Morgunblaðið - 05.12.1985, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 05.12.1985, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985 7 Bók um Jónas frá Hriflu SAMBAND íslcnskra samvinnufé- laga hefur gefíð út bók í tilefni af aldarafmæli Jónasar Jónssonar frá Hriflu. Gylfí Gröndal hefur annast útgáfuna og skrásett hluta efnisins. Höfundur og viðmælendur eru 26 talsins: Valur Arnþórsson, Erlendur Einarsson, Indriði G. Þorsteinsson, Árni Bjarnason, Finnur Kristjánsson, Þórir Bald- vinsson, Þórarinn Þórarinsson, Jónas Pálsson, Eggert Þór Bern- harðsson, Guðmundur Sveinsson, Sigurvin Einarsson, Jón Sigurðs- son skólastjóri, Baldvin Þ. Krist- jánsson, Haraldur Ólafsson, Halldór E. Sigurðsson, Helgi Skúli Kjartansson, Jón Baldvin Hannibalsson, Andrés Kristjáns- son, Haraldur Matthíasson, Aðal- geir Kristjánsson, Þór White- head, Leifur Sveinsson, Albert Guðmundsson, Halldór Krist- jánsson frá Kirkjubóli, Auður Jónasdóttir og Gerður Steinþórs- dóttir. 1 fréttatilkynningu frá Sam- bandinu segir m.a.: „Hér er um safnarit að ræða sem hefur að A ALDARAFMÆLI ^lönasaar ** M ^Hrífíu Olltl ÓHONIIA Jónasar, en hins vegar persónu- legar minningar manna sem þekktu hann vel og störfuðu með honum. Margt af efni bókarinnar hefur ótvírætt heimildargildi og verður kærkomið, þegar fram líða stundir og farið verður að rann- saka feril Jónasar með vísindaleg- um aðferðum." Ásta Norðmann list- dansari látin Gunnar Dal Ljóðabók eftir Gunnar Dal VÍKURÚTGÁFAN hefur gefið út Ijóðabók eftir Gunnar Dal. Bókin heitir Undir skilningstrénu og eru í henni 34 Ijóð. Þetta er 36. bók Gunnars Dal en ein þeirra, Spámaðurinn (þýdd ljóð), hefur komið út í sex útgáfum. Undir skilningstrénu er 51 blað- síða, setningu og offsetprentun vann Prentsmiðja Árna Valdi- marssonar hf., Bókbandsstofan Örkin hf. batt bókina en kápu- teikning er eftir Kristján Jóhanns- son. Látin er í Reykjavík Ásta Norð- mann, 81 árs að aldri. Ásta var fyrsta íslenska konan sem lærði listdans og stofnsetti fyrsta íslenzka ballettskól- ann á íslandi árið 1929. Ásta Norðmann fæddist á Akur- eyri 1904, dóttir hjónanna Jórunnar Einarsdóttur frá Hraunum í Fljót- um og Jóns Steindórs Norðmanns frá Barði í Fljótum, sem lengst af var kaupmaður á Akureyri. Árið 1921 hélt Ásta utan til náms í list- dansi, sem hún stundaði í Leipzig og ári síðar eða haustið 1922 hóf hún að kenna dans í Bárunni við vestur- horn Tjarnarinnar. Kenndi hún þar bæði barna- og samkvæmisdansa. Þá stóð hún fyrir danssýningum í Iðnó. Ásta Norðmann fór aftur utan 1929 og við heimkomuna stofnsetti hún ballettskóla en jafnframt vann hún mikið við leikhús, hjá Leikfélagi Reykjavíkur í Iðnó er leiksýningar kröfðust dansatriða. Síðasta verk- efnið sem hún vann fyrir leikhús var við opnun Þjóðleikhússins árið 1950, þegar Nýársnóttin eftir Indriða Einarsson var sýnd. Þar samdi hún dansa, vikivaka og álfadansa. Ásta Norðmann var kjörinn fyrsti formaður Félags íslenskra listdans- Ásta Norómann ara 1947 og var formaður félagsins fram til ársins 1952. Hún var kjörin fyrsti heiðursfélagi félagsins árið 1958. Eiginmaður Ástu Norðmann var Egill Árnason stórkaupmaður, sem lést árið 1973. Þau eignuðust þrjú börn. geyma erindi, greinar, ræður og viðtöl við samferðamenn. Efnið er aðallega tvenns konar: Annars vegar fræðileg umfjöllun um ein- staka þætti í stjórnmálastarfi Sól og sumar- veðurá Spáni Fjölmargir íslend- ingar dvelja þar um þessar mundir „HÉR ER sól og sumarveður hvern dag og í gær fór hitinn í 26 stig þegar heitast var,“ segir í skeyti sem Morgunblaðið fékk frá Þórhildi Þorsteinsdóttur í Torre- molinos á Spáni, þar sem margir íslendingar dvelja nú á vegum Ferðaskrifstofunnar Útsýnar. í skeytinu segir að straumur- inn muni enn aukast eftir ára- mótin, því þá fyllist margir gisti- staðir af Bandaríkjamönnum og Kanadamönnum, sem leiti til Torremolinos í hlýjuna þar og lága verðið. Gististaðurinn Benal Beach hefur verið sérstaklega vinsæll, segir Þórhildur, en Útsýn hefur einkaumboð fyrir þann stað á íslandi. Slegist er um íbúðirnar og nýlega hefur fyrirtæki á Norð- urlöndum fest sér 150 íbúðir næstu 5 árin. „íslendingum sem hér eru staddir líður vel og senda bestu kveðjur," segir í lok skeytisins. Bókmenntaþættir eftir Matthías Johannessen Var Sturla Þórðarson höfundur Njálu? Matthías Johannessen leiðir hér rök að því. Fjölmargar aðrar nýstárlegar og snjallar hugmyndir koma hér í fyrsta skipti fyrir sjónir lesenda. Þær eiga án efa eftir að ýta við mörgum og leiða til fjörugra umræðna og heilsusamlegra deilna. Bókmenntaþættir eru víötækt úrval úr bókmcnntaskrifum höfundar. Auk kaflans um íslenskar fornbókmenntir fjallar Matthías um skáldverk 10 kunnra höfunda. Ultima Thule eftir Helfried Weyer og Matthías Johannessen Gullfalleg íslandsbók í máli og myndum. Tveir listamenn snúa bökum saman: Þýski Ijósmyndarinn Weyer og Matthías Johann- essen, skáld. Litmyndir Weyers og ljóð Matthíasar á íslensku og í þýskri túlkun Jóns Laxdals með formála eftir Rolf Hádrich mynda eftirminni- lega heild, þar sem sérkennum íslands er lýst á listrænan hátt. Iwhinnttwn BÓKMENN'VA ÞÆTTIR BOK AUÐVITAÐ ALMENNA BÓKAFÚLAGIÐ, AUSTURSTRÆTI 18, SlMI 25544
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.