Morgunblaðið - 28.10.1984, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1984
Um veikasta hlekkinn
þankafar um hljómtæki á líðandi stund
Sígíldar
skífur
Konráð S. Konráösson
Það má með sanni segja að
framfarir og umbætur á hljóm-
tækjum til heimilisnota hafi
verið byltingarkenndar á síðustu
árum. Má sem dæmi nefna fram-
þróun í hönnun og smíð sifellt
hljómbetri magnara, sem og
annarra eininga í hljómtækja-
keðjunni og þá ekki síst kynn-
ingu CD-skifunnar eða LASER-
disksins þar sem við aflestur af
skifunni er notast við LASER-
ljós í stað nálar og hljóðdósar,
sem annars er að venjast, en
meir um slíkt síðar.
Hollt er að hafa i huga þegar
hlýtt er á, og ekki sfður horft á,
glitrandi og ljósum prýdd
hljómtæki dagsins, skrýdd að
því er virðist óhjákvæmilegri
rofafjöld, að engin keðja er
sterkari en veikasti hlekkurinn.
Á það jafnt við um tækin sjálf
og gæði þeirra, ekki síður en
hvar hátölurum er fyrir komið
m.t.t. hljómburðar og siðast en
ekki sist raftaugar þær eða
kapla sem tengja tækin innbyrð-
is og hátalara við magnara.
Það er einmitt hið síðast-
nefnda, sem í auknum mæli hef-
ir verið til umfjöllunar i blöðum
og timaritum þeim, er fjalla um
tóniist á skifum og tónböndum
og endurflutning slíkrar i
heimahúsum. Með sívaxandi
gæðum hljómtækjanna hefir at-
hyglin þannig beinst að tenging-
um tækjanna innbyrðis, þvi
aumt er að eiga góðan plötuspil-
ara og það sem honum tilheyrir
ef rafboðin bjagast á leiðinni i
formagnarann og gildir hið
sama um þann sem á aflmikinn
magnara, en eyðir verulegu af
afli hans í að yfirvinna viðnámið
í lélegum og e.t.v. óhóflega löng-
um hátalaraköplum.
Allt á sér þó sín takmörk og
má ekki skilja skrif mín svo að
allir eigendur hljómtækja skuli
bregðast hart við og afla sér með
ærnum tilkostnaði þverhandar-
þykkra og óhönduglegra kapla i
þeirri von að ná þannig snöggt-
um betri og fegurri hljóm úr
tækjum sínum.
Enda þótt ágreiningsefnin séu
ætið til staðar þá eru ritfinnar
þeir, sem um slíkt hafa skrifað
sammála um að gæði og verð
tenginga og kapla beri að vera í
réttu hlutfalli við verð og gæði
hljómtækjanna sjálfra, þannig
að við einfaldari og ódýrari tæki
má komast af með ódýrari teng-
ingar, en þvi dýrari og vandaðri
sem tækin eru, þeim mun betur
þarf að vanda val og frágang
allra tenginga og kapla.
Athyglisvert er þó að við þær
prófanir og athuganir, sem virt
tímarit hafa gert á mismunandi
köplum þá er síður en svo aug-
ljóst samband milli verðs og
gæða. Breska tímaritið HI-Fi
News & Record Review
(HFN&RR) birti nú snemmsum-
ars athugun og samanburð
tæknimanna þess á tuttugu mis-
munandi köplum til tenginga
ýmissa hljómtækja við magnara,
s.s. plötuspilara, útvarps- og
tónjafnara.
Vekur þar athygli að kaplar
þeir eða snúrur, sem oftast
fylgja japönskum hljómtækjum
fá hina verstu útreið. Við notkun
þeirra þykir sem „haldið sé aftur
af“ miðtónasviðinu, bassatón-
sviðið sé óskýrt og hljómmynd-
ina skorti djúp. Er því bætt við
að allt nema verstu skrapatól,
s.s. ódýr snældutæki og útvörp,
myndu njóta sín betur með notk-
un annarra kapla en slikra.
Þeir kaplar sem hins vegar
þóttu bera af fyrir kosta sakir
voru annars vegar kapaltegund
frá IBM, sem raunar er ætluð
fyrir boðflutning tölva í milli,
IBM 165 7265, og kostar á Bret-
landseyjum l,25£/m og hins
vegar kapall frá Bandaríkjunum:
Randall TX Twin axial, verð:
48£/m. Er þannig nokkuð auð-
sætt í hvorri raftauginni eru
betri kaup.
Um IBM-kapalinn segir að
jafnvel með ódýrum tengiklóm
hljómi tónlistin tært og skýrt og
hljómmyndin sé djúp og skörp.
