Morgunblaðið - 22.01.1986, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986
Dr. Jóns Helgasonar
minnzt í Danmörku
Kaupmannahöfn 21. janúar. Frá Guðrúnu Láru Ásgeirsdóttur, fréttaritara Moigunblaðsins.
í DÁG er Jóns Helgasonar próf-
essors minnst í dönskum blöðum.
í Politiken segir m.a. að með
honum sé sá genginn sem gerst
þekkti íslensku handritin og að
ævistarf dr. Jóns Helgasonar sé
fyrirmynd þess hversu undirbúa
skuli útgáfu íslensku skinnhandrit-
anna og annarra heimildarrita fom-
sagnanna. Við ljósmyndun og frá-
gang fyrir heimsendingu handrit-
anna hafi aðferðum Jóns Helgason-
ar alla tið verið fylgt. Greint er frá
því að Jón prófessor hafi numið
norræn málvísindi í Kaupmanna-
höfn en varið doktorsritgerð sína í
Minningarathöfn
um Jón Helgason
í Dómkirkjunni
Minningarathöfn um Jón
Helgason, prófessor S Kaup-
mannahöfn, verður S Dóm-
kirkjunni fimmtudaginn 23.
janúar og hefst hún klukkan
13.30.
Útför Jóns Helgasonar verður
gerð frá Frederiksbergskirlqu í
Danmörku sama dag kl. 12.
heimalandinu og orðið forstöðu-
maður Ámasafns 1927, en um leið
verið prófessor í íslensku og íslensk-
um bókmenntum við Hafnarhá-
skóla, þar sem hann hélt fyrirlestra
sína „lágróma og sprenglærður,
heilshugar unnandi viðfangsefnis
síns“.
Þá er hins þekkta íslenska fræði-
manns minnst í Berlingi á þessa
leið. Dr. phil Jón Helgason prófessor
stóð bæði sem íslendingur og um
leið forstöðumaður Ámasafns í
miðri eldlínunni þegar íslensku
handritin vom send heim. Hann var
hugdjarfur alla tíð, segir í blaðinu,
og prófessorsstöðu sinni við Hafn-
arháskóla gegndi hann allt til sjö-
tugs. Stuttu fyrir áttræðisafmæli
hans, útnefndi Hafnarháskóli hann
heiðursdoktor í heimspeki í virðing-
arskyni fyrir vísindastörf hans í
hartnær hálfa öld. Einnig var hann
heiðursdoktor við Oslóarháskóla.
Að lokum segir blaðið að Jón Helga-
son prófessor hafi búið flölda rita
til útgáfu sem vísindamaður og
ljóðabóka hans er getið og útgáfu
hans á þýðingu Jóns Ólafssonar
frá Gmnnavík á „Niels Klims
Undeijordiske Reise" eftir Ludvig
Holberg.
Húsvíkingar kaupa
Kolbeinsey að nýju
Kaupverð 178,8 milljónir — skipið
gæti hafið veiðar um helgina
STJÓRN Fiskveiðasjóðs hefur nú
falið forstjórum sjóðsins að
ganga til samninga við íshaf hf.
á Húsavík um kaup á togaranum
Kolbeinsey. Kaupverð er 178,8
milljónir króna og lánar Fisk-
veiðasjóður 75% af upphæðinni.
Fyrsta útborgun er 28 milljónir
og 16,2 milljónir verða greiddar
á þessu og næsta ári.
Tryggvi Finnsson, stjómarfor-
maður Ishafs hf., sagði í samtali
við Morgunblaðið, að Húsvíkingar
væm ánægðir með að fá botn í
málið og gengju endanlegir samn-
ingar fljótt fyrir sig, gæti skipið
hafið veiðar um næstu helgi. Hann
sagði að þeir hefðu ekki verið
jafnánægðir með að hafa verið
knúnir til hækkunar kaupverðs, en
miðað við tilboðin í Sigurfara II,
virtust þeir mega vel við una, Kol-
beinseyin væri hagkvæmari í
rekstri. Þetta verð væri þó í hæsta
lagi og ljóst væri að ekkert mætti
bera út af í rekstrinum, ætti hann
að ganga.
