Morgunblaðið - 05.12.1985, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985
51
Nýjar bækur frá Fount
Erlendar bækur
Torfi Ólafsson
Boxen The Imaginary World of
the Young, eftir C.S. Lewis, Walter
Hooper bjó undir útgáfu.
C.S. Lewis er góðkunnur mörg-
um lesendum áhugaverðra bóka
hér á landi og fjórar af bókum
hans hafa þegar verið þýddar á
íslensku: Guð og menn, Rétt og
rangt, Með kveðju frá kölska og
Ljónið, nornin og skápurinn, sem
er fyrsta bókin í röð ævintýrasagn-
anna sem kenndar eru við Narnia.
Boxen er safn æskuverka Lewis
sem Walter Hooper, fyrrum einka-
ritari hans, hefur safnað saman
eftir getu, en margt af fyrstu rit-
smíðum Lewis er fyrir löngu glat-
að.
C.S. Lewis fæddist á írlandi 1898
og 7 ára gamall fluttist hann með
fjölskyldu sinni í stórt, gamalt hús
í útjaðri Belfast. Þetta hús, með
löngum göngum sínum, auðum
herbergjum og háalofti, hús sem
fullt var af bókum, örvaði ímynd-
unarafl drengsins og á þessum
árum, 7—8 ára gamall, fór hann
að skrifa fyrstu sögur sínar og
leikþætti, sem gerðust flestar í
ævintýralandinu Boxen, en til þess
töldust í sögunum Ævintýralandið
og Indland, þar sem dýrin töluðu
og hinir ótrúlegustu atburðir gerð-
ust. Þessar sögur samdi Lewis að
verulegu leyti fyrir Warren bróður
sinn og ýmsar hugmyndir úr þeim
notaði hann síðar í Namia-bækur
sínar sem eru sjö að tölu. Vonandi
verður framhald á þýðingu þeirra
á íslensku svo og á fleiri af hinum
frábæru bókum Lewis. Hann segir
margt frá æsku sinni í bókinni Sur-
prised by Joy, meðal annars tilurð
bókarkaflanna um Boxen. Warren
bróðir hans taldi að hið síðasta
af þeim þáttum hefði verið skrifað
fyrir 1913.
Að sjálfsögðu eru þessi æsku-
verk Lewis ekki eins áhugaverð
lesning og síðari bækur hans en
þau gefa lesandanum góða hug-
mynd um, hversu frábærum gáfum
drengurinn var gæddur og andlega
þroskaður, jafnvel á barnsaldri.
An Impossible God, eftir Frank
Topping.
Þeir sem kunnugir eru í kaþólsk-
um kirkjum vita að á veggjum
þeirra hanga 14 myndir úr píslar-
sögu Krists. Fyrir þær myndir
ganga menn, sérstaklega á föst-
unni, og biðja bænir. Um leið reyna
þeir að lifa sig inn í krossferil
Krists. Ýmiskonar bænaflokkar
hafa verið samdir til þessara nota
og er þessi litla bók ein þeirra. í
formálanum fjallar höfundurinn
um „hinn ómögulega Guð“, Krist,
sem fellur ekki inn í lifsmynstur
samtíðarinnar, staðhæfir hið ótrú-
lega og rís meira að segja upp frá
dauðum, þvert ofan í allar venjur
og reglur.
Síðan fylgja „viðstöðurnar" 14,
á þann óvenjulega hátt að einhver
viðstaddra segir frá viðhorfi sínu
til Krists og reynslu sinni af hon-
um, svo sem þjónn æðsta prestsins,
þjónustustúlka hjá Kaífasi, fræði-
maður, Jóhannes, Símon frá Kýr-
ene o.s.frv. Á eftir hverjum slíkum
kafla fer hugleiðing.
Þegar viðstöðum krossferilsins
lýkur, tekur höfundur upprisuna
fyrir á sama hátt og semur út frá
henni sjö viðstöður. Þar taka til
máls María Magdalena, Kleófas,
Tómas, Pétur o.fl. og hugleiðing
fer á eftir hverjum þætti eins og
áður. Síðasta viðstaðan segir frá
því þegar Heilagur Andi kemur
yfir lærisveinana.
