Morgunblaðið - 05.12.1985, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985
43
Efri deild:
Loforð og efndir
stjórnmálamanna
eða fylgja þeim sem fram kunna
að koma.
Eiður Guönason (A) kvaddi sér
hljóðs við umræðuna og vakti
athygli á viðtali við núverandi
iðnaðarráðherra og fyrrverandi
fjármálaráðherra Albert Guð-
mundsson í Verslunartíðindum 3.
tbl. 1985. Þar er orðrétt haft eftir
ráðherranum: „Það skal standa að
þessi skattur á verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði fellur niður eins og
lofað hefur verið." Þingmaðurinn
kvað þetta enn eitt dæmið um
hvernig stjórnarherrarnir lofuðu
og lofuðu kjósendum sínum einu
og öðru, en sviku það jafnharðan
aftur. Nefndi hann í framhaldi af
því fleiri loforð, sem ráðherrar
núverandi ríkisstjórnar hefðu ekki
staðið við.
FRUMVARP ríkisstjórnarinnar um
sérstakan skatt á verslunar- og
skrifstofnhúsnæði var afgreitt til
þriöju umræóu í efri deild Alþingis
í gær.
Fyrir deildarfundinum lá nefnd-
arálit fjárhags- og viðskiptanefnd-
ar e.d. þar sem lagt er til að frv.
verði samþykkt. Tekið er fram að
einstakir nefndarmenn áskilji sér
rétt til að flytja breytingartillögur
Skiptar skoðanir um setu
þingmanna í bankaráðum
Ætti að breyta viðskiptabönkum ríkisins í almenningshlutafélög?
FRUMVARP Guömundar Einarssonar (BJ) um breytingu á lögum um viö-
skiptabanka kom til fyrstu umræöu í neöri deild Alþingis í gær. Frumvarpiö
felur í sér að framvegis sitji alþingismenn ekki í bankaráðum ríkisbank-
anna og viðskiptaráðherra skipi í bankaráöin.
Þingmaðurinn fylgdi frumvarp-
inu úr hlaði og áréttaði það sem
fram kemur í greinargerð, að beint
tilefni að því að það kæmi nú fram
væri Hafskipsmálið svonefnda.
Kvað hann það óviðunandi að
alþingismenn, eða menn kosnir af
Alþingi, væru aðilar að máli, þar
sem mikilvæg atriði fengjust ekki
rædd opinberlega, en alls kyns
sögusagnir væru í gangi, þ. á m.
um að verið væri að koma eignum
undan.
Jóhanna Siguróardóttir (A)sagði
að ýmsir alvarlegir gallar væru á
bankalöggjöfinni. Alþingi yrði að
sinna aðhaldshlutverki sínu með
hertri löggjöf og virkara eftirliti.
Tiliögur stjórnarandstöðunnar þar
að lútandi hefðu því miður verið
felldar á síðasta þingi.
Þingmaðurinn boðaði að innan-
skamms mundi hún flytja frum-
varp, sem bannaði viðskiptabönk-
unum að lána nema ákveðið hlut-
fall af eigin fé sínu. Hún kvað
nauðsynlegt að efla sjálfstæði
Bankaeftirlitsins.
Þingmaðurinn sagðist styðja
það, að þingmenn sætu ekki í
bankaráðum viðskiptabankanna,
en hún hefði efasemdir um að rétt
væri að ráðherra skipaði í banka-
ráðin þess í stað. Kvað hún ekki
víst að slík tilfærsla breytti því
sem flutningsmaður stefndi að.
Páll Pétursson (F) sagðist vera
mótfallinn frumvarpinu. Kvaðst
hann treysta núverandi og fyrrver-
andi viðskiptaráðherrum ágæt-
lega, en alls ekkert betur en al-
þingismönnum til að gæta nauð-
synlegs pólitísks jafnvægis í
bankaráðunum og skipa þau hæf-
um mönnum. Hann sagði að nauð-
synlegt væri, að alþingismenn
sætu í bankaráði Seðlabankans,
enda væri það pólitísk stofnun, og
þótt hann væri ekki sérstakur
talsmaður þess að þingmenn sætu
í bankaráðum viðskiptabankanna
vildi hann ekki útiloka þann mögu-
leika. Þeir væru ekkert vanhæfari
til þess starfa en aðrir borgarar
og mótmælti hann „ósvífnum að-
dróttunum" flutningsmanns í þá
veru.
