Morgunblaðið - 29.01.1985, Síða 28

Morgunblaðið - 29.01.1985, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1985 Sakadómur Reykjavíkur: Grein í Samúel um áfengan drykk ekki áfengisauglýsing SAKADÓMUR Reykjavíkur hefur sýknad útgefendur tímaritsins Samúels, þá Ólaf Valtý Hauksson og Þórarin Jón Magnússon, af kröfum ákæruvalds- ins um áfellisdóm vid meintu broti á banni við áfengisauglýsingum. Taldi ákæruvaldið að grein í Samúel í janúar 1984 um áfengiskokteil bryti í bága við 4. málsgrein 16. greinar áfengislaganna frá 1969 og reglugerðar nr. 335, 1983 um bann við áfengisauglýsingum. Málavextir eru þeir, að í janúar ekki auglýsingu, heldur sögðu á síðastliðnu ári birtist grein í Samúel undir fyrirsögninni „My- ers’ rjómaromm — hreinasta sæl- gæti.“ Greinin var svohljóðandi: „Myers’ Orginal Rum Cream er skemmtileg nýjung í drykkjarvali áfengisverzlunarinnar. Myers’ (frb. mæers) rjómarommið er eig- inlega tilbúinn kokkteill, frekar en líkjör, samanstendur einvörðungu af rommi og rjóma, en útkoman hreinasta sælgæti (sem er ef til vill um leið það hættulegasta við drykkinn, eins og Samúel komst að raun um þegar hann fékk sér eina flösku á dögunum; hún klár- aðist á augabragði). Er rjóma- rommið ekki ósvipað á bragðið og drykkirnir „White Russian" og „Alexander", sem margir kannast við og það er ekki ólíklegt að hinir fjölmörgu, sem kaupa alltaf Bail- ey’s rjómaviskí í fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli, en það hefur ekki fengist í ríkinu, muni fagna þessum valkosti. Þó Myers’ rjómaromm sé oftast drukkið eins og það kemur beint úr flöskunni, „stofuheitt" eða með ísmolum, þá má blanda það við ýmsa aðra drykki með góðri út- komu, t.a.m. vodka (og er þá nán- ast eins og „Hvítur Rússi“), sóda- vatn er ágætt að nota sem bland ef mönnum finnst það of sterkt eitt og sér, og síðast en ekki síst er rjómarommið ákaflega gott út í kaffi. Samúel hefur líka heyrt að það henti vel í bakstur, t.d. í krem og frómas.“ Við hlið greinarinnar var lit- mynd af umræddri áfengistegund. Ákærðu sögðu að með greininni hefðu þeir viljað stuðla að bættri vínmenningu. Þeir töldu greinina hana ritstjórnarefni. ólafur Hauksson, sem skrifaði umrædda grein, kvaðst ekki hafa haft sam- band við umboðsmann vínsins, né hefði verið greitt fyrir greinina, enda ekki um auglýsingu að ræða. Hann kvaðst hafa haft 72. grein stjórnarskrárinnar um prentfrelsi í huga þegar hann skrifaði grein- ina, en ekki hugsað út í hvort hún bryti í bága við bann við áfengis- auglýsingum. 1 niðurstöðu dómsins segir að fallast beri á það sjónarmið ákærðu, að hugtakið „áfengisaug- lýsingar“ í 4. málsgrein 16. gr. áfengislaganna verði að skýra þröngt, enda setji það ákvæði prentfrelsinu nokkrar skorður. Hin rúma skýring hugtaksins „auglýsing" í 16. grein reglugerðar nr. 335, 1983 um sölu og veitingar áfengis, sem kveður meðal annars á um að með auglýsingu sé átt við hvers kyns tilkynningu eða birt- ingu til almennings og hverja þá aðferð aðra, sem felur í sér hvatn- ingu til kaupa eða neyslu áfengis, eigi ekki stoð í áfengislögunum. Ákærðu hefðu