Morgunblaðið - 05.12.1985, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985
71
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11.30
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Æ.M
Umferðarmenningin:
Nýstárlegar tillögur for-
svarsmanna í Garðinum
Arnór Ragnarsson í Gerðum í
Garði skrifar:
Fyrir nokkrum dögum sendi
sveitarstjóri Gerðahrepps dreifi-
bréf inn í hvert hús í Garðinum
þar sem íbúarnir eru hvattir til
að aka hægar um götur bæjarins.
Þessi aðferð er mjög nýstárleg
þótt ekki sé dýpra í árinni tekið
og gefur vonandi betri árangur en
þær sem beitt er í höfuðborginni,
en þar er búið að drita niður út
um allan gamla bæinn skiltum þar
sem tilkynntur er 30 km hámarks-
hraði og enginn fer eftir þeim. Það
eru einkum tveir af þéttbýlisþjóð-
vegunum sem talið er að umferðin
sé of hröð, Garðbraut og Skaga-
braut, en þessar götur fengu báðar
bundið slitlag í haust og jókst þá
umferðarhraðinn verulega. Það
má því segja að um leið og eitt
vandamál hafi verið leyst í haust
hafi annað vandamál orðið til og
augljóst að hreppsnefndina skortir
ekki verkefni.
Ekki þarf að hafa áhyggjur af
of hröðum akstri á öllum götum í
Garðinum — þær ákveða sjálfar
hámarkshraðann fyrir alla venju-
lega bíla. En hvað um það. Til
hamingju með þessar nýstárlegu
tillögur hreppsnefndar og Ellert
Eiríksson sveitarstjóri. Vonandi
verður komist hjá því að setja upp
hraðahindranir vegfarendum til
leiðinda.
Hámarkshraði í Garðinum er
45-50 km.
SKRIFSTOFA GERÐAHREPPS
SVEITARST J ó R I
Tll íbúa Gerðahrepps.
Hreppsnefnd Gerðahrepps beinir beim tilmfflum til bópjarbúa. að ailir leqqlst
á eitt með að halda umferöahraða innan löqleqra hraðat.iknjrkana.
Serstaklega a þetta við um Garðbraut og Skagabraut bar sem mörgum h<rttir til
að aka of greitt.
I!reppsnefndin vill í lengstu lög komast hjá uppset^nlngu hraðahindrana á ak-
brautir, en í stað þess treysta á samheldni b«ejarbúa.
4 nrstu dögum verða teknar upp radarhraðam*!!ngar hcr f Oarö' «>g • ij»p
viðeigandi umferðarmerki. Það er ósk hreppsnefndar að bætt umferðarmenninq
Garðbúa verði öðrum landsmönnum til eftirbreytni.
SP£22íí0^
spurt og svarað
Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINS
Innskt
velsæmi?
Ég hringi til að lýsa megnril
L óánægju með sýningu finnskul
1 myndarinnar í sjónvarpmu
nóvember sl. Tekift skal fram að égl
sá aðeins fjðrar til fimm mínutur l
i af myndinni en það var líka alveg
[ nfW Hún hrejnlg— f™m-au
Finnska myndin
mannbætandi
Hneykslaður sjónvarpsáhorfandi
skrifaði nýlega í Velvakanda um
finnsku myndina er sýnd var í
sjónvarpinu 25. nóvember sl. Ég
dreg það í efa að sá bréfritari hafi
ekki fylgst lengur með myndinni
en í 4 mínútur, því þá hefur hann
gleymt að nefna atriðið þegar
stúlkurnar lágu á baðströndinni
og sleiktu sólina.
Formæling sjónvarpsáhorfenda
á myndinni virðist stafa af hvoru
tveggju þekkingarskorti og þröng-
sýni því hann nefnir myndina
„klám og ekkert annað". Klám
merkir sem ég býst við að flestir
viti: „Gróflegt illa unnið verk“.
Vilji einhver halda því fram að
mannslíkaminn, sköpunarverkið,
sé klám, þá er það að mínu viti
guðlast.
Eg fylgdist með margumræddi
mynd af áhuga. Hún var óvenjuleg
í sjónvarpinu okkar og hún var
listræn. Það kemur svo sem oft
fyrir að sýnt er í sjónvarpinu sem
nefna má klám svo sem „Popp“ eða
„Skonnrokk" o.fl. Þar er verið að
afskræma sönglistina með öskrum
og fíflalegum tilburðum. Einnig
má nefna glæpamyndir. Þar eru
sýnd slagsmál og alls kýns óheil-
indi, sem fylgir jafnan amerískum
myndum.
Finnska myndin var algjör and-
staða við það sjónvarpsefni sem
að jafnaði er haldið að sjónvarps-
áhorfendum. Hún var gamansöm,
listræn og vakti hlýju. Hún var
mannbætandi.
Svanberg Sveinsson
Um þjóðskrána og heim-
sendingar happdrættismiða
Spurt:
í fjölmiðlum hefur undanfarið
birst auglýsing Hagstofu íslands
þess efnis að skv. lögum geti menn
fengið nöfn sín út af þeim skrám
sem gerðar eru á vegum stofunnar
til útSendingar á auglýsingagögn-
um, happdrættismiðum og þess
háttar.
