Morgunblaðið - 28.10.1984, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1984
Bretar komast í kynni
við kokkteila
Það var á þriðja áratugnum
sem kokkteilar bárust yfir hafið
til Breta á sama tíma og jassinn
hélt innreið sína í Evrópu. Fyrir
fyrri heimsstyrjöld tíðkaðist það
ekki að boðið væri upp á áfenga
drykki fyrir mat i Bretlandi, ef
undanskilið er eitt og eitt
sherryglas. Víns var ekki neytt
fyrr en menn höfðu sest niður
við matarborðið og óhugsandi
var að menn stæðu upp á endann
með vínglas.
En eftir matinn tíðkaðist það
að karlmennirnir færu afsíðis til
að reykja og fá sér púrtvínsglas,
eins og þekkt er úr bókum og
sjónvarpsþáttum sem endur-
spegla eiga fyrri tið.
Kokkteilar urðu afskaplega
vinsælir meðal Breta á þriðja
Auglýsingamynd frá árinu 1923, auglýst er Canadian Club whisky. Fólkið stendur upp á endann
með kokkteilglas í hendi.
Mynd af þekktum bar, sem þótti mjög nýtískulega hannaður 1928.
Myndin „Flapper Love“
eftir Miguel Covarrubias
frá árinu 1925. Stúlkan
hristir kokkteil með tilþrif-
um. „Flapper" voru þær
stúlkur nefndar á árunum
1910—1930 sem voru ný-
tískulegar og djarfar í
klæðaburði, tali og fram-
komu.
Á þessum tíma voru að sjálf-
sögðu ekki kæliskápar með
frystihólfum á heimilum, jafnvel
þó hjá fyrirfólki væri, menn
keyptu þvi ísklump hjá fisksal-
anum fyrir einn shilling, vöfðu
hann innan í grisju eða diska-
þurrku, og slógu siðan í gólfið til
að mylja ísinn. Þar með voru
komnir ísmolar til að setja í
glösin og kæla drykkinn.
Kokkteil-hristarar urðu nauð-
synlegir til heimilisnota, jafnvel
á heimilum millistéttarfólks, og
i Kokkteilbókina skrifaði Henry
nokkur Craddock að leiðin til að
njóta kokkteils væri: Að drekka
hann fljótt á meðan hann væri
ferskur.
í blöðum og timaritum voru
birtar myndir af barborðum og
hillum til að útbúa heima fyrir,
um leið og bent var á þægindin
við að geta blandað drykkina þar
sem gestirnir væru, grammó-
fónninn og útvarpið.
Barþjónar beggja vegna Erm-
arsunds urðu þekktir meðal
selskapsfólksins, sumir héldu
innihaldi vinblöndu sinnar
leyndu, rétt eins og einstaka
húsmóðir gerir með uppáhalds
mataruppskrift sína. Vouge-
tímaritið birti kokkteil-
uppskriftir á siðum sinum á
þriðja áratugnum og á sama
tima skrifaði Marcel Boulestin,
þekktur maður í hótelrekstri:
„Kokkteilar eru það róman-
tiskasta, sem nútíma lif býður
upp á, en þeir kokkteil-siðir sem
hú tíðkast í Bretlandi eru ekkert
annað en slæmur löstur."
Það er eitt og annað að finna i
bókum og timaritum, skrifað um
kokkteila á þriðja og fjórða ára-
tugnum i Bretlandi. Meðal ann-
ars má nefna þá tilgátu að
kokkteilar hafi upprunalega ver-
ið blandaðir i Bandarikjunum á
dögum vinbannsins og gert til að
dylja bragðið af brugginu. Sú til-
gáta er ekki rétt, því eins og áður
segir hefur kokkteil-drykkja ver-
ið lengur viðloðandi, eða allar
götur siðan i lok Frelsisstriðsins
árið 1865, ef ekki lengur.
B.f. tók saman.
Eftir því sem fróðir menn segja
munu íslendingar hafa komist í
kynni við kokkteil-drykkju á
stríösárunum. Sá siður að drekka
áfengan, blandaðan drykk fyrir
máltíð befur verið hér landfastur
siðan.
KokkteiÞdrykkja þótti strai fin
eftir þvi sem sögur herma, en
mörgum manninum hefur orðið
hált á neyshi drykkja, sem sam-
ansettir eru úr fleiri en einni teg-
und áfengis og styrkleiki því oft á
huldu. Kokkteil-boð urðu vinsæl
og geta verið enn. Það er óneitan-
lega þægilegur máti til að bjóða
mörgu fólki saman án þess að
þurfa að hafa mikið fyrir veiting-
um.
f kokkteil-boðum standa menn
upp á endann með glasið ( annarri
hendi og konurnar halda á tösk-
unni sinni i hinni hendinni. Kon-
um er því jafnan vandi á höndum
við slfk tækifæri ef kunnugt andlit
birtist og löngun er til að heilsa
með handabandi.