Þingmaðurinn lýsti þeirri skoð-
un, að taka bæri Bankaeftirlitið út
úr Seðlabankanum og gera það að
öflugri, sjálfstæðri stofnun.
Loks sagði Páll Pétursson að
Hafskipsmálið væri ekki flokks-
mál Framsóknarflokksins, en þar
hefðu verið gerð mistök sem læra
mætti af. Þau bæri hins vegar
ekki að skrifa á reikning núverandi
bankaráðs og bankastjórnar Út-
vegsbankans, því þetta mál hefði
átt langan aðdraganda.
Guðrún Helgadóttir (Abl.) kvaðst
í meginatriðum hlynnt frumvarp-
inu, en sagði að vel mætti vera að
athuga þyrfti betur hvernig standa
bæri að skipun í bankaráðin.
Bankaleynd og seta alþingismanna
í bankaráðum væri algerlega í
andstöðu hvort við annað.
Þingmaðurinn kvaðst hafa í
smíðum f.h. Alþýðubandalagsins
frumvarp um að Bankaeftirlitið
yrði sjálfstæð stofnun, og boðaði
að það yrði lagt fram innan
skamms.
Þá sagði þingmaðurinn að á
sínum tíma hefði Alþingi verið
fengið til að samþykkja erlent lán
handa Útvegsbankanum, að upp-
hæð fimm milljarðar króna. Þá
hefði verið sagt, að lánið væri tekin
vegna erfiðleika sem bankinn hefði
lent í vegna rekstrarerfiðleika í
sjávarútvegi. Nú væri íslensk al-
þýða að borga af þessu láni, því
peningarnir hefði farið í hítina.
Logið hefði verið að Alþingi við
afgreiðslu þessa máls. Gaf þing-
maðurinn í skyn að lánið hefði
verið tekið vegna fyrirgreiðslu til
Hafskips.
Jón Baldvin Hannibalsson (A)
kvaðst samþykkur því að þing-
menn sætu ekki í bankaráðum
viðskiptabankanna. Aftur á móti
leysti ákvæðið um að viðskiptaráð-
herra skipaði í bankaráðin ekki
þann vanda, sem flutningsmaður
hefði vakið athygli á, og varðar
pólitískar freistingar bankaráðs-
manna sem eru í stjórnmálum eða
Fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins:
Heimild til fóstur-
eyðinga verði þrengd
Ákvæði um „félagslegar ástæður“ faili brott
FJÓRIR þingmenn Sjálfstæðisflokksins lögðu í gær fram í efri
deild frumvarp til laga, sem felur í sér að þrengd er heimild til
fóstureyðinga.
Samkvæmt gildandi lögum um
ráðgjöf og fræðslu varðandi kyn-
líf og barneignir og um fóstureyð-
ingar og ófrjósemisaðgerðir er
fóstureyðing heimiluð af þrenns
konar ástæðum, þ.e. í fyrsta lagi
af félagslegum ástæðum, í öðru
lagi af læknisfræðilegum ástæð-
um og í þriðja lagi ef konu hefur
Verið nauðgað eða hún orðið
þunguð sem afleiðing af refsi-
verðu atferli.
Með frumvarpinu er lagt til að
fella niður að félagslegar ástæður
geti heimilað fóstureyðingu.
í greinargerð segja flutnings-
mennirnir, Þorvaldur Garðar
Kristjánsson, Salome Þorkels-
dóttir, Egill Jónsson og Árni
Johnsen, að félagslegar ástæður
eigi ekki að réttlæta fóstureyð-
ingu. „í fyrsta lagi eru félagslegar
ástæður ákaflega teygjanlegt
hugtak. í öðru lagi á að bæta úr
félagslegum ástæðum með öðrum
hætti en að tortíma mannlegu
lífi.“
Samhliða þessu frumvarpi
flytja sömu þingmenn frumvarp
til laga um breytingu á lögum um
almannatryggingar, sem felur í
sér félagslegar ráðstafanir, sem
er ætlað að bæta úr þeim félags-
legu ástæðum sem nú geta sam-
kvæmt lögum heimilað fóstureyð-
ingu. Frumvarpið hefði m.a. í för
með sér að mæðralaun hækkuðu
og tekin yrði upp ný bótagreiðsla
til einstæðra mæðra vegna þeirr-
ar röskunar á stöðu og högum sem
barnsburður veldur þeim.
tengdir stjórnmálaflokkum.
