Morgunblaðið - 05.12.1985, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 05.12.1985, Qupperneq 62
62 MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985 Minning: Halldór O. Olafsson loftslglingafrœðingur Fæddur 19. nóvember 1923 Dáinn 25. nóvember 1985 Afi minn og nafni er farinn í annan heim. í mínum huga er tóm í tilverunni, fyrir mig að rölta heim til afa, að skóla loknum, með áhyggjur af tilverunni, var eins og að fara til annars heims. Heim birtuogbjartsýni. Afi var alltaf bjartsýnn, og sá j ávallt góðu hliðarnar á öllum mál- i um. Því nær sem dró að endalokum afa þyngdust spor mín að Reyni- melnum, en aldrei fór svo að ég gengi ekki betri og léttari í spori þaðan aftur, tilbúinn að takast á við lífið. f mínum huga er og verður, sól og birta um minningu afa míns. Ég bið Guð að blessa afa. Með þökk fyrir allt sem hann gaf. Halldór Óskar Sigurðsson í dag verður Halldór Ó. Ólafs- son, fyrrverandi loftsiglingafræð- ingur og loftskeytamaður hjá Loft- leiðum, til grafar borinn frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík. Halldór var fæddur að Brekku í Fljótsdal, 19. nóvember 1923, sonur Ólafs Lárussonar héraðs- læknis og konu hans, Sylvíu Guð- mundsdóttur. Foreldrar hans fluttu til Vestmanneyja árið eftir að Halldór fæddist og ólst hann þar upp. Halldór tók gagnfræða- próf frá Menntaskólanum á Akur- eyri 1941 og verslunarpróf frá Verslunarskóla fslands 1943. Hjá Olíufélaginu starfaði Hall- dór sem skrifstofumaður þar til % hann settist í Loftskeytaskólann, en frá honum lauk hann prófi 1948. Þaðan lá leið Halldórs til radio- flugþjónustunnar í Gufunesi, þar sem hann starfaði í 6 ár. 1954 réðst Halldór til Loftleiða, fyrst sem loftskeytamaður, en lauk vorið 1955, ásamt 5 öðrum loft- skeytamönnum félagsins, prófi loftsiglingafræðings og starfaði síðan sem slíkur og var eftirlits- flugleiðsögumaður síðustu átta árin þar til tölvur tóku við starfinu í nóvember 1972. Hann hélt þó áfram að vinna hjá félaginu; en undi sér ekki sér- lega vel við skrifborð, eftir nítján ára farmennsku. Þegar eldgosið varð í Vestmannaeyjum í janúar 1973 réðst hann til björgunar- og uppbyggingastarfa á æskuslóðum. Vorið 1974 réðst Halldór til Cargolux sem loftsiglingafræðing- ur og hleðslustjóri og flutti þá heimili sitt til Lúxemborgar. Fyrir Cargolux flaug hann víða um heimsbyggðina, og allt til þess tíma að hann var mjög tekinn að kenna sjúkdóms þess, sem nú hef- ur lagt hann að velli. Eftir að hann kom heim frá Lúxemborg hefur hann starfað hjá Landssímanum þegar heilsan hefur leyft. Hér er upptalið alldrjúgt ævistarf; en þó tók Halldór sér fleira fyrir hendur. í nokkur ár kenndi hann siglinga- fræði við flugskólann Flugsýn. 