Morgunblaðið - 28.10.1984, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 28.10.1984, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1984 31 texti: Jóhanna Kristjónsdóttir Búdda í hvfldarstellingum f Sweda Gon. upp þjóðdansasýningu fyrir okkur, svo og brúðuleikhúsi. Það var gert allt af miklu listfengi. Á hinn bóg- inn vorum við öll orðin svo dösuð að ég hygg að við höfum verið feg- in að skríða í bólið um tíuleytið. Við vissum ekki þá að okkar biði átján tíma törn á sólarhring þá hina sjö næstu. Næsti dagur var þó einkar rólegur. Kalevala fór með okkur um helztu staði í Rangoon. Sweda- Gonhofið er þar sýnu tilkomu- mest. Það virðist blasa við eigin- lega hvar sem maður er staddur i borgiini og ber vissulega nafnið Gullna hofið með rentu. Við skoð- uðum ótal Búdda — og þó aðeins forsmekkur þess sem koma skyldi. Mér þótt „Búdda hvílir sig“ lang- skemmtilegasti Búddann sem varð á vegi okkar í þessari ferð. Kalevala vakti athygli okkar á að Búddann í Burma er ekki eins og Búddarnir sem eru gerðir af „trúleysingjunum" þar sem Búdda er feitur, sköllóttur og skellihlæj- andi. Burma-Búdda er alvöru Bú- dda, grannur, beinn í baki, greind- arlegur og ábyrgur og vís. „Hinir Búddarnir eru gerðir af þeim sem vilja afskræma kenningar Búdda og draga úr trúarsannfæringu manna,“ sagði Kalevala kurteis- lega. Ég veitti því athygli að víða í Rangoon var mikill mannsöfnuður saman kominn. Ég hugsaði með mér hvort gæti verið að hér væri leyft að halda útifundi. Hvort hinn elskaði foringi Ne Win, en að stjórn hans verður nánar vikið í seinni Burmagreinum, hefði ákveðið að lina tökin og leyfa fundi. Kalevala sagði okkur, að þetta fólk væri að bíða eftir að komast í bíó! Hún sagði að Burm- ar væru miklir áhugamenn um kvikmyndir, einkum og sér í lagi bandarískar og helzt spennu- og hasarmyndir. Oft og einatt birgja þeir sig upp með nesti og nýja skó og hreiðra um sig við bíóið og þurfa stundum að bíða í nokkra daga áður en þeir komast að. Hún sagði að Roger Moore-myndir væru alveg sérstaklega vinsælar. Við fórum víða um Rangoon þennan dag, skoðuðum hof og musteri og söfn, þar sem mér fannst einna skemmtilegast að skoða hina ýmsu búninga úr hin- um sjö fylkjum Burma, svo og auðvitað gull og gimsteina frá gamalli tíð. En það var líka af- skaplega skemmtilegt að reika um Bohyokemarkaðinn eða bara labba um göturnar og horfa á fólksmergðina. Allir eru klæddir samkvæmt þjóðlegum sið. Þessi búningur er kallaður longyi og er skósitt pils, bundið saman til hliðar á konum en að framan á körlum. Konur eru klæddar í longyi í öllum litum og af öllum gerðum. Karlapilsin eru yfirleitt í hlutlausari litum. Við er létt blússa enda þarf ekki að kappklæða sig í þessu landi. Þarna fyrsta daginn okkar fengum við smjörþefinn af því hvernig við- skipti i Burma geta gengið fyrir sig. Við gátum varla þverfótað á markaðnum og úti á götunum og jafnvel í helgistöðunum fyrir fólki á öllum aldri, sem lötraði á eftir hópnum, valdi sér siðan þá aðila sem liklegastir voru til að luma á hinum eftirsótta varningi — naglalakki, varalit — mátti vera notaður — viskíi, amrískum sígar- ettum og kúlupennum, svo að eitthvað sé nefnt. Gjaldmiðill Burma, kyiat, er skráður á 8 gagnvart Bandaríkja- dollar. Hann fer í 20 á svarta markaðnum. Þessi verzlunarmáti er auðvitað stranglega bannaður og eru hörð viðurlög við laga- brotum. Hins vegar er þessi verzl- unarmáti óopinberlega viður- kenndur, eins og sést á snautleg- um börum á hótelum ríkisferða- .skrifstofunnar. Sumir félaga minna náðu mik- illi leikni í þessum viðskiptum en ég held að Evelyn á áttræðisaldr- inum, bandariska frúin frá Chic- ago, hafi slegið öll met. Síðasta morguninn okkar festi hún kaup á dýrindis teppi, skreytt, eðalstein- um, sem