Morgunblaðið - 22.01.1986, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986
Amnesty International:
Fangar mánaðarins
—janúar 1986
Mannréttindasamtökin Am-
nesty Intemational vilja vekja
athygli almennings á máli eftir-
farandi samviskufanga í janúar.
Jafnframt vonast samtökin til að
fólk sjái sér fært að skrifa bréf
til hjálpar þessum föngum og
sýna þannig í verki andstöðu sína
við að slík mannréttindabrot eru
framin.
Júgóslavía: Radomir Veljkovic
er fyrrverandi foringi í hemum,
sextugur að aldri. Á árunum
1969—1972 gaf hann út nokkrar
stefnur á hendur Tito, fyrrverandi
forseta, þar sem hann dró Tito til
ábyrgðar á meintri brotlegri hegðun
öryggislögreglunnar. í kjölfar þess
var hann í marz 1973 dæmdur
sekur um að „rýra álit ríkisins" og
flytja „flandsamlegan áróður", en
talinn ósakhæfur og „hættulegur
umhverfí sínu“, og var því dæmdur
til að flytjast á geðveikrahæli. Þetta
stingur mjög í stúf við niðurstöður
5 eldri geðrannsókna sem hann
gekkst undir að eigin vilja þegar
atvinnuleysi beið hans eftir að hann
hafði verið látinn hætta í hemum
árið 1967. í öllum tilvikum var
niðurstaðan sú að hann væri heill
á geðsmunum og fullfær um vinnu.
Veljkovic staðhæfir áfíýjun dóms-
ins að hvorki honum né þeim lög-
fræðingum sem hann kaus sér hafí
verið leyft að vera viðstaddir réttar-
höldin.
Líbýa: Tíu manns em enn í fang-
elsi síðan yfírvöld Líbýu hófu menn-
ingarbyltinguna í apríl 1973, en þá
vom 3-400 manns handteknir.
Opinber yfírlýsing frá þessum tíma
hljóðar svo: „Við munum fangelsa
þá sem em pólitískt sjúkir...
kommúnista, Marxista, guðleys-
ingja, bræðraregiu Múhameðstrú-
armanna sem stundar leynilegar
aðgerðir .. .hvem sem flytur áróður
fyrir vestræn ríki eða boðar kapítal-
isma.“ Þessri 10 fangar vom
ákærðir í júní 1974 fyrir að skrifa
gagnrýni á stjómina, og fyrir að
eiga aðild að ólöglegum samtökum
(Frelsisflokki Múhameðstrúar-
manna), sem hefði það markmið
að steypa stjóminni. Horfíð var frá
réttarhöldum síðar á árinu og föng-
unum sleppt, en þeir vom teknir
aftur samdægurs. 19. feb. 1977 var
einn þeirra dæmdur í 5 en hinir í
15 ára fanglsi, en ríkisstjómin
breytti öllum dómnum í ævilangt
fangelsi. Samkvæmt heimildum AI
var réttað aftur í máli 4 af fongun-
um í apríl 1983 og þeir dæmdir til
dauða, og einn líflátinn. AI hefur
leitað eftir staðfestingu líbýskra
yfírvalda á þessu án árangurs.
Filippseyjar: Fjórir menn em enn
í haldi síðan í maí—júní 1982 þegar
a.m.k. 26 manns, flestir bændur,
vom handteknir í hémðunum Ba-
lamba og Asturias og kærðir fyrír
uppreisn, vegna meintrar aðildar
að nýja þjóðarhemum (NPA), sem
er vopnaði armurinn í kommúnista-
flokki Filippseyja. Einn dó í haldi,
en þrýst var á flesta hina að játa
sekt sína til að verða sleppt. Alberto
de la Cmz, 34 ára grasalæknir, og
bændumir Leopoldo Gonzales, 66
ára, Innocento Requirón, 44 ára,
og Gregorio Algabre, 53 ára létu
að sögn einnig undan hótunum og
játuðu aðild að NPA, en breyttu
síðan vitnisburði sínum og neita nú
öllum sakargiftum. Gonzales sagði
eitt sinn í brefi til félaga í AI: „Við
munum heldur týna lífínu en játa.
Guð veit að við emm saklausir."
