Morgunblaðið - 22.01.1986, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANUAR1986
Sovétríkin:
Aðstoðarráðherra
kærður fyrir spillingu
Moskvu, 21. janúar. AP.
VLADIMIR Sushkov, adstoðar-
ráðherra í sovéska utanrikisvið-
skiptaráðuneytinu, hefur látið af
störfum, að þvi er embættismenn
í ráðuneytinu sögðu í dag. Vest-
rænir kaupsýslumenn og við-
skiptafulltrúar sögðu, að þeim
hefði verið tjáð, að Sushkov hefði
verið handtekinn og ákærður
fyrir spillingu.
Sushkov, sem er 65 ára að aldri,
hafði gegnt aðstoðarráðherraemb-
ættinu frá árinu 1974. Frá 1976
var hann varaformaður bandarísk-
sovéskrar verslunamefndar, sem
skipuð var til að örva viðskipti
landanna.
Nefndin kom saman til fundar í
Moskvu í desembermánuði og sátu
hann nærri 400 bandarískir kaup-
sýslumenn. Sushkov talaði á þeirri
samkomu og var viðstaddur blaða-
mannafund, sem haldinn var í fund-
arlok. Þar tilkynnti hann, að næsti
fundur nefndarinnar yrði haldinn í
Bandaríkjunum í vor.
í dag sögðu embættismenn í
utanríkisviðskiptaráðuneytinu, að
Sushkov ynni þar ekki lengur, en
vildu ekki nefna neina ástæðu fyrir
því. Talsmaður á skrifstofu banda-
rísk-sovésku verslunamefndarinnar
í Moskvu sagði einnig, að Sushkov
væri hættur í ráðuneytinu og hefði
látið af starfi sínu sem varaformað-
ur nefndarinnar.
Vestrænir kaupsýslumenn og
viðskiptafulltrúar vestrænna sendi-
ráða í Moskvu sögðu, að þeim hefði
verið tjáð, að Sushkov hefði verið
handtekinn og ákærður fyrir spill-
ingu. Sumir heimildarmannanna
kváðust enn fremur hafa frétt, að
eiginkona ráðherrans hefði einnig
verið handtekin. Hún starfaði eins
og eiginmaður hennar hjá utan-
ríkisviðskiptaráðuneytinu.
Lesotho:
Kólumbia:
Allt kapp lagt á
að halda áætlun
Edwards-herflugveUinum, Kalifomíu, 20. janúar. AP.
TÆKNIMENN Bandarísku
geimf erðastof nunarinnar,
NASA, höfðu í gær hraðar hend-
ur við að undirbúa geimferjuna
Kólumbíu undir flutning til
Kanaveralhöfða á Flórída, til
þess að takast megi að halda
áætlun um næstu ferð hennar.
Kváðu þeir ferjuna vera i góðu
ásigkomulagi og aðeins lítils
háttar skemmdir orðið á hitahlíf.
Kólumbía er nú um 4.800 kíló-
metra frá skotstað á Kanaveral-
höfða. Á feijan að fara í næstu
ferð sína 6. mars nk. og verður
aðalviðfangsefnið þá að fylgjast
með Halleys-halastjömunni.
Lendingu Kólumbíu var frestað
sjö sinnum í síðustu ferð, oftar en
nokkm sinni fyrr, og lenti hún loks
á laugardag á Edwards-herflugvell-
inum í Mojave-eyðimörkinni í Kali-
fomíu. Var ástæðan sú, að ekki
þótti vogandi að lenda á Kanaveral-
höfða vegna hættu á rigningu, sem
hefði getað valdið skemmdum á
hitahlíf feijunnar.
Sá tími, sem fer í að búa feijuna
undir flutninginn til Flórída, mun
skerða undirbúningstímann fyrir
næsta flug um fimm daga hið
minnsta. Vinna 120 tæknimenn nú
baki brotnu við að flýta verkinu
eins og unnt er.
Kólumbía fer frá Edwards-her-
stöðinni á fímmtudag í síðasta lagi,
og verður feijan flutt á þaki Boeing
747-risaþotu.
„Ekki segja mömmu ** AP/simamynd
Níu ára gamall drengur I Sepulveda í Kalifomíu varð fyrir því óláni fyrir nokkrum dögum, að
hann festist í skorsteini og mátti dúsa þar í þijá tíma áður en slökkviliðsmönnum tókst að bijóta
strompinn utan af honum. Reyndar gat strákur sjálfum sér um kennt því hann ætlaði að fara
þessa leið til að stela. „Ekki segja mömmu," sagði strákur grátandi þegar hann var borinn á brott.
Kína:
Valdaráni
fagnað á
götum úti
Masaru, 21. janúar. AP.
ÞÚSUNDIR manna dönsuðu
og sungu á götum Masuru,
höfuðborgar Lesotho, til að
fagna þvi að Lebua Jonathan,
forsætisráðherra, hefur verið
velt úr sessi, að því er segir
i fréttum AP.