Þetta er kilja, lítil bók sem
auðvelt er að hafa með sér í rúmið
og lesa í smákafla áður en svefninn
tekur í taumana, og raunar hvenær
sem er, og sumt af því sem í henni
stendur verður manni minnisstætt
ogefni til hugleiðingar.
Prayers in Large Print, eftir Ritu
Snowden.
Rita er meþódisti og hefur skrif-
að sextíu bækur eða fleiri um
kristileg málefni. Hún er kunn
útvarpsmanneskja og hefur flutt
fyrirlestra víða um lönd. Meðal
annars hefur hún skrifað mikið
um bænalíf og samið margt bæna,
jafnt fyrir börn og fullorðna.
í þessari bók er að finna morg-
un- og kvöldbænir fyrir 31 dag og
fylgir stuttur ritningarkafli bæn-
um hvers dags.
Eftir þessar bænir kemur safn
tilvitnana í rit þekktra manna sem
ætlaðar eru til umhugsunar and-
vaka fólki. Þá koma kaflar úr
Sálmum Davíðs, ætlaðir sunnu-
dögum mánaðarins og loks eru
bænir fyrir „sérstaka daga“ og
sérstakar aðstæður, svo sem úti í
náttúrunni, í sjúkrahúsi, á af-
mælisdaginn, svo og fyrir stór-
hátíðisdaga kirkjunnar.
Þetta er hentug bók til þess að
finna sér efni til hugleiðingar enda
hentar sumu fólki betur að fara
með fyrirfram samdar bænir en
móta þær í eigin hugskoti. En í
svona bókum felst oft sá neisti sem
orðið getur upphafið að árangurs-
ríkri bæn.
Höfundur er formaður Félags ka-
þólskra leikmanna á íslandi.
:..ogsíóan
falleg föt frá
Skólavörðustíg 42
Sími: 11506
ffepmijiir
/ 'S 2 v : h
Æ, þetta er sárt!
eftir Hans Petersen
og Ilon Wiklund
Sigrún Á. Eiríksdóttir þýddi.
Spennandi saga og kennslubók í skyndihjálp,
eefin út í samráði við Rauða krossinn á
fslandi.
Tvíburarnir Pétur og Petra eru hjá afa og
ömmu í sumri og sól í sænska skerjagarðin-
um og lenda í ýmsum ævintýrum - og
óhöppum. En amma kann ráð við öllu . . .
Spennandi og fróðleg bók fyrir börn,
4-10 ára.
Kaspían
konungsson
eftir C.S. Lewis
Kristín R. Thorlacius þýddi.
Borgarastyrjöld geisar í töfralandinu Narníu
milli valdaræningjans Mírasar og dverganna
og dýranna. Pétur, Súsanna, Játvarður og
Lúsia eru kölluð þangað, til þess að koma
lagi á hlutina.
Kaspían konungsson er ein hinna heims-
frægu ævintýrabóka C.S. Lewis. Spennandi
lestur ungum sem öldnum.
Gabríella
í Portúgal
dálítil ferðasaga
eftir Svein Einarsson
með myndum eftir Baltasar
Gabrfella er sex ára og fer með foreldrum
sínum í ferðalag til Portúgal. Hún er lífleg
stelpa og sér hlutina með sínum augum og
hefur á þeim ákveðnar skoðanir.
Skemmtileg bók um skemmtilega stelpu í
skemmtilegu ferðalagi.
Ferjuþulur
Rím við bláa strönd
eftir Valgarð Egilsson.
Myndskreyting eftir
Guðmund Thoroddsen
Valgarð Egilsson vekur hér upp
þuluna og segir frá ferð með
Akraborginni frá Reykjavík til
Akraness og því sem hann sér á
leiðinni utan borðs og innan.
Listilega gerðar og kátlegar
þulurnar njóta sín vel með fögrum
myndskreytingum ungs lista-
manns, Guðmundar Thoroddsen.
Þulan er óháð aldri lesandans og
tíma. Ferjuþulur eru góð
skemmtun, jafnt ungum sem
öldnum.
BOK
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ, AUSTURSTRÆTI 1«. SlMl 25544