Hlutafé í íshafí er um 30 milljónir
króna og að auki fær hlutafélagið
18 til 20 milljónir króna að láni
hjá Byggðasjóði samkvæmt heimild
á lánsfjárlöguni. Hluthafar munu
ganga í eigin ábyrgð fyrir láni
Byggðasjóðs, þannig að veðsett lán
á skipinu verða ekki umfram lán
Fiskveiðasjóðs; Sjóðurinn mun enn-
fremur veita íshafí sama vaxtaaf-
slátt og öðmm skuldunautum sjóðs-
ins. Ekki er ljóst hve mikill hann
verður á þessu ári, en hann var 60%
á síðasta ári. Er Fiskveiðasjóður
keypti skipið hvíldu á því skuldir
að upphæð rúmar 280 milljónir
króna.
m j\'s* j
AÐEINS fimm meinatæknar verða starfandi á Landspítalanum
á morgun, fimmtudag, en undir venjulegum kringumstæðum
eru þeir 50. Þetta gera þeir til að þrýsta á um betri launakjör
og bætta starfsaðstöðu við vinnu á áhættusýnum.
Landspítalinn:
Meinatæknar
aðeins með neyð-
arvakt á morgun
íhuga úrsögn úr BSRB
MEINATÆKNAR, sem starfandi eru á Landspítalanum, hyggjast
starfa eins og á sunnudögum á morgun, fimmtudag, þ.e. haldið
verður einungis uppi neyðarvakt, til að vekja athygli á kröfum
sínum um bætt laun og bættan öryggisútbúnað varðandi vinnu
áhættusýna. Fimm meinatæknar verða á vaktinni á morgun; tveir
á blóðmeinadeild, tveir á meinefnadeild og einn á göngudeild til
að sinna þeim sem pantað hafa tíma, en undir venjulegum kring-
umstæðum eru 50 meinatæknar starfandi á virkum dögum, að
sögn Helgu Ólafsdóttur formanns Meinatæknafélags íslands.
Nú þegar hafa sex meinatækn- tækna væru í mótun nú en þeir
ar hætt störfum á Landspítalan-
um og aðrir sjö hafa sagt upp
störfum frá 1. janúar 1986. „Hér
er ekki um neinar samræmdar
aðgerðir meinatækna að ræða
heldur eru þetta allt einstaklings-
bundnar uppsagnir. Störfin hafa
verið auglýst en enginn hefur sótt
um. Þá var nám meinatækna
lengt frá tveimur og hálfu ári upp
í þijú og hálft ár og var því
enginn meinatæknir útskrifaður í
þijú ár, frá 1982 til 1985, þannig
að hæg viðkoma er hjá stéttinni."
Helga sagði að kröfur meina-
miðuðu sig gjaman við tækni-
fræðinga þar sem báðar stéttimar
væm útskrifaðar úr sama skóla.
„Byijunarlaun meinatækna eftir
stúdentspróf og þriggja og hálfs
árs nám í tækniskóla er aðeins
27.000 krónur. Komið hefur til
tals á meðal félaga í Meinatækni-
félagi íslands að fara að dæmi
kennara og segja okkur úr BSRB
og ganga í BHM, en þó hefur
engin ákvörðun verið tekin um
það ennþá," sagði Helga. Félags-
menn í Meinatæknifélagi íslands
eru 340 talsins.
Keflavík:
Ingólfur
í fyrsta sæti
INGÓLFUR Falsson varð efstur
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Keflavík, með 481 atkvæði alls,
þar af 255 í fyrsta sæti. Alls
kusu 772, auðir seðlar og ógildir
voru 10. Prófkjörinu lauk á
mánudagskvöld.
