Morgunblaðið - 05.12.1985, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985
31
Sonja Korkeala Katinka Korkeala
Arshátíð Finnlands-
vinafélagsins
Finnlandsvinafélagið Suomi
heldur árshátíð sína í Norræna
húsinu fóstudaginn 6. desember
klukkan 20.30.
Helstu dagskrárliðir eru þeir,
að Anders Jakob Huldén, sendi-
herra Finnlands, heldur ræðu,
Anna Júlíana Sveinsdóttir
óperusöngkona syngur við undir-
leik Jónasar Ingimundarsonar og
tvíburasysturnar Sonja og
Katinka Korkeala leika á fiðlur.
Þær eru að ljúka námi við Síbel-
íusarakademíuna í Helsingfors
og hafa unnið til verðlauna m.a.
í alþjóðlegri tónlistarkeppni í
Prag á sl. vori, þó að ekki séu
þær nema sextán ára.
Að lokinni dagskrá verður
sameiginlegur kvöldverður.
Nýr varnarmálaráðherra
Berlín, Austur-Þýskalandi, 3. desember. AP.
HEINZ Kessler, hershöfðingi, hefur
verið skipaður varnarmálaráðherra
Austur-Þýskalands og eftirmaður
Heinz Hoffmanns, sem lést sl.
mánudag.
Heinz Kessler tók þátt í innrás
Þjóðverja í Sovétríkin árið 1941
en flýði yfir til Sovétmanna og
barðist með þeim allt til stríðsloka.
Eftir stríð varð hann áhrifamaður
í austur-þýska kommúnistaflokkn-
um, skipaður aðstoðarvarnarmála-
ráðherra árið 1957 og á árunum
1976—79 var hann aðstoðaryfir-
maður herja Varsjárbandalags-
ríkjanna. Kessler hefur einnig
verið yfirmaður stjórnmáladeildar
austur-þýska „alþýðuhersins" eins
og hann heitir austur þar.
Vantar þig kassabindivél?
eða bönd
Plasl.os liF
Bíldshöfða 10.
91-82655/671900.
Ókeypis rútu-
ferð - meira
pláss í vélinni
A fimmtudögum og iaugar-
dögum býöst farþegum Arnar-
flugs ókeypis rútuferð frá flug-
velli á hótelin: Pulltzer, Vlctoria
Apollo, Owl, Novhotel og á
Crest hótelin: Rembrandt,
Carlton, Schlller, Doelen og Car-
ansa.
Nú höfum vlð faekkað sætum í
véllnnl svo farþegar hafa melra
pláss.
Verslunaiboigin
Amsterdam
- þar sem tískufötin fást
ARNARFLUG
Utgmúia 7. tlmi 84477
Jafnvel þeim sem hata aö
versla finnst það þolanlegt í
Amsterdam. Fyrir þá sem
hafa gaman af því er þetta
sannkölluð draumaborg. í
Amsterdam eru mörg versl-
unarhverfi og hvert þeirra
hefur sinn sjarma. Þau liggja
hins vegar nokkuð þétt sam-
an og það er nóg af litlum
krám og kaffihúsum til að
hvíla sig á, þannig að leið-
angurinn verður ekki þreyt-
andi.
Frægasta verslunarhverfið
er í miðborginni, milli Nieu-
wendijk og Rembrandt-torgs.
Þar er meðal annars Kalver-
straat sem er Ifklega vinsæl-
asta göngugata í Amster-
dam enda er þar verslun í
nánast hverju húsi.
í Kalverstraat og raunar
líka við Nieuwendijk er hver
tískuverslunin við aðra og
þar er nýjasti tískufatnaður-
Inn í boði á mjög hagstæðu
verði. Við P.C. Hooftstraat eru
dýrari verslanir en þar eru
líka vörur frá frægustu og
fínustu tískuhúsum heims-
ins.
í verslunarhverfunum eru
til stórar verslunarhallir en
langmest er þó um minni
sérverslanir sem se[ja allt milli
himins og jarðar. í Amster-
dam eru líka margir stór-
skemmtilegir markaðir sem
versla með allt frá pottum og
pönnum upp í dýrmætar
antikvörur. Svo má auðvitað
ekki gleyma því að fríhöfnin
á Schiphol er sú ódýrasta í
heimi og hefur á boðstólum
yfir 50.000 vörutegundir.
Athugið að Arnarflug getur
útvegað bæði fyrsta flokks
hótel og bílaleigubíla á
miklu lægra verði en einstakl-
ingar geta fengið.
Nánari upplýsingar hjá
ferðaskrifstofunum og á
söluskrifstofu Arnarflugs.