Morgunblaðið - 28.10.1984, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTOBER 1984
45
Minning:
Benedikt Gröndal
verkfræðingur
hvarflaði að okkur á barna- og
unglingsárum, að líkja mætti ítu
systur við fjölært blóm, sem berst
við óblíða veðráttu þessa lands,
sigrar og breiðir blóm sín móti
sólu á hverju vori. Þannig barðist
hún við vanheilsu sína mestan
hluta ævi sinnar og hafði sigur svo
lengi sem stætt var. Eiginmanni
hennar, börnum og öðrum ástvin-
um, sendum við innilegar sam-
úðarkveðjur og biðjum þau að
minnast hins góða sem lífið gefur
okkur og bjartrar minningar um
þá látnu.
Blessuð sé minning hennar.
Mumma og Þobbi
Aníta Friðriksdóttir Bakkavegi
8 Hnífsdal er látin. Hún fæddist á
Látrum í Aðalvík 22. ágúst 1915 og
lést í Reykjavík 15. október síð-
astliðinn. Hún var ein sautján
barna hjónanna Þórunnar M. Þor-
bergsdóttur og Friðriks Finn-
bogasonar Ystabæ á Látrum í Að-
alvík. Þórunn var dóttir Þorbergs
Jónssonar bónda í Efri Miðvík og
konu hans Margrétar Þorsteins-
dóttur ljósmóður. Friðrik var son-
ur Finnboga Árnasonar bónda í
Efri Miðvík og konu hans Her-
borgar Kjartansdóttur. Aníta ólst
upp hjá foreldrum sínum á þessu
fjölmenna heimili, ekki við auð og
allsnægtir, en gæfan er ekki alltaf
fólgin í veraldarauði.
Hún fór ung að heiman til að
vinna fyrir sér. Leiðin lá til Akur-
eyrar, en þar veiktist hún og varð
að dvelja á Kristneshæli. Hún átti
þaðan afturkvæmt, en það áttu
ekki allir. En heilsuleysi hrjáði
hana æ siðan. Þar nyrðra kynntist
hún ungum manni og eignaðist
með honum son, Geir, sem ólst
upp á Akureyri.
Næst lá leiðin heim aftur. Hún
hóf búskap með eftirlifandi eig-
inmanni sínum Finnboga Jósefs-
syni 1938 á Atlastöðum í Fljóts-
vík. Þau bjuggu þar til ársins 1946
að þau fluttu vestur í Hnífsdal.
Þar byggðu þau sér hús á Bakka-
vegi 8 og áttu þar heima síðan.
Aníta og Finnbogi eignuðust tvö
börn, Guðjón Finndal, sem býr i
Hnífsdal, og Finneyju, sem einnig
býr í Hnífsdal, gift ólafi Theo-
dórssyni. Fyrri mann sinn Jó-
hannes Lárusson missti Fanney
með mb. Svani RE88 22. desember
1966. Þau Aníta og Finnbogi ólu
upp dótturson sinn Finnboga Jó-
hannesson.
Aníta átti lengst af við heilsu-
leysi að stríða, en hún bar sig vel,
var bjartsýn og lifsglöð kona. Fé-
lagslynd og frjálslynd voru þau
hjón bæði og aufúsugestir hvar
þau komu. Anita var einstök
snyrtimanneskja, það sást hvergi
blettur né hrukka á heimili henn-
ar. Hún var hög í höndum eins og
hún átti kyn til og prýddi heimili
sitt af smekkvísi.
Það er ánægjulegt til þess að
vita að hún var óvenju hress í
sumar og haust og fór m.a. norður
í Aðalvík á fjölmennt ættingja-
mót, sem haldið var í minningu
100 ára afmælis Þórunnar móður
hennar. Þar naut hún sín vel í
glöðum, stórum frænda- og vina-
hópi. Hún fór líka til Fljótavíkur
og var fljótari í förum, en þegar
hún bjó þar. Hún fór með hraðbáti
og flugvél og geislaði af fjöri og
gleði þegar hún minntist þessa
ferðamáta.
