Morgunblaðið - 22.01.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.01.1986, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986 Sjónvarpsefni um g-ervihnetti: Framboð á efni fer stöðugt vaxandi — segir Þorvaldur Sigurðsson hjá Hljómbæ „ÞAÐ hefur verið talsverð eftirspurn eftir svona skermum og fer vaxandi,“ sagði Þorvaldur Signrðsson, verkstæðisstjóri hjá Hljómbæ, sem flutt hefur inn nokkra skerma fyrir móttöku sjón- varpsefnis um gervihnetti. Að sögn Þorvaldar er verðið á skerm- unum frá 160 þúsund krónum, það er á minnstu skermunum, sem eru 1,25 metrar í þvermál. Þorvaldur sagði að til þess að samgönguráðuneytisins. í um- geta keypt móttökuskerm þyrfti sókninni þarf að tilgreina hvaða viðkomandi að sælqa um leyfí til búnað menn hafa hugsað sér að Miklu minna mál en fólk heldur — segir Ari Þór Jóhannesson, umboðs- maður fyrir NEC-móttökuskerma „ÞETTA ER miklu minna mál en fólk heldur og tækið mjög einfalt i notkun," sagði Ari Þór Jóhannesson, sem hefur umboð fyrir NEC-móttökuskerma. Að sögn Ara kosta þeir minnstu milli 150 og 160 þúsund krónur og kvaðst hann eiga 10 slíka á hafnar- bakkanum og væri um helmingur þeirra seldur. Ari sagði að það væri tiltölulega verður að greiða hátt stofngjald, einfalt mál að fá leyfí hjá hinum erlendu sjónvarpsstöðvum varð- andi notkun á efni. „Þeir eru allir af vilja gerðir að gefa okkur leyfi. í dag eru það hins vegar ekki nema þijár stöðvar sem við fáum að taka á móti með fullum rétti, en það eru bresku stöðvamar „Music Box“ og „Sky Channel" og svo franska stöðin TV 5. Vandamálið er hins vegar það að í hvert skipti sem eitthvert land hyggst taka á móti nýrri rás og skiptir þá engu máli hvort um er að ræða einn einstakling eða þúsund manns. Þegar komið er yfír fímm lönd sem taka á móti viðkomandi rás, fellur gjaldið niður og þau lönd sem síðar bætast við fá þá frítt. Enn sem komið er eru það aðeins bresku rásimar sem eru komnar yfir þetta mark, en nýjar stöðvar bætast stöðugt við. Franska stöð- in TV 5 greiðir hins vegar sjálf fyrír alla þá sem vilja ná henni.“ Mikíð spurt um ensku rásina „Music Box“ — segir Valmundur Einarsson hjá Videólundi á Akureyri Akureyri, 20. janúar. „VIÐ EIGUM eftir að taka afstöðu til málsins, en mér þykir lík- legt að fólk vilji kaupa þann búnað, sem þarf til að geta sent út efni frá gervihnöttum,“ sagði Valmundur Einarsson, einn forráða- manna Videólundar á Akureyri, í tilefni útgáfu reglugerðar um starfrækslu jarðstöðva fyrir móttöku sjónvarpsefnis um gervi- hnetti, en fyrirtækið á eina móttökuskerminn sem til er á Norður- landi. „Við höfum reyndar enn ekki fengið reglugerðina í hendur þannig að við vitum ekki nákvæm- lega hvemig hún er, en það hefur alltaf verið meiningin að koma gervihnattaefni út á kerfí okkar ef við fengjum leyfí til notkunar á skermi og leyfí frá erlendu stöðvunum," sagði Valmundur. Kerfí Videólundar er tengt i 440 íbúðir en Valdimar sagði þó aðeins 300 aðila greiða fyrir efnið. „Kerfíð er að mestu leyti tengt í blokkir og því í heilan stigagang ef einhver í honum hefði áhuga á að vera með. Það er mun hag- kvæmara en að leggja í hveija íbúð fyrir sig.