Morgunblaðið - 28.10.1984, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1984
t Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, EVA FANNEY JÓHANNSDÓTTIR, Kirkjuvegi 9, Hafnarfiröi, veröur jarösungin frá Fríkirkjunni i Hafnarfiröi mánudaginn 29. október nk. kl. 15. Jóhann Ólafsson, Edda Ólafsson, Eövarö Ólafsson, Guöbjörg Guðjónsdóttir, Siguröur 1. Ólafsson, Helga Ármannsdóttir, Guörún Ólafsdóttir, Guömundur Vigfússon, Bryndis Ólafsdóttir, Hilmar Ágústsson, börn og barnabörn.
t Astkær sonur okkar og bróöir, GUNNAR ÓSKAR BENEDIKTSSON, Kastalageröi 13, Kópavogi, lést í Borgarspítalanum 27. september sl. og var jarösunginn 5. október. Þökkum af alhug auösýnda samúö og vinarhug viö andlát hans og útför. Læknum, hjúkrunarfræöingum, sjúkraliöum og ööru starfs- fólki á deild A7, Borgarspítalanum, eru færöar sérstakar þakkir fyrir mikla og góöa umönnun. Ásdís Óskarsdóttir, Benedikt Gunnarsson, Valgeröur Benediktsdóttir.
t Eiginkona min, SIGRÍÐUR GUDJÓNSDÓTTIR frá Hrauni í Grindavík, Borgarholtsbraut 14, Kópavogi, andaöist 20. október í Landspítalanum. Útför hennar veröur gerö frá Hallgrímskirkju miövikudaginn 31. október kl. 13.30. Sigurkarl Stefánsson, Anna Sigurkarlsdóttir, Magnús Guöjónsson, Stefán Sigurkarlsson, Anna Guöleifsdóttir, Guójón Sigurkarlsson, Unnur Baldvinsdóttir, Siguröur K. Sigurkarlsson, Svala Jónsdóttir, Gísli K. Sigurkarlsson, Arnheiöur Ingólfsdóttir, Sveinn Sigurkarlsson, Ragnhildur Jóhannesdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
t Móöir okkar, tengdamóöir, amma, langamma og langalangamma, GUÐFINNA BJARNADÓTTIR, andaöist í Sjúkrahúsi Selfoss miövikudaginn 24. október sl. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 2. nóvember kl. 13.30. Fyrir hönd aöstandenda, Þorgils Georgsson.
t Eiginmaöur mlnn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, GUNNAR AXELSSON, tónlistarkennari, Vföihvammi 20, Kópavogi, lést í Landspítalanum 7. október. Útförin fór fram í Fossvogskap- ellu þann 12. október. Þökkum öllum þeim er heiöröuöu minningu hans og vottuöu okkur samúö. Hjördfs Þorgeirsdóttir, Aöelbjörg Gunnarsdóttir, Þórir Steindór Njálsson, Stefanfa Gunnarsdóttir, Jón Magnús Jónsson, Sigrún Gunnarsdóttir og barnabörn.
t Sambýlismaöur minn og faöir okkar, GUÐMUNDUR SÆMUNDSSON, Hofteigi 16, Reykjavík, lést á heimili sínu 24. október. Jaröarförin fer fram frá Fossvogs- kírkju föstudaginn 2. nóvember kl. 10.30. Magnfrföur Sigurbjarnadóttir, Saamundur Guömundsson, Elfsabet Guömundsdóttir, Ragnheiöur Guömundadóttir.
i t Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi, SVANUR SKÆRINGSSON, pípulagningameistari, lést i Borgarspítalanum þrlöjudaginn 23. október. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 2. nóvember 1984 kl. 15.00. Fyrir hönd ættingja, Unnur Hólmfrföur Sturludóttir.
Edvard Jóhannes
Fœrseth - Minning
Fæddur 9. júlí 1919
dáinn 21. október 1984
Edvard lést 20. október sl. í
Landakotsspítala, eftir tiltölulega
skamma sjúkrahúslegu í það sinn.
Síðastliðinn vetur gekkst hann
undir mikla aðgerð, hresstist vel
og virtist á góðum batavegi er
hann kenndi sjúkdóms síns á ný
núna í haust, lagðist á sjúkrahús,
gekkst undir aðra aðgerð og var
allur á fjórða degi.