tíundað kosti víns- ins en ekki hvatt til kaupa á því. Ekki beri að líta á alla umfjöllun um áfengi sem auglýsingu í merkingu laganna. Jafnframt seg- ir að líta verði til þess hvort sá, sem á beinna hagsmuna að gæta, hafi stuðlað að umfjöllun, þó það þyki ekki afgerandi hvort greitt sé fyrir birtingu á slíku ritstjórnar- efni eða ekki. Ekkert hefði komið fram sem benti til þess, að umboðsmaður áfengisins eða áfengisverzlunin hefðu reynt að stuðla að umfjöllun blaðsins. Því voru ákærðu sýknað- ir af kröfu ákæruvaldsins og ríkis- sjóði gert að greiða málsvarnar- laun skipaðs verjanda, Jóns Stein- ars Gunnlaugssonar, hrl. Ágúst Jónsson, aðalfulltrúi í Sakadómi Reykjavíkur, kvað dóminn upp. Sterkasti maður heims: Sjónvarpið í við- ræðum um sýning- arrétt á þættinum Samningaviðræður standa yfir milli íslenska sjónvarpsins og breska kvikmyndafélagsins „Trans World lnternational“ um sýningarrétt á sjónvarps- mynd um keppnina „Sterkasti maður heims“, sem haldin var í \P Baðinnréttingar fyrir þá sem hafa góðan smekk. VALD. POULSEN ( Suöurlandsbraut 10. Sími 686499. Innréttingadeild 2. hæð. Svíþjóð á dögunum, en eins og kunnugt er sigraði Jón Páll Sig- marsson léttilega í þeirri viður- eign. Bjarni Felixson, íþróttafrétta- maður sjónvarpsins, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að hann hefði strax í fyrri viku sett sig í samband við breska kvikmyndafé- lagið, sem hefur einkarétt á dreif- ingu efnis frá keppninni og eins hefði hann rætt við umboðsmann félagsins í Svíþjóð. Málið væri þó enn á viðræðustigi og sagði Bjarni að sér virtist sem þátturinn gæti orðið nokkuð dýr, þótt endanlegt verð hefði ekki verið ákveðið. Bjarni kvaðst þó gera sér vonir um aö samningar næðust innan þess ramma sem hóflegt má telj- ast, enda væri sjálfsagt mikill áhugi fyrir þessum þætti hér á landi. Sá er sveik fé úr bönk- um ófundinn EKKI hefur enn tekist að upp- lýsa hvaða maður náði að svíkja út 125 þúsund krónur í tveimur bönkum um miðjan janúar. Rannsóknarlögregla ríkins hefur yfirheyrt nokkra menn eftir að ábendingar bár- ust. Maður, á milli tvítugs og þrítugs að talið er, komst yfir ávísanahefti á fölskum forsend- um og gaf út 10 ávísanir fyrir samtals rúmar 600 þúsund krónur. Hann opnaði jafnmarg- ar sparisjóðsbækur og lagði fé inn á þær og greiddi með inni- stæðulausum ávísunum. Sam- dægurs mætti hann í bankana og hugðist taka út úr bókunum. Honum tókst að fá greitt úr 2 bönkum, samtals 125 þúsund krónur, en grunsemdir vöknuðu í þriðja bankanum og hvarf þá maðurinn á brott. i M VJL [ : v.- Baldur Hlöðversson á Skoda 130L setti hraðamet í firma-ísaksturskeppni á sunnudaginn og sigraði eftir spennandi keppni. Sami bfll varð einnig í öðru sæti undir stjórn Gunnlaugs Rögnvaldssonar, en alls tóku 35 bílar þátt í keppninni. Skoda snarastur í snúningum á ísnum „LATTU Skodann fá heiðurinn af þessu, ég gerði ekkert ... Þetta var óneitanlega spennandi á lokasprettinum, þar sem baráttan um efstu sætin var mjög hörð,“ sagði Baldur Hlöðversson eftir að hafa sigrað í flokki einsdrifsbíla í firma-ísaksturskeppni BÍKR á Leirtjörn á