Morgunblaðið - 05.12.1985, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985
55
Um
blæðingar
Erlendar bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Sanncr Lyhne: Vi blöder
Útg. Modtryk 1985
Ekki minnist ég þess a6 hafa
fyrr gluggað í bók, sem einvörð-
ungu fjallar um blæðingar kvenna,
enda hefur þessi kvenlegi þáttur
verið ótrúlega mikið feimnismál
kynslóðanna. Þó svo að blæðingar
kvenna séu nánast eitt af náttúru-
lögmálunum hafa þó ýmsar furðu-
sagnir, bábiljur og hvaðveina
myndast um þær. Næsta lygilegt,
þegar haft er í huga, að frá upp-
hafi vega hefur helmingur jarðar-
búa „farið á túr“ einu sinni í mán-
uði. Þrátt fyrir miklar hugarfars-
breytingar og tal um að allar
umræður um þá hluti sem áður
voru nánast tabú, er alltaf einhver
vandræðagangur í sambandi við
blæðingar kvenna. Þess eru enn
dæmi í okkar upplýsta þjóðfélagi
að unglingsstúlkur hafi ekki hug-
mynd um, hvað er að gerast, þegar
fyrstu blæðingar gera vart við sig.
Og fræðsla um eðli blæðinganna,
sem væntanlega á að vera inni i
lögboðinni kynlífsfræðslu í skól-
um, er víða fjarska tilviljana-
kennd. Auðvitað er það fráleitt,
þar sem þetta tímabil í lífi kvenna
stendur í áratugi og verður partijr
af tilverunni eins og hvað annað
sem endurtekur sig.
Bók Sanne Lyhne fjallar ein-
göngu um þetta líkamlega atriði
og er skýr og skilmerkileg, bæði í
máli og myndum. Hún ber auk
þess fram ýmsa fróðleiksmola um
viðhorf að fornu til kvenna á
meðan þessi mánaðarlegi atburður
stóð yfir. Myndirnar og myndasög-
urnar eru mjög einfaldar og aug-
sýnilega "feerir höfundurinn ekki
ráð fyrir að unglingsstelpur nú séu
öllu fróðari en formæður þeirra.
Kannski er það ekki eins fjarri
lagi og sumir kynnu að ætla.
esið
reglulega af
ölmm
fjöldanum!