“ Valmundur sagði fólk mikið spyija um ensku rásina „Music Box“ er hann var inntur eftir því hvaða stöð Videólundur myndi reyna að ná ef hann fengi tilskilin leyfí. „Þetta er tónlistarrás, nán- ast Skonrokk í 18 tíma á sólar- hring,“ sagði hann. Fleiri rásir koma til greina, og í gær er blaða- maður ræddi við Valmund, var hann að horfa á svissneska rás, skipti síðan yfír á belgíska og einnig á „Music Box“ þannig að af nógu virðist að taka. nota, ennfremur þarf að fylgja leyfí frá þeim stöðvum, sem ætl- unin er að horfa á. Umsóknin er síðan send til umsagnar Pósts og síma, sem falið er með lögum að vemda Qarskiptatíðni. Að sögn Þorvaldar eru það aðallega tveir hnettir sem um er að ræða hér á landi, það er ECS 1 og ECS 2. Á ECS 1 eru meðal annars tvær breskar rásir „Sky Channel" og „Music Box“, en á síðamefndu rásinni er send út tónlist í 18 tíma á sólarhring. Ennfremur er þar um að ræða rásir frá ýmsum Evrópulöndum, svo sem Sviss, Þýskalandi, Frakklandi, Belgíu, Hollandi, og Ítalíu. Aðspurður sagði Þorvaldur að í Evrópu hefði þróunin orðið sú að svokölluð kapalkerfí hefðu í vaxandi mæli annast dreifíngu á sjónvarpsefni um gervihnetti, þannig að þessir nýju möguleikar hefðu fremur styrkt kapalkerfín en hitt, þótt ómögulegt væri að segja fyrir um hver þróunin yrði hér á landi. Morgunblaðið/Júlfus Móttökuskermur á þaki Hótel Holts Gestir Hótel Holts geta valið um stöðvar „REYNSLAN af skerminum er mjög góð og gestir hótelsins að sjálfsögðu ánægðir með þessa þjónustu,“ sagði Skúli Þorvaldsson, hótelstjóri á Hótel Holti, en þar var settur upp móttökuskermur fyrir sjónvarpsefni um gervihnetti í október síðastliðnum. Skúli sagði að skermurinn væri stilltur inn á ECS 1 gervihnöttinn, sem gæfí mesta möguleika. „Hann býður upp á 10 til 12 stöðvar og við erum með 6 mót- takara þannig að hótelgestir geta valið úr sex stöðvum. Það þarf einn móttakara fyrir hveija stöð Eutelsat-hnötturinn kemur helst til greina HÉR á landi eru það einkum tveir gervihnettir, sem um er að ræða varðandi móttöku á sjónvarpsefni, Intelsat og Eutelsat. Intelsat krefst talsvert viðameiri tækja- búnaðar en Eutelsat, en Skyggnir er í sambandi við þann fyrmefnda og hefur meðal annars tekið við beinum knattspymuútsendingum í gegnum hann. Eutelsat er því sá gervihnöttur, sem helst kemur til greina með þeim skermum sem nú em á boðstólum á viðráðanlegu verði. Von er þó á fleiri sjónvarps- hnöttum upp á himinhvolfíð á þessu ári sem koma til með að auka möguleikana vemlega. Til fróðleiks skal hér birtur listi úr janúarhefti tímaritsins „Cable & Satellite Europe" um þær stöðvar sem Eutelsat býður upp á. ef maður ætlar að ná þeim öllum samtímis." Skúli sagði að þar væri um að ræða eina breska stöð, tvær Evr- ópustöðvar sem senda út frá Hollandi og Belgíu, eina svissn- eska, eina þýska og eina ítalska stöð. I tveimur þessara stöðva væri hægt að ná efni frá klukkan 7 á morgnanna til 1 á nóttunni og í hinum frá hádegi og fram yfír miðnætti. Að sögn Skúla var sótt um leyfí til Pósts og síma og síðan óskað eftir leyfum frá viðkomandi stöðv- um. í sumum tilfellum þyrfti að semja við íslenska umboðsaðila stöðvanna og væm þær samn- ingaviðræður í gangi núna. Hann sagði að ekki væri enn Ijóst með kostnað vegna leyfanna. Greitt væri í eitt skipti fyrir öll til Pósts og síma, sem síðan endurgreiddi til Eutelsat, eiganda gervihnattar- Dreifisendir No. 2 (Bretland) Rás Efni Sendit. klst. á dag. Brenglunarkerfi Áskriftargjald á mán. 11.674 Music Box Popptónlist 18 Hreint 8.60 pund No. 6 (Bretland) 11.650 GHz Sky Channel Almennt skemmtiefni 16 Oak Orion Fríttfyrir viðurk. kapalst. No. 4 (Frakkland) 11.470 GHz TV 5 Franskt menningarefni 3 Hreint tímabundid Frítt New World Channel Trúarleg dagskrá 1-6 Hreint Frítt No. 10 (Þýskaiand) World Net Fréttir og fræðsluþœttir frá Bandarfkjunum 1-2 Hreint Frftt 11.507 GHz No. 7 (Sviss) SAT Valið efni 10 Hreint Frftt 10.986 GHz No. 9 (Belgfa) Teleclub Kvikmyndir 8 Hreint tímab. 