Morgunblaðið - 05.12.1985, Side 12

Morgunblaðið - 05.12.1985, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985 Tilraunir Bandaríkjamanna á framleiðslu gerviblóðs: Merkilegt framfaraspor — segir Ólafur Jensson, yfírlæknir Blóðbankans „Það er mjög merkilegt framfara- spor að það skuli hafa tekist að framleiða gerviblóðkorn, sem flytja súrefni um líkamann. Þessar til- raunir Bandaríkjamanna gefa góðar vonir,“ sagði Ólafur Jensson, for- stöðumaður Blóðbankans, inntur álits á nýlegum tilraunum banda- rískra vísindamanna að gefa rottum tilbúin rauð blóðkorn til að flytja súrefni um líkamann. Frá þessu var skýrt á forsíðu Morgunblaðsins sl. sunnudag. ólafur sagði að Japanir hefðu um nokkurt skeið framleitt og sett á markað sérstök efni sem flytja súrefni um blóðið. „Þeir hafa eink- um notað til þess flúor og kolefni, sem bæði bindast súrefni auðveld- lega,“ sagði ólafur. „Sá galli er hins vegar á þessari aðferð að líkaminn á erfitt með að losa sig við aukaefnin aftur, þau vilja safn- ast saman og stífla ræstikerfi lík- amans. Hins vegar er mér kunnugt um að Frakkar eru að gera tilraun- ir með gerviefni til að flytja súr- efni um blóðið, sem líkaminn á auðveldara með að losa sig við,“ sagði Ólafur. Gerviblóðkornin gegna aðeins því hlutverki rauðu blóðkornanna að flytja súrefni til líffæra og vefja. „Það er vafalaust langt í það að hægt.verði að búa til fullkomið gerviblóð, sem gegnir ekki aðeins því hlutverki að bera súrefni. En framfarir í líftækni og sameinda- líffræði eru stórstígar og í fyrra tókst bandarískum vísindamönn- um að einangra genið sem fram- leiðir storkuþátt 8, sem er veiki hlekkurinn í storkukeðjunni hjá sumum dreyrasjúklingum. Með því að flytja genið inn í frumur hefur tekist að framleiða storkuþáttinn," sagði Ólafur Jensson. Til sölu Unimog 416, 352 dísil, árgerö ’72, vönduö og glæsileg bifreiö. Uppl. í síma 46140. esið reglulega af ölmm fjöldanum! Aöalheiður Bjarnfreösdóttir ásamt Ólafi Ragnarssyni, útgefanda. „Lífssaga baráttukonu:“ Bók um lífsferil Aðal- heiðar Bjarnfreðsdóttur LÍFSSAGA baráttukonu nefnist bók um lífsferil Aöalheiöar Bjarnfrcös- dóttur sem Vaka/Helgafell hefur gefið út. Inga Huld Hákonardóttir rithöfundur hefur skráö bókina eftir frásögn Aðalheiöar og öörum heim- ildum. I bókinni segir frá ferli hennar og baráttu í einkalífi og á opinberum vettvangi. í frétt frá útgefanda segir að Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir hafi víða látið að sér kveða í íslensku þjóðlífi á siðustu árum. Hún hafi vakið mikla athygli með kynngi- magnaðri ræðu á útifundinum á Lækjartorgi á kvennafrídaginn 1975. Framganga hennar hafi orð- ið til þess að hún varð kunn víða í nágrannalöndunum en um leið orðið eins konar samnefnari tug- þúsunda íslenskra kvenna sem vildu berjast fyrir jafnrétti og réttlæti. Aðalheiður hefur starfað ötullega innan verkalýðshreyfing- arinnar og fjölda félagasamtaka, valist í trúnaðarstörf og verið formaður Sóknar í tæpan áratug. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir sagði á fundi sem haldinn var með fréttamönnum í tilefni af útkomu bókarinnar, að hún og Inga Huld Hákonardóttir hefðu þekkst frá árinu 1975. „í marsmánuði síðast- liðnum kom Inga Huld til mín og viðraði þá hugmynd að skrifa um mig bók,“ sagði Aðalheiður. „Síðan hefur verið ströng vertíð hjá okk- ur, tíminn naumur og ég afar upptekin. Auk þess að skrá bókina eftir frásögn minni hefur Inga Huldu stuðst mikið við greinar úr blöðum og leitað til margra eftir ráðum og gagnrýni. Málfarið í bók- inni er mitt og ég ber vitanlega ábyrgð á öllum skoðunum en Inga Huld hefur valið efnið í bókina og raðað því saman. Hlutur hennar í þessari bók er því mjög stór,“ sagði Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir. Bókin „Lífssaga baráttukonu" er um 230 bls. að stærð og prýdd um 80 myndum. Setning og prent- un bókarinnar fór fram hjá Prent- stofu Guðmundar Benediktssonar en Bókfell hf. annaðist bókband. Saga tll næsta bæjar ÁSGEIR ÁSGEIRSSON: NÚTÍMASAGA |J| IÐNSKÓLAÚTGÁFAN Nútímasaga fjallar um tímann frá lokum síöari heimsstyrjaldar fram til miös áttunda áratugar — tíma örlaga- ríkra atburöa er móta nú og um óá- kveöna framtíö gang heimsmála og hversdagslíf jaröarbúa. Atómsprengjan. Verðbólguvandinn. Stalín. Kalda stríöið. Olíukreppan. Lech Walesa. Efnahagsbandalagið. Maó. Mengunarvandinn. Kúbudeilan. Fólksfjölgunarvandinn. Iðnskólaútgáfan, sími 12670. „Reymr Pétur og íslandsgangan“ — nýútkomin bók um göngugarpinn sem Eðvard Ingólfsson skráði úr dagbók göngunnar og dagblöö- um. f síöasta hlutanum er viðtal við göngugarpinn sjálfan. Fjöldi mynda prýðir bókina sem teknar eru af hinum ýmsu blaða- ljósmyndurum og hafa þeir allir veitt leyfi fyrir birtingu mynda sinna án endurgjalds. Auglýsinga- stofan Mídas sá um umbrot bókar- innar og Auglýsingastofa ólafs Stephensen sá um hönnun bókar- kápu. Prentsmiðjan Hólar hf. prentaði og Skálholtsútgáfan gef- ur bókina út. Ákveðinn hluti af því sem inn kemur vegna sögu bókarinnar rennur til Sólheimasöfnunarinnar, eða um 40 krónur af hverri bók. Verð hennar út úr búð er 785 krón- ur. Prentuð voru 3.000 eintök. Halldór Júlíusson, forstöðumað- ur Sólheima, sagði að búið væri að steypa upp alla veggi íþrótta- hússins nú og gert væri ráð fyrir að það yrði fokhelt í janúar nk. Vonast er til að hægt verði að vígja íþróttahúsið á sumardaginn fyrsta. „Ó, Guð hjálpi mér. Hér kemur samkoman á Lækjartorgi og þarna kemur hann Ómar vinur minn,“ hélt Reynir Pétur áfram er hann blaðaði í nýju bókinni sinni. „Sjá- iði, þetta hlýtur að vekja um- hugsun meðal þjóðarinnar," segir Reynir Pétur og bendir á fyrirsögn í bókinni sem segir: „Ég er engu minni maður en aðrir þótt ég sé fatlaður." Reynir Pétur sagðist vera hæst ánægður með bókina, „Ég þarf að panta 25-30 eintök til að gefa öllum ættingjum mínum í jólagjöf, en mikið held ég að hún Hanný, kærastan mín, verði ánægð með allar myndirnar af sér í bókinni." Reynir Pétur verður í verslun- inni Kirkjuhúsinu, Klapparstíg 27, nk. laugardag og áritar bókina fyrir þá sem það vilja. Bókin verð- ur þó fáanleg í öllum öðrum bóka- verslunum. „ÉG ER aö deyja úr forvitni," sagði göngugarpurinn Reynir Pétur Ingv- arsson er honum var afhent eintak af nýútkominni bók, sem ber nafnið „Reynir Pétur og íslandsgangan“, á blaðamannafundi í gær. Eðvarð Ingólfsson skráði bókina og skiptist hún í þrjá meginkafla. Sagt er lítil- lega frá Sólheimum í byrjun henn- ar. Þá er Reyni Pétri fylgt eftir á göngunni hringinn í kringum landiö sl. sumar, sem byggist á úrdráttum Morgunblaöið/Bjarni Reynir Pétur Ingvarsson kampakátur meö nýju bókina sína „Reynir Pétur og íslandsgangan“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.