Morgunblaðið - 05.12.1985, Page 52

Morgunblaðið - 05.12.1985, Page 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985 Starf kirkjusafnaða — eftir Ingibjörgu Helgadóttur Vegna umræðna um kirkjubygg- ingar að undanförnu, bæði opin- berlega og ekki síður manna á milli langar mig að leggja þar orð íbelg. Margir virðast álíta of mikið byggt af kirkjum, aðallega hér á höfuðborgarsvæðinu. Er þá gjarn- an lagt til að líknarstofnanir t.d. Hjálparstofnun kirkjunnar fengju til starfs síns þá fjármuni sem til þeirra fara. Eftir opinberum heim- ildum er staðreyndin sú að kirkju- byggingar eru kostaðar meira en 90% með frjálsum framlögum safnaðanna sjálfra, og alls ekki sjálfgefið að það fé færi allt til líknarmála þó hætt væri að byggja kirkjur. Þ6 munu þeir sem til kirkna gefa, ekki síður en aðrir, leggja þeim málefnum lið er til heilla horfa, svo sem ýmsum líkn- armálum. Hvað margir gæfu yfirleitt til slíkra mála ef kristin trú hefði ekki mótað hugarfar fólks um margar aldir svo sem er enn í dag, Guði sé lof. Yrði kristni hér til frambúðar ef ekki væru byggðar kirkjur? Oft er vitnað í skoðanakönnun á trúarlifi íslendinga og hún sögð sanna litla kirkjusókn. Víst væri æskilegt að fleiri kæmu reglulega „Mjög oft eru kirkju- legar athafnir eða önn- ur starfsemi á tveimur eða fleiri stöðum í hús- inu samtímis og sýnir glöggt nýtingu á húsa- kynnum kirkjunnar.“ til kirkju sinnar og hlýddu á Guðs orð og nærðu þannig trúarlíf sitt. Hinu skyldi þó ekki gleymt að kirkjusókn er ekki minni en svo, samkvæmt opinberri könnun, að nokkur hundruð þúsund vitjanir munu vera í kirkjur landsins ár- lega. (Haraldur Ólafsson lektor). Mjög væri erfiðleikum bundið hjá fólki í úthverfum Reykjavíkur að sækja guðsþjónustur í kirkjur eldri hverfa, ekki síst fyrir börnin og gamla fólkið sem mest og best sækja þær. Mikil og fjölbreytt starfsemi fer einnig fram á vegum safnaðanna í félagsheimilum þeirra. Mikið af henni er fyrir gamla fólkið sem erfiðast á og jafnvel ómögulegt um langvegu að sækja, en mest þarf á þeirri þjón- ustu að halda sér til gagns og skemmtunar. Þar sem ég hef oft orðið vör við litla vitneskju hjá fólki um þessi mál, mun ég nú segja hvernig þeim er háttað í Neskirkju, minni sókn- arkirkju, sem ég þekki vel til, en er aðeins þiggjandi þjónustunnar. Að sjálfsögðu fara messur og aðrar helgar athafnir fram í sjálfri kirkiunni og kapellu, en aðrar samkomur í safnaðarheimilinu í kjallara kirkjunnar. Þar er stór salur ásamt tveim minni, einnig eldhús. Tveir ágætir prestar boða þar hreina kristna trú og eru guðs- þjónustur vel sóttar. Algengt er að 120—150 manns sæki venjuleg- ar guðsþjónustur. Altarisganga er einu sinni í mánuði með þátttöku 70—80 manns, og miklu neiri við sérstök tækifæri. Hvern miðviku- dag árið um kring eru bænamess- ur, þar sem beðið er fyrir sjúkum. Ákaflega margir þiggja þá þjón- ustu. Eg hef sjálf sótt þangað ómetanlegan styrk, blessun og bænheyrslu, og svo er um fleiri. Sérstakar barnaguðsþjónustur eru hvern sunnudagsmorgun allan veturinn. Biblíulestur, sem er námskeið í biblíufræðum fyrir fullorðna, er til skiptis hjá prest- unum. Einnig hafa prófessorar frá guðfræðideild Háskólans haldið erindi og stjórnað umræðum um trúmál. Æskulýðsstarf fyrir ungl- inga er hvern mánudag vetrar- langt, og vitanlega fermingarund- irbúningur að auki. Prestarnir sjá um mjög þróttmikið og öflugt starf fyrir roskið fólk hvern laugardag allan veturinn. Þar koma fram sem sjálfboðaliðar margir af bestu og þekktustu listamönnum þjóðar- innar, svo og ungir og óþekktir, ásamt ágætustu fræðimönnum, ferðalöngum og fleirum. Efnisskráin er svo ótrúlega fjöl- breytt að henni verða ekki gerð skil í stuttu máli. Þessar samkom- ur eru afar vel sóttar og ánægju- legar. Kvenfélag safnaðarins sér þar um góðar og ódýrar veitingar, og býður að auki upp á opið hús fyrir gamla fólkið tvisvar í viku, þriðjudaga og fimmtudaga, helst ætlað þeim sem einir búa. Þar eru til reiðu góðgjörðir ásamt ýmsu til gagns og gamans t.d. föndur. Einn- ig er hár- og fótsnyrting á mið- vikudögum. Kvenfélagið starfar af fórnfýsi og miklum dugnaði, og aflar fjár með ýmsu móti. AA-samtökin hafa fjóra fundi vikulega í húsakynnum kirkjunn- ar, einn á þriðjudögum og fimmtu- dögum, tvo á föstudögum. A1 Anon, sem er félagsskapur aðstandenda alkóhólista, hefur einn fund í viku á miðvikudögum. { kirkjunni er mikið um athafnir utan helgra daga svo sem skírnir, brúðkaup og útfarir. Vitanlega eru þar fundir safnaðarins, kvenfélags og bræðrafélags og stjórnarfundir félaganna. Þá má ekki gleyma organista og því sem honum fylgir, kóræfingar og hljómleikahald, einnig utanaðkomandi aðila. Mjög oft eru kirkjulegar at- hafnir eða önnur starfsemi á tveim eða fleiri stöðum í húsinu samtím- is og sýnir glöggt nýtingu á húsa- kynnum kirkjunnar. Höfundur er húsmóðir í Reykja- rík. Bjössi bolla og jólasveinninn skemmta NÚ FER senn að líða að því að hóp- ar og félagasamtök hugi að jólatrés- flkemmtunum og öðrum samkomum sem tilheyra jólunum. Þá þarf náttúrulega jólasveina og eitthvað annað til skemmtunar og heyrst hefur að Bjössi bolla hafi haft samband við formann jólasveinafélagsins og beðið að fá að skemmta með Hurðaskelli og Stúf yfir jólahátíðirnar. Jólasvein- arnir tóku vel í það og nú mun Bjössi bolla, Hurðaskellir og Stúf- ur skemmta á jólatrésskemmtun- um um allt land með undirleik á harmoniku. Nú bjóðum við karíaflökin líka hraðfryst. Hvert flak í plastumslagi, þá þarí ekki að þíða þau öll í einu. 340 g í hverjum pakka. Á pakkanum eru prentaðar leiðbein- ingar um einíalda matreiðslu þessa bragðgóða fisks. Þar má lesa um ofnbökun, pönnusteikingu, djúpsteik- ingu og bökun í örbylgjuoíni. Þér er því í sjálfsvald sett hvenœr fjölskyldan íœr að njóta karfasteikur -óháð aflabrögðum, gœítum og búsetu. ’RANDI HF i Wm •,*, ff

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.