Morgunblaðið - 22.01.1986, Page 3

Morgunblaðið - 22.01.1986, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986 3 ; Laugardalslaugin illa farin af steypuskemmdum: Aætluð viðgerð kostar 30 til 40 milljónir króna ÆTLUNIN er að veija 9 milljón- planinu í kring, sem að sögn Guð- um króna til viðgerða á Sund- mundar Pálma verður dýrasta lauginni i Laugardal á þessu ári, framkvæmdin. samkvæmt fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar. Að sögn Guðmundar Pálma Kristinsson- ar, forstöðumanns bygginga- deildar borgarverkfræðings, er laugin mjög illa farin af steypu- skemmdum og er áætlað að heildarkostnaður við viðgerð á lauginni nemi á milli 30 til 40 milljónum króna. Guðmundur Pálmi sagði að þessi áætlaði heildarkostnaður tæki til viðgerða á allri stúkunni, lauginni sjálfri, laugarkantinum, gluggum, gangstéttinni í kring, útisturtum og fleira. Varðandi skemmdir á stúkunni og lauginni sagði Guð- mundur Pálmi að þar væri um að ræða steypuskemmdir vegna mikill- ar rakamyndunar og mikils álags á steypuna, svo og alkalískemmdir, frostþíðuverkun, slagregn ogfleira. Að sögn Guðmundar Pálma er mesti hluti viðgerðarkostnaðarins vegna laugarinnar sjálfrar. Á sínum tíma hefði farið fram viðamikil viðgerð á stúkunni, þar sem þak- bitar og fleira voru klæddir og hefði sú viðgerð rejmst ágætlega. Á næstunni er fyrirhugað að gera við pallana í stúkunni og he§a viðgerð á lauginni sjálfri, hreinsa flísar, sem væru illa famar af kísil, sveppum oggróðri. Reiknað er með að þessar 30 til 40 milljónir fáist á næstu fimm árum og árið 1987 er fyrirhugað að fara í endurbyggingu á laugar- kantinum, laugarveggjunum og Enga olíu að sjá á Seyðisfirði — segir Gunnar Agústs- son hjá Siglingamála- stofnun „ÞAÐ VAR enga olíu að sjá á öllum firðinum. Á einstaka stað voru litaðir steinar i fjörunni en við sáum engan dauðan fugl,“ sagði Gunnar Ágústsson, en hann og Eyjólfur Magnússon fóru á vegum mengunardeildar Sigl- ingamálastofnunar til Seyðis- fjarðar fyrir helgi til að kanna ástandið eftir olíulekann sem varð þar, er snjóflóð rauf olíu- leiðslu aðfaranótt annars dags jóla. Gunnar sagði að þeir hefðu séð fjölda fugla á sundi á firðinum og einnig á flugi og virtist ekkert ama að þeim. Hann sagði að þeir Eyjólf- ur hefðu farið á báti eftir öllum fírðinum og hvergi séð dauðan fugl. Að vísu hefðu þeir ekki gengið fjörur. Talsverð grútarmengun er inni í höfninni á Seyðisfírði, að sögn Gunnars, og urðu þeir aðeins varir við oiíu í grútnum. Ekki er vitað hvort olían er vegna olíulekans eða frá skipum. „Ég tel litla þörf á að hreinsa Qörurnar því náttúran mun sjá um það á tveimur til þremur mánuð- um,“ sagði Gunnar. „Ef olíubrák hefur sest á grjót hefur leysiefnið úr henni þegar gufað upp. Brákin er að verða gijóthörð og smitar þvi ekki út frá sér.“ f ferðinni var ástand geima einn- ig kannað. Gunnar sagði að ástand þeirra væri ekki nógu gott. Nú er • verið að . vinna úr gögnum sem' safnað var og 'verða tillögur um úrbætur lagðar fram fljótlega. Frá kr. 389.600 2 dyra lúxusgerð meö ryðvörn og öllu, tilbúinn á götuna og athugið vel aö okkar verd er þaö verð sem þið greiöiö. Viö vorum að fá til landsins stóra sendingu af þessum frábæra og margfalda verðlaunabíl og getum byrjað nýja árið með því að bjóða flestar gerðir og liti á þessu frábæra verði. DAIHATSU: FREMSTIR I GÆDUM ÞJÓNUSTU OG ENDURSÖLU. DAIHATSUUMBOÐIÐ Armúla 23 s. 685870 — 81733.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.