Ég varð glaður við að heyra af
þessu og hringdi í Hagstofuna
þegar í stað og bað um að nafn
mitt yrði tekið út af skrám öllum
notuðum í þessu skyni.
En því miður. Mér var tilkynnt
að ég þyrfti að koma í Hagstofu
íslands, Hverfisgötu 8-10 í Reykja-
vík og fylla út sérstakt eyðublað
sem þar fengist.
Nú vil ég spyrja Hagstofu ís-
lands: Hvernig komast menn inn
á þessar skrár? Hví er ekki eyðu-
blaðaskylda þá?
Svaraö:
Þjóðskráin þjónar margvísleg-
um tilgangi og er ómissandi þáttur
stjórnsýslunnar. Stuðst er við
þjóðskrá við álagningu skatta og
innheimtu þeirra, við greiðslu
barnabóta, bóta almennatrygg-
inga, við launagreiðslur ríkisins,
og þjóðskrá er nýtt af fjölmörgum
stofnunum hins opinbera, banka-
kerfinu og ýmsum stórum fyrir-
tækjum. Þá er hún undirstaða
kjörskráa. Hagstofan — í samráði
við tölvunefnd — hefur einnig
heimilað, að þjóðskrá væri hagnýtt
í þágu ýmissa félagasamtaka,
einkum líknarfélaga, til að rita
nöfn og heimilisföng á gíróseðla
vegna happdrætta eða annarrar
fjáröflunar. Hefur þá verið horft
til þess, að félagasamtök þessi
gegna mikilvægu hlutverki í þjóð-
félaginu, sem ella væri hlutskipti
hins opinbera og nauðsynlegt væri
að kosta af skattfé. Þótt að ýmsu
leyti sé eðlilegt, að þjóðskráin sé
hagnýtt í þessum tilgangi er engu
að síður nauðsynlegt, að henni sé
ekki beitt í óhófi, þannig að fólk
fái ekki í sífellu póstsendingar,
sem það hefur ekki óskað eftir og
ekki eru nauðsynlegar vegna þarfa
hins opinbera. Af þessum sökum
heimilar Hagstofan ekki að þjóð-
skráin sé hagnýtt til útsendingar
auglýsinga, dreifibréfa o.þ.h. Til
að tryggja rétt fólks í þessum
efnum eru jafnframt ákvæði í
lögum um kerfisbundna skráningu
er varða einkamálefni, þess efnis,
að skylt sé að verða við óskum
manna um að nöfn þeirra séu
afmáð af skrám, sem notaðar eru
til útsendinga auglýsinga, dreifi-
bréfa, áróðurs o.þ.h. Hagstofan hóf ■
á þessu ári að vekja athygli fólks
á þessum ákvæðum og gefa þeim,
sem þess óskuðu, kost á því, að
nöfn þeirra yrðu afmáð af þeim
skrám þjóðskrárinnar, sem hag-
nýttar eru til útsendingar sem
þessara. var í þessu sambandi talið
nauðsynlegt, að þeir sem óskuðu
eftir þessu, gerðu það skriflega og
staðfestu þá ósk með undirskrift
sinni. Hagstofan hefur því ekki
tekið við beiðnum í síma, en á hinn
bóginn getur fólk sent Hagstof-
unni bréf þar að lútandi þar sem
fram koma nöfn þeirra, sem strika
skal út, ásamt heimilisfangi og
nafnnúmeri. Sérstök eyðublöð eiga
jafnframt að liggja frammi á
skrifstofum strætstu sveitarfélag-
anna víðs vegar um landið og þau
má fylla út og senda Hagstofunni.
Loks getur fólk komið á afgreiðslu
Hagstofunnar að Hverfisgötu 8-10
í Reykjavík og fyllt þar út þessi
eyðublöð. Varðandi spurningu
bréfritara hvernig menn komist á
skrá, er því til að svara, að menn
eru teknir inn á þjóðskrá eftir
fæðingarskýrslum. Hvað varðar
símtal bréfritara við Hagstofuna
virðist annað hvort hafa gætt
misskilnings eða að starfsmanni
Hagstofunnar hafi orðið á mistök.
Ef svo er, biður Hagstofan bréfrit-
ara velvirðingar á því.
Hallgrímur Snorrason
hagstofustjóri
Hagstætt verö. Greiðslukjör.
Stærð á boröi 95 sm og stækkun 40 sm.
Litur: Ijóst og brúnbæsaö.
Ný sending af boröstofuboröum og stólum í dökku beyki
VALHUSG0GN
ÁRMÚLA 4. SÍMI 82275.
Mlcroline 182/192/193
Ný kynslóð
tölvuprentara!
[V
Kostimir eru ótvíræðir:
• Þriðjungi minni og helmingi léttari en áður.
• Miklu hljóðlátari en áður.
• Fullkomlega aðhæfðir IBM PC og sambæri-
legum tölvum.
• Ttengjast öllum tölvum.
• Prenta 160 stafi á sekúndu, skáletur og
gæðaletur.
• Notandi getur sjálfur hannað eigin leturgerðir.
• Fullkomin varahluta- og viðhaldsþjónusta.
• Til á lager.
Nýjungarnar koma alltaf fyrst frá MICROLINE.
Það er því engin furöa að
MICROLINE eru mest
seldu tölvuprentarar á íslandi.
fmmmm a M—mmmmr m
IMIKROI
Skeifunni11 Sírni 685610