Þeir sem vilja leggja málum
þessara fanga lið, og þá um leið
mannréttindabaráttu almennt, em
vinsamlegast beðnir að hafa sam-
band við skrifstofu íslandsdeildar
Amnesty, Hafnarstræti 15, Reykja-
vík. Þar fást nánarí upplýsingar
sem og heimilisföng þeirra aðila
sem skrifa skal til. Einnig er veitt
aðstoð við bréfaskriftir ef óskað er.
Morgunblaðið/J6n Sig.
Kári Snorrason (fyrir miðju) á brúarvæng Gissurar hvita ásamt Ævari Kögnvaldssyni (til hægri) og
Gunnari Ólafssyni.
Kári Snorrason á Blönduósi:
Fiskveiðasjóður tók
ekki hæsta boði í Helera S.
Blönduósi, 18.janúar. ^
„ÞAU virðast skrítin vinnubrögðin hjá Fiskveiðasjóði,“ sagði Kári
Snorrason framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Særúnar á
Blönduósi í samtali við Morgunblaðið. Særún hf. gerði 70,6 millj.
kr. tilboð i 240 tonna bát, Helga S. frá Keflavík, sem Fiskveiðasjóður
átti. Ekki var gengið að þessu tilboði, heldur var 68 millj. króna
tilboði frá Samherja á Akureyri tekið. Kári sagði ennfremur, að
ekki hefði verið kannað af hálfu sjóðsins með tryggingar á greiðslum
hæstbjóðanda.
„Það er greinilegt að þessi sala
á bátnum Helga S. var fyrirfram
ákveðin. Það var varla liðin sólar-
hringur frá því Samheiji á Akureyri
eignaðist bátinn og þar til þeir vom
búnir að selja hann til Haftiarfjarð-
ar í skiptum fyrir dýrara skip.“
Kári Snorrason sagði, að Særún
hf. hefði í tvígang sent Fiskveiða-
sjóði bréf og óskað skýringa á því
hversvegna hæsta tilboði var ekki
tekið en ekkert svar hefði borist
frá sjóðnum.
Aðspurður um gang rækju- og
skelveiða sagði Kári Snorrason að
rækjuveðum mundi ljúka um næstu
mánaðamót, því þá væri kvótinn
fylltur. Rækjukvóti Blönduóss er
mjög lítill samanborið við ná-
grannabyggðarlög en hann er 270
tonn af rækju. Við Særúnarmenn
emm afar óhressir með skiptinguna
á rækjukvótanum við Húnaflóann.
Blönduósingar hafa einungis 10%
af kvótanum en Hólmvíkingar og
Drangsnes hafa 50%, Skagaströnd
22% og Hvammstangi hefur 18%.
Öðm máli virðist gegna um skelkvó-
tann en hann skiptist jafti milli
þessara byggðarlaga. Þess skal þó
getið að Blönduósingar em fmm-
kvöðlar í skelfískveiðum við Húnaf-
lóann og höfðu á sínum tíma yfír
50% af kvótanum. Þetta jaðrar við
valdníðslu af hálfu sjávarútvegs-
ráðuneytisins sagði Kári Snoorra-
son varðandi skiptinguna á rækjuk-
vótanum.
Ef ekki fæst leiðrétting á kvótan-
um verður að leggja tveimur bátum
og segja upp eitthvað af starfsfólki
um næstu mánaðamót. Skelfískk-
vótinn er 450 tonn og er honum
skipt jafnt á milli staða við Húnaf-
lóann eins og áður hefur komið
fram. Ætli skelin endist ekki eitt-
hvað fram í marsmánuð sagði Kári
Snorrason að lokum.
— Jón Sig.
Fundur Samtaka um jafnrétti milli landshluta í Sjallanum:
„Fyrst og fremst til að
létta á störfum alþingis“
— segir Pétur Valdimarsson, formaður Samtakanna
um hugmyndir að breyttri stjórnskipan
Akureyri, 20. janúar.
SAMTÓK um jafnrétti milli landshluta héldu fund í Sjallanum á
laugardag til að kynna drög að nýrri stjómarskrá sem samin
hefur verið af nefnd innan samtakanna. Frummælendur á fundin-
um vora þingmenn Norðurlandskjördæmis eystra auk fulltrúa
samtakanna. Um 250 manns komu á fundinn.