Aníta unni manni sínum og
bömum og barnabörnin áttu hauk
í horni þar sem amma var. Hún
var þeim mikið, ekki síst góður fé-
lagi. Hún fékk hægt andlát í örm-
um eiginmanns síns, sem var
henni góður lífsförunautur og bar
hana á höndum sér til hinstu
stundar. Missir hans er míkill, svo
og barna og barnabarna. Við biðj-
um Guð að styrkja þau öll. Við
þökkum Anítu samfylgdina og
söknum vinar í stað. Guð blessi
hana á æðri leiðum.
Hún myndi vilja láta þessi orð
vera sín:
„Hafðu Jesú mig i minni
mæðu og dauðans hrelling stytt.
Börn mín hjá þér forsjón finni
frá þeim öllum vanda hritt.
Láttu standa í lífsbók þinni
líka þeirra nafn sem mitt (H.P.)
Steinunn og Kristbjörn
Ungur að árum gerðist Benedikt
Gröndal verkfræðingur, starfs-
maður Vélsmiðjunnar Hamars hf.
Framtakssemi hans var einstök.
Hann vann manna ötulast við gerð
frystitækja fyrir hraðfrystihús
landsins. Benedikt heitinn átti
mjög stóran hlut í þróun frysti-
húsaiðnaðar þessa lands.
Framtakssemi hélt hann eigi á
loft, hlédrægni hans sat í fyrir-
rúmi.
Ég minnist Benedikts sem
einkar hugljúfs manns, prúðum
með afbrigðum og fúsum að rétta
hjálparhönd, þeim er hann taldi
þess þurfa.
Ég votta fjölskyldu hans og
nánustu vinum, innilegar samúð-
arkveðjur.
Einar V. Bjarnason
Benedikt Gröndal, fyrrv. for-
stjóri Hamars hf., lést hér í
Reykjavík þann 11. sept. sl. Með
honum er genginn einn af braut-
ryðjendum íslenskrar verkmenn-
ingar á síðari árum.
Benedikt Gröndal fæddist í
Reykjavík þann 27. ágúst 1899.
Hann varð því rétt rúmlega 85
ára. Foreldrar hans voru Þórður
Edilonsson, héraðslæknir í Hafn-
arfirði, og kona hans Helga Bene-
diktsdóttir Gröndal skálds
Sveinbjamarsonar. Edilon föður-
afi hans Grfmsson var skipstjóri á
Akureyri og síðar í Reykjavík ætt-
aður af Svalbarðsströnd. Edilon
beitti sér mjög fyrir stofnun stýri-
mannaskóla og var talinn með
nýtustu mönnum í skipstjórastétt.
Ritaði hann mikið í blöð og tima-
rit um fiskveiðar og önnur áhuga-
mál sjómanna. Móðurafi Bene-
dikts var sá gáfaði maður Bene-
dikt Gröndal, skáld, en Helga var
einkabarn hans. Benedikt Grön-
dal, skáld, var sonur Sveinbjarnar
Egilssonar, rektors og skálds, og
konu hans Ingigerðar Tómasdótt-
ur Zoega, en Ingigerður var systir
Geirs Zoéga rektors. Helga móðir
Benedikts var gáfuð og skemmti-
leg kona og heimili þeirra Þórðar,
sem lengst af stóð við Strandgötu
í Hafnarfirði, var mikið menning-
arheimili. Þórður læknir var með
hæstu mönnum, mikill að vallar-
sýn og þrekinn nokkuð á efri árum
er ég man hann, mikið ljúfmenni
og ógleymanleg persóna þeim er
honum kynntust. Hann var ákaf-
lega farsæll læknir og voru þau
hjón mikils metnir borgarar i
Hafnarfirði. Hafa Hafnfirðingar
enda reist Þórði minnisvarða f
þakklætisskyni fyrir störf hans öll
í þágu bæjarbúa.