8.80 pund 11.138 GHz Film Net Kvikm. og skemmtiefni 8-9 Hreint tímab. 8.50 pund No. 2 (Þýskaland) East Spotbeam 11.055 GHz 3SAT Þýsktefni Ýmislegt 5-6 Hreint Frftt No. 1 (Ítalía) 11.005 GHz RAI Almenn dagskrá ítalska sjónv. Hreint Frítt No. 3 (Holland) 11.170 GHz Luxemburg Europa TV Dagskrá frá evrópskum sjónvarpst. 3 Hreint tímabundid . Frítt East Spotbeam 11.085 GHz RTL-Plus Almennt skemmtiefni 5 Hreint Frítt Tillögnr Félags fasteignasala og félagsmálaráðuneytis: Lægri útborgun og lengri greiðslufrestur á fasteignum FÉLAG fasteignasala og félags- málaráðuneytið hafa kynnt nýjar hugmyndir að breyttum greiðslu- kjörum í fasteignaviðskiptum. Samkvæmt þeim er gert ráð fyrir að útborgnn í fasteignaviðskipt- um sé ekki hærri en 60% af sölu- verði. Útborgunin greiðist á einu ári eins og verið hefur en eftir- stöðvarnar eru verðtryggðar og ekki lánaðar til skemmri tíma en sjö ára. Lánin bera fasta vexti 3—5% og eru með greiðslujöfnun sem á að tryggja lántakanda gegn skyndilegum tímabundnum hækkunum afborgana vegna vixlhækkana lánskjaravísitölu og launa. Á fundi með blaðamönnum kom fram að hugmyndir þessar eru ár- angur starfshóps sem reynt hefur að leita leiða til að bæta kjör fast- eignakaupenda. Síðustu misseri hafa skapast breyttar og erfíðar aðstæður fyrir kaupendur fast- eigna, en meðal ástæðna fyrir þeirrri þróun má nefna víxlgengi iauna og lánskjara. Fasteignasala hefur dregist saman, seldum eign- um hefur fækkað verulega frá 1981 og verð á fasteignum nú hið lægsta frá 1978. í könnunum hefur komið í ljós að um 35% af öllum kaupend- um eru að kaupa í fyrsta sinn og ungt fólk er í meirihluta kaupenda fasteigna. Fjöldi seidra eigna fer fækkandi þrátt fyrir stóran hóp ungs fólks sem áhuga hefur á að koma sér upp húsnæði en treystir sér ekki til að standast þær skuld- bindingar sem núverandi greiðslu- kjör gera ráð fyrir. Aðalvandi þessa hóps er há útborgun og stuttur greiðslutími. Starfshópurinn velti fyrir sér tillögum tii úrbóta og sá fram á að lækka þyrfti útborgun og lengja greiðslufrest til að gera fasteignakaup möguleg, einkum fyrir þá sem eru að kaupa í fyrsta sinn svo og þá sem eru að stækka við sig vegna breyttra fjölskylduað- stæðna en skulda talsvert í þeirri fasteign sem þeir þurfa að selja. Þar að auki er með greiðslujöfnun tryggt að afborganir af lánum fari ekki upp fyrir ákveðið „þak“, sem nefnt er greiðslumark. Ef afborgan- ir skerðast sökum þess að þær fara upp fyrir greiðslumarkið er mis- muninum bætt við höfuðstól láns- ins. Öll skuldin er þannig alltaf verðtryggð og ber vexti. Á vegum Félags fasteignasala og félagsmálaráðuneytisins hefur verið gefínn út upplýsingabækling- ur um hin nýju og breyttu kjör ásamt almennum upplýsingum um fasteignaviðskipti og mun bækling- urinn liggja frammi á fasteignasöl- um og kynntur kaupendum og selj- endum fasteigna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.