Morgunblaðið - 22.01.1986, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1986
35
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guömundsson
„Hæ, hæ! Mig langar til að
vita hvað þú getur sagt mér
um Hrútinn. Ég er fædd á
páskadagsmorgun, eða 14.04.
1968, kl. 8 að morgni. T.d.
atvinnu, ástarlíf, persónu-
leika, tilfínningar og hæfíleika
og hvemig Hrútur og Ljón
eiga saman og Hrútur og Tví-
buri og að lokum Hrútur og
Krabbi. Með fyrirfram þökk.“
Svar:
Þú hefur Sól, Merkúr, Venus
og Satúmus í Hrútsmerkinu,
Tungl ( Sporðdreka, Mars í
Nauti og Rísandi merki í
Krabba og Miðhiminn í Stein-
geit. Þú hefur því einkenni
frá Hrúti, Sporðdreka, Nauti,
Krabba og Steingeit.
GrunneÖli
Sól í Hrút. Þú ert í grunnatrið-
um einlæg, opinská og hrein
og bein. Þú vilt að umhverfí
þitt sé lifand og skapandi. Þú
átt það til að vera óþolinmóð
og fljótfær. Innst inni ert þú
jákvæð og bjartsýn. Þú ert að
öðm leyti ekki dæmigerður
Hrútur, sérstaklega þar sem
önnur merki þín em ólík
Hrútsmerkinu.
Tilfinningar
Tungl í Sporðdreka og Venus
í Hrút. Þú hefur sterkar og
ákafar tilfínningar en ert mót-
sagnakennd og mislynd. Þú
getur átt það til að fara öfg-
anna á milli, ert ýmist dul og
dregur þig til baka eða opin
og hress. Þú hefur næmar
tilfínningar og átt erfítt með
að vera hlutlaus. Þú þarft að
gæta þín á nokkmm atriðum.
I fyrsta lagi er viðkvæmni þín
mikil og því ert þú að mörgu
leyti auðsærð. Þegar ofan á
það bætist ákafur og baráttu-
glaður Hrútur er hættan
augljós. Tilhneiging til að láta
særa þig er fyrir hendi, stund-
um útaf smámunum, og síðan
að ijúka upp með látum. Þú
getur þá lent í deilum og úti-
stöðum við aðra, t.d. ástvini
þína. Þú þarft að biynja þig
gagnvart viðkvæmninni og
gæta þess að telja upp að tíu
áður en þú rýkur upp.
Persónuleikinn
Fyrir utan framangreínda
hættu í sambandi við tilfínn-
ingamar má segja að þú sért
að öllu jöfnu ákveðin og getur
verið mjög föst fyrir þegar
því er að skipta. Þú þarft visst
öryggi og varanleika í líf þitt.
Hvað varðar atvinnu kem ég
í fljótu bragði ekki auga á
hvar helstu möguleikar þínir
liggja. Þeir gætu tengst hjúkr-
un og uppeldisstörfum en ég
er samt sem áður ekki viss. 1
raun er mjög erfítt og jafnvel
ekki hægt að lesa úr stjömu-
korti, án þess að hitta viðkom-
andi og þekkja til fyrri að-
stæðna og uppeldis, nema þá
til gamans. Stjömuspeki er
fyrst og fremst tæki til að
vekja okkur til umhugsunar
um eigin persónuleika, við
verðum síðan sjálf að vinna
með hann.
Samskiptin
Hinum dæmigerða Hrút lyndir
vel við Ljón og sömuleiðis við
Tvíbura en á ekki samleið með
Krabba. Þar sem þú ert tæp-
ast dæmigerður Hrútur og
hefur auk þess sterkan
Krabba í korti þínu ætti þér
að lynda vel við Krabbann.
Það samband getur hins vegar
orðið stormasamt ef þú lærir
ekki að stjóma skapi þínu.
X-9
MAfíca, ftwv er
Aí> ? //V£ffSt'£GMA
t/aPPAP pý £/MS
06 MRoSMM ?
DYRAGLENS
LJOSKA
TOMMI OG JENNI
FERDINAND
?7!?T7í:!niií:fH;:?!:!:li:Uilllluu“ll‘-U!!i“11-“uuu‘lllullJllull!llulull‘llll,ll»1“i.ii.ui
. :::: :. ::::::::: ...............................................
SMÁFÓLK
Þá er ég hérna, rétt einu Með tvo poka fulla af kín- Þau vita að þau geta treyst Ég opnaði allar smákök-
sinni skilinn eftir einn í verskum mat í aftursæt- mér,ogþó... umar með spádómun-
bílnum... inu! um...
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Sveit Steen Schou frá Dan-
mörku vann sveitakeppni Brids-
hátíðar, Flugleiðamótið, með
yfirburðum um helgina. I sveit-
inni em þeir Blakset-bræður,
Lars og Knut, Sævar Þorbjöms-
son og Schou. Sævar og Schou
spiluðu saman í fyrsta sinn nú
á Bridshátíð, en það virðist ekki
hafa staðið þeim fyrir þrifum.
Spilið hér að neðan, sem er úr
tvímenningi Bridshátíðar, sýnir
að sambandsleysi hefur ekki
þjakað þá í sögnum:
Austur gefur, N/S á hættu.
Vestur
♦ KD76
¥ 974
♦ 2
♦ 109765
Norður
4 84
4-
♦ KDG108764
4ÁKG
Austur
.. 4 G953
II JKG106
♦ 95
4432
Suður
4Á102
¥ ÁD8532
♦ Á3
4D8
Sævar og Schou spila eðlilegt ^ ^
kerfí að grunni til, og sögðu
þannig á spil N/S:
Vestur Norður Austur Suður
— — Pass 1 hjarta
Pass 3 típlar Pass 3 hjörtu
Pass 4 tígiar Pass 4 spaðar
Pass 51auf Pass 5 hjörtu
Pass Pass 6 lauf 7 grönd Pass Allir pass 7 tíglar
Stökk Sævars í þrjá tígla
sýndi slemmuáhuga og sterkan
lit. Schou sagði frá góðum
hjartalit og Sævar lagði aftur
áherslu á tígulinn. Eftir það tóku
við fyrirstöðusagnir. Þegar
Schou stökk síðan í sjö tígla vissi
Sævar að allir ásamir voru fyrir
hendi og breytti í sjö grönd til
að uppskera sem mest. Jafnvel
þótt Schou ætti einungis þijá
bera ása — sem var ólíklegt —
væri spilið aldrei verra en lauf-
svíning.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á Evrópumeistaramóti ungl-
inga í Groningen f Hollandi um
áramótin kom þessi staða upp (
skák þeirra Blatny, Tékkóslóvak-
íu, sem hafði hvltt og átti leik,
ogHom, Sviss.
20. R4c5! - dxc5, 21. Rxc6. (Nú
tapar svartur drottningunni, þv(
21. — Dc8, 22. Ra6 er kæfíngar-
mát) Dc7, 22. Ra6+ og svartur
gafst upp. Sovézki unglingurinn
Alexander Khalifman sigraði
með miklum yfirburðum í Gron-
ingen. Hann hlaut 11 v. af 13
mögulegum. Næstur kom Howell
(Englandi) með 9 v. og síðan Zysk
(V-Þýzkalandi), Arlandi (Ítalíu),
Blatny og Holiendingamir M.
Piket og J. Piket, allir með 8 v.
Davið Ólafsson hlaut 5 v.