sunnu- daginn. Ók hann nýjum Skoda 130 L á vegum Jöfurs hf., og setti hraðamet á hringlaga ísilagðri brautinni. Sama bfl frá Jöfri ók Gunn- laugur Rögnvaldsson, sem varð annar, en /Evar Sigdórsson á SAAB 96 frá Höfðadekki varð þriðji. í fjórhjóladrifsflokki sigraði Hjálmar Sveinsson á Mitsubishi Pajero frá Heklu. „Það var mun meiri áhugi á þessari keppni hjá almenningi en við áttum von á,“ sagði Steingrímur Ingason fram- kvæmdastjóri BÍKR. „Það var greinilegt að þeir sem undir- bjuggu sig vel náðu árangri. Það vakti óneitanlega athygli að Skoda skyldi setja hraðamet á brautinni þrátt fyrir að þarna væru fimm fjórhjóladrifsbílar í keppni í sér flokki, m.a. 200 hest- afla Audi Quattro! Það var hörkukeppni um efstu sætin í flokki einsdrifsbíla, þar sem þrjátíu bílar tóku þátt, en þeir sem óku hraðast í forkeppninni skiluðu sér í efstu sætin í úrslit- um, þó röðin breyttist," sagði Steingrímur. f úrslit komust 10 keppendur, Ævar á SAAB hafði verið fljót- astur í undanúrslitum, en Bald- ur og Gunnlaugur á Skoda höfðu náð rúmlega sekúndu lakari tíma. Ævar fór fyrstur í braut- ina í úrslitum, en aðeins einn bíll ók í einu og markmiðið var að ná sem bestum tíma. Tókst honum ekki jafn vel upp og í forkeppn- inni, fékk tímann 1.29,6 mín. eft- ir tvær tilraunir, sem keppendur fengu. Baldur fór næstur Skod- anum, sló Ævari við með tímann 1.25,6 mín. og setti jafnframt hraðamet í brautinni, sem sigur- vegari í fjórhjóladrifsflokki, Hjálmar Sveinsson á Pajero, hafði áður sett. Gunnlaugur fór síðastur í brautina af þeim sem börðust um efsta sætið og tryggði Jöfri einnig annað sætið á tímanum 1.27,2 mín. Alþingi hefur störf: Tómas Árnason hættir þingmennsku „Norsk aðfór að íslenzkum sjávarútyegi,a segir Karl Steinar Á fyrsta fundi Alþingis á nýju ári, sem haldinn vær í gær, las Þorvald- ur Garðar Kristjánsson, forseti Sam- einaðs þings, bréf frá Tómasi Árna- syni (F), fjórða þingmanni Austfirð- inga, þar sem hann afsalar sér þing- mennsku, enda hafi hann tekið við starfi sem ekki samræmist þing- mennsku. Við þingsæti Tómasar tek- ur Jón Kristjánsson, félagsmála- fulltrúi. Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, las í upphafi fund- ar í Sameinuðu þingi forsetabréf um að Alþingi skuli hefja störf að nýju 28. janúar 1985. Kristín S. Kvaran (BJ) tók í gær sæti sitt á Alþingi eftir löglega fjarvist. Tveir varaþingmenn tóku sæti á þingi í gær: Vigfús Jónsson (S), bóndi á Laxamýri, í fjarveru Hall- dórs Blöndal, sem er erlendis í opinberum erindagjörðum, og Þórður Vigfússon (Ábl.), sveitar- stjóri á Hvammstanga, í fjarveru Ragnars Arnalds, en hann er einn- ig erlendis í opinberum erinda- gjörðum. Eitt þingmál var lagt fram í gær, fyrirspurn frá Karli Steinar Guðnasyni (A): • „Er engin vörn í fríverslunar- samningi EFTA-ríkja gegn stór- felldum ríkisstyrkjum Norð- manna til sjávarútvegs"? — „Hvað hyggst ríkisstjómin gera Tómas Kristín l*óróur til að koma í veg fyrir þessa aðför að ísenzkum sjávarútvegi"? — „Kemur norrænt samstarf íslend- ingum að engu gagni í þessum efn-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.