Morgunblaðið - 05.12.1985, Side 23

Morgunblaðið - 05.12.1985, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985 23 Sýning á glerlist í Jónshúsi Jóiutaúsi, 27. aÓTember. NÚ STENDUR yfir I Jónshúsi sýn- ing á verkum glerlistakonunnar Piu Rakelar Sverrisdóttur. Var sýningin opnuð 15. nóvember og eru þar bæði vegg- og gluggaskreytingar og skilar, fagrir og óvenjulegir munir og hafa nokkrir þeirra þegar selzt Pia Rakel er fædd í Edinborg 1953 og fluttist barn að aldri með foreldrum sínum til íslands. List- nám sitt hefur hún lengst af stund- að hér í Kaupmannahöfn, fyrst við Det Kongelige Kunstakademi frá 1973 til 1979 og síðar í Skolen for Brugskunst 1980—1982, en 1979 var hún nemandi í glerlistarskól- anum í Orrefors í Svíþjóð. Þá fékk hún námsstyrk 1984 til starfa í „workshop" með þekktum lista- mönnum í Pilchuck í Washington. Undanfarin 2 ár hefur listakon- an haft eigið verkstæði og er nú fyrir skemmstu flutt í nýtt verk- stæði á Nörrebro. Hún vinnur glerið með því að bræða það í keramískum ofni, en blæs það ekki eins og algengt er, og gerir einnig skreytingar með sandblástursað- Ljósmynd/Nanna Btichert Skái geró af Piu Rakel Sverrisdótt- ur. Morgunblaðiö/Hrönn Axelsdóttir Eitt listaverkanna sem eru á sýning- unni í Kaupmannahöfn. ferð. Pia helgar sig einkum gerð glertextila og skála með fjölbreyti- legu og fíngerðu mynstri. í bæklingnum Glerbrot ’85, sem gefinn var út um íslenzka glerlist með styrk frá menntamálaráðu- neytinu, segir Pia Rakel m.a. í viðtali við Aðalstein Ingólfsson: „Gler höfðar til mín vegna tvíeðlis síns. Annars vegar er það fljótandi og heitt, hins vegar hart og kalt. En þótt það sé hart, hefur það til að bera mjúka, næstum ósýnilega hrynjandi, sem kallar á mann. Gagnsæi þess svo og ljósbrotið í því skiptir mig mestu. Ég reyni að byggja upp glerfleti þannig að ljósið brotni í þeim eins og í vatni. Efnið er fast en í því er samt flæði. Þannig líkist það lífinu sjálfu." Verk Piu hafa prýtt fjölmargar list- og listiðnaðarsýningar í 5 löndum og voru hinar síðustu í Listiðnaðarsafninu í Kaupmanna- höfn í sumar og í Alkmaar í Hol- landi í september. Hlotnaðist henni mikill heiður, er verk hennar voru valin til sýningar á hinni frægu glerlistarsýningu í Coburg í Þýzkalandi. Ýmis listasöfn og félög hafa keypt verk Piu Rakelar, þ. á m. af vorsýningunni 1985 á Charlottenborg, eins og þá greindi frá hér í blaðinu. Er sýning lista- konunnar í Jónshúsi 11. sýningin, sem hún tekur þátt i á árinu, og mun glerlist hennar verða til sýnis hér fram í miðjan desember. G.LÁsg. Viðtalstími borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Borgarfulltrúar Sjálfstæöisflokksins veröa til viötals í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá kl. 10—12. Er þar tekiö á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum boöiö aö notfæra sér viötalstíma þessa. Laugardaginn 7. des. veröa til viðtals Sigurjón Fjeldsted formaöur veitustofnana Reykjavíkur og SVR og I stjórn fræösluráös, Margrét S. Einarsdóttir varaf ormaöur heilbrigó- isráös og {stórn fólagsmálaráös og dagvistunarstofnunar Reykjavíkurborgar og Vilhjálmur G. Vilhjálmsson fulltrúi ( umhverfismálaráöi og félagsmálaráöi. ÍSLENSK ALMANÖK Vönduð íslensk almanök til vina og viöskiptamanna um jöl og áramót. Útsölustaöir: Kamniageröin og hokaverslanirnar. SEjmTJUM í póstkröfu Pósthólf 20 - 270 Varmá - Simi 91-666620 - JÓLIN NALGAST og því er ekki seinna vænna aö fara aö huga að jolaundirbun- ingnum. Viö erum reiöubúin til aöstoöar. < Viljum aöeins minna á aö þaö er óþarft aö þeytast um allt þegar hægt er aö fá allt til jólanna í einni ferö i Vöruhús Vesturlands. HATVÖRUDEILD Það er löngu orðinn þjóðlegur siður að gera vel við sig og sína í mat um hátíðarnar. Við höfum á boð- stólum alla matvöru, hátíðarmat sem meðlæti. Og vitaskuld alla hreinlætisvöru. Sem sagt: Allt sem til þarf. VEFNAÐARVÖRUDEILD Jólakötturinn gengur ekki laus lengur. Og þó svo væri þyrfti enginn að lenda í honum því við eigum fjölbreytt úrval fatnaðar á alla fjöl- skylduna. Til dæmis buxur og skyrtur frá Melka. Einnig skóáalla fjölskylduna. (stuttu máli sagt: Allan fatnað, frá toppi til táar, yst sem innst. GJAFAVÖRUDEILD Láttu ekki tal um gjafaaustur jól- anna slá þig út af laginu. Það er góður siður að gleðja aðra. Líttu inn í gjafavörudeildina hjá okkur og þu sannfærist um að jólagjafir eiga fullan rétt á sér. Við eigum ávallt smekklegt úrval gjafavöru, s.s. bækur, leikföng, búsáhöld o.fl. RAFTÆKJA- OG SPORTVÖRUDEILD Hafi einhver haldið að gjafavara fengist aðeins í gjafavörudeildinni leiðréttist það hér með. í sportvöru- og raftækjadeild fæst fjölbreytt úrval raftækja og tómstundavöru. Nyt- samar jólagjafir, smáarog stórar. Og hér velur fjölskyldan sjálfri sér stór- gjöfina. BYGGINCAVÖRUDEILD Það eru ekki bara húsbyggjend- ur sem eiga erindi við okkur. í byggingavörudeild Vöruhúss Vest- urlands sást sjálfur jólasveinninn velja sér 1. flokks áhöld til leik- fangasmíðinnar. Þannig tekur bygg- ingavörudeildin ekki hvað minnstan þátt í jólaundirbúningnum. Góð áhöld gleðja alla. Það er óneitanlega kostur að fá allt sem þarf í einni ferð. Ferð í Vöruhús Vesturlands sparar sporin og er þess vegna ferð til fjár. Vöruhús Vesturlands Borgarnesi sími 93-7200

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.