„Þetta var allt gott fólk sem var
í framboðinu. Ég tók stefnuna á
fyrsta sætið þegar Tómas Tómas-
son hætti sem forseti bæjarstjómar
eftir langt og giftusamt starf fyrir
bæinn. Eg er ánægður með úrslitin
og vonast til _ að geta unnið hér
gott starf. Og eg vonast til að flokk-
urinn verði í meirihluta í bæjar-
stjóm eins og verið hefur undan-
farin 32 ár,“ sagði Ingólfur.
í öðru sæti var Garðar Oddgeirs-
son með 281 atkvæði í fyrsta og
annað sæti, 516 atkvæði alls. I
þriðja sæti var Jónína Guðmunds-
dóttir með 375 atkvæði í fyrsta til
þriðja sæti, 584 atkvæði alls. Krist-
inn Guðmundsson var í fjórða sæti
með 345 atkvæði í fyrsta til íjórða
sæti, 469 atkvæði alls. Stella B.
Baldursdóttir var í fimmta sæti með
337 atkvæði í fyrsta til fimmta
sæti, 385 atkvæði alls. Þessir hlutu
meira en helming atkvæða og er
kosning þeirra því bindandi.
í sjötta sæti var Einar Guðberg
með 377 atkvæði, f sjöunda Svan-
laug Jónsdóttir með 368, í áttunda
sæti var Hjörtur Zakaríasson með
293 atkvæði og í níunda sæti var
Sigurður Garðarsson með 283 at-
kvæði.
Rói af íslenzku
bergi brotinn
Færeyingurinn Rói Patursson,
sem í gær voru veitt bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs fyrir
ljóðabókina Lfkasum, er af íslenzku
bergi brotinn. Langamma hans hét
Guðný Eiríksdóttir og var frá Karl-
skála í Eskifirði. Þess má að auki
geta, að Rói vann á Bessastöðum
árið 1967, þegar Ásgeir Ásgeirsson
var forseti.
Sjá frétt og viðtal við Róa
Patursson á blaðsíðu 21.
Vopnaburður lögreglu:
Engin ástæða til að draga í
efa hæfni víkingasveitanna
— segir Sverrir Haukur Gunnlaugsson, skrifstofustjóri varnarmálaskrif-
stofu utanríkisráðuneytisins
í BRÉFI Landssambands lög- isins eru nefnd fjögur gagn-
reglumanna til dómsmálaráðu- rýnisatriði vegna ákvörðunar-
neytisins og utanrikisráðuneyt- innar um að lögreglumenn beri
Tilboð opnuð í Sigurfara og Sölva Bjarnason:
40 milljóna munur á hæsta
og lægsta tilboði í Sigurfara
TILBOÐ voru í gær opnuð hjá
Fiskveiðasjóði í togarana Sölva
Bjamason og Sigurfara II. Átta
tilboð bárust í Sigurfara og voru
þau á bilinu 190 til 150 milljónir
króna. í Sölva Bjamason bárust
5 tilboð á bilinu 150 til 128 millj-
ónir króna. Tilboðin hafa enn
ekki verið metin eftir greiðslutil-
högun og tryggingum, en slíkt
mat kann að breyta þeim nokkuð.
Tryggingaverð á Sölva er 160,9
milljónir en 186,6 á Sigurfara.
Tilboðin í Sigurfara eru frá eftir-
töldum aðilum: Bragi Bjamason og
fleiri, Höfn f Homafírði, 190 millj-
ónir króna. Haraldur Böðvarsson
og Co., Akranesi, 187,5, Útgerðar-
félag Akureyringa 177,3, Skag-
strendingur hf., 172, Siglunes hf.,
Gmndarfirði, 168,3, Hraðfrystihús
Grundaifyarðar hf. 165, Sæberg
hf., Ólafsfírði 165 og Þorbjöm hf.
Grindavík 150 milljónir króna.