Þannig var Benedikt Gröndal
sprottinn úr þeim jarðvegi, bæði
að ætterni og uppeldi, að mikils
mátti af honum vænta. Hann var
ágætur námsmaður, varð 17 ára
stúdent og hóf síðan nám í véla-
verkfræði við Danmarks Tekniske
Höjskole, sem þá nefndist Poly-
teknisk Læreanstalt, og lauk það-
an prófi árið 1924. Benedikt var
fyrsti íslenzki háskólamenntaði
vélaverkfræðingurinn. Það hlýtur
að hafa verið talsvert áræði að
hefja nám i þessari grein, sem þá
leit ekki út fyrir að nýttist að
nokkru gagni hér á landi. Ég
heyrði þá sögu að þegar einhver
ræddi við Ágúst Flygenring, sem
síðar varð tengdafaðir Benedikts,
hvílíkt glapræði það væri fyrir
piltinn að stúdera grein, sem eng-
in þðrf og engir atvinnumöguleik-
ar væru fyrir hér á landi, þá á
Ágúst að hafa svarað: „Það skiptir
engu máli hvað hann nemur —
það verður alltaf nóg að gera fyrir
duglega menn!“ Og það reyndust
orð að sönnu.
Að loknu prófi hóf Benedikt
störf hjá Flydedokken í Kaup-
mannahöfn, en hóf fljótlega störf
hjá Vélsmiðjunni Hamri hf. í
Reykjavík. Starfrækti hann jafn-
framt eigin verkfræðistofu hér ár-
in 1925—1931 og var þá m.a. ráðu-
nautur húsameistara ríkisins við
hitalagnir í ýmsum opinberum
byggingum. Þá hannaði hann og
hafði ásamt öðrum umsjón með
lagningu hitaveitu frá þvottalaug-
unum í Reykjavík árið 1930. Þessi
frumhitaveita tókst mjög vel,
ruddi brautina og var fyrsti visir-
inn að Hitaveitu Reykjavíkur.
Benedikt gerðist forstjóri Ham-
ars hf. árið 1931 og gegndi því
starfi allt til ársins 1972 og var
stjórnarformaður Hamars lengi
eftir það. Liggur þar hans megin
lífsstarf. Þá var hann, ásamt með
forstjóra Héðins hf., forstjóri
Stálsmiðjunnar hf. og Járnsteyp-
unnar hf. i Reykjavík frá stofnun
þeirra árið 1933.
Benedikt tók þátt í stofnun
margra atvinnufyrirtækja og sat í
stjórnum nokkurra þeirra. Þá
gegndi hann um tíma formennsku
í nokkrum félagasamtökum, sem
hann tók þátt í, svo sem Verk-
fræðingafélagi íslands, Vinnuveit-
endasambandi tslands og Meist-
arasambandi járniðnaðarmanna.
Hlaut hann heiðursmerki, bæði
innlend og erlend, fyrir störf sín.
Hann starfaði lengi í Frímúrara-
reglunni og var einn af æðstu
mönnum hennar. Þá var hann
einn af stofnendum Rótarýhreyf-
ingarinnar á íslandi og var síðasti
hérlendi stofnandinn sem lifiði.
Vantaði hann aðeins 2 daga í að
hann hefði verið Rótarýfélagi í 50
ár. Hann var heiðursfélagi
Rótarýklúbbs Reykjavíkur og
Vinnuveitendasambandsins.
Benedikt var ákaflega farsæll í
öllum störfum sínum. Hann var
mjög greindur og gjörhugull,
ráðhollur og kom öllum málum til
betri vegar er hann lagði til. Allt
til dauðadags hafði hann mikinn
áhuga á tæknimálum og nýjung-
um, sem leiddu til framfara. Á því
sviði var hann fljótur að tileinka
sér það sem hagnýtt var, en hann
var svo hagsýnn að eðlisfari að
hann lét aldrei teymast út í neina
ófæru, þrátt fyrir áhuga sinn og
tæknigleði yfir nýjungum. Hann
hlaut enda harðan skóla fyrstu ár
sín sem forstjóri Hamars, þegar
heimskreppan mikla reið hér yfir.
