Morgunblaðið - 05.12.1985, Page 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985
fólk f
fréttum
„HIN GÖMLU KYNNI
GLEYMAST SEINT ...
t
Móðir og dóttir alveg eins.
Patrick voru
færó blóm og
gjafir fyrir frá-
bæra kennslu-
tíma.
MBL/ÓI.K.M
Þarftu aö láta inn-
rétta flugvélina þína?
Ef einhver lesandi „Fólks í frétt-
um“ hefur verið að velta því fyrir
sér hvar hægt væri að nálgast
almennilega einkaþotu með öllum
tilheyrandi þægindum, þá rákumst
við á grein, þar sem sagt var frá
svissnesku fyrirtæki, „Jet Avia-
tion“, sem uppfyllir allar óskir og
innréttar flugvélar. Meðal við-
skiptavina eru viðskiptamenn,
popp- og kvikmyndastjörnur og
aðrir efnamenn.
Fyrirtækið innréttar eingögu
flugvélarnar svo þær verður að
panta sjálfar frá öðrum aðilum.
Það er hægt að fá öll hugsanleg
þægindi í leikfangið, skrifstofu
með því sem henni tilheyrir, svefn-
herbergi, baðherbergi og svo
mætti lengi telja.
Skrifstofu má auðveldlega
koma fyrir sé flugvélin hæfi-
lega stór.
Svefnherbergi og baðherbergi
eru nauðsynleg finnst mörg-
um sem koma með flugvél-
arnar sínar til innréttingar.
ríiTf i r?frerrrrrrmixœJ^fX™3^
Gunnar Huseby og
Andreas Michaelsen
hittast eftir
langan tíma
„Gaman að hitta Gunnar aftur og sjá að hann er í
lifenda tölu“
Nei komdu nú margblessaður
og sæll... Að hugsa sér að
það skuli vera liðin meira en tutt-
ugu og fimm ár síðan við sáumst og
við erum alveg nákvæmlega eins ...
Hér eru það þeir Gunnar Huseby
og Andreas Michaelsen sem eru
að hittast eftir langan tíma, en
síðast var það á Bislet leikvangin-
um í Osló þar sem þeir félagar
kepptu saman á móti Bandaríkja-
mönnum, árið 1959.
Brúðan fær líka spangir hjá tannlækninum
Don Graham tannlæknir var
orðinn þreyttur á hræðslunni
sem börn höfðu á honum og vildi
fyrir alla muni reyna að sýna þeim
fram á, að það að fá spangir væri
ekki mikið mál og með öllu sárs-
aukalaust.
Hann tók því upp það ráð að
bjóða krökkum að koma og fylgjast
með því er hann setti spangir í
dúkkur þeirra og það er um það
bil 15 mínútna aðgerð, sem er
innifalin í kostnaðinum við það að
Dúkkan fær að fara meó og fylgjast með mömmu sinni. Hún er reynd-
ar komin með spengur svo hún veit alveg hvað mamman er að ganga
í gegnum.
fá spangir. Þetta hefur mælst gíf-
urlega vel fyrir og á skömmum
tíma hafa 150 dúkkur leitað til
hans með mæðrum sínum.
„En það er eitt vandamál sem ég
glími við núna,“ sagði Don. „Stúlk-
urnar koma til mín brosandi og
óhræddar, enda búnar að fylgjast
með dætrum sínum, dúkkunum,
sem fá svipaðar spangir, en dreng-
irnir eru erfiðari viðfangs. f flest-
um tilfellum vilja þeir ekki kann-
ast við að eiga dúkkur og því hef
ég ekki fundið ráð til þess að
minnka spennuna hjá þeim.“
Eins og margir lesendur hafa
eflaust ljósa hugmynd um er
Gunnar Huseby einn af afreks-
mönnum íslands, vann Evrópu-
meistaratitilinn í kúluvarpi, ekki
einungis árið 1946 á Bislet leik-
vanginum í Osló, heldur aftur
nokkrum árum seinna, það er að
segja árið 1950, í Brussel í Belgíu.
Andreas Michaelsen, sem er
Dani, hefur nælt sér í Danmerkur-
meistaratitil einum 36 sinnum, til
skiptis fyrir langstökk, hlaup, kúlu
eða kylfukast, en vann sinn fyrsta
sigur á því sviði aðeins 15 ára
gamall.
Tilefni komu hans hingað til
lands er að næstu tvær vikurnar
mun hann leika á píanó fyrir gesti
Nautsins og fannst að hingað til
lands gæti hann ekki komið án
þess að hitta þennan vin að nýju.
„Gunnar rennur mér seint úr
minni. Hann var og er svo hlýr og
indæll. Á meðal okkar íþrótta-
mannanna var hann mjög vinsæll,
enda líka afskaplega hjálpsamur í
Patrick Duncan
í lok heimsóknar
Kínverjans var
haldin sýning
þar sem nemend-
ur sýndu atriði
er þeir höfðu æft
undir leiðsögn
hans.
Kínversk spor
í Jass-
balletskóla Báru
ínverjinn Patrick Duncan heimsótti
nýlega Jassballetskóla Báru þar sem hann
staldraði við í tvær vikur og kenndi fram-
haldsflokkum skólans. f lok veru hans var
efnt til gleðskapar og sex hópar sem
Patrick hafði æft sýndu dansatriði.
Patrick sem aðallega hefur fengist við
jass, ballet og steppdans kennir nú í „Pine-
apple Dance Centre" í London auk þess sem
hann kemur fram sem dansari við hin
ýmsu tækifæri, bæði í sjónvarpsþáttum, á
leiksviði, á popptónleikum, hann hefur
verið þátttakandi við gerð tónlistarmynd-
banda og tekið þátt í tískusýningum.
í janúarlok mun annar kennari koma
frá „Pineapple Dance Centre" og kenna í
Jassballetskóla Báru um tíma.