Morgunblaðið - 22.01.1986, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 22.01.1986, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1986 9 Innilegt þakklœti til allra þeirra sem glöddu mig meÖ hlýjum kveðjum, blómum og gjöfum á 80 ára afmœlisdegi mínum 15. janúar sl. GuÖ blessi ykkur öll. Steinþór Sighvatsson, Vatnsvegi 36, Keflavík. AlúÖarþakkir fœri ég öllum þeim vinum og vandamönnum sem heimsóttu mig og heiÖruÖu á 90 ára afmceli mínu 18. janúar sl. Sérstakar þakkir fceri égsystrunum á St. Fransiskuspitala í Stykkishólmi og starfsfólki bœöi fyrir góÖa umönnum og eins aÖ gera mér daginn ógleymanlegan. Guö blessi ykkur, heill og hamingja fylgi ykkur öllum. Bjarni Sigurðsson frá Berserkeyri. eígendur athugi 29. og 30. janúar næstkomandi mun sérfræðingur frá Mazda gangast fyrir námskeiði fyrir starfs- menn okkar og þjónustuaðila. Verður verkstæðið því lokað þessa 2 daga. BILABORG HF Smiðshöfða 23 Verkstæði sími 81225 Útsala 15%-60% Viö rýmum fyrir nýjum vörum. Seljum í dag og næstu daga alls konar keramik og stell meö hressilegum afslætti. Allt að 60%. HÖFÐABAKKA 9 — REYKJAVÍK Sími685411. Á upplýsingaveiðum? AP/Sbiumjmd Fjórum sovéskum sendirádsfulltrúuni, sem voru að veiðum á isilögðu Esrum-vatni, var ( land af lögreglu, þar sem þeir þóttu grunaamlega nálægt danskri ratsjárstðð. Myndin sýnir lögregi- una taka á móti Sovétmönnunum er þeir komu í land og kom þá f Ijós að í búnaði þeirra var að finna ljósmyndavél og einhvers konar mælitæki. „Rannsóknir" Sovétmanna Myndin sem birtist hér að ofan var tekin rétt hjá Kaupmanna- höfn á dögunum. Hún sýnir danska öryggislögreglumenn og sovéska sendiráðsmenn, sem höfðu farið út á ísilagt vatn í nágrenni við ratsjárstöð danska hersinsl Þóttu ferðir þeirra grunsamlegar og ekki síst tækin, sem þeir höfðu með sér. Á sínum tíma fundust senditæki af sovéskri gerð í íslensku vatni, Kleifarvatni. Getur verið að þau hafi dottið niður um ís? í Stak- steinum í dag er fjallað um „rannsóknir" Sovétmanna hér á landi. Ekkifaríð að reglum Fyrir viku birti Þjóð- viljinn einskonar neyð- aróp á forsíðu undir þessari fyrirsðgn: „Kalt stríð" — Lokað á Rússa. Geir Hallgrimsson aft- urkallar rannsóknaleyfi sem búið var að veita sovéskum jarðvísinda- mönnum. Orkustofnun átti að fylgjast með og fá niðurstöður. Utanrik- isráðimeytið: Ekki talið heppilegt að svona rann- sóknir fari fram upp við landsteina. Undir þessari löngu fyrirsögn Þjóðviljans birtist síðan frétt þess efnis, að Geir Hallgríms- son, utanríkisráðherra, hafi „skyndilega" aftur- kallað leyfi sem Rann- sóknaráð ríkisins veitti sovéskum visindamönn- um til rannsókna í sam- vinnu við Orkustofnun á setlögum við suðurströnd landsins. Rannsóknirnar hafi átt að kosta 5-10 milljónir króna og ætl- uðu Sovétmenn að borga brúsann, að sögn Þjóð- viljans. Er haft eftir Karli Gunnarssyni, jarð- eðlisfræðingi, að veru- legur akkur hefði orðið af þessum rannsóknum fyrir fslendinga. Við nánari lestur frétt- ar Þjóðviljans kemur f Ijós, að við úthlutun þessa