Eflaust grunaði hann að hverju
dró, en aldrei hraut honum æðru-
orð af vörum og hann hélt sínu
karlmannlega fasi fram á hinstu
stund.
Ég get ekki dagsett fyrstu kynni
okkar Edda, en ég hefi víst getið
þess einhverntíma áður, að er ég
fluttist unglingur til Siglufjarðar
1934, til búsetu þar, komst ég
fljótt í kynni við skemmtilegt fólk,
sem gekk undir nafninu „Norður-
götustrákarnir", og var Eddi
þeirra á meðal. Kynni okkar urðu
ekki svo mikil þá, en tveimur ár-
um seinna fórum við báðir á
Reykholtsskóla. Á vetrunum
tveimur þar skapaðist með okkur
sú vinátta sem entist æ síðan.
Foreldrar Edda voru þau heið-
urshjónin Pálína Andreasdóttir
Sæby, borin og barnfæddur Sigl-
firðingur, og Einar Færseth,
norskur maður, ættaður frá
Norður-Noregi, sem kom hingað
til lands ungur, í atvinnuleit, og
fann sinn stað og lífsförunaut í
Siglufirði.
Einar stundaði sjómennsku
fyrstu ár sín á íslandi, og var þá
m.a. í skiprúmi með föður mínum.
Seinna stundaði Einar alla al-
genga vinnu og sótti líka björg í
bú á trillubáti sem hann átti og ég
öfundaði hann af vegna smíða-
lagsins.
Einar var vasklega vaxinn,
hress í fasi og orði og víkingur til
vinnu. Pálína var aðdáunarverð
kona. Ég man aldrei eftir henni
öðruvísi en kátri og önnum kaf-
inni. Hún bar ekki amstur dag-
anna utan á sér. Barnahópurinn
var stór. Þau Einar eignuðust 14
börn og komust 12 þeirra á legg.
Starf húsmóður á slíku heimili
hlýtur að hafa verið ærið, en samt
sótti Pálína vinnu við síldarverk-
un, eins og aðrar húsmæður í
Siglufirði, og þar voru nú engin
vettlingatök. Það stóð henni eng-
inn á sporði við að kverka og salta.
Að alast upp I jafn stórum
systkinahópi hlýtur að hafa verið f
senn bæði lærdómsríkt og
skemmtilegt, þrátt fyrir harða
lífsbaráttu kreppuáranna, en
þetta var samhentur hópur. Það
var gott að koma heim í Færseth-
húsið, þar var alltaf líf og hlýja.
Eins og ég gat um hér á undan
hófst vinátta okkar Edda veturna
tvo í Reykholti. Við vorum her-
bergisfélagar og mér féll strax vel
við þennan myndarlega og einarða
pilt.
fþróttir voru mjög á dagskrá I
skólanum og við strákarnir tilbáð-
um nánast íþróttakennarann
okkar, Þorgils Guðmundsson.
Eddi skaraði strax fram úr í fim-
leikum og knattspyrnu, enda van-
ur slíku heimanað, en hann kom
ósyndur í skólann. Undir hand-
leiðslu hins góða kennara náði
Eddi brátt undraverðum árangri,
— hann varð besti sundmaður í
sögu skólans og seinna með getu á
landsmælikvarða. Keppti fyrst
undir merki KS og í liði Sundfé-
lagsins Ægis eftir að hann flutti
suður. Eddi var sjálfkjörinn í
flokk, sem Þorgils fór með á Fim-
leikamót íslands 1937. í því móti
tók einnig þátt úrvalshópur
kvenna úr KR undir stjórn Bene-
dikts Jakobssonar. í hópnum var
nett og sæt dama, sem Eddi mun
þó ekki hafa kynnst í það sinn, en
þessi stúlka, Hulda Steingríms-
dóttir, varð eiginkona Edda í byrj-
un nóvember 1944. Hann var þá
við nám í iðn sinni, húsasmíði, í
Reykjavík. Ég heimsótti þau um
veturinn og mér er minnisstætt
hve gott og innilegt samband
þeirra var, í litlu risíbúðinni við
Laugaveginn.
Eddi stundaði iðn sína hér
heima og í Svíþjóð og var annálað-
ur fyrir dugnað og hagleik.