1965 stofnaði hann ásamt nokkr- um félögum sínum sjálfstæðan skóla í flugsiglingafræðum fyrir flugmenn og ráku þeir þann skóla í árabil. Tískufataverslun ráku þau hjónin í nokkur ár — og sauma- stofu starfræktu þau í mörg ár. Skák mun hafa verið sú eina íþrótt, sem Halldór lagði rækt við. Skák tefldi hann líka flestum bet- ur. 1946 stóð hann að endurvakn- ingu tímarits um skák og var einn ritstjóra þess þar til Skáksamband f slands tók við útgáfunni 1948. Óhætt er að segja að í starfi sínu öllu hafi Halldór lagt sig fram til hins ýtrasta. Halldór kvæntist ungur eftirlif- andi konu sinni, Svanhvíti Sigurð- ardóttur, og var orðinn fjölskyldu- maður þegar saman lágu leiðir hópsins, sem þessar línur ritar. Hann var farsæll fjölskyldumaður og þau Svanhvít samhent í því að búa sér og börnum sínum fallegt heimili hvarvetna þar sem þau festu byggð. Með Halldóri er geng- inn drengskaparmaður, glaðsinna, skemmtilegur og góðum gáfum gæddur. Víst er að hann hefur einhver ráð með að staðarákvarða sig á leiðinni heim, þótt sjónar- horn stjarna sé sjáifsagt annað en við lærðum hjá Lee forðum. Við kveðjum traustan vin og óskum honum góðrar ferðar. Fjöl- skyldu Halldórs sendum við hug- heilar samúðarkveðjur. Fyrrverandi loftsigl- ingafræðingar Loftleiða. Gamall félagi og vinur er horf- inn á braut. Hugann fyllir angur- værð og tregi. Hugsanir og minn- ingar streyma fram og svipleiftr- um bregður í birtu endurminninga. Enginn yeit hvað átt hefur fyrr en misst hefur og skyndilega blasir við sú staðreynd, að við stöndum í skuld sem aldrei verður greidd. Æskuvinur minn Halldór Óskar Ólafsson er látinn eftir langa og stranga baráttu, sem hann háði um árabil, án þess að bugast eða kvarta. Örlögum sínum mætti hann í fullkominni sálarró. Litlu fyrir andlátið varð honum að orði við þá er hjúkruðu honum síðustu stundirnar: „Það þýðir ekki að kvarta, maður uppsker svo sem maður sáir.“ Halldór fæddist 19. nóvember 1923, yngsta barn þeirra sæmdar- hjóna Sylvíu Guðmundsdóttur og Ólafs Lárussonar héraðslæknis í Vestmannaeyjum. Hann ólst upp í stórum systkinahópi, sem var sérstæður um margt, óvenju sam- stæður og samheldinn meðan flest voru í heimahúsum — óflogin úr hreiðri. í bernsku var ég heimagangur í Arnardrangi, húsi þeirra hjóna, Sylvíu og Ólafs, húsi sem stafaði frá sér þokka og reisn, enda var allt á sama veg innanhúss, fólk og búnaður. Þaðan mætti margs minnast, en efst eru mér í huga þær stundir, er setið var við kvöld- verðarborð. Þar ríkti sérstök há- tíðarstemmning. Heimilisfaðirinn, sem mér fannst annars dulur og alvörugefinn, stjórnaði borðhaldi léttur og leikandi í lund, stýrði leiftrandi umræðum, hélt uppi kátínu og fjöri og þó var festa og reisn meiri en ég þekkti annars- staðar frá. Þar var enginn órói eða asi, né það sem nú er kallað stress. Stundum var setið lengi og endað með því, að yngsta dóttirin tók í píanóið og svo var sungið. Segir mér svo hugur, að önnum kafinn héraðslæknirinn hafi þarna notið sinna bestu stunda í faðmi fjöl- skyldunnar. Áhrifa slíkra sam- verustunda gætir eflaust lengi í fari barnanna. Við Halldór vorum bekkjarfé- lagar öll barnaskólaárin. I skólan- um var hann hinn duglegi og prúði nemandi og hæverskur svo af bar, en í leikjum útivið í frímínútunum fundum við fyrir meiri festu, þreki og harðfylgi en við áttum kannski von á og í fótboltanum stóðust fáir honum snúning. Þessir eiginleikar prýddu Hall- dór alla tíð og komu gjarnan best