Morgunblaðið - 29.01.1985, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1985
25
Wolfgang Amadeus Mozart
„Amadeus“
fékk
fjogur
„Golden
Globe“-
verðlaun
Beverly llills, Kaliforníu. 27. janúar. AP.
KVIKMYNDIN „Amadeus"
sem byggð er á œvi tónskáldsins
Wolfgangs Amadeus Mozarts,
hlaut fjögur „Golden Globe“-
verðlaun í Beverly Hills, árleg
veiting erlendra fréttamanna í
Hollywood. „A Passage to
India“ fékk þrenn verðlaun og
„Romancing The Stone" tvenn
verðlaun. Þetta er í 42. skiptið
sem Golden Globe-verðlaunin
eru veitt.
Murrey Abraham fékk verð-
laun fyrir hlutverk Salieris í
„Amadeus" og Milos Forman
var kjörinn besti leikstjórinn.
Peter Schaeffer fékk verðlaun
fyrir sviðsmynd og verkið í
heild var kjörið besta „kvik-
myndadrama" ársins. Abra-
ham var ekki viðstaddur at-
höfnina, en við verðlaununum
fyrir hönd hans tók Tom
Hulce, en hann lék sjálfan
Amadeus og var útnefndur til
verðlauna.
„A Passage to India hreppti
þrenn verðlaun sem fyrr segir,
má þar helst nefna að myndin
var kjörin besta erlenda
kvikmyndin og Peggy Ash-
croft var kjörin besta leikkon-
an í aukahlutverki. Katleeen
Turner og Dudley Moore
hrepptu verðlaun fyrir bestu
hlutverkin í gamanmyndinni
„Romancing the Stone" og
Sally Fields var kjörin besta
leikkonan í aðalhlutverki fyrir
leik sinn í „Places of the
Heart". Kvikmyndin „The
Killing Fields" var útnefnd til
sex verðlauna, en hreppti að-
eins ein. Verðlaunin hlaut
Haing S. Ngor, fyrir besta
aukahlutverk karlmanns, en
hann lék kambódískan blaða-
mann í myndinni.
Loks má geta þess, að Stevie
Wonder fékk verðlaun fyrir
besta kvikmyndalag fyrir lag-
ið „I Just Called to Say I Love
You“ sem var titillag kvik-
myndarinnar „The Woman in
Red“. Og ekki má gleyma Ann
Margret sem fékk verðlaun
annað árið í röð fyrir besta
leikkonuafrekið í sjónvarps-
þáttum, að þessu sinni fyrir
„A Streetcar Named Desire",
en í fyrra hreppti hún sömu
verðlaun fyrir „Who Will Love
My Children?".
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!
Nelson Mandela í óvæntu blaðaviðtali:
Leggjum niður vopn ef stjórn-
völd fallast á samningaviðræður
London, 28. janúar. AP.
NELSON Mandela, leiðtogi sjálf-
stæðishreyfingar blökkumanna í
Suður-Afrfku, sem situr í fangelsi
þar í landi, segir í viðtali, sem birt-
ist um helgina í vikublaðinu Mail
on Sunday í London, að skæruliðar
hans muni leggja niður vopn ef
stjórnvöld i Suður-Afríku fallist á
samningaviðræður við samtök
þeirra, Afríska þjóðarráðið.
Það var Bethell lávarður, sem
er rithöfundur og situr á Evrópu-
þinginu fyrir breska íhaldsflokk-
inn, sem tók viðtalið við Mandela.
Er það í fyrsta sinn, sem utanað-
komandi manni er veitt leyfi til
að ræða við Mandela. Bandaríski
öldungadeildarþingmaðurinn,
Edward Kennedy, sem nýlega var
á ferð um Suður-Afríku, óskaði
eftir því að fá að hitta Mandela,
en var synjað um það.
Bethell lávarði var veitt leyfi
til að ræða við Mandela í tvær
klukkustundir sama dag og P.W.
Botha, forsætisráðherra, greindi
frá því í þingræðu, að hann væri
hlynntur því að blökkumenn í
landinu fengju aukin áhrif og
réttindi.
Nelson Mandela, sem er 66 ára
að aldri, var dæmdur í ævilangt
fangelsi árið 1964, gefið að sök að
hafa lagt á ráð um hryðjuverk og
reynt að steypa stjórn Suður-
Afríku.
Bethell lávarður segir að
Mandela hafi verið vel á sig kom-
inn og heilsuhraustur og hafi
hann ekki haft uppi neinar aðrar
kvartanir um kjör sín í
Pollsmoor-fangelsinu i Höfða-
borg, en þær, að hann vildi fá
leyfi fyrir fleiri heimsóknum ætt-
ingja og meiri næði til að sinna
hugðarefnum sínum, bóklestri og
skriftum. Aftur á móti hafi hann
sagt, að sér hafi liðið mjög illa
fyrstu tíu ár fangavistarinnar,
þegar hann dvaldi í fangelsi á
Robben-eyju fyrir utan strönd
Höfðaborgar.
í viðtalinu segir Mandela: „Rík-
isstjórnin neyddi okkur til að
hefja vopnaða baráttu, og ef hún
vill að við hættum henni, þá er
það hennar að eiga frumkvæðið.
Það verður að fást opinber viður-
kenning á lögmæti samtaka
okkar, leyfa okkur að starfa á
sama hátt og öðrum stjórnmáia-
flokkum og semja síðan við
okkur. Ef þetta verður ekki gert
heldur hin vopnaða barátta
áfram.“
Indverjar vígbúast við
landamæri Bangladesh
Dhaka, Bangladesh, 28. janúar. AP.
INDVERJAR safna um þessar
mundir saman miklu liói og þunga-
vopnum meófram landamærum
Bangladesh í Chittagong-hæóunum,
að sögn blaósins The New Nation.
Spenna hefur aukist á landa-
mærum Indlands og Bangladesh
að undanförnu í framhaldi af
bardögum stjórnarhersins í
Bangladesh og uppreisnarmanna
úr Chittagong-hæðunum, sem
krefjast sjálfsforræðis. Hafa upp-
reisnarmenn leitað skjóls á ind-
versku landi og stundað skæru-
hernað sinn þaðan.
Hafa indverskir hermenn skotið
öðru hverju á hermenn stjórnar-
hers Bangladesh að undanförnu. I
nóvember og desember skiptust
herirnir þrisvar á skotum er
stjórnarhermenn Bangladesh
veittu uppreisnarmönnum eftirför
inn á indverskt yfirráðasvæði.
Blaðið sagði liðsflutninga hafa
staðið yfir síðustu daga, en að
öðru leyti er umfang þeirra óljóst.
Hinn 1. júní í fyrra réðust upp-
reisnarmenn úr Chittagong-hæð-
unum á þrjú þorp í Bangladesh og
drápu 300 manns.
KOSTA)(BODA
Gjafávörur vandlátra
Með hækkandi sól bjóðum við
afslátt af öllum vörum í
versluninni dagana 29. janúar—15. febrúar.
Frábær þjónusta, fallegar vörur. Verð við allra hæfí.
Bankastræti 10. Sími 13122