslaveitur og búið um sig í
nokkrum vinnubúðum.
F0RUMIFRI
FEWUMSTMEÐ
FEWAMIÐSfÖÐINNI
FARSEÐLAR UM ALLAN HEIM!
0SL0
Helgar- og vikuferðir. Brottför alla fimmtudaga
ST0KKHÓLMUR
Helgar- og vikuferðir. Brottför alla fimmtudaga
III
L
9.835.
Helgar- og vikuferðir.
Brottför alla föstudaga.
HELGARFERÐ: Flug og gisting
m/morgunverði, akstur frá flugvelli og
fararstjóri.
Verð í tvíbýli frá kr.
GLASG0W
8.935.
HELGARFERÐIR: brottför fimmtudaga í tvíbýli frá kr.
og laugardaga. Flug og gisting
m/morgunverði á fyrsta flokks hóteli. Verð
H'll.'hl'U'
9.370.
HELGARFERÐIR: Brottför fimmtudaga
og laugardaga. Flug og gisting
m/morgunverði. Verð í tvíbýli frá kr. 9.370.00
LUXIMB0URG 10.765.
Helgar- og vikuferðir.
HELGARFERÐ: Flugog gisting
m/morgunverði. Verð í tvíbýli frá kr. 10.765.00.
PARIS
14.241.
HELGAR- OG VIKUFERÐIR
Flogið um Luxembourg til Parísar.
HELGARFERÐ: Flu gog gisting
m/morgunv. Verð í tvíbýli frá kr. 14.241.00.
KAUPM.H0FN 10.334
Helgar- og vikuferðir.
Brottför alla föstudaga.
HELGARFERÐ: Flug og gisting
m/morgunverði. Verð í tvíbýli frá kr. 10.334.00.
i l
15.568.
Helgar- og vikuferðir.
Brottför alla föstudaga. Flogið um
Luxembourg.
HELGARFERÐ: Flug og gisting
m/morgunverði. Verð í tvíbýli frá kr. 15.568.00.
23.909.
Flogið um Luxembourg. Flug og gisting í
Agadir í tvær vikur auk 3ja nátta gistingar
í Luxembourg — 17 daga ferð.
Verð í tvíbýli frá kr. 23.909.00.
Alltaf er nú notalegt að skreppa til
Kanaríeyja úr skammdeginu á Islandi. -
Fjölbreytt úrval gististaða, margskonar
ferðamöguleikar. Fáðu upplýsingar hjá
okkur um ferðamátann, sem hentar þér.
SKIÐAFERÐIR 22.098.
— Viku-, 2ja vikna og 3ja vikna ferðir.
Beina flugið til Austurríkis byrjar 22. des.
— Góðir gististaðir £ Mayrhofen.
VprA í fvíhvli m/hnlfn f»*íSi { & viknr frá kr. 22 OQfi OO
FERÐA
MIÐSTODIIM
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133
BJAfM OAGUR/AUGL TBKMSTOÍA