Halldór Blöndal var einn frum- annars staðar,“ sagði Halldór.
mælenda. Hann sagði ljóst að
hugmyndir samtakanna um
breytta stjómarskrá fælu í sér
gjörbreytta stjómskipan - „Al-
þingi verður vængstýft og forset-
inn mun dragast inn í dægurpóli-
tík með því að honum verður gert
að bera ábyrgð á verkum ríkis-
stjómar eins og hveijum ráðherra
gagnstætt því sem nú er - er
forsetinn stendur fyrir ofan Al-
þinp og ríkisstjóm sem samein-
ingartákn," sagði Halldór.
Þá sagði Halldór það hafa vald-
ið sér vonbrigðum að Kolbrún
Jónsdóttir alþingismaður og Pétur
Valdimarsson, formaður samtak-
anna, „skyldu leggja lykkja á leið
sína til að lýsa andstöðu við það
að Byggðastofnun verði á Akur-
eyri. Sem skýrir í hnotskum hvers
vegna stijálbýlið stendur höllum
fæti gagnvart Reykjavíkursvæð-
inu. Byggðastofnun er við lýði og
það starf sem þar er unnið verður
unnið áfram. Spumingin er bara
hvort það verði í Reykjavík eða
Pétur Valdimarsson, formaður
Samtaka um jafnrétti milli lands-
hluta, sagði góða gagnrýni hafa
komið frá alþingismönnunum.
„Það sem við höfum útbúið em
ekkert annað en drög til að vinna
enn meira úr. Þess vegna eru allar
nýjar góðar tillögur vel þegnar.“
Aðalbaráttumál samtakanna er
að aðskilja löggjafar-, fram-
Frá fundinum i Sjallanum á laugardaginn. Morgunblaðið/Skapti Hallgrimsson
Pétur Valdimarsson, formaður
Samtaka um jafnrétti milli
landshluta.
kvæmda- og dómsvald betur en
nú. í því formi að framkvæmda-
valdið verði flutt út í héruðin.
„Með þessu móti er fyrst og
fremst verið að létta á störfum
Alþingis — til að það geti snúið
sér betur að löggjafarvaldinu.
Menn eru sammála um að dreifa
valdinu en spumingin er um að-
ferðir," sagði Pétur.
í drögum samtakanna að
stjómarskrá er lagt til komið verði
á fylkisþingum. Landinu yrði skipt
í 5 fylki sem ráða sjálf málefnum
sfnum. „Það yrði hlutverk fylkis-
þinganna að ákveða framkvæmdir
— hvar við byggðum hafnir, skóla,
vegi o.s.frv. Alþingi á ekki að
þurfa að hafa áhyggjur af því,“
sagði Pétur Valdimarsson.
Háskólaráðsfundur:
Lögð fram til-
laga um að mót-
mæla stöðu-
veitingum
Á háskólaráðsf undi sl. fimmtu-
dag var lögð fram tillaga til
ályktunar frá Páli Skúlasyni
deildarforseta heimspekideildar
um að háskólaráð mótmæli
stöðuveitingum þar sem gengið
er fram hjá áliti dómnefnda og
afgreiðslu deilda.
Höskuldur Þráinsson varadeild-
arforseti heimspekideildar kjmnti
tillöguna á fundi ráðsins þar sem
Páll er erlendis, og var afgreiðslu
frestað fram til næsta fundar há-
skólaráðs að ósk Páls Skúlasonar
deildarforseta þar sem hann vildi
fylgja tillögunni eftir.
Barðaströnd:
5 hús í smíðum
Innri-Múla, Barðaströnd.
Á Krossholtum eru í smíðum
raðhús með fjórum íbúðum og
hefur ungt fólk héðan úr svcit-
inni fest kaup á þeim. Einnig er
verið að smíða íbúðarhús í Haga
og er það refabóndi, sem byggir
það.
Jólaskemmtun var haldin í fé-
lagsheimilinu Birkimel 29. desem-
ber og komu þar saman ungir sem
aldnir sér til skemmtunar. Yngsti
samkomugesturinn var tæplega 2ja
mánaða og sá elzti 85 ára.
SJ.Þ.