Tímaritið HFN&RR ber einn-
ig í þessum greinaflokki sínum
saman sautján tegundir raf-
tauga til tenginga hátalara við
magnara. Er þar svipað uppi á
teningnum þegar athuguð eru
gæði „venjulegrar rafmagns-
snúru“, sem raunar er oftast
notuð í heimahúsum til slíkra
tenginga. Eru gæði hennar talin
slök hvort sem snúran er 2 eða
10 m á lengd. Hátónarnir
„snarka“ og bassatónarnir eru
„sljóir". Hljómmyndin truflast
bæði hvað snertir skerpu og
dýpt. Er niðurstaðan sú að með
notkun slíkra raftauga sé eyrir-
inn geymdur en krónunni kast-
að.
Tvær raftaugar bera nokkuð
af hinum: Annars vegar svissn-
esk framleiðsla — The Absolute
Wire (Force Four), sem kostar
3,25£/m og hins vegar sænsk
raftaug — Supra 4mm, verð:
l,50£/m. Segir um Supra 4
Omm-raftaugina að tónlistin
hljómi skýrt og áheyrandinn
skynji vel dýpt og rýmd í
hljómmyndinni. Er raunar einn-
ig til samanburðar ódýrari út-
gáfa af Supra-tauginni: Supra
2,5 mm, sem kostar á Bretlands-
eyjum 0,99$/m. Þykir gæðamun-
ur á þeim lítill ef lengdin er 2 m
og telur HFN&RR þar um að
ræða einna bestu kaupin í hátal-
araköplum.
Hér hefir verið vikið að niður-
stöðum prófunar HFN&RR sem
raunar er í ýmsu samhljóða
dómum ýmissa annarra tíma-
rita, s.s. danska blaðsins Popul-
ær Elektronik 12/83. Ekki er hér
rými eða ástæða til að fara nán-
ar út í fræðilega grunnþætti
slíkrar umræðu, s.s. spanstuðul,
rýmd og viðnám hinna ýmsu
raftauga. Hlýtur að vísa þeim
sem frekari fróðleiks óska í þau
tæknitímarit sem um slíkt
fjalla.
Er það þó von mín að lesand-
inn hafi við ádrepu þessa orðið
þess áskynja að ekki er sama
hvaða snúrur hann velur til þess
að skeyta saman hljómtæki sin.
Kirkjuþing hefst á þriðjudag
ÁRLEGT Kirkjuþing þjóðkirkj-
unnar verður sett á þriðjudag, 30.
október. Hefst það með guðsþjón-
ustu í Hallgrímskirkju kl. 14.00 og
mun einn þingfulltrúa, sr. Þor-
bergur Kristjánsson, predika.
Fundir þingsins verða haldnir
i Safnaðarsal Hallgrímskirkju
og mun þinghald standa í 10
daga. Þingfulltrúar eru kjörnir
úr kjördæmum landsins, og eru
jafnmargir leikmenn og prestar.
Auk þess eru fulltrúar frá Guð-
fræðideild Háskólans og prest-
um i sérþjónustu.
Vígslubiskupar og kirkju-
málaráðherra eiga sæti á
Kirkjuþingi auk biskups sem
stýrir þinginu. Alls eru kirkju-
þingmenn 23 í ár.
Helstu mál þingsins
Kirkjuráð mun leggja sex mál
fyrir Kirkjuþing til umfjöllunar.
Má þar nefna svonefnt starfs-
mannafrumvarp kirkjunnar,
sem kveður á um verksvið og
stöðu hinna ýmsu starfsmanna
kirkjunnar, þá verður fjallað um
innheimtulaun almennra
kirkjugjalda, undirbúning há-
tíðahalda árið 2000 vegna 1000
ára kristni á íslandi, um breyt-
ingu á skipan prestakalla og
eina feröina enn verður fjallað
um veitingu prestsembætta en
það frumvarp hefur dagað uppi
á Alþingi.
Þá leggur Kirkjuráð fram
þýðingu á einu mikilvægasta
plaggi í átt til einingar kirkj-
unnar, sem Alkirkjuráðið hefur
sent frá sér. Fjallar það um
sakramenti og þjónustu kirkj-
unnar, og hefur dr. Einar Sigur-
björnsson prófessor þýtt verkið
sem Kirkjuþing mun fjalla um
og ákveða um frekari kynningu
þess hérlendis.
Einstakir þingmenn munu að
■sjálfsögðu leggja fram mál fyrir
þingið og er frestur til að skrá
þau fram á þriðja dag þingsins.