Eftirtaldir aðiljar buðu í Sölva
Bjamason: Útgerðarfélag Bflddæl-
inga hf., 150,5 milljónir króna,
Bjami Andrésson, Tálknafirði,
147,1, Jón Erlingsson og Hafliði
Þórsson, Sandgerði, 132,5, Siglfírð-
ingur hf., Siglufírði, 131,5 og út-
gerðarfélagið Gunnvör, ísafirði 128
milljónir króna.
Sigurfari II var áður gerður út
af Hjálmari Gunnarssyni á Gmnd-
arfirði. Skipið hefur á þessu ári
áunninn kvóta upp á 800 lestir af
þorski og alls 2.801 lest. Þorskafla-
hámark skipsins í sóknarmarki, sé
það gert út frá Suður- og Vestur-
landi er 1.150 lestir, en 1.750 lestir
verði það gert út frá öðmm lands-
hlutum.
Sölvi Bjamason var áður í eigu
Tálkna hf á Tálknafirði, en síðustu
árin í leigu á Bfldudal. Áunninn
þorskkvóti skipsins er 1.346 lestir
í aflamarki og þorskaflahámark í
sóknarmarki er háð sömu reglum
og gilda um Sigurfara og reyndar
aðratogara.
skotvopn á Keflavíkurflugvelli:
ótrygg réttarstaða, ímynd lög-
reglubúningsins, slysatrygg-
ingar lögreglumanna og launa-
kjör. Fulltrúar ráðuneytanna
munu ræða við lögreglumenn
um þessi atriði á næstunni.
I bréfi LL segir um þessar ástæð-
un „Réttarstaða lögreglumanna,
sem þurfa að beita skotvopnum og
kunna að skaða óbreytta borgara,
hlýtur að vera ótrygg, ekki síst með
tilliti til þess að ekki hefur fengist
niðurstaða í viðræðum Landssam-
bands lögreglumanna og dómsmála-
ráðuneytisins um þau mál.
Stjóm Landssambands lögreglu-
manna mótmælir því, að almennur
einkennisbúningur lögreglumanna
sé notaður við slfk störf, þar sem
hann er þekktur sem búningur
óvopnaðra lögreglumanna. Hættu-
legt er að breyta þeirri ímynd.
Lögreglumenn eru slysatryggðir en
ekki er þar gert ráð fyrir þeirri
auknu áhættu, sem fylgir vopnuðum
störfum. Launakjör lögreglumanna
eru ekki miðuð við að lögreglumenn
stundi störf sín vopnaðir vélbyss-
um.“
Morgunblaðið sneri sér til Sverris
Hauks Gunnlaugssonar, skrifstofu-
stjóra vamarmálaskrifstofu utan-
ríkisráðuneytisins. Hann sagði að
bréf LL hefði ekki borist ráðuneyt-
inu, en benti á að þegar á þriðja
degi eftir að vopnaðir lögreglumenn
hófu gæslu á Keflavíkurflugvelli,
hefðu lögreglumenn klæðst öðrum
búningum og það hefði gerst áður
en kunnugt varð um afstöðu Lands-
sambandsins.
Landssambandið hefði ekki í
sjálfu sér snúist gegn vopnaburði
lögreglumanna, heldur vakið athygli
stjómvalda á réttarstöðu þeirra,
slysatryggingum og launakjörum.
Sverrir Haukur sagði ennfremur
„Þjálfun víkingasveitar lögreglunnar
hér á landi er að fyrirmynd sérsveita
norsku lögreglunnar og stenst fylli-
lega samanburð við hana. Kröfur
sem gerðar em til norsku sveitarinn-
ar eru strangari en í ýmsum ná-
grannalöndum okkar og því engin
ástæða til þess að draga í efa hæfni
meðlima íslensku víkingasveitanna."
Hjalti Zóphaníasson, skrifstofu-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu, sagði
að ekki hefði verið tekin afstaða til
bréfs Landssambandsins. Þeir sögðu
að á næstunni færu fram viðræður
á vegum ráðuneytanna um efnisat-
riði bréfs Landssambandsins.