rannsóknaleyfis til Sov- étmanna hefur ekki verið farið að íslenskum lög- um. Eða eins og haft er eftir Hjálmari W. Hann- essyni, sendifulltrúa í utanríkisráðuneytinu, f Morgunblaðinu I gær: Sovétmennimir sneru sér beint til Orkustof nun- ar með beiðni um rann- sóknaleyfi en ekki réttra islenskra yfirvalda. Það var fyrir tílvijjun, að utanríkisráðuneytíð, sem á að fjalla um mál af þessu tagi, fékk fréttir af þessari beiðni nú eftír áramótín. Samkvæmt is- lenskum lögum á að sækja um rannsóknaleyfi í efnahagslögsögunni með sex mánaða fyrir- vara. Þegar Rannsókna- ráði rfldsins hafði verið gerð grein fyrir þessu, afturkallaði það leyfi, sem það hafði veitt sov- ésku skipi til rannsókna á landgrunninu. Aðgæsla nauðsynleg Athyglisvert er að lesa það, sem Ujálmar W. Hannesson segir í Morg- unblaðinu, að þessi um- sókn Sovétmanna sýndi áhuga þeirra á viðkvæm- um svæðum fyrir suður- ströndinni, meðal annars suður af Reykjanesi og nálægt Stokksnesgrunni. Á þessum slóðum eru Sovétmenn annars vegar f nágrenni við bækistöð vamarliðsins á Keflavfk- urflugvelli og hins vegar á Stokksnesi. Þama em neðansjávarkaplar, sem em hlutí af hinu svo- nefnda SOSUS-kerfi, sem talið er eitt öflugasta tæki Atlantshafsbanda- lagsins tíl kafbátaleitar. Sovétmenn hafa stundað hér rannsóknir á jarðfræði Islands og set- lögum umhverfis landið um langt árabil, eða af og til sfðan 1971. Þessi starfsemi þeirra hefur oft verið gagnrýnd. Fram hefur komið í umræðum um hana, að alls ekki hefur verið auðhlaupið fyrir íslenska vísindamenn að fá að- gang að þeim niðurstöð- um, sem rannsóknimar ættu að hafa leitt tdl. Þá hafa á stundum verið svo margir sovéskir hópar hér á landi, að ekki hafa verið tiltækir nægilega margir fslenskir vísinda- menn til að fylgja þeim eftir og halda uppi eðli- legu eftirlití á staðnum með rannsóknum þeirra. Ennfremur er af og frá, að sovésk stjómvöld sættí sig við gagnkvæmni á þessu sviði og heimilaði stórum hópum fslenskra vísindamanna að fara um sovésk fjöll og firnindi. Á sfðari árum hafa birst um það upplýsing- ar, að Sovétmenn beití öUum tíltækum ráðum til að búa þannig f haginn fyrir sig á Vesturlöndum, að á hættu- eða átakatfm- um getí þeir með skemmdarverkum meðal annars eyðilagt mildlvseg mannvirki eins og virkj- anir og stíflur. Hefur verið töluvert rætt um hinar sérþjálfuðu sveitir þeirra - spetsnaz-sveit- irnar — í þessu sambandi. í þeim umræðum hefur þvf verið haldið á loft, að menn f þessum sveit- um fái tældfæri til að kynnast aðstæðum á Vesturlöndum f dular- gervi, tíl dæmis sem fþróttamenn, fulltrúar f verslunamefndum, sendiráðsstarfsmenn eða vísindamenn. Það er bamaskapur að láta eins og annað gildi nm ísland en önnur lönd í þessu tilliti. Þetta verða menn einnig að hafa f huga þegar þeir ræða um rannsóknaferð- ir Sovétmanna til íslands ogviðfsland. RÝMINGARSALA' í heila viku VATNSVIRKINN/f ÁRMÚLI 21 - PÓSTHÓLF 8620 - 128 REYKJAVfK SÍMAR: VERSLUN 686455. SKRtFSTOFA 685966 18-1- — 25.1.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.