Seinna, er stritið fór að segja til
sín, gerðist hann næturvörður hjá
Verzlunarbanka Islands. Þótt slíkt
starf ætti ekki vel við hann stund-
aði hann það af kostgæfni fram á
síðustu daga. Eddi og Hulda eign-
uðust þrjú börn, Einar, búsettan í
Svíþjóð, Unni, húsmóður í Hafn-
arfirði, og Steingrím, rakara-
meistara í Reykjavík. Áður en
Eddi kvæntist eignaðist hann son,
Georg, með ólöfu Ólsen. Georg
ólst upp á Englandi en starfar nú í
Hafnarfirði.
Eddi var félagshyggjumaður,
sem kom fram á margan hátt, m.a.
i því að hann var einn af þeirh,
sem beittu sér fyrir endurvakn-
ar 1938, svo hægt væri að koma á
sundkennslu á ný í gömlu laugar-
þrónni inn við Langeyri, en þá var
engin sundkennsla í Siglufirði.
Hann tók að sér sundkennsluna þá
um sumarið, og mun hafa verið sá
seinasti, sem kenndi sund þar.
Frístundir sínar, sem ekki voru
alltof margar, notaði hann til að
hlaupa undir bagga með vinum og
kunningjum, sem þurftu á hand-
lagnum og duglegum smiði að
halda, eða þá að hann naut úti-
vistar í náttúrunni. Skíðaferðir
voru honum tamar frá æsku og
okkur auðnaðist að fara langar
gönguferðir saman á skíðum, bæði
í Siglufirði og í Fljótum, nokkur
seinustu árin.
Síðastliðið sumar dvöldu hann
og Hulda hjá mér á Illugastöðum,
um þriggja vikna skeið, við göngu-
ferðir, silungsdorg og annað dund.
Þá varð ég enn var við þetta
góða samband milli þeirra, sem ég
hafði tekið eftir fyrir tæpum 40
árum.
Þetta var gott sumar. Við Eddi
veiddum, smíðuðum okkur reyk-
húskofa, reyktum silung og fórum
í berjamó með Huldu, og hún
dekraði við okkur i mat og þjón-
ustu.
Mér þykir vænt um að hafa átt
þátt í því, að Eddi varði hluta úr
sínu hinsta sumri í Fljótum, en
það umhverfi kvað hann heilla sig
sí og æ vegna náttúrufegurðar og
friðsældar, — og svo gat hann
rakið móðurætt sína þangað.
Það var gott að ræða við Edda
um landsins gagn og nauðsynjar
og lífsins gang yfirleitt. Hann var
hafsjór af allskonar fróðleik, ljóð-
elskur og minnið var frábært.
Kímni hans var notaleg og hnytt-
in.
Núna, þegar ég lít yfir farinn
veg, er mér efst I huga söknuður,
og svo þakklæti fyrir að hafa átt
svo góðan dreng að vini.
Ég votta Huldu minni og öllum
öðrum aðstandendum mína
dýpstu samúð.
Bragi Magnússon
t
Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi,
STEINÞÓR SÆMUNDSSON,
gullsmíöameiatari,
Álfhólsvagi 54, Kópavogi,
andaöist í Borgarspítalanum 19. október sl.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 29. október kl.
13.30.
Sólborg Siguröardóttir,
Álfheióur Steinþórsdóttir, Siguröur G. Steinþórsson,
Magnús Steinþórsson, Steinþór Steinþórsson,
tengdabörn og barnabörn.
t
Frændi minn,
PÁLL VALDIMARSSON
fré Sóleyjarbakka,
lést aö Hrafnistu í Hafnarfiröi þann 23. þ.m. Útför hans veröur gerö
frá Nýju kapellunni í Fossvogi þriöjudaginn 30. október kl. 15.00.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Ester Kláusdóttir.
t
UNA ELEFSEN,
Álfhólsvegi 97,
Kópavogi,
andaöist í Landspítalanum hinn 19. þ.m.
Útför hennar veröur gerö fra Dómklrkjunnl í Reykjavik hinn 30.
október og hefst athöfnin kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er vinsamlegast bent á
Krabbameinsfélag islands.
Foreldrar, systkini og vinir.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar og afl,
ÞORSTEINN ÓLAFSSON,
Mosgeröi 15,
andaöist 16. september sl. á Landakotsspítala. Jaröarförin hefur
fariö fram í kyrrþey aö ósk hins látna.
Þökkum innilega auösýnda samúö.
Vigdís Jónsdóttir,
Þorsteinn Haraldson, Ingimundur Einarsson,
Siguröur Haraldson,
Vigdís Haralddóttir.