Ég heyrði hann lýsa því, hvílíka
hagsýni og útsjónarsemi þurfti til
að fleyta fyrirtækinu gegnum
kreppuna. Hann var mjög hagur
og laginn á meðferð véla og tækja.
Hann eignaðist snemma bíl og var
óhræddur að leggja í langferðir
eftir ófullkomnum vegum á veik-
byggðum bíl. Það var eins og hann
hlakkaði til viðgerðanna á bílnum
á slikum ferðalögum, sem auðvit-
að skeði oftar en einu sinni í
hverri ferð. Hann virtist undra-
fljótur að átta sig á flóknum tækj-
um sem hann fékk í hendur, t.d.
heimilistækjum sem hann keypti
jafnan strax og þau komu á mark-
að, endurbætti sum og hélt gang-
andi með lagni sinni.
Benedikt Gröndal var maður
hár og gjörvilegur og vakti eftir-
tekt. Persónuleikinn var sterkur
og framkoman prúðmannleg.
Benedikt var jafn farsæll I einka-
lífi og í starfi. Að loknu háskóla-
prófi árið 1924 kvæntist hann
Halldóru Ágústsdóttur Flygen-
ring, sem lifir mann sinn. Eignuð-
ust þau 5 börn, en þau eru: Inga
gift Jóni Skúlasyni póst- og síma-
málastjóra, Unnur Elisabet gift
Gísla Jónssyni, bónda á Víðivöll- *
um í Skagafirði, Helga gift Sveini
Björnssyni forstjóra Strætisvagna
Reykjavíkur, Þórður, verkfræð-
ingur og fulltrúi stjórnar Hamars
hf., kvæntur Erlu Jónsdóttur og
Þórunn gift Júlíusi Halldórssyni,
framkvæmdastjóra Bústólpa.
Benedikt var jarðsunginn frá
Dómkirkjunni þann 19. sept. sl.
Páll Flygenring
Birting afmælis- og
minningargreina
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn-
ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn-
ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess
skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort
ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð-
um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð
og með góðu línubili.
t
Þökkum öHum þeim sem sýndu okkur samúö og vlnarhug viö
fráfall og útför ástkærs eiginmanns, fööur, tengdafööur og afa,
SIGMUNDAR ÁGÚSTS SIGFÚSSONAR,
bifreiöastjóra,
Hófgeröi 20.
Katrin Frímannsdóttir,
Gróa Ágústsdóttir, Ingibjörg Ágústsdóttir,
Magnús Erlingsson, Marjan Zak,
Árni Magnússon, Agúst Zan Zak.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug vlö andlát og
útför
Lillýar H. Walderhaug,
Vatnsnesvegi 15, Keflavtk.
Siguröur Guönason og böm.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför
fööur okkar,
KRISTINS BERNHARDSSONAR,
Úthliö 9,
sem andaöist þann 12. október sl.
Guörún Jórunn Kristinsdóttir,
Barnharóur Jóhann Kristinsson.
Lokað
Verslanir félagsmanna veröa lokaöar mánud. 29.
okt. milli kl. 1 og 3 vegna jaröarfarar
Steinþórs Sæmundssonar
gullsmíöameistara.
Félag ísl. gullsmiöa.
Legsteinar
granít — marmari
Opiö alla daga,
einnig kvöld
og helgar.
Ilwnii ó.f.
Unnarbraut 19, Seltjarnarnasi,
símar 620809 og 72818.
Legsteinar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
_______um gerð og val legsteina._
Ífi S.HELGASON HF
ISTEINSMKUA
■-----
SNEMMUVEGI 48 SlMl 7667?