Hvers vegna ekki ganga lengra?
spurði þingmaðurinn. Til hvers
höfum við eiginlega ríkisbanka?
Er þörf fyrir þá? Hann rakti
ástæður þess að fyrsti íslenski
bankinn var ríkisbanki og stklaði
á þróun bankastofnunar á síðustu
árum. Niðurstaða hans var sú, að
leggja bæri ríkisbankana niður og
gera þá að almenningshlutafélög-
um. I dæmi Landsbanka íslands
mætti t.d. útbúa skuldabréf á
grundvelli eigin fjár bankans og
senda öllum fjárráða íslendingum.
Taldi hann að þar gæti verið um
upphæð á bilinu 6—8 þús. kr. að.
ræða á hverju bréfi. Menn gætu
síðan selt þessi bréf, ef þeir kysu,
á opnum verðbréfamarkaði á því
verði sem þar yrði ákveðið. Eig-
endur bankans gætu síðan myndað
með sér félag og kosið bankaráð
og bankastjórn í almennri kosn-
ingu.
Guðmundur Einarsson (BJ) tók
undir með Jóni Baldvin um að
breyta ríkisbönkunum í almenn-
ingshlutafélög og vakti athygli á
því að hann hefði lagt hið sama
til í frumvarpi, sem flutt var á
síðasta þingi, en náði ekki fram
að ganga.
Bankar eru nú mjög í sviðsljós-
inu og á það ekki síst við um Út-
vegsbankann, sem stendur illa
vegna skulda Hafskips hf.
Fleiri þingmenn tóku í sama
streng og Eiður. Karl Steinar
Guðnason (A) sagði, að svona
vinnubrögð sköpuðu ímynd al-
mennings af stjórnmálamönnum,
„og ég vænti þess að þeir sem að
þessu standa fái verðuga ráðningu
í næstu kosningum".
Fyrirspurn:
Greiðslur
til VSÍ
HJÖRLEIFUR Guttormsson
(Abl.) hefur lagt fram í sameinuðu
þingi fyrirpurn til forsætisráð-
herra um greiðslur til Vinnuveit-
endasambands Islands.
Þingmaðurinn spyr: 1. Hvaða
ríkisfyrirtæki og önnur fyrirtæki
með eignaraðild ríkisins hafa í tíð
núverandi ríkisstjórnar gerst aðil-
ar að Vinnuveitendasambandi ís-
lands og greiða til þess félags-
gjöld? 2. Um hversu háar greiðslur
hefur verið að ræða ár hvert
1983—1985 frá hverju Jþessara
fyrirtækja? 3. Hvað hefur fslenska
álfélagið hf. (ísal) greitt til Vinnu-
veitendasambandsins í félagsgjöld
á þessu sama tímabili?
„í ríkisbanka er
áhættan engin“
AUGLÝSING frá Útvegsbank-
anum, sem birtist á bls. 19 hér
í blaðinu í gær undir fyrirsögn-
inni „Láttu næstu átján mánuði
skila þér drjúgum arði“, var gerð
að umtalsefni í neðri deild Al-
þingis í gær.
Guðmundur Einarsson (BJ)
vakti athygli á því í umræðum
um frumvarp hans um viðskipta-
banka, en í auglýsingu þessari
segði að miðað við stuttan bindi-
tíma sparifjár byði enginn banki
betri ávöxtun en Útvegsbankinn
nú — „og í ríkisbanka er áhætta
engin" stæði síðan orðrétt. Þótti
þingmanninum þetta fáheyrð
ósvífni í Ijósi umræðna að undan-
förnu um erfiðleika bankans og
hugsanlegt gjaldþrot.
Páll Pétursson (F) sagði, að
auglýsingastjórar Útvegsbank-
ans væru í meira lagi spaugsamir
að slá á þessa strengi nú um
stundir.