Eftir fréttum í dag frá Suð-
ur-Afríku að dæma mun þessi
breyting á ríkisstjóminni leiða
til þess að Pretoriu-stjómin linar
á flutningabanni til Lesotho og
ýms konar öðmm þvingunum,
sem Lesotho-stjóm hefur verið
beitt.
Ekki er vitað að svo stöddu,
hvar Jonathan er nú, en engar
fregnir hafa borizt um að hann
hafi verið handtekinn.
Lekhanya, sem steypti for-
sætisráðherranum, er sagður
vera hálfsextugur að aldri. Hann
var mjög andsnúinn þeirri stefnu
Jonathans að sýna mótþróa
minnihlutastjóm hvítra manna
í Suður-Afríku, en upp á síðkast-
ið hafði þeirrar stefnu Jonathans
gætt í ríkara mæli.
Minni hömlur á út-
lendan atvinnurekstur
Shevardnadze í
vináttuheimsókn
í Norður-Kóreu
Tókýo og Moskvu, 21. janúar. AP.
EDUARD Shevardnadze, ut-
anríkisráðherra Sovétríkj-
anna, er nú staddur í „opin-
berrí vináttuheimsókn" í
Norður-Kóreu, að sögn út-
varpsins f Pyongyang, höfuð-
borg landsins. í dag átti hann
fund með norður-kóreska
leiðtoganum Kim II Sung.
Að sögn Tass-fréttastofunnar
kom Shevardnadze á framfæri
skilaboðum frá sovéska leið-
toganum, Mikhail Gorbachev,
en ekki var skýrt nánar, hver
þau skilaboð hefðu verið.
Shevardnadze kom til Norð-
ur-Kóreu frá Japan, þar sem
hann dvaldist f fimm daga og
átti ítarlegar viðræður við jap-
anska ráðamenn. Þar á meðal
ræddi hann í 11 klukkustundir
við hinn japanska starfsbróður
sinn, Shintaro Abe. Sagði Shev-
ardnadze, að tekist hefði að
„styrkja umræðugrundvöll Jap-
ans og Sovétríkjanna", að því
er norður-kóresk blöð hermdu í
dag.
„Stjómmálaviðræður hafa
hafist á ný milli landanna og
við höfum ákveðið að halda þeim
áfram þrátt fyrir ýmsan skoð-
anaágreining og alvarleg mis-
klíðarefni," sagði Shevardnadze
við fréttamenn. „Þeir samning-
ar, sem við undirrituðum í
Tókýó, munu stuðla að friði á
milli landanna.
AP/Simamynd
Leabua Jonathan, fyrrver-
andi forsætisráðherra.
Peking, 21. janúar. AP.
KÍNVERJAR hyggjast enn draga
úr hömlum gagnvart erlendum
fyrírtækjum, sem eru reiðubúin
til að fjárfesta í atvinnurekstri f
Kina. Er ætlunin að gera þeim
auðveldara f framtfðinni að flytja
Olíuverðið niður í
14 dollara tunnan?
hagnaðinn af starfsemi sinni úr
landi í hörðum gjaldeyrí, enda
þótt slíkt verði eftir sem áður
háð ýmsum takmörkunum.
Blaðið China Daily, sem gefíð er
út á ensku, skýrði frá þessu í dag
og hafði fréttina eftir Gu Ming,
formanni efnahagsmálastofnunar
ríkisins.
Blaðið skýrði svo frá, að kín-
Osló, 20. janúar AP.
VERÐ á olíu úr Norðursjó er nú
lægra en nokkru sinni siðan 1979
og heldur áfram að falla. Svo
getur vel faríð, að það farí niður
fyrir 20 dollara tunnan á næst-
unni. Skýrði norska blaðið Aften-
posten frá þessu f dag.
Blaðið hafði það eftir ónafti-
greindum olíusérfræðingi, að haldi
núverandi offramleiðsla áfram bæði
innan og utan OPEC, þá kunni
verðið á olíu úr Norðursjó að vera
komið niður í 14—15 dollara tunnan
næsta sumar.
ERLENT
verska stjómin myndi gefa út
sveigjanlegri reglur á þessu sviði
nú í vikunni. Þær ættu að greiða
fyrir starfsemi þeirra fyrirtækja,
sem fjárfesta meira í Kína en nemur
hagnaði þeirra.
Til þessa hafa Kínveijar nær
algerlega takmarkað starfsemi er-
Iendra fyrirtækja við það, að þau
hefðu hagnað sinn af útflutnings-
starfsemi eða með sölu á vörum og
þjónustu, sem borgað væri fyrir
með erlendum gjaldeyri. Dæmi
þessa voru starfsemi ferðamanna-
hótela eða framleiðsla á vestrænum
sígarettum fyrir útlendinga í Kína.
Samið hefur verið um undan-
þágur frá þessum reglum í einstök-
um tilfellum, en reglumar hafa
samt verið bundnar slíkum tak-
mörkunum, að það hefur fælt ýmsa
bandaríska og japanska fjárfest-
ingaraðila frá.