við skoðun reyndust ekta. Fyrir teppið greiddi hún með 5 dollaraseðli, hálfum varalit og því sem hún átti eftir af amríska sjampóinu sínu. Útsýnið frá Mandalay-fjalli. ið að fá Nelson leiðsögumann þann daginn til að deila við sig um trúmál, spánskur maður, búsettur í Tókýó og reyndist líka vera fréttamaður, tvær enskar pipar- dömur, sem voru sýknt og heilagt að láta spá fyrir sér, Heidi svissn- eska sem vinnur á ferðaskrifstofu í Bangkok og svo ég. Þetta var sundurleitur hópur, en féll ljóm- andi vel saman. Þegar við lögðum loksins af stað inn í Rangoon var farið að skyggja og dimmdi snögglega eins og ger- ist annars staðar en á íslandi. Rútan var kyrfilega merkt Tourist Burma. Hvort tveggja var að bíll- inn var lúinn og vegurinn inn í borgina vondur. Sá vegarkafli reyndist þó hátíð hjá þeim vegum úti á landsbyggðinni, sem við átt- um eftir að kynnast næstu daga. Þá datt mér stundum í hug, að það væri eins gott að lifur og lungu og önnur líffæri væru tryggilega föst, ella hefðu þau örugglega hristst upp úr okkur. Maður kvartar ekki undan íslenzkum malarvegum eft- ir þessa reynslu. Rangoon er einkennileg borg að kvöldlagi. Þar er slökkt á flestum ljósastaurum þegar fer að dimma. Það liggur við að manni finnist hún eins og myrkvuð borg. I Rang- oon eru ekki næturklúbbar eða dansstaðir, bíósýningar eru ekki á kvöldin. Fólk var að tínast heim úr vinnu þegar við vorum að keyra áleiðis á hótelið og veifaði okkur óspart kátt og hlæjandi. Kalevala fór rakleitt með okkur á Hótel Inya Lake. Það er glæsi- legasta hótelið í höfuðborginni og við það er meira að segja sund- laug. Vatnið í lauginni er að vísu þannig á litinn að ekki er vitað til að neinn hafi baðað sig i henni. Hótelið var í fallegu og snyrtilegu umhverfi, hátt til lofts og vítt til veggja. Og hótelið var uppfullt af elskulegu og mjög svifaseinu starfsliði. Herbergin voru ágæt, húsbúnaður minnti á traustan heimavistarskóla, svo hafði gleymzt að þvo baðið og sturtan var biluð. Að öðru leyti var allt í lagi. Og maður var að minnsta kosti kominn til Burma. Eftir að hafa skolað af mér mesta rykið og svitann fór ég i rannsóknarleiðangur um hótelið. Þar var verzlun sem seldi ýmsa minjagripi, ljómandi fallega. Gegn greiðslu í dollurum og dýrari en annars staðar. Þar var kaffi- tería, þar sem kaffi var að vísu ekki til í bili. Og þar var líka bar. Það kom mér spánskt fyrir sjónir, þar sem erlent áfengi er ekki flutt inn i landið — á löglegan hátt að minnsta kosti. Ég rölti þangað inn fyrir forvitnis sakir. Og þarna á bar glæsihótels ríkisferðaskrif- stofunnar gaf á að lita sannfær- andi hillusamstæðu. En þar voru ekki mjög margar flöskur. Nákvæmlega fjórar. Og útlent áf- engi er fokdýrt. En þarna var hægt að fá sér Mandalaybjór i stórum flöskum. Og kostaði litið. Mandalaybjórinn er ágætur á bragðið, hann er mjög léttur, ivið sterkari en íslenzkur pilsner. Á barnum voru ekki aðrir gestir en ég og Kanadamaöur nokkur sem var i tíundu ferðinni sinni til Burma á örskömmum tima. Hann fær ekki vegabréfsáritun nema til átta daga f senn og þarf þvi sýknt og heilagt að vera að taka sér ferð á hendur til Bangkok að sækja um nýja. Hann vinnur i olfubransan- um og hann sagði að það væri ákaflega erfitt og seinlegt að eiga viðskipti við Burma. Olía er f land- inu en Burma skortir tækniþekk- ingu til að nýta hana eins og vert væri. Ýmis erlend stórfyrirtæki sækja í aö senda sérfræðinga til Burma meðal annars i sambandi við oliuna. Burmar eru hinir ánægðustu með það. En breyta engum vegabréfsáritunarreglum þess vegna. Eftir málsverðinn var slegið Við opíumvigtina á markaðnum i Mandalay. Hópurinn að snæðingi í Thiripyitsaya-hóteli f Pagan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.