Það eru að sjálfsögðu ekki til
neinar haldbærar upplýsingar um
hvort kokkteilar hafa haldið vin-
sældum sinum, svona eftir að
mesta nýjabrumið fór af, en undir-
rituð befúr óljósan grun um að
fólk hafi heldur hallað sér að
óblönduðum drykkjum hin síðari
ár, þó islenskir barþjónar séu vel
gjaldgengir f vínblöndun og taki
þátt f keppni f kokkteil-hristingi
við starfsbræður sína erlendis.
Kokkteilar eru upprunnir í
Bandaríkjunum þar sem þeir
hafa þekkst allt síðan á dögum
frelsisstriðsins. Þvf miður eru
ekki finnanlegar heimildir um
hvernig þessi siður komst á,
hvar f Bandaríkjunum það var,
né hvernig nafnið er tilkomið.
Kokkteilar voru upphaflega bún-
ir til úr whisky, rommi og gini.
Enska nafnið „cocktail", sem
hugsanlega er talið koma úr
frönsku, er í orðabókum talið
þekkt frá árinu 1806. í orðabók
Menningarsjóðs, útg. 1963, er að
finna orðið kokkteill og þýðing
gefin: vínblanda.
áratugnum. Það var nær sama
hvað selskapsfólkið ætlaði sér,
það var flest allt framkvæmt
eftir kokkteil-drykkju. Drykk-
irnir hlutu hin frumlegustu
nöfn. Má þar nefna Milli rekkju-
voðanna (Between the Sheets),
Lífgjafi (Corpse Reviver), Hlið-
arvagn (Side-car), Brjósta-gælir
(Bosom-Caresser). og fleira i
þeim dúr.
Þegar kokkteilar
komust yfir hafið
jr
Islenzka
óperan
frumsýnir
Carmen
CARMEN, ein vinsælasta ópera
allra tíma, verður frumsýnd f fs-
len.sk u óperunni á Tóstudaginn kem-
ur, þ. 2. nóvember.
Með því að taka þessa óperu til
sýningar nú, fer íslenska óperan
að vilja mi'cils meirihluta gesta
sinna i síðasta ári, því í skoðana-
könnun, sem gerð var þá, var
Carmen efst á blaði óskalistanna.
íslensku óperunni þykii það mik-
ils vert að geta þannig komið á
móts við óskir þeirra þúsunda
tónlistarunnenda, sem sækja sýn-
ingar hennar að jafnaði.
Yfir 100 manns taka þátt í sýn-
ingunni og lúta þeir hljómsveitar-
stjórn Marc Tardue og leikstjórn
Þórhildar Þorleifsdóttur. Leik-
myndin er eftir Jón Þórisson og
búninga hannaði Una Collins með
aðstoð Huldu Kristínar Magnús-
dóttur. Lýsingu annast David
Walters.
Tólf einsöngvarar koma fram.
Sigríður Ella Magnúsdóttir syng-
ur hlutverk Carmen og Garðar
Cortez Don José. Hlutverk Mika-
elu syngur ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir og Simon Vaughan Escam-
illo. Aðrir einsöngvarar eru Sieg-
linde Kahmann, Katrín Sigurðar-
dóttir, Kristinn hallsson, Sigurður
Björnsson, Halldór Vilhelmsson,
Ólafur ólafsson, ólafur Frede-
riksen og Svavar Berg Pálsson.
Síðast en ekki síst skal getið kórs-
ins, sem að þessu sinni telur 37
manns.
Breytingar verða á hlutverkask-
ipaninni síðar á starfsárinu og
mun íslenska óperan kynna þær
þegar þar að kemur en þó má geta
þess nú að Anna Júlíana Sveins-
dóttir mun syngja hlutverk Carm-
en seinna i vetur.
Eins og fyrr sagði verður frum-
sýning Carmen á föstudaginn,
önnur sýning verður á sunnudag,
4. nóvember og þriðja sýning verð-
ur þ. 9. nóvember, sem er föstu-
<*agUr' (Fréttatilkynning)
íranir skutu
stríðsfanga
Genf, 26. október. AP.
JAQUES Kurz, talsmaður Alþjóða
Rauða krossins, sagði í dag, að vitni
hefðu orðið að því er íranskir bylt-
ingarveröir skutu 6 íraska stríðs-
fanga til bana og særðu 35 til viðbót-
ar í uppþoti sem hundruð fanga
stóðu fyrir í fangabúðum í íran.
Þrír fulltrúar Rauða krossins
voru þarna á ferð er írakarnir
hófu uppþotið. Fulltrúarnir sögðu
fanganna hafa verið óvopnaða, en
eigi að síður hafi íranirnir þegar í
stað hafið skothríð með fyrr-
greindum afleiðingum. Talið er að
þetta sé í fyrsta skipti sem svona
lagað kemur fyrir í 4 ára styrjöld
íran og írak.
Stykkishólmur:
Sauðfjárheimt-
ur voru góðar
Stykkiflbólmi í spetember.
Sauðfjárslátrun hófst hér í
Stykkishólmi 19. þessa mánaðar.
Hér er eina sláturhúsið á Snæ-
fellsnesi og eru fjórir aðilar sem
að því standa. Heimtur hafa verið
góðar og féð í rúmu meðallagi.
Eftir því sem horfur eru á núna,
mun verða slátrað hér um 13.000
fjár eða um 1.000 færra en i fyrra
háust.
Fréttaritari