Námskeið um tjáskipti
í ólíkum hópum
Kirkjufræðslunefnd efnir til
námskeiðs í tengslum við
Kirkjuþing. Meðal kennara eru
fjórir prestar sem eru nýkomnir
frá framhaldsnámi og munu
fjalla um tjáskipti við mismun-
andi aðstæður. Námskeiðið
verður þrjú kvöld, til húsa í
safnaöarheimili Langholts-
kirkju, og hefst öll kvöldin kl.
20.30. Það er öllum opið en sér-
staklega ætlað prestum og
starfsliði safnaða. Fyrirkomu-
Akureyri:
Akurejri, 25. október.
NÚ í sumar hafa staðið yfir fram-
kvæmdir við stækkun Hótels KEA á
Akureyri, jafnframt því sem miklar
breytingar er verið að gera á hús-
næði því sem bættist við þegar
Brauðgerð KEA flutti sig um set upp
í Kaupangsgilið. Allt eru þetta þarfar
og góðar breytingar, sem væntan-
lega skila sér í bættri aðstöðu fyrir
gesti hótelsins.
Á neðstu hæð hótelsins hefur
verið rekin um árabil vinsæl kaffi-
tería, sem afar mikið er sótt af
bæjarbúum og gestum. Hefur rask
það sem umræddar framkvæmdir
hafa haft í för með sér vissulega
valdið gestum óþægindum f
sumar, svo sem þegar höggborar
hafa verið í gangi við framkvæmd-
irnar, og desíbelamælar myndu
hafa sprungið ef þeir hefðu verið í
gangi, en allt um það, gestir hafa
látið sig hafa það og sótt „terfuna"
ekki minna en verið hefur.
En ölium framkvæmdum fylgja
lag verður sem hér segir:
Miðvikudagur 31. okt.:
„Hvernig boðin berast, skiljast og
misskiljast“, sr. Bernharður
Guömundsson flytur inngangs-
erindi um almenn tjáskipti í
hópum, fjölmiðlum og manna á
milli.
„Fagnaðarerindið og hinir útskúf-
uðu“, sr. Birgir Ásgeirsson sem
lokið hefur ársþjálfun í þjón-
ustu við áfengissjúklinga við
Hazelden-stofnunina í Banda-
rikjunum, fjallar um tjáskipti
við þann hóp manna.
ýmiss konar aukahlutir, svo sem
eins og það að reisa verður vinnu-
palla til þess að okkar ágætu fag-
menn geti unnið sitt verk. Og
vinnupalla reistu þeir snemma
sumars við hótelið. Og þar varð
meisturunum það á f messunni, að
ein af stoðum vinnupallsins lenti
einmitt beint fyrir framan neyð-
arútgang á „teríunni" og neyðar-
útgangurinn vill opnast út — en
stoðin kemur í veg fyrir slíkt. Á
þetta var umsjónarmanni bygg-
ingarframkvæmdanna bent strax
eftir að verkið var unnið, fyrir
nokkrum mánuðum, en þrátt fyrir
það situr allt við það sama. Komi
til eldsvoða eða annars óhapps á
„teríunni" verður væntanlega að
byrja á því að brjóta niður vinnu-
palla áður en hægt verður að
hleypa fólki þar út. — En, auðvit-
að, það brennur aldrei hjá mér —
eða hvað?
GBerg
Fimmtudagur 1. nóvember:
„Lausn á ágreiningi innan
kirkju“, sr. Jón Bjarman fanga-
prestur, sem nýlokið hefur
meistaraprófi í kennimannlegri
guðfræði, sérstaklega sálgæslu á
stofnunum, við guðfræðiskóla
New York, annast fræðslu þessa
kvölds og stýrir umræðum.
Mánudagur 5. nóvember:
„Guðfræði og gamla fólkið“, sr.
Sigfinnur Þorleifsson, sem lauk
í sumar meistaraprófi í málefn-
um aldraðra við guðfræðiskól-
ann í St. Paul Minnesota, mun
ræða tjáskipti og boðun meðal
aldraðra.
„Sálgæsla í hópum“, sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson kynnir efn-
ið og leiðir umræður, en hann er
nýkominn frá ársdvöl við Mod-
um Bad-geðsjúkrahúsið í Noregi
þar sem hann var við nám og
störf.
Kvenfélag Langholtskirkju
býður kaffiveitingar öll kvöldin.
Námskeiðið er í tengslum við
Kirkjuþing og var því frestað er
Kirkjuþingi var frestað, en það
átti að hefjast um miðjan októ-
ber. Upplýsingar sem berast til
manna um námskeiðið þegar
bréf verða borin út að nýju eru
því ógildar.
(FrétUUIkyaoinf frá Binkupwtafu.)
Vinnupallur lokar
neyðarútganginum
Stoóin er beint fyrír utan neyðarútganginn eins og myndin sýnir.
Morgunblaöiö/G Berg.