fram, þegar mest á reyndi. Bernskuárin í Eyjum voru un- aðslegur tími. Við strákarnir átt- um okkur sjálfir allan daginn í leik og vafstri að Eyja-peyja sið. Ýmsum myndum bregður fyrir sjónu. Ljúfust er e.t.v. sú, er við fjórir peyjar „lágum úti“ vestur í Hrauni 1 þjóðhátíðartjaldi fjöl- skyldunnar, höfðum okkur til full- tingis hundana Mons litla og Bonso. Þeir voru okkar hald og traust og skyldu verja okkur hvers kyns grandi. Þetta var okkar fyrsta tjaldútilega, en margar fylgdu á eftir. Éftir fermingu skildu leiðir. Halldór hélt norður til Akureyrar í menntaskóla. Fáum árum síðar lágu leiðir saman á ný, er við sett- umst í 3. bekk Verzlunarskóla ís- lands og gerðumst herbergisfélag- ar. Þar giltu góðar húsreglur. Ein var sú, að við lásum og leystum saman heimaverkefnin strax að loknum skóladegi. Oft var þó fyrst skroppið niður í Félagsheimili VR við Vonarstræti, drukkinn bolli af súkkulaði ásamt með vöfflum og rjóma. Gjarnan var þetta þá jafn- framt líka kvöldverðurinn, því skotsilfur til matarkaupa var lítið í þá gömlu góðu daga. Oftast var tekin skák, því Halldór unni þeirri íþrótt, gerðist si'ðar góður skák- maður og gaf út og ritstýrði ýms- um skákblöðum. Spilamaður var hann líka góður og margan slaginn tókum við saman við bridge-borð- ið. Það var gaman að læra með Halldóri. Hann var prýðisvel greindur og afbragðs námsmaður, þegar hann vildi það við hafa. Hann tók námið skemmtilegum og óvenjulegum tökum, setti allt upp í kerfi, hvort sem voru ártöl í sögu eða núþálegar sagnir í þýsku. Áf þessu naut ég góðs og það kom sér vel í prófunum. Á skólaárunum á Akureyri kynntist Halldór ungri og fríðri Akureyrarmær Helenu Svanhvíti Sigurðardóttur. Þar knýttu tán- ingarnir þau tryggðarbönd, sem aldrei brustu. Svanhvít er mikil ágætiskona, sem reyndist manni sínum alla tíð frábærlega vel, jafnt í blíðu sem stríðu. Þeim varð fimm barna auðið, sem öll eru mann- kosta fólk. Að námi loknu settu þau Svan- hvít og Halldór niður sitt bú úti í Eyjum. Þar stundaði hann sjálf- stæð verzlunarstörf um nokkur skeið en söðlaði síðan um og flutti til Reykjavíkur, settist aftur á skólabekk og lauk prófi frá Loft- skeytaskóla íslands. Þar með var framtíðin ráðin. Hann gerðist loft- skeytamaður við Gufunesradíó, starfaði þar í nokkur ár, en réðst síðan til Loftleiða hf., sem loft- skeytamaður og loftsiglingafræð- ingur um margra ára skeið og kennari, meðan slíkra starfa var þörf, eða þar til framþróun á tækniöld sá fyrir því að leysa slíka menn af hólmi. Þá gerðist hann starfsmaður Cargolux í Luxem- burg og bjó þar með fjölskyldu sinni í meira en 7 ár, eða þar til hann varð að hætta störfum og flytjast aftur heim vegna sjúk- dóms þess er loks varð honum að aldurtila. Síðustu árin voru honum erfið, en samt vildi hann enn verða að liði. Sársjúkur fór hann aftur heim til Eyja, sem afleysingamaður í stuttan tíma, en sá tími teygðist í ár. Fullyrða má að hann stóð leng- ur en stætt var. Karlmennskan og þorið var óbugað, en þrekið var brostið. Ekki var það ætlan mín að gera ævi og starfi Halldórs tæmandi skil. Aðeins er brugðið upp fáum myndum, sem bregður fyrir hug- skotssjónir þegar gamall vinur er kvaddur hinstu kveðju. Halldór Ó. ólafsson var vel af guði gerður, fríður maður og prúð- ur vel, þægilegur í öllu viðmóti, bjartsýnn og glaðvær. Hann var litríkur persónuleiki og ógleyman- legur þeim, sem honum náðu að kynnast. Hans verður lengi sakn- að. Ástvinum hans votta ég innilega samúð. „ ,, ,. G. Guðlaugsson Ég hitti Halldór Ó. ólafsson í fyrsta sinn hér í Reykjavík um vor árið 1940. Hann var þá á heimleið frá námi við Menntaskólann á Akureyri. Þar höfðu Halldór og eiginmaður minn, Bjarni Gíslason, bundist vináttuböndum sem entust meðan báðir lifðu. Halldór var hrífandi ungur maður, kíminn og alvörugefinn í senn. Hann las mikið og leitaðist við að brjóta hlutina til mergjar og leysa gátur lífsins og tilverunn- ar. Hann hafði þá þegar mótað sér fasta skoðun á ýmsum þjóðfélags- legum málefnum. Halldór var flugmælskur og rökvís og fylgdi skoðunum sínum vel eftir. Einnig var hann ritfær í bezta lagi. En umfram allt var hann drengur góður. Við urðum vinir við fyrstu kynni og fljótlega bættist í hópinn glæsi- leg stúlka frá Akureyri, Svanhvít 100 ára minning: Karl Guðmunds- son frá Valshamri Fæddur 19. nóvember 1885 Dáinn 15. nóvember 1982 í tilefni af því að 19. nóvember síðastliðinn voru 100 ár liðin frá r fæðingu Karls Guðmundssonar frá Valshamri langar okkur ætt- ingja hans og ástvini, enn á ný til ; að minnast hans með nokkrum !orðum. Þegar Karl lést fyrir þrem árum síðan, urðu ýmsir til að taka upp penna og rita um hann minningar, bæði af persónulegum kynnum og eins ágrip af æfi hans og störfum. Það er því ekki meiningin með þessum línum að rifja upp lífs- hlaup hans í smáatriðum, heldur aðeins að stikla á stóru í þeim hafsjó minninga sem þrátt fyrir þessi þrjú ár eru okkur sem hann þekktu og umgengust svo dýrmæt- ar oghlýjar. Það eru minningar um mann sem eftirskildi okkur, afkomend- um sínum lífshætti sem eftir- breytni eru verðir. Heilindi hans og stefnufestu var viðbrugðið. Hann var sjálfum sér samkvæmur, ‘ > og allt hans lífsstarf var í fullu samræmi við trú hans og skoðanir. Hann unni sveitalífinu, frelsi fjall- anna, og yfirleitt hverju því verki sem í hans hlut féll að vinna, vinnan var honum ekki þraut held- ur gleði, kannske vegna þess að sérhvert unnið verk færði hann nær þeim ásetningi sínum að leysa af vandvirkni og trúmennsku það æfistarf sem hann hafði kosið sér. Hann var bóndi, og allan sinn búskapartíma, 40 ár, bjó hann á sömu jörðinni, Valshamri í Geir- dalshreppi. Manna á meða lvar talað um hann sem Karl frá Valshamri, og sjálfur var hann á efri árum, þá fluttur til Hafnarfjarðar, ánægður með að í símaskránni hafði hann „frá Valshamri" þar sem aðrir hafa stöðuheitið. Honum þótti vænt um jörðina sína, sem hann hafði sjálfur byggt upp, bætt og ræktað, bæinn sem hann reisti með eigin höndum, útihúsin sem einnig voru verk handa hans og skepnurnar sem voru hvorutveggja í senn, áhuga- mál hans og atvinna. Hann var áhugasamur um öll þau mál sem bændur varða, og tókst á hendur ýmis trúnaðarstörf fyrir sveit sína og byggðarlag. í mars 1978 sæmdi Kristján Eldjárn þáverandi forseti íslands hann riddarakrossi Hinnar íslensku Fálkaorðu fyrir þessi störf. Á langri æfi lifði Karl tímana tvenna, hann fæddist á þeim árum þegar örbirgð, skortur og sjúk- dómar voru vágestir sem allstaðar gátu skotið upp kollinum, sundrað fjölskyldum og máð út heilu byggðarlögin. Hann lifði þá tíma að sjá þjóðfélagið breytast frá þessari mynd yfir í nútímalegt allsnægta samfélag. Þær mestu breytingar sem þjóðin hefur geng- ið í gegnum frá upphafi. Hann kunni frá mörgu að segja sem tilheyrði hinni liðnu tíð. Frá- sagnargáfa hans var slík að unun var á að hlýða. Hann lifði sig inní hina löngu liðnu atburði, sem hann sjálfur hafði í flestum tilfellum verið þátttakandi í og hafði gaman af að rifja þá upp, hvort heldur um var að ræða ljúfar minningar frá sólríkum sumardögum eða mannraunum í sorta og byl á fjöll- um uppi. Hann þekkti hvort- tveggja og var þakklátur Guði fyrir frelsun úr hverri raun og fyrir heilbrigði og hreysti sem entust nær alla hina löngu æfi. Karl Guðmundsson var fæddur í Arnkötludal í Strandasýslu 19. nóvember 1885. Hann hét fullu nafni Guðmundur Karl Guð- mundsson en kallaði sig aldrei annað en Karl. Hann var sonur Guðmundar Sæmundssonar bónda í Arnkötludal og seinni konu hans Guðbjargar Magnúsdóttur. Þegar Karl var á 14. árinu missti hann móður sína og faðir hans hætti búskap. Þá lá ekki annað fyrir honum og hinum 10 systkinum hans verða skipt upp og komið fyrir hjá vandalausum. Karl fór þá að Tindum í Geiradal til þeirra ágætu hjóna Magnúsar Sigurðs- sonar og Ingibjargar Einarsdóttir. Þar dvaldi hann í tvö ár og hafði á því orð oft síðan að hjá beim tróðu hjónum hefði hann átt að vera lengur. Eftir að hann fór frá Tind- um dvaldist hann á ýmsum stöðum í Geiradal og Reykhólasveit, en réðst síðan árið 1919 að Haga á Barðaströnd til Hákonar Kristó- ferssonar alþingismanns, og var þar um 6 ára skeið. 28. desember 1925 kvæntist Karl eftirlifandi konu sinni Ingibjörgu, dóttur þeirra hjóna Jóhönnu Loftsdóttur og Sumarliða Guðmundssonar pósts frá Borg í Reykhólasveit. Þar má með réttu segja að Karl hafi stigið stórt gæfuspor, því slíkum mannkostum er Ingibjörg búin að leitun er að öðru eins. Þau hjón stóðu saman gegnum þykkt og þunnt þau 57 ár sem Karl átti ólif- uð, og allan þann tíma stóðu þau við sitt hjúskaparheit að ekkert nema dauðinn fengi skilið þau að. Þau höfðu bæði eignað sér hlut- deild í því fyrirheiti Jesú Krists að ná sem á hann trúir lifir þótt hann deyi, það er gott að lifa eig- andi þessa von og vissu, það er líka gott að eiga þessa trú þegar að því kemur að dauðinn knýr dyra og það er gott fyrir ættingja og ást- vini að vita að yfir þeim sem trúna eiga ríkir ekki dauðinn, því frelsari okkar Jesús Kristur vann sigur á dauðanum og hefur gefið okkur hlutdeild í þeim sigri fyrir heilagt blóð sitt. Árið 1929 fluttu þau hjónin að Valshamri í Geiradal, þau voru þar fyrstu árin sem leiguliðar en keyptu